DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Extra 0-1159
DROPS Design: Mynstur nr ai-008
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio
300-350-350-400-450-500 gr litur nr 04, milligrár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 19 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkað er um 1 l hvoru megin við hvert A.1 (= 8 l færri í umf).
Fækkið lykkjum á undan A.1 þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan A.1, 2 l slétt saman (= 1 l færri).
Fækkið lykkjum á eftir A.1 þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 1 l færri).

Fækkið um 2 l hvoru megin við hvert A.1 þannig (= 16 l færri í umf):
Fækkið lykkjum á undan A.1 þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan A.1, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).
Fækkið lykkjum á eftir A.1 þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Þegar fellt er af fyrir hálsmáli er prjónað áfram fram og til baka. Byrjun umf = miðja að aftan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 176-188-204-224-244-268 l á hringprjóna nr 5 með Air.
Prjónið stroff (2 l sl, 2 l br) í hring í 6 cm.
Prjónið síðan sléttprjón til loka. Í næstu umf er skipt yfir á hringprjóna nr 6 og lykkjum fækkað um 32-32-36-40-44-48 l jafnt yfir = 144-156-168-184-200-220 l.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm fellið af l fyrir handvegi í hvorri hlið þannig: Prjónið 31-34-37-41-45-50 l sléttprjón (= hálft bakstykki), fellið af 10 l undir ermi, 62-68-74-82-90-100 l sléttprjón (= framstykki), fellið af 10 l undir ermi, prjónið þær 31-34-37-41-45-50 l sem eftir eru (= hálft bakstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/hringprjóna.
Fitjið upp 40-40-44-44-44-48 l á sokkaprjóna nr 5. Prjónið stroff (2 l sl, 2 l br) í 4 cm. Prjónið síðan sléttprjón til loka. Í næstu umf er skipt yfir á sokkaprjóna/hringprjóna nr 6 og fækkað um 5-3-5-3-3-7 l jafnt yfir = 35-37-39-41-41-41 l. Þegar ermin mælist 8 cm í öllum stærðum setjið prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í 6.-6.-6.-6.-5.-5. hverri umf 8-7-3-3-14-7 sinnum til viðbótar, eftir það í 5.-5.-5.-5.-4.-4. hverri umf 6-7-12-12-2-11 sinnum = 65-67-71-73-75-79 l. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 54-53-53-53-53-53 cm eru felldar af 10 l undir ermi (= 5 l hvoru megin við prjónamerki) = 55-57-61-63-65-69 l eftir á ermi.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 234-250-270-290-310-338 l. Nú er haldið áfram í sléttprjóni og mynstur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma frá byrjun umf. Haldið áfram í sléttprjóni yfir fyrstu 28-31-34-38-42-47 l, A.1 (= 7 l), sléttprjón yfir næstu 47-49-53-55-57-61 l, A.1, 56-62-68-76-84-94 l sléttprjón, A.1, 47-49-53-55-57-61 l sléttprjón, A.1, 28-31-34-38-42-47 l sléttprjón. Haldið svona áfram, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan og fellt er af fyrir hálsmáli þannig: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM:

LASKALÍNA:
ATH: Haldið er áfram hringinn þar til felldar eru af l fyrir hálsmáli. Berustykkið er síðan prjónað fram og til baka.
Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í annarri hverri umf/hverri umf frá réttu 15-16-16-17-18-18 sinnum til viðbótar (= 8 l í hverri úrtöku), fellið síðan af 2 l hvoru megin við hverja laskalínu (= 16 l hver úrtaka). Endurtakið úrtöku 1-1-2-2-2-3 til viðbótar.
ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm fellið af miðju 14-16-16-16-18-20 l á framstykki fyrir hálsmáli. Prjónið síðan fram og til baka og síðasta l við hálsmál er prjónuð í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið síðan af 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni hvoru megin við hálsmál – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf til loka. ATH: Úrtaka fyrir hálsmáli fellur yfir úrtöku fyrir laskalínu á framstykki. Þ.e.a.s. þegar ekki eru nægilega margar l til að fella af í laskalínu á framstykki, heldur úrtaka áfram fyrir hálsmáli yfir A.1.

