DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 164-46
DROPS Design: Mynstur nr x-407
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALASKA frá Garnstudio
750-800-900-1000-1100-1200 gr litur nr 11, vínrauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 180-196-212-228-252-268 l á hringprjóna nr 4,5 með Alaska. Byrjun umf = hlið. Prjónið þannig:

Stærð S-M-L-XL: 1 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* yfir næstu 16-20-24-28 l, A.3 a (= 8 l ), A.2 a (= 40 l), A.1 a (= 8 l), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 32-40-48-56 l, 2 l br, A.3 a, A.2 a, A.1 a, * 2 l br, 2 l sl * yfir næstu 16-20-24-28 l, endið á 1 l br.

Stærð XXL-XXXL: 1 l sl, 2 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* yfir næstu 32-36 l, A.3 a (= 8 l), A.2 a (= 40 l), A.1 a (= 8 l), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 68-76 l, 2 l br, A.3 a, A.2 a, A.1 a *, 2 l br, 2 l sl * yfir næstu 32-36 l, endið á 2 l br, 1 l sl.

Þegar A.3 a, A.2 a og A.1 a er prjónað til loka 1 sinni á hæðina er prjónað áfram þannig (skiptið yfir á hringprjóna nr 5): Sléttprjón yfir fyrstu 17-21-25-29-35-39 l, A.3 b, A.2 b, A.1 b, sléttprjón yfir næstu 34-42-50-58-70-78 l, A.3 b, A.2 b, A.1 b, sléttprjón yfir síðustu 17-21-25-29-35-39 l. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 1 í byrjun á umf og eitt á eftir 90-98-106-114-126-134 l (= í hliðum). Þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm fellið af l hvoru megin við hvert prjónamerki í hvorri hlið, prjónið síðan fram- og bakstykki til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 84-92-100-108-120-128 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellt er af fyrir handveg í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: 3 m 0-0-0-1-1-1 sinni, 2 m 1-2-3-3-5-6 sinnum og 1 l 1-2-3-3-4-5 sinnum = 78-80-82-84-86-88 l. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm fækkið um 8 l jafnt yfir A.2, í næstu umf eru felldar af 30 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 19-20-21-22-23-24 l eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm fækkið um 4 l jafnt yfir A.1/A.3 = 15-16-17-18-19-20 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælis 62-64-66-68-70-72 cm.

FRAMSTYKKI:
Haldið áfram að fella af fyrir handvegi á sama hátt og á bakstykki = 78-80-82-84-86-88 l. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm setjið miðju 28 l á þráð fyrir hálsmáli, prjónið síðan hvert stykki til loka fyrir sig. Haldið áfram með úrtöku við hálsmál í annarri hverri umf: 2 l 2 sinnum og 1 l 2 sinnum. Eftir alla úrtöku eru 19-20-21-22-23-24 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm fækkið um 4 l jafnt yfir A.1/A.3 = 15-16-17-18-19-20 l eftir er öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 46-46-50-50-54-54 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Alaska. Setjið 1 prjónamerki í umf = miðja á ermi. Prjónið þannig:
Stærð S-M-XXL-XXXL: 1 l fl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* 3-3-4-4 sinnum, A.4 a (= 20 l ), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* 3-3-4-4 sinnum, endið á 1 l sl.
Stærð L-XL: 1 l br, 2 l sl * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* 3-3 sinnum, A.4 a (= 20 l), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* 3-3 sinnum, endið á 2 l sl, 1 l br.
Þegar 10 fyrstu umf í A.4 hafa verið prjónaðar til loka er skipt yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónað þannig: 13-13-15-15-17-17 l sléttprjón, A.4 a, 13-13-15-15-17-17 l sléttprjón. Þegar A.4 a hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er prjónað A.4 b yfir l í A.4 a, haldið áfram í sléttprjóni yfir þær l sem eftir eru. Endurtakið nú A.4 b á hæðina. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu með 4-3-3-2½-2½-2 cm millibili 8-11-11-13-13-16 sinnum til viðbótar (alls 9-12-12-14-14-17 útaukningar) = 64-70-74-78-82-88 l. Þegar stykkið mælist 47-46-46-45-44-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af 6 l fyrir miðju undir ermi (= 3 l hvoru megin við prjónamerki) og ermin er prjónuð til loka fram og til baka á hringprjóna. ATH: Fellið af í umf 2, 4 eða 6 til að næstu kaðlar komi frá réttu.
Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið: Fellið af 2 l 3 sinnum og1 l 1-2-3-4-6-9 sinnum, fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-54-55-55-56-56 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni í hvorri hlið og fækkið um 8 l jafnt yfir l í A.4. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 55-55-56-56-57-57 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í.

