Checkmate Cardigan |
||||
|
||||
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Alpaca með dominoferningum og laskalínu. Stærð S - XXXL
DROPS 165-13 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MÆLING: Vegna garðaprjóns koma ermar til með að teygjast um ca 5 cm á lengdina þegar stykkið er tilbúið. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. LEIÐBEININGAR 1: Til þess að sleppa við að festa alla enda þá er hægt að prjóna 1. röð í hverjum ferning með 2 sér dokkum (1 af hvorri tegund). Í stað þess að klippa frá þá getur dokkan fylgt með ferningnum í röðinni. LEIÐBEININGAR 2: Lykkjur eru alltaf prjónaðar upp frá réttu. RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Fram- og bakstykki eru prjónuð í röndum þannig: Prjónið alltaf upp l með Alpaca, prjónið síðan 1 umf frá röngu með Alpaca, prjónið 2 umf með Alpaca. Prjónið síðan * 2 umf með Fabel, 2 umf með Alpaca *, endurtakið frá *-*. RENDUR Á ERMUM: Prjónað er í röndum þannig: UMFERÐ 1: sl frá réttu með Alpaca UMFERÐ 2: br frá röngu með Alpaca UMFERÐ 3: sl frá réttu með Fabel UMFERÐ 4: sl frá röngu með Fabel Endurtakið þessar 4 umf. HEILL DOMINOFERNINGUR: Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétt): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sl út umf. Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. fellið af 2 l mitt í ferningnum í annarri hverri umf þar til 1 l er eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l. HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (lóðrétt): 6 kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni þar til hálfur ferningurinn hefur verið prjónaður. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 6 kantlykkjur að framan, 2 l slétt saman, prjónið út umf. Prjónið gagnstætt á ferning í hinni hliðinni á stykki, þ.e.a.s. prjónið sl þar til 8 l eru eftir (með kanti að framan), 2 l slétt saman, 6 kantlykkjur að framan. Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. fækkið um 1 l á ferning (við kant að framan) í annarri hverri umf þar til 1 l (+ 6 kantlykkjur að framan) eftir. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þessa l. Setjið 6 kantlykkjur að framan á þráð. HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (lárétt): Prjónið eins og heill domino-ferningur, en án þess að fella af í miðju á ferningi, setjið síðustu l í lok hverrar umf á þráð. Haldið svona áfram þar til 5-5-3-3-3-3 l eru eftir á prjóni. STÆRÐ S-M: 5 l eftir á prjóni (= 6-7 l á þræði í hvorri hlið). Prjónið 1 umf slétt frá röngu og setjið síðustu l í lok umf á þráð. Næsta umf (frá réttu) er prjónuð þannig: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir. Setjið síðustu l í lok umf á þráð (= 7-8 l á þræði). Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l á prjóni. STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL: 3 l eftir á prjóni (8-9-10-11 l á þræði í hvorri hlið). Prjónið 1 umf slétt frá röngu yfir 3 l. Næsta umf (= frá réttu) er prjónuð þannig: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Fellið af fyrir hnappagötum í þriðju síðustu umf (= frá réttu) í hvert skipti sem prjónaður er HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (lóðréttur) þannig: Prjónið 3. og 4. l frá miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Stærð S-M-L: Fellið af fyrir hnappagötum í 1.-3.-5.-7.-9. og 11. röð í dominoferning. Stærð XL-XXL-XXXL: Fellið af fyrir hnappagötum í 1.-3.-5.-7. og 9. röð í dominoferning. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið byrjar á að fitjaðar eru upp l fyrir alla breiddina á stykkinu, síðan eru ferningarnir prjónaðir einn og einn, fram og til baka með GARÐAPRJÓN og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. RÖÐ 1: Fitjið upp 319-359-379-419-459-499 l (meðtaldar 6 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með Fabel. Prjónið 1 umf sl frá röngu. Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: 6 l sl (= kantur að framan), * 28-32-34-38-42-46 l sl, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir *, endurtakið frá *-* 9 sinnum og endið á 28-32-34-38-42-46 l sl, 6 l sl (kantur að framan) = 301-341-361-401-441-481 l. Kantur að framan er prjónaður slétt í hverri umf til loka. Prjónið 1 umf slétt til baka yfir allar l. Prjónið síðan HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (lóðrétt) – sjá útskýringu að ofan – yfir fyrstu 20-22-23-25-27-29 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan), byrjið á 2. umf. Hinar l eru eftir á prjóni. Lesið LEIÐBEININGAR 1 og RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan HEILL DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan – yfir næstu 29-33-35-39-43-47 l í umf – byrjið á 2. umf. Þegar dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka er prjónað yfir næstu 29-33-35-39-43-47 l á prjóni á sama hátt. Haldið svona áfram þar til 20-22-23-25-27-29 l eru eftir á prjóni (nú hafa verið prjónaðar 9½ dominoferningar). Prjónið síðan hálfan dominoferning (lóðrétt) og kant að framan yfir þessar l (byrjið á 2. umf). Þegar þessi hálfi ferningur hefur verið prjónaður til loka og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á 1 þráð eru 9 heilir og 2 hálfir dominoferningar í 1. röð. RÖÐ 2: Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram kanti á fyrsta hálfa ferningi – lesið LEIÐBEININGAR 2! Prjónið síðan upp 1 l á milli hálfa fernings og næsta fernings frá röð 1 og prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram hlið á næsta ferning = 29-33-35-39-43-47 l á prjóni. Prjónið síðan heilan dominoferning. Þegar dominoferningurinn hefur verið prjónaður eru prjónaðar upp 29-33-35-39-43-47 l á milli 2 og 2 ferninga frá röð 1 þar til prjónaðir hafa verið 10 heilir dominoferningar í röð 2. RÖÐ 3: Setjið til baka 6 kantlykkjur að framan á prjóninn, prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram kanti á fyrsta ferning sem prjónaður var í röð 2 = 20-22-23-25-27-29 l. Prjónið síðan hálfur dominoferningur (lóðrétt). Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður til loka og 6 kantlykkjur hafa verið settar á þráð eru prjónaðar upp 14-16-17-19-21-23 l frá réttu meðfram kanti í hvorn af næstu 2 ferningum frá röð 2 og 1 l á milli ferninga = 29-33-35-39-43-47 l á prjóni. Prjónið síðan heilan dominoferning. Þegar dominoferningurinn hefur verið prjónaður eru prjónaðar upp 29-33-35-39-43-47 l á milli 2 og 2 ferninga frá röð 2. Haldið svona áfram þar til prjónaðir hafa verið 9½ dominoferningar í röð 3. Prjónið nú upp 14-16-17-19-21-23 l frá réttu meðfram kanti á síðasta ferning, setjið til baka 6 kantlykkjur að framan á prjóninn. Prjónið hálfan dominoferning (lóðrétt). Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð eru 9 heilir og 2 hálfir dominoferningar í röð 3. Endurtakið röð 2 og 3 þar til prjónaðar hafa verið 9-9-9-7-7-7 raðir með domonoferningum. RÖÐ 10-10-10-8-8-8: Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram kanti á hálfa ferningnum. Prjónið síðan upp 1 l á milli hálfa ferningsins og næsta fernings frá fyrri röð. Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram hlið á næsta ferning = 29-33-35-39-43-47 l á prjóni. Prjónið heilan dominoferning. Hoppið yfir á hina hliðina á 3. ferning frá fyrri röð og fyrstu hliðina á 4. ferning frá fyrri röð. * Prjónið upp 29-33-35-39-43-47 l á milli 2 næstu ferninga. Prjónið heilan dominoferning *, endurtakið frá *-* 4 sinnum. Hoppið yfir á hina hliðina frá 8. ferning frá fyrri röð og fyrstu hlið á 9. ferning frá fyrri röð. * Prjónið upp 29-33-35-39-43-47 l á milli 2 næstu ferninga. Prjónið heilan dominoferning *, endurtakið frá *-* 2 sinnum = 2 domino-ferningar í hvoru framstykki, 4 dominoferningar á bakstykki. Hvert stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: RÖÐ 11-11-11-9-9-9: Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram köntum á hverjum og einum af 2 næstu ferningum frá fyrri röð og 1 l á milli ferninga = 29-33-35-39-43-47 l á prjóni. Prjónið heilan dominoferning. Þegar dominoferningurinn er tilbúinn eru prjónaðar upp 29-33-35-39-43-47 l á milli 2 og 2 ferninga. Haldið áfram þar til prjónaðir hafa verið 3 domonoferningar. RÖÐ 12-12-12-10-10-10: Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram kanti á hvorum af næstu 2 ferningum frá fyrri röð og 1 l á milli ferninga = 29-33-35-39-43-47 l á prjóni. Prjónið hálfan dominoferning (lárétt). Þegar domonoferningurinn hefur verið prjónaður til loka eru prjónaðar upp 29-33-35-39-43-47 l á milli 2 næstu ferninga. Prjónið hálfan domonoferning (lárétt). HÆGRA FRAMSTYKKI: RÖÐ 11-11-11-9-9-9: Setjið til baka 6 kantlykkjur að framan á prjóninn, prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram kanti á fyrsta ferning sem prjónaður var frá fyrri röð = 20-22-23-25-27-29 l. Prjónið síðan hálfan dominoferning (lóðrétt). Þegar hálfi ferningurinn hefur verið prjónaður til loka og 6 kantlykkjur að framan hafa verið settar á þráð eru prjónaðar upp 14-16-17-19-21-23 l frá réttu meðfram kanti á hvorum af næstu 2 ferningum frá fyrri röð og 1 l á milli ferninga = 29-33-35-39-43-47 l á prjóni. Prjónið heilan dominoferning. RÖÐ 12-12-12-10-10-10: Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram kanti á hálfa ferningnum. Prjónið síðan upp 1 l á milli hálfa ferningsins og næsta fernings frá fyrri röð. Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram hlið á næsta ferning = 29-33-35-39-43-47 l á prjóni. Prjónið hálfan dominoferning (lárétt). VINSTRA FRAMSTYKKI: RÖÐ 11-11-11-9-9-9: Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram kanti á hverjum og einum af 2 næstu ferningum frá fyrri röð og 1 l á milli ferninga = 29-33-35-39-43-47 l á prjóni. Prjónið heilan dominoferning. Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l frá réttu meðfram kanti á síðasta ferning, setjið til baka 6 kantlykkjur að framan á prjóninn. Prjónið kant að framan og hálfan dominoferning (lóðrétt). RÖÐ 12-12-12-10-10-10: Prjónið upp 14-16-17-19-21-23 l meðfram kanti á hverjum og einum af 2 ferningunum frá fyrri röð og 1 l á milli ferninga = 29-33-35-39-43-47 l á prjóni. Prjónið hálfan dominoferning (lárétt). ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 50-52-54-58-60-62 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið 4 umf garðaprjón með Alpaca, síðan eru prjónaðar RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan. Lesið MÆLING! Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 2-2-1½-1½-1½-1 cm millibili 14-15-16-16-17-18 sinnum til viðbótar = 80-84-88-92-96-100 l. Þegar stykkið mælist 41-41-39-38-36-33 cm byrjar úrtaka fyrir laskalínu, fækkið um 1 l í hvorri hlið: Fækkið lykkjum í 4. hverri umf 0-0-3-3-5-7 sinnum, síðan í annarri hverri umf 26-28-27-29-29-29 sinnum = 28 l eftir í öllum stærðum. Setjið l á þráð. Prjónið hina ermina á sama hátt. Saumið ermasaum og saumið ermi við laskalínu á fram- og bakstykki. Setjið til baka allar l (frá ermum og fram/bakstykki) á prjóninn = 124-132-132-140-148-156 l. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli erma og fram- og bakstykki. Prjónið 8 umf garðaprjón með Alpaca, jafnframt í hverri umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki með því að prjóna 2 l slétt saman (alls 8 l færri í hverri umf, 32 l felldar af alls) = 92-100-100-108-120-124 l. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (40)
Lilian Hampe - Ström wrote:
Underbar Kofta dock lite väl stor halsringning, även tröjan är toppen men samma sak där.
28.05.2015 - 19:13Þórunn Gunnarsdóttir wrote:
Þessi er rosalega falleg.
28.05.2015 - 15:41Dina wrote:
Il risultato finale è davvero notevole; sicuramente ci vuole tanta concentrazione ma non ci si annoierà di certo nel farlo!
28.05.2015 - 09:41Jola wrote:
Pewnie trzeba bardzo uważać przy dzierganiu, ale efekt jest oszałamiający.
28.05.2015 - 09:15Yvonne Björkholm Norrbacka wrote:
Underbart ! en tröja med rutor och lite udda nederkant. det är så kul med lite udda mönster och kombinationer, är redan förälskad i denna tröja
27.05.2015 - 23:07Eliane wrote:
Looks fabulous . Will need a lot of concentration while knitting it
27.05.2015 - 19:53H.C. Fontaine wrote:
Ziet er spectaculaire uit
27.05.2015 - 19:42Monica Modell wrote:
Både jakke og genser i dette mønsteret og farge er kjempelekre
27.05.2015 - 18:52Ragnheiður Ása wrote:
Finnst þessi peysa æðisleg
27.05.2015 - 17:58Joke Lieberom wrote:
Heel mooi, misschien even oefenen voor het patroon.Wirrel,warrelvest.
27.05.2015 - 14:47