DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 724.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Feel Free

Prjónuð peysa með v-hálsmáli, sjalkraga og ¾ ermum úr DROPS Alpaca Bouclé. Stærð S - XXXL.

DROPS 177-16
DROPS Design: Mynstur-073
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-350-400 g litur 0100, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á greidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 724.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA-1:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 252 lykkjur) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 9. Í þessu dæmi þá er prjónuð 8. og 9. hver lykkja saman.

ÚRTAKA-2 (á við um v-hálsmál):
Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli innan við 10 lykkjur með garðaprjóni fyrir sjalkraga við miðju að framan + síðan útauknar lykkjur fyrir sjalkraga. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 10 lykkjum í garðaprjóni þannig + útauknar lykkjur fyrir sjalkraga: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 l sl, steypið síðan óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkju á undan 10 lykkjum í garðaprjóni þannig + útauknar lykkjur fyrir sjalkraga: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING-1 (á við um sjalkraga):
Aukið út um 1 lykkju innan við ystu lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að v-hálsmáli, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjóna til loka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 216-232-248-264-288-312 lykkjur á hringprjóna nr 5 með Alpaca Bouclé. Skiptið yfir á hringprjóna 4,5 og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff í hring (= 3 l sl, 5 l br). Þegar stykkið mælist 5 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 24-28-32-28-32-36 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-1= 192-204-216-236-256-276 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar og 1 prjónamerki á eftir 96-102-108-118-128-138 lykkjum (= á hliðum). Skiptið yfir á hringprjóna 5 og prjónið sléttprjón.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 25-27-27-29-29-29 cm prjónið næstu umferð þannig: 43-46-49-54-59-64 l slétt, prjónið brugðið yfir 10 næstu lykkjur (= miðja að framan), prjónið slétt út umferðina.
Prjónið 1 umferð slétt, en í stað þess að enda umferðina í hlið, haldið áfram með slétt fram að 10 lykkjum við miðju að framan. Prjónið nú upp 1 lykkju á bakhlið á hverri og einni af 10 lykkjunum (prjónið upp 1 lykkju í hverja lykkju) = 202-214-226-246-266-286 lykkjur á prjóni. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka frá miðju að framan með 10 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið fyrir sjalkraga.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
V-HÁLSMÁL: Þegar prjónaðar hafa verið 5 umferðir fram og til baka byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu – LESIÐ ÚRTAKA-2. Fellið af fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið við miðju að framan í 6. hverri umferð alls 3-3-4-4-5-5 sinnum, síðan í 10. hverri umferð alls 2 sinnum í öllum stærðum.
SJALKRAGI: JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 20 umferðir í garðaprjóni í hvorri hlið er aukið út fyrir sjalkraga í 8. hverri umferð alls 5 sinnum í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-1.
HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm skiptist stykkið við prjónamerki í hvorri hlið og fram- og bakstykki er prjónað síðan hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 96-102-108-118-128-138 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og fitjið upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið (= kantlykkja fyrir saum) = 98-104-110-120-130-140 lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm fellið af miðju 18-18-20-20-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjón og fækkið um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 39-42-44-49-53-58 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm og fellið af – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og garðaprjóni JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli og aukið út fyrir sjalkraga eins og áður. Að auki er fitjuð upp 1 ný lykkja í hlið (= kantlykkja fyrir saum). Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm fellið af ystu 39-42-44-49-53-58 lykkjur á öxl – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur = 15 lykkjur eftir á prjóni í öllum stærðum fyrir sjalkraga. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar lykkjur í 8-8-8-8-9-9 cm frá þar sem axlalykkjurnar voru felldar af og setjið lykkjurnar á þráð.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið síðan alveg eins og vinstra framstykki, nema með útaukningu og úrtöku í gagnstæðri hlið.

ERMI:
Fitjið upp 40-40-40-40-48-48 lykkjur á sokkaprjóna 5 með Alpaca Bouclé. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 3 l sl, 5 l br). Þegar stykkið mælist 5 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-2-0-0-6-4 lykkjur jafnt yfir = 36-38-40-40-42-44 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 7-8-8-8-7-6 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Aukið svona út alls 11-12-12-14-15-15 sinnum í stærð S: Í 4. hverri umferð, í stærð M + L: Í 3. hverri umferð og í stærð XL + XXL + XXXL: Í annarri hverri umferð = 58-62-64-68-72-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-27-26-24-22-20 cm fellið af allar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur.
Saumið kragann saman við miðju að aftan með lykkjuspori og saumið kragann við hálsmál aftan við hnakka – saumurinn á að snúast inn að röngu. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag G REY wrote:

Hallo! Gibt es von dem Pullover noch mehr Fotos? Wie sieht er von hinten aus? Wie sieht der Kragen aus? Gibt es ein Foto, wo ihn jmd im Stehen trägt, damit man sehen kann, wie er fällt? Weder bei Google noch unter dem hashtag #dropsfeelfree konnte ich weitere Informationen finden. Aufgrund der Kommentare würde ich gerne wissen, ob die Anleitung für den Kragen überarbeitet wurde und nun besser verständlich ist? Viele Grüße

30.04.2024 - 20:21

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rey, Rückenteil wird einfach glatt rechts gestrickt, deshalb sind es keine weitere Fotos, aber bei Ravelry finden Sie Fotos von Strickerinnen, vielleicht kann das Ihnen helfen. Viel Spaß beim Stricken!