KRAGI:
Prjónið upp 92-92-96-96-100-100 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði fyrir miðju að framan) á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf br þar sem fækkað er um 8 l jafnt yfir = 84-84-88-88-92-92 l. Prjónið stroff 2 l sl, 2 l br umf hringinn. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 2 l sl til 3 l sl = 105-105-110-110-115-115 l. Þegar stykkið mælist 20 cm eru allar 3 l sl auknar út til 4 l sl = 126-126-132-132-138-138 l. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar kraginn mælist 26 cm.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.02.2016
Leiðrétting: Nýtt mynstur A.2a
Yfirfarið á vefsvæði: 24.08.2016
Leiðrétting: A.1a/b og A.3a/b hafa skipt um stað. Búið er að leiðrétta

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = setjið 4 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 l br, 4 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 4 l sl, 1 l br af hjálparprjóni
symbols = setjið 4 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 4 l sl, 4 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 4 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 4 l sl, 4 l sl af hjálparprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-46

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (50)

country flag Diane wrote:

Mooie trui, wel jammer dat er in de trui van de afbeelding een fout te zien is. De grote kabel moet nl. volgens patroon 2x gewisseld worden op de foto is dit (bij de eerste) zowel links als rechts aan de buitenkant slechts 1x gebeurd. Dot bracht mij even op een dwaalspoor.

23.02.2019 - 15:39

country flag Mayou wrote:

J'ai encore une question: je ne comprends pas, pour les manches: "NB: Rabattre au rang 2, 4 ou 6 après la dernière torsade pour que les torsades soient bien sur l'endroit"?

02.01.2019 - 14:52

DROPS Design answered:

Bonjour Mayou, les manches se tricotent d'abord en rond, puis en allers et retours, il faut donc rabattre au "bon" rang pour qu'il y ait toujours le même nombre de rangs entre les torsades pour l'arrondi de la manche et que les torsades puissent être également sur un rang sur l'endroit. Bon tricot!

02.01.2019 - 15:08

country flag Mayou wrote:

Bonjour Je ne comprends pas quand vous dites: répartir X diminutions au-dessus de A2 (ou A1/A3). Merci pour vos éclaircissements.

02.01.2019 - 12:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mayou, les torsades exigent plus de mailles en largeur, pour éviter que les mailles rabattues soient tout à coup plus large, diminuez le nombre de mailles indiqué dans les diagrammes correspondant. Cette vidéo montre comment procéder. Bon tricot!

02.01.2019 - 13:06

country flag Inge wrote:

Hallo, het is mij niet helemaal duidelijk of deze trui heen en weer gebreid wordt, of rond. Heb ik voor maat S rondbreinaalden 60 mm of 80 mm nodig? Alvast bedankt

16.01.2018 - 19:45

DROPS Design answered:

Hallo Inge, Je breit de trui op de rondbreinaald, maar bij de armsgaten brei je het achterpand en het voorpand apart van elkaar verder, heen en weer gebreid. Dit laatste kan met der rondbreinaald of rechte naalden met knop. Voor maat S zou 60 cm genoeg moeten zijn, maar zelf gebruik ik voor een trui liefst een grotere maat, zodat ik de trui af en toe kan passen tijdens het breien. De naald is dan te lang voor het aantal steken, maar hiervoor kun je de magic loop techniek die in deze video uitgelegd wordt, gebruiken.