Þegar laskalína og hálsmál er lokið eru ca 44-48-50-56-62-68 lykkjur aftur á prjóni. Stykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm mælt frá öxl. Prjónið nú upphækkun í hnakka. Byrjið frá réttu og prjónið eins og áður þar til 7 l eru eftir, snúið við, herðið á þræði, prjónið til baka þar til 7 l eru eftir, snúið við, herðið á þræði, prjónið þar til 10 l eru eftir, snúið við, herðið á þræði, prjónið þar til 10 l eru eftir, snúið við, herðið á þræði, prjónið þar til 13 l eru eftir, snúið við, herðið á þræði, prjónið þar til 13 l eru eftir, snúið við, herðið á þræði, prjónið þar til 16 l eru eftir, snúið við, herðið á þræði, prjónið þar til 16 l eru eftir. Fellið af.

SJALKRAGI:
Byrjið við miðju að framan í hægri hlið við l sem voru felldar af fyrir hálsmáli. Prjónið upp á hringprjóna nr 5 með Air: 43-45-46-48-50-52 l upp að öxl, síðan eru prjónaðar upp 26-27-27-27-29-29 l aftan í hnakka og að enda 43-45-46-48-50-52 l niður meðfram vinstri hlið á úrtöku fyrir hálsmáli = 112- 117-119-123-129-133 l. (Ekki eru prjónaðar upp l þar sem l voru felldar af framan við í hálsmáli). Prjónið 1 umf slétt frá röngu, JAFNFRAMT er aukið út um 4-7-5-5-7-7 l jafnt yfir = 116-124-124-128-136-140 l. Prjónið nú stroff (frá réttu) þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir og endið á 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til sjalkraginn mælist ca 6 cm. Aukið nú út um 1 l í hverja og eina af miðju 14 brugðnu mynstureiningum, séð frá réttu (= aftan í hnakka) = 130-138-138-142-150-154 l. Prjónið áfram þar til sjalkraginn mælist 10-11-11-11-12-13 cm, fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Leggið kragann tvöfaldan (vinstri hlið yfir hægri hlið) neðst í opi á hálsmáli og saumið fallega niður við hálsmál að framan í gegnum bæði stykkin. Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.08.2021
Nýtt efnismagn: DROPS AIR frá Garnstudio 300-350-350-400-450-500 gr litur nr 04, milligrár

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Aberdeen

Lelia Scott, United States

Aberdeen

Kammya, India

712. Aberdeen

Olajda, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1159

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (259)

country flag Maria wrote:

I finished the ribbing. The pattern says to switch to larger needles for the body and then decrease stitches — am I supposed to decrease the stitches on the first row after the ribbing is done or before binding off for the armholes?

04.03.2022 - 00:23

DROPS Design answered:

Dear Maria, after the ribbing edge at the bottom of body, you switch to larger needle and knit one round decreasing stitches evenly ( you should now have 144 to 220 sts on needle, depending on your size). Then work straight til piece measures 42 to 47 cm and now bind off for armholes. Happy knitting!

04.03.2022 - 11:04

country flag Inger Nissen wrote:

Nu skal jeg ha strikket forhøjningen i nakken: Er det over alle masker, der skal strikkes inkl. Skuldermaskerne øverst? Eller skal jeg blot strikke forhøjning over maskerne i mellem ærmerne. Enten er det jo kun ca 28masker eller det er ca 72 masker...

25.02.2022 - 22:57

DROPS Design answered:

Hei Inger. Når raglan- og halsfellingen er ferdig skal du ha ca 44-48-50-56-62-68 masker på pinnen. Når du strikker forhøyningen starter du fra retten og strikker som før over alle maskene, men til det gjenstår 7 masker, snu, stram tråden, strikk tilbake til det gjenstår 7 masker, snu, stram tråden, strikk til det gjenstår 10 masker, snu stram tråden, strikk til det gjenstår 10 masker, snu, stram tråden, strikk til det gjenstår 13 masker, snu, stram tråden, strikk til det gjenstår 13 masker, snu stram tråden, strikk til det gjenstår 16 masker, snu stram tråden, strikk til det gjenstår 16 m. Så feller du av. mvh DROPS Design

28.02.2022 - 16:37

country flag Neli wrote:

Bonjour, j'ai tricoté ceci avec des montages provisoires pour les manches. Le patron est bon selon moi.