02.05.2024 - 07:46

country flag Gry Nordby Borge wrote:

Beklager jeg mente 17 m. Jeg har nå laget min egen oppskrift etter å ha strikket tre vrangborder og rekket opp igjen. Har funnet ut at 192 m i vrangbord og 168 i bol tilsvarer mål for str. M/L. 63 cm. Ser at Birgitte Rieks har gjort det samme. Mvh Gry Borge.

22.04.2024 - 16:10

country flag Gry Nordby Borge wrote:

Hvordan skal jeg klare å oppnå strikkefastheten som er oppgitt i oppskriften. Nå har jeg prøvd med pinne 5, 4,5, og 3. Med pinne 3 begynner jeg å nærme meg 14 masker på 10 cm, men antall omganger blir omtrent det dobbelte. Strikker nå str. small på pinne 4,5 og den blir 69 cm nederst på bolen. Mvh Gry Borge

20.04.2024 - 12:39

DROPS Design answered:

Hei Gry. Strikkefastheten til denne genseren er oppgitt til 17 masker på 10 cm, ikke 14 masker. DROPS SETTPINNER OG RUNDPINNE (80 cm) NR 5 – eller de pinnene du må bruke for å få 17 masker og 22 pinner glattstrikk på 10 cm i bredden og 10 cm i høyden. mvh DROPS Design

22.04.2024 - 14:13

country flag Lola wrote:

I don't understand the increase in the shawl collar.

06.12.2022 - 02:14

country flag Riek Van Eerdt wrote:

Waarom staan er op de boord meer steken dan op het voor/achterband?

26.07.2022 - 13:01

country flag Magdalena wrote:

I have a question about the length at which I should start the shawl collar. Is it 27 cm from the beginning of the sweater? The picture shows that the shawl collar is about 20 cm so it wouldn't be long enough... Magda

22.12.2021 - 15:38

DROPS Design answered:

Dear Magdalena, neckline starts when piece measures 27 cm from bottom edge/cast on edge, but note that you will then work a neck edge with 10 sts in garter stitch on each side (the front band stitches will cross at the bottom of the neckline) - or adjust to the required length. Happy knitting!

22.12.2021 - 15:50

country flag MJ wrote:

Looking at: LEFT FRONT PIECE: Continue back and forth in stockinette stitch and garter stitch AT THE SAME TIME decrease for V-neck and increase for shawl collar as before. Cast in addition on 1 new stitch towards the side (= edge stitch for seam). I am confused about what this line of instruction is trying to say: Cast in addition on 1 new stitch towards the side (= edge stitch for seam). Thank you for your time and attention to my query.

14.02.2021 - 21:58

DROPS Design answered:

Dear MJ, correct, you will cast on 1 extra stitch on the first row for the seam allowance at armhole. Happy knitting!

15.02.2021 - 09:35

country flag Susanne wrote:

Hallo liebes Drops Team! Ich komme mit den Abnahme für den Schalkragen nicht zurecht. Er ist schief geworden. Ich denke ich mache die Abnahmen falsch. Wie oft muss ich nach jeder 6.Reihe abnehmen und wie oft nach der 10.Reihe.Könnt ihr darauf bitte noch mal näher eingehen. Danke und viele Grüße!

30.01.2021 - 09:37

DROPS Design answered:

Liebe Susanne, für den V-Ausschnitt sollen Sie je nach der Größe 3 bis 5 Mal in jeder 6. Reihe + 2 Mal in jeder 10. Reihe abnehmen - gleichzeitig, nach 10Krausrippen/20 Reihen über die Maschen für den Schalkragen nehmen Sie für den Kragen zu (= siehe ZUNAHMETIPP-1) dh die Maschenanzahl von Kragen nimmt zu und die Maschen für den Schulter nimmt ab (= V-ausschnitt). Viel Spaß beim stricken!

01.02.2021 - 08:22

country flag Hilde Hilde wrote:

Hoi, ik kan absoluut niet uit de voeten met rondbreinaalden. Kan u dit patroon ook \'vertalen\' naar gewone breinaalden a.u.b. Ik heb de wol inmiddels al gekocht...\r\nDank u!

29.07.2019 - 12:50

country flag Renata Morselli wrote:

Vorrei lavorare un gardigan aperto davanti, con il collo a scialle per un bimbo misura 2 anni. Dove trovo un modello simile a questo, nel vostro catalogo?

23.05.2019 - 10:38

DROPS Design answered:

Buongiorno Renata. A questo link trova i cataloghi con i modelli proposti per bimbi fino a 3 anni. Molto probabilmente un modello simile a quello indicato, non c’è, ma può comunque provare a verificare se trova un modello che possa essere di suo gradimento. Buon lavoro!

23.05.2019 - 11:03