Vintage Rose |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca eða DROPD Flora með hringlaga berustykki og rósamynstri. Stærð S - XXXL
DROPS 165-9 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum fyrir aðsnið við 4 prjónamerkin. Fækkið lykkjum á eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið 2 l á undan prjónamerki og takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Aukið út við 4 prjónamerki. Aukið út þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl svo ekki myndist gat. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Br yfir sl og sl yfir br. Endurtakið umf 2. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum á eftir A.2: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum á undan A.2 þannig: Byrjið 2 l á undan A.2 og prjónið 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 208-224-240-272-288-320 l á hringprjóna nr 2,5 með litnum ljós perlugrár/ljós grár. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir A.1 (= 13-14-15-17-18-20 mynstureiningar í umf). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umf sl þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 206-222-242-266-290-318 l. Prjónið síðan sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10-10-10-10-12-12 cm setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett á eftir fyrstu 25-28-31-36-42-48 l, 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 53-55-59-61-61-63 l, 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 50-56-62-72-84-96 l og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 53-55-59-61-61-63 l (nú eru 25-28-31-36-42-48 l eftir á prjóni á eftir síðasta prjónamerki). Í næstu umf er lykkjum fækkað við 4 prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf alls 7-7-7-7-6-6 sinnum = 178-194-214-238-266-294 l. Þegar stykkið mælist 24 cm í öllum stærðum er aukið út við 4 prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu í 4.-4.-4.-.4.-6.-6. hverri umf alls 7-7-7-7-6-6 sinnum = 206-222-242-266-290-318 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 36-37-38-39-39-41 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af 5-5-5-6-6-6 l fyrir handveg, prjónið 93-101-111-121-133-147 l sléttprjón (= framstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg, prjónið 93-101-111-121-133-147 l sléttprjón (= bakstykki) og fellið af síðustu 5-5-5-6-6-6 l fyrir handveg, klippið frá. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-56-58-60-62-62 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum ljós perlugrár/ljós grár. Prjónið 1 umf sl. Prjónið síðan PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan í 3-3-3-4-4-4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi) og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8-10-10-10-10-10 cm aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu í 9.-7.-7.-6.-6.-5. hverri umf alls 12-14-14-16-16-18 sinnum = 80-84-86-92-94-98 l. Þegar stykkið mælist 42-42-41-41-40-40 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 l undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við prjónamerki) = 70-74-76-80-82-86 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki og prjónið með litnum ljós perlugrár/ljós grár þannig: Prjónið l af fyrri erminni JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi, prjónið l frá framstykki, prjónið l frá hinni erminni JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi og prjónið að lokum l frá bakstykki = 326-350-374-402-430-466 l í umf og 4 prjónamerki í stykkinu. Prjónið síðan sléttprjón með A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (ör í mynstri sýna l með prjónamerki í). JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í 4. hverri umf alls 5-6-7-7-8-8 sinnum = 286-302-318-346-366-402 l í umf. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umf slétt þar sem fækkað er um 14-14-14-10-14-18 l jafnt yfir = 272-288-304-336-352-384 l á prjóni. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir A.3 (= 17-18-19-21-22-24 mynstureiningar 16 l). Haldið áfram með mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynstri. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka (endið á eftir umf merktri með ör í réttri stærð), eru 136-144-152-168-176-192 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt með kirsuberjarauður þar sem fækkað er um 22-28-30-42-50-56 l jafnt yfir = 114-116-122-126-126-136 l eftir á prjóni. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þannig: Byrjið frá réttu með litnum ljós perlugrár/ljós grár og prjónið l af hægra framstykki, prjónið síðan l frá fyrri ermi JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi, prjónið l frá bakstykki, prjónið l af hinni erminni JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi og prjónið til loka l frá vinstra framstykki = 335-359-383-411-439-475 l á prjóni og 4 prjónamerki í stykkið. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og A.2 í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (ör í mynstri sýna l með prjónamerki í, 1. umf í A.2 byrjar í næstu umf frá réttu). JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 5-6-7-7-8-8 sinnum = 295-311-327-355-375-411 l á prjóni. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umf br frá röngu (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni) er fækkað um 13-13-13-9-13-17 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 282-298-314-346-362-394 l á prjóni. Í næstu umf er prjónað frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir A.3 þar til 5 l eru eftir á prjóni (= 17-18-19-21-22-24 mynstureiningar ca 16 l) og endið á 5 kantlykkjum að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynstri. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka (endið eftir umf merktri með ör fyrir rétta stærð), eru 146-154-162-178-186-202 l á prjóni. Prjónið 1 umf br frá röngu með litnum kirsuber (kantar að framan halda áfram í garðaprjóni) JAFNFRAMT er fækkað um 22-28-30-42-50-56 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 124-126-132-136-136-146 l eftir á prjóni. UPPHÆKKUN AÐ AFTAN VIÐ HNAKKA: Til þess að flíkið felli betur að þá er prjónuð upphækkun aftan við hnakka. Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan. Prjónið 1 umf slétt með litnum fjólublár/grár/blár eða indigo. Prjónið síðan sl þar til prjónaðar hafa verið 10-11-12-12-12-13 l framyfir prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 20-22-24-24-24-26 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 30-33-36-36-36-39 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 40-44-48-48-48-52 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 50-55-60-60-60-65 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 60-66-72-72-72-78 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 70-77-84-84-84-91 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 80-88-96-96-96-104 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sl til baka frá miðju að aftan. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið 1 umf sl með litnum fjólublár/grár/blár þar sem fækkað er um 10-10-10-12-12-12 l jafnt yfir = 104-106-112-114-114-124 l á prjóni. Prjónið nú mynstur hringinn eftir A.4. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er fellt laust af með sl. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. ---------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR: Sjá DROPS 165-10. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (52)
Mirka wrote:
Krásne, nežné, romantické!
01.06.2015 - 15:24Inger Nina Eide wrote:
Denne var nydelig. Den har eg lyst til å strikke.
27.05.2015 - 19:28