Renaissance |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð aðsniðin peysa úr 2 þráðum DROPS Alpaca með köðlum, laskalínu og köntum í garðaprjóni, prjónið ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 165-3 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. STUTTAR UMFERÐIR (kantur að framan): Prjónaðir eru stuttar umferðir yfir l á kant að framan, svo að stykkið dragist ekki saman á hæðina. Prjónið frá réttu í 20. hverri umf þannig: Prjónið 5 l sl (= vinstri kantur að framan), snúið við og prjónið til baka. Prjónið 1 umf yfir allar l eins og áður. Snúið við og prjónið 5 l sl (= hægri kantur að framan), snúið við og prjónið til baka. Snúið við og prjónið 1 umf yfir allar l eins og áður. LASKALÍNA: Allar útaukningar eru gerðar frá réttu! Aukið út um 1 l hvoru megin við mynstureiningu A.1 og A.2 með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) til þess að koma í veg fyrir göt. Prjónið síðan nýjar l í sléttprjóni. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) til þess að koma í veg fyrir göt. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 2 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan, þ.e.a.s. kantur að framan í lok umf séð frá réttu. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá uppfitunarkanti og meðfram kanti að framan): STÆRÐ S: 5, 13, 21, 29, 37, 45 og 53 cm. STÆRÐ M: 5, 13, 21, 29, 37, 46 og 55 cm. STÆRÐ L: 5, 13, 22, 31, 40, 49 og 58 cm. STÆRÐ XL: 5, 13, 21, 29, 37, 45, 53 og 61 cm. STÆRÐ XXL: 5, 13, 21, 29, 37, 45, 54 og 63 cm. STÆRÐ XXXL: 5, 13, 21, 29, 38, 47, 56 og 65 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. PEYSA: Fitjið upp 73-76-76-79-79-82 l á hringprjóna nr 4,5 með 2 þráðum Alpaca. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í garðaprjóni og prjónið kraga með stuttum umf með byrjun frá réttu: * Prjónið allar l. Snúið við og prjónið til baka þar til 5 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið þar til 5 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka þar til 10 l eru eftir. Snúið við og prjónið þar til 10 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka yfir allar l *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Prjónið nú upphækkun í hnakka þannig: Prjónið þar til eftir eru 28-29-29-29-29-30 l, snúið við og prjónið til baka þar til eftir eru 28-29-29-29-29-30 l í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið þar til eftir eru 25-26-26-26-26-27 l, snúið við og prjónið til baka þar til eftir eru 25-26-26-26-26-27 l í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið þar til eftir eru 23-24-24-24-24-25 l, snúið við og prjónið til baka þar til eftir eru 23-24-24-24-24-25 l í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið út umf (frá réttu), snúið við og prjónið til baka yfir allar l. Munið eftir HNAPPAGAT! Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Setjið eitt prjónamerki hér! STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið 1 umf sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið, þar sem aukið er út um 18-19-19-24-32-45 l jafnt yfir (en ekki yfir kant að framan) = 91-95-95-103-111-127 l. Þær 5 kantlykkjur að framan á hvorri hlið halda áfram til loka og prjónaðar eru STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan, yfir kant að framan. Prjónið 1 umf til baka. Prjónið nú mynstur frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.3 (= 7 l), 3-4-4-6-8-12 l sléttprjón, A.1 (= 8 l), 6 l sléttprjón, A.2 (= 8 l), 17-19-19-23-27-35 l sléttprjón, A.1, 6 l sléttprjón, A.2, 3-4-4-6-8-12 l sléttprjón, A.3, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATH: Fylgist með í hvaða átt kaðlarnir snúa! Kaðlar á bakstykki eru spegilmynd við hvern annan og kaðlar á hvoru framstykki eru spegilmynd við hvern annan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við hvert A.1 og A.2 (= 8 útaukningar). