DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Viola

Settið samanstendur af: Hekluðu sjali, húfu og handstúkum úr DROPS BabyAlpaca Silk með sólfjaðramynstri.

DROPS 166-44
DROPS Design: Mynstur nr bs-086
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

SJAL:
Mál:
Hæð: ca 36 cm.
Breidd efst: ca 160 cm.

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
250 gr litur nr 4314, gráfjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st og 12 umf verði 10 x 10 cm.

HÚFA:
Stærð: S/M – M/L – L/XL
Höfuðmál: 54/56 – 58/60 – 60/62 cm.

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
100-100-100 gr litur nr 4314, gráfjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 st og 13 umf verði 10 x 10 cm.

HANDSTÚKUR:
Stærð: S/M – L/XL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
50-50 gr litur nr 4314, gráfjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 st og 13 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.12.

HEKLLEIÐBEININGAR (sjal):
Hver umf með st byrjar á 3 ll (ekki taldar sem fyrsti st). Hver umf með fl byrjar á 1 ll (ekki talin með sem fyrsta fl).

HEKLLEIÐBEININGAR (húfa):
Hver umf með st byrjar á 3 ll (kemur ekki í stað fyrsta st) og endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.

HEKLLEIÐBEININGAR (handstúka):
Hver umf með st byrjar á 3 ll (koma ekki í stað fyrsta st) og endar á 1 kl í 3. ll í umf.

ST-HÓPUR Í ST:
* Heklið 3 st saman þannig: Heklið 1 st í næsta st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 2 st til viðbótar í sama st alveg eins, dragið þráðinn í gegnum allar 4 l á heklunálinni *, heklið 3 ll, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar í sama st.

SÓLFJAÐRAMYNSTUR (sjal):
Heklið 2 ll, hoppið yfir 2 ll, heklið 1 st-hóp um næsta ll-boga (þ.e.a.s. um ll-bogann mitt í st-hópinn) þannig: Heklið 3 st saman, þ.e.a.s. hekli 1 st um næsta ll-boga, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 2 st til viðbótar í sama ll-boga alveg eins, dragið þráðinn í gegnum allar 4 l á heklunálinni *, heklið 3 ll, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar um sama ll-boga, 2 ll, hoppið yfir 2 ll.

SÓLFJAÐRAMYNSTUR (húfa):
Heklið 3 ll, * heklið 1 st-hóp um fyrsta/næsta ll-boga þannig: Heklið 3 st saman, þ.e.a.s. heklið 1 st um næsta ll-boga, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 2 st til viðbótar um sama ll-boga alveg eins, dragið þráðinn í gegnum allar 4 l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* um næsta ll-boga, heklið 3 ll.

MYNSTUR A.1 (sjal):
Í A.1 er A.y endurtekið þannig:
UMFERÐ 2 (= ranga): * 1 st í hvern af næstu 5 st, heklið síðan sólfjaðramynstur *, endurtakið frá *-* alls 10 sinnum.
UMFERÐ 3 (= rétta): * Heklið sólfjaðramynstur, síðan 1 st í hvern af næstu 5 st *, endurtakið frá *-* alls 10 sinnum.
Endurtakið þessar 2 umf til loka.

ÚTAUKNING (húfa):
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sama st.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

SJAL:
Heklið 167 LAUSAR ll ( meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 3,5 með BabyAlpaca Silk. Heklið 3 st í 4. ll frá heklunálinni, * 1 st í hverja af fyrstu/næstu 5 l, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, 3 st í síðustu ll = 141 st – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR (sjal). Heklið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.2 þannig: Heklið 5 st í fyrsta st, 2 ll, hoppið yfir 3 st, í næsta st er heklaður ST-HÓPUR Í ST – sjá útskýringu að ofan, 2 ll, hoppið yfir 3 st, heklið 1 st í hvern af næstu 5 st, heklið síðan A.1 þannig: * 2 ll, hoppið yfir 3 st, heklið st-hóp í næsta st, 2 ll, hoppið yfir 3 st, 1 st í hvern af næstu 5 st *, endurtakið frá *-* (= A.1) alls 10 sinnum, heklið síðan A.3 þannig: 2 ll, hoppið yfir 3 st, 1 st-hópur í næsta st, 2 ll, hoppið yfir 3 st, 5 st í síðasta st = alls 12 sólfjaðrir í umf.
UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.3 þannig: Heklið 3 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 3 st, 3 st í næsta st, heklið SÓLFJAÐRAMYNSTUR (sjal) – sjá útskýringu að ofan – 1 sinni, heklið MYNSTUR A.1 (sjal) – sjá útskýringu að ofan, heklið A.2 þannig: 1 st í hvern af næstu 5 st, heklið sólfjaðramynstur 1 sinni, 3 st í næsta st, 1 st í hvern af næstu 3 st, 3 st í síðasta st.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 3: Heklið A.2 þannig: Heklið 3 st í fyrsta st, 2 ll, hoppið yfir 3 st, 1 st-hópur í næsta st, 2 ll, hoppið yfir 3 st, 3 st í næsta st, heklið sólfjaðramynstur eins og áður, 1 st í hvern af næstu 5 st, heklið A.y (= A.1), heklið A.3 þannig: Sólfjaðramynstur eins og áður, 3 st í næsta st, 2 ll, hoppið yfir 3 st, heklið st-hóp í næsta st, 2 ll, hoppið yfir 3 st, 3 st í síðasta st.
Heklið síðan A.3 og A.2 yfir síðasta st og A.y (= A.1) yfir miðjulykkju eins og áður. Þegar A.z hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.z endurtekið yfir sig sjálft til loka. Þ.e.a.s. það verða 5 st á milli sólfjaðramynstra. Þegar A.x hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.x endurtekið yfir síðustu 3 st til loka. Haldið áfram með sólfjaðramynstur yfir sólfjaðramynstur og 1 st í hvern st yfir þær l sem eftir eru. Þ.e.a.s. það verður einu sólfjaðramynstri meira í hvert skipti sem A.x er endurtekið og einu sólfjaðramynstri meira þegar A.z er endurtekið. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 35 cm, stillið af að endað sé á umf 2 í A.z.