17.01.2018 - 11:11

country flag Dea wrote:

Ho bisogno un chiarimento. Sto facendo il collo e mi dice di aumentare le 2 dir a 3 dir e poi le 3 dir a 4 dir. Il collo essendo alla fine verrà piegato e quindi le maglie si vedranno diversamente rispetto a quando vengono lavorate. Ora che lavoro tenendo il diritto del lavoro verso di me, le 2 dir passano a 3 dir, ma quando verrà piegato queste diventeranno 3 rovesce. Quindi cosa vedrò dopo averlo piegato 4 dir e 2 rov o 4 rov e 2 dir?

03.12.2017 - 15:19

DROPS Design answered:

Buonasera Dea. Alla fine degli aumenti, sul diritto del lavoro, le coste saranno 4 m dir / 2 m rov. Ripiegato, vedrà 4 m rov / 2 m dir. Buon lavoro!

03.12.2017 - 21:01

country flag Dea wrote:

A cosa corrispondono le misure "8-9-10-11-13-15" cm nel disegno del modello? Cosa rappresentano? Grazie

03.11.2017 - 21:10

DROPS Design answered:

Buonasera Dea. I numeri corrispondono alla parte della manica, lavorata dall'intreccio per lo scalfo alla fine della manica stessa. P.es. per la taglia S: intreccia per gli scalfi quando la manica misura 47 cm e intreccia le ultime maglie a 55 cm. La parte lavorata dagli scalfi alla fine misura 55 - 47 = 8 cm. Analogamente per le altre taglie. Buon lavoro!

04.11.2017 - 00:00

country flag Mona wrote:

Feil i forklaringen på vrangbord. Det står...*2r2vr* gjenta**over de neste 16m. Det samme står det nevnt to ganger til. Men det skal ikke stå gjenta.....da får man for få masker på slutten. Derimot skal det stå 2r2vr over de neste 16m....samme på to steder til.

22.10.2017 - 19:22

country flag Dea wrote:

Avrei bisogno un piccolo chiarimento. Alla fine della manica dice "... poi intrecciare 3 m 1 volta a ogni lato e distribuire 8 diminuzioni in modo uniforme sulle m in A.4." Le 8 maglie le devo diminuire durante lo stesso ferro in cui diminuisco le prime tre maglie oppure le faccio da sole dopo avere fatto entrambe le dimnuzioni? Grazie.

30.01.2017 - 14:29

DROPS Design answered:

Buongiorno Dea. Può diminuire le 8 maglie tutte sul ferro in cui diminuisce le prime 3 maglie. Buon lavoro!

30.01.2017 - 15:45

country flag Nollet Greta wrote:

Deze pull wil ik breien met garen type a . Hoeveel bollen heb ik nodig om met 2 draden maat m te breien .

25.01.2017 - 14:07

DROPS Design answered:

Hoi Greta. Lees hier hoe je het aantal bollen kan berekenen

25.01.2017 - 14:33

country flag Nancy Villiard wrote:

Sur ce modele j'ai ceci:Taille XXL-XXXL: 1 m end, 2 m env, côtes *2 m end, 2 m env* sur les 32-36 m suivantes, A.3a (= 8 m), A.2a (= 40 m), A.1a (= 8 m), côtes *2 m env, 2 m end* sur les 68-76 m suivantes, 2 m env, A.3a, A.2a, A.1a, côtes *2 m env, 2 m end* sur les 32-36 m suivantes, terminer par 2 m env, 1 m end. quand j'ai fini ce rang il me reste pas mal de m c'est normal?

21.12.2016 - 21:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Villard, en tricotant ainsi: 1 m end, 2 m env, côtes *2 m end, 2 m env* sur les 32-36 m suivantes, A.3a (= 8 m), A.2a (= 40 m), A.1a (= 8 m), côtes *2 m env, 2 m end* sur les 68-76 m suivantes, 2 m env, A.3a, A.2a, A.1a, côtes *2 m env, 2 m end* sur les 32-36 m suivantes, terminer par 2 m env, 1 m end. Vous avez: 1 + 2 + 32-36 + 8+ 40+8+ 68-76 + 2+ 8+40+8 + 32-36+2+1 = 252-268 m. Bon tricot!

02.01.2017 - 09:39