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) 9-14-19-25-28-29 sinnum til viðbótar og í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) 7-5-3-0-0-0 sinnum = 227-255-279-311-343-367 l. Stykkið mælist ca 21-22-23-24-26-27 cm (mælt meðfram kanti að framan). Prjónið nú þannig: Prjónið fyrstu 36-40-43-48-53-58 l (= vinstra framstykki), setjið næstu 48-54-60-66-72-74 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 59-67-73-83-93-103 m (= bakstykki), setjið næstu 48-54-60-66-72-74 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 36-40-43-48-53-58 l (= hægra framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 147-163-175-195-215-235 l fyrir fram- og bakstykki. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið nú mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.3, sléttprjón yfir næstu 28-32-35-40-45-50 l, setjið eitt prjónamerki (= hlið), sléttprjón yfir næstu 67-75-81-91-101-111 l, setjið eitt prjónamerki (= hlið), sléttprjón yfir næstu 28-32-35-40-45-50 l, A.3, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 5-6-7-8-8-9 cm = 139-155-167-187-207-227 l. Þegar stykkið mælist 8-9-10-11-11-12 cm prjónið næstu umf frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, A.3, prjónið 8 l sléttprjón. Prjónið sléttprjón yfir næstu 12 l í öllum stærðum og aukið út um 3 l jafnt yfir. Prjónið sléttprjón yfir næstu 20-28-34-44-54-64 l. Prjónið sléttprjón yfir næstu 35 l í öllum stærðum og aukið út um 10 l jafnt yfir. Prjónið sléttprjón yfir næstu 20-28-34-44-54-64 l. Prjónið sléttprjón yfir næstu 12 l og aukið út um 3 l jafnt yfir. Prjónið sléttprjón yfir næstu 8 l, A.3, 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Nú eru 155-171-183-203-223-243 l í umf. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið nú áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er frá að neðan: MYNSTUR OG ÚTAUKNING Á MILLI KAÐLA: Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 20 l, A.4 (= 15 l), sléttprjón yfir næstu 6-10-13-18-23-28 l, setjið eitt nýtt prjónamerki (merkið fylgir með í stykkinu þar til útaukning í hliðum er lokið), sléttprjón yfir næstu 14-18-21-26-31-36 l, A.5 (= 45 l), sléttprjón yfir næstu 14-18-21-26-31-36 l, setjið eitt nýtt prjónamerki (merkið fylgir með í stykkinu þar til útaukning í hliðum er lokið), sléttprjón yfir næstu 6-10-13-18-23-28 l, A.4, prjónið þær 20 l sem eftir eru eins og áður. Haldið áfram fram og til baka þar til A.X hefur verið prjónað til loka alls 3 sinnum á hæðina. Prjónið nú afgang af umf í A.4 og A.5. ATH: Stillið af að kaðall í A.Z byrjar í sömu umf og kaðall í A.3 við miðju að framan! Þegar allt A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina er A.Z endurtekið til loka, JAFNFRAMT eru l auknar út með sléttprjóni þannig – sjá ör í mynstri: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan fyrstu mynstureiningu A.4, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sléttprjón, prjónið fyrstu 8 l í A.4, sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttprjón þar til 8 l eru eftir í mynstri, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 8 l í A.4. Haldið áfram með sléttprjón fram að A.5. Prjónið fyrstu 8 l í A.5, * sláið uppá prjóninn, sléttprjón þar til 1 l er eftir á undan næstu l br í mynstri, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 9 l *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, sláið uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 1 l er eftir á undan næstu l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 8 l í A.5. Prjónið síðan sléttprjón fram að næstu mynstureiningu A.4. Prjónið fyrstu 8 l í A.4, sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttprjón þar til 8 l er eftir í mynstri, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 8 l í A.4, 1 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þær l sem eftir eru. Aukið út alls 12 í umf. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo að ekki myndist gat! Endurtakið útaukningu í 6. hverri umf 3 sinnum til viðbótar. ÚTAUKNING í hvorri hlið: Þegar stykkið mælist 12-13-14-15-15-16 cm, aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki á hvorri hlið (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í öðrum hverjum cm 14-15-16-16-16-16 sinnum til viðbótar = 50-60-68-78-88-98 l í hverri mynstureiningu í sléttprjóni í hvorri hlið. Þegar útaukningarnar í mynstri og í hliðum er lokið eru 274-294-310-330-350-370 l í umf. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 69-71-73-75-77-79 cm – passið að næsta umf frá réttu sé 3. umf í A.3! Haldið nú áfram með mynstur og aukið út l í mynstureiningu í sléttprjóni þannig: Aukið út um 1 l í mynstureiningu í sléttprjóni innan við kant að framan og A.3 í hvorri hlið og aukið út um 3-3-5-5-5-5 l jafnt yfir í mynstureiningu í sléttprjóni í hvorri hlið á peysu (þ.e.a.s. á milli A.4 og A.5) = 282-302-322-342-362-382 l. Prjónið nú kant í lokin þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.3, 3 l sléttprjón, næstu 28 l halda áfram eins og áður, * 3 l sléttprjón, A.3 *, endurtakið frá *-* 4-5-6-7-8-9 sinnum til viðbótar, 3 l sléttprjón, næstu 70 l eru prjónaðar eins og áður, ** 3 l sléttprjón, A.3 **, endurtakið frá **-** 4-5-6-7-8-9 sinnum til viðbótar, 3 l sléttprjón. Prjónið næstu 28 l eins og áður, 3 l sléttprjón, A.3, 3 l sléttprjón, A.3, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til A.3 hefur verið prjónað 3 sinnum á hæðina. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið 1 umf sléttprjón þar sem aukið er út um 16-18-19-20-22-22 l jafnt yfir (en ekki yfir kant að framan) = 298-320-341-362-384-404 l. Prjónið 6 umf garðaprjón og fellið af. ERMI: Ermin er prjónuð í sléttprjóni, í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Það eru 48-54-60-66-72-74 l fyrir hvora ermi. Setjið til baka l af þræði á hringprjóna/sokkaprjóna nr 5 og fitjið upp 8 nýjar l undir ermi = 56-62-68-74-80-82 l. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT er sett eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið úrtöku með ca 3-2½-2-1½-1½-1 cm millibili, 9-11-13-16-19-19 sinnum til viðbótar = 36-38-40-40-40-42 l. Þegar ermin mælist 34-33-33-33-32-31 cm aukið út um 1 l = 37-39-41-41-41-43 l. Í næstu umf er prjónað þannig: Prjónið fyrstu 15-16-17-17-17-18 l, A.3, prjónið næstu 15-16-17-17-17-18 l. Haldið svona áfram þar til A.3 hefur verið prjónað til loka 6 sinnum á hæðina. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og aukið út um 2-2-3-3-3-3 l, jafnt yfir = 39-41-44-44-44-46 l. Prjónið 6 umf garðaprjón. Fellið af. Prjónið aðra hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (98)
Julia wrote:
This is the most wonderful jacket. I made it with the yarn and color as pictured, and it far exceeds my expectations. So complimentary! Thank you for the pattern and for answering my questions.
20.03.2021 - 17:40Julia Rau wrote:
I am working on body section (size XL) and am 8 inches past the sleeve holders. I have just finished the AX sections and it looks great but I have one problem. I now see that I was supposed to increase one stitch on each side of the two markers at 6 inches and then repeat that every 3/4 inch, which means I have missed two of the increases. My question is whether I can just adjust going forward? I prefer not to rip out the work and am low waisted so it might now matter. Your thoughts? Thanks.
08.03.2021 - 05:52DROPS Design answered:
Dear Mrs Rau, we are unfortunately not able to adapt every pattern to every single request, this might be just a matter of taste, you can try the jacket on and see if you like the body part like this or if you rather unravel to increase as in the pattern. For any individual assistance adjusting the pattern, please contact the store where you bought the yarn. Happy knitting!