21.02.2022 - 16:26

country flag Tina wrote:

🙏 chiedo scusa, ma non sono sicura di aver ben capito: le diminuzioni subito prima/dopo le m. di vivagno nello scollo, devono essere fatte subito? Cioè, quando intreccio le m. centrali per lo scollo, e riparto avanti e indietro sui ferri facendo le m. di vivagno, parto subito anche con le diminuzioni, giusto? Grazie ancora, e, scusate ancora!!!!! Vi adoro, siete sempre i migliori del mondo ❤️

07.02.2022 - 02:34

DROPS Design answered:

Buonasera Tina, si esatto, quando intreccia le maglie per il collo deve iniziare anche le diminuzioni. Buon lavoro!

09.02.2022 - 21:52

country flag Tina wrote:

Volevo chiedere quand'è che si passa da 1 a 2 diminuzioni per volta, quando le si fanno per il raglan/scollo.. Grazie mille!!

03.02.2022 - 23:48

DROPS Design answered:

Buonasera Tina, deve seguire quanto riportato nel paragrafo RAGLAN delle spiegazioni, dove è indicato per quante volte diminuire 1 maglia per ogni taglia prima di diminuire 2 maglie. Buon lavoro!

05.02.2022 - 20:57

country flag Muller Céline wrote:

Je n'arrive pas à trouver combien de pelotes il me faut pour la taille L. Merci pour votre réponse

30.01.2022 - 14:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Muller, la quantité requise pour chaque taille est toujours indiquée au poids dans l'en-tête, autrement dit, il vous faudra en L 350 g / 50 g la pelote = 7 pelotes DROPS Air . Bon tricot!

31.01.2022 - 09:44

country flag Brenda Koopman wrote:

Ik ben op de hoogte dat ik 50 steken over zou moeten hebben (L), maar heb er 74. Oorzaak: op het voorpand heb ik de laatste 6 rechte toeren niet de 4 steken mindering kunnen doen, doordat de v-hals de raglans kruist. Uithalen dus. Maar hoe doe ik die minderingen dan wél op het voorpand, daar waar de raglans kruisen met de v-hals?

07.01.2022 - 21:32

DROPS Design answered:

Dag Brenda.

Het zou kunnen dat je stekenverhouding niet klopt waardoor je sneller op een hoogte bent van 47 cm om de steken voor de hals af te kanten. Je zou dus een paar naalden later kunnen beginnen met de hals.

12.01.2022 - 09:48

country flag Annick wrote:

Bonjour, serait-il possible d'avoir le tour de poitrine sur le schéma du modèle ? Merci d'avance pour votre réponse !

29.12.2021 - 20:04

DROPS Design answered:

Bonjour Annick, le tour de poitrine est 48-52-56-61-67-73 cm x 2 (selon la taille trciotee). Bon tricot!

30.12.2021 - 19:39

country flag Erika Griesmayr wrote:

Bei meiner Maschenprobe erhalte ich bei 17 Maschen (Nadel Nr.6) die 10cm, aber mit den 19 Reihen nur 9cm. Was raten Sie mir? LG Erika

14.12.2021 - 12:13

DROPS Design answered:

Liebe Frau Griesmayr, versuchen Sie nochmal mit grösseren Nadeln - hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!

14.12.2021 - 16:52

country flag Gunnel Bäckman wrote:

Hej, Jag undrar hur man skall avmaska i halsen. När jag gjort alla varven har jag maskor kvar på båda stickorna. 16 på en och alla de andra maskorna på den andra. Jag förstår inte riktigt hur jag skall göra. Skall jag sticka hela varvet och sedan maska av.

05.12.2021 - 19:57

DROPS Design answered:

Hei Gunnel. Vi skal hjelpe deg så godt vi kan, men fint om du skriver hvor du er i oppskriften (halsfellinge, ved forhøyningen i nakken eller) Og husk å oppgi hvilken str du strikker. mvh DROPS Design

07.12.2021 - 14:27