08.03.2021 - 09:38Brigitte Klein wrote:
Ich möchte mir dieses Modell gerne als Mantel stricken, hätten Sie ein paar Angaben für mich, wie ich das Umsetzen kann!?? Besten Dank und schöne Grüße Brigitte Klein
11.02.2021 - 15:11DROPS Design answered:
Liebe Frau Klein, leider können wir nicht jedes Modell nach jeder Anfrage umrechnen/anpassen, gerne kann Ihnen aber Ihr DROPS Laden damit - auch telefonisch oder per E-Mail weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!
11.02.2021 - 15:48Isabella wrote:
Hello, I’m a little confused about what the apattern means by ,’adjust’. Do I repeat the same row until I have the cables lined up? How should do I adjust?
02.01.2021 - 06:18DROPS Design answered:
Dear Isabella! Keep knitting until cable in A.Z begins on the same row as cable in A.3 towards the middle front. Happy knitting!
03.01.2021 - 02:37Chloe Thiessen wrote:
Hi there! I have a quick question about the first round of the A1/2/3 pattern and increasing. Do I finish one cable (one full A1/2) before beginning the raglan increase rows, or do I begin the increases on each side of A1/2 after knitting just the first row of each of the patterns? From the start of the stockinette-based section, should I have two rows worked, or 10?
14.09.2020 - 05:23DROPS Design answered:
Dear Mrs Thiessen, you start to increase for the raglan on 2nd row from RS (= 3rd row in diagrams) - read more about diagrams here and read more about working a top down here. Happy knitting!
14.09.2020 - 09:44Joly wrote:
Bonjour je ne comprend plus pour répéter au jusqu à la fin en même temps augmenter dans le jersey il dis 8 maille est moi est 7 est à partir que de. Quelle rang merci beaucoup
30.05.2020 - 14:01DROPS Design answered:
Bonjour Mme Joly, pouvez-vous nous indiquer quelle taille vous faites et à quel endroit précis vous en êtes maintenant? Merci pour votre compréhension.
02.06.2020 - 09:19Joly wrote:
Bonjour je ne comprends pas modèle 165_vous 8rang ou15 rang merci de votre reponce
28.05.2020 - 08:21DROPS Design answered:
Bonjour Mme Joly, pouvez-vous préciser votre question? De quel rang 8 ou 15 parlez-vous? Merci!
28.05.2020 - 08:48Helena Karlsson wrote:
Förstår inte hur man ska göra på mönster A.3 då man minskar 2 maskor men bara ökar med 1. Tack på förhand!
29.12.2019 - 10:02DROPS Design answered:
Hej Du minskar 1 maska (det är bara den maskan du drar över de andra 2 som minskas) och på nästa varv ökar du en maska (omslaget). Lycka till!
29.01.2020 - 10:49Anette Tougaard wrote:
Er det korrekt forstået at jeg skal bruge to bundter af gangen ? Syntes ikke det lyder af så meget garn så
15.12.2019 - 18:57DROPS Design answered:
Hej Anette, Ja det stemmer, jakken er strikket i dobbelt tråd DROPS Alpaca. God fornøjelse!
16.12.2019 - 14:36Meg wrote:
Sorry, I should have been clearer..on the collar, for instance - turn and work back until 10 sts remain. Turn and work until 10 sts remain, turn and work back over all sts * If I only go back once there will still be the original 10 left on the needle. Do I work back over all sts twice ?
10.12.2019 - 15:57DROPS Design answered:
Dear Meg, sorry for misunderstanding, for the collar work: knit all stitches, turn and knit until 5 sts remain on needle (= do not work these 5 sts), turn and work next row over all sts until 5 sts remain (= do not work these 5 sts), work 2 more rows like but until 10 stitches remain (= first unworked 5 sts + 5 new sts). Happy knitting!
10.12.2019 - 16:19