KANTUR:
Heklið kant neðst á sjalið með byrjun frá röngu: Heklið 1 ll, heklið A.6 yfir A.x þannig: * 1 fl í fyrsta/næsta st, 2 ll, hoppið yfir 1 st, heklið st-hóp í næsta st, 2 ll, hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* yfir A.x. Yfir sólfjaðrir sem þegar er byrjað á, heklið sólfjaðramynstur eins og áður. ATH: Passið að sólfjaðramynstur haldi áfram yfir sólfjaðramynstrið! Heklið síðan A.5 yfir A.z (= A.3), heklið A.6 yfir A.z (= A.1), A.4 yfir A.z (= A.2), endurtakið A.6 að A.x, haldið áfram með A.6 yfir A.x. ATH: Passið að sólfjaðramynstrið haldið áfram yfir sólfjaðramynstur og að endað sé á 1 fl í síðasta st. Klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður.

HÚFA:
Heklið 4 ll með heklunál nr 3 með BabyAlpaca Silk og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið 12 st um ll-hringinn – LESIÐ HEKLEIÐBEININGAR (húfa). Heklið síðan A.7 alls 6 sinnum þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 2 st í hvern st = 24 st.
UMFERÐ 2: Heklið * 1 st í fyrsta/næsta st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 12 sinnum = 36 st.
UMFERÐ 3: Heklið * 1 st í hvorn af fyrstu/næstu 2 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 12 sinnum = 48 st.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 4: Heklið * 3 st í fyrsta/næsta st, heklið 3 ll, hoppið yfir 1 st, heklið ST-HÓPUR Í ST – sjá útskýringu að ofan, 3 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum.
UMFERÐ 5: Heklið * 2 st í fyrsta/næsta st, 1 st í næsta st, 2 st í næsta st, heklið SÓLFJAÐRAMYNSTUR (húfa) – sjá útskýringu að ofan (1 sinni) *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum = 6 sólfjaðramynstur og 30 st.
UMFERÐ 6: Heklið * 2 st í fyrsta/næsta st, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 st í næsta st, heklið sólfjaðramynstur eins og áður *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum = 6 sólfjaðramynstur og 42 st.
UMFERÐ 7: Heklið * 2 st í fyrsta/næsta st, 1 st í hvern af næstu 5 st, 2 st í næsta st, heklið sólfjaðramynstur eins og áður *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum = 6 sólfjaðramynstur og 54 st.
UMFERÐ 8: Heklið * 2 st í fyrsta/næsta st, 1 st í hvern af næstu 7 st, 2 st í næsta st, heklið sólfjaðramynstur eins og áður *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum = 6 sólfjaðramynstur og 66 st.
A.7 hefur nú verið heklað til loka í stærð S/M.

Nú er heklað mismunandi eftir stærðum þannig:
STÆRÐ S/M:
UMFERÐ 9: Heklið * 2 st í fyrsta/næsta st, 1 st í hvern af næstu 10 st og sólfjaðramynstur eins og áður *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum = 6 sólfjaðramynstur og 12 st á milli mynstra (= alls 72 st).

STÆRÐ M/L:
UMFERÐ 9: Heklið * 2 st í fyrsta/næsta st, 1 st í hvern af næstu 9 st, 2 st í næsta st, sólfjaðramynstur eins og áður *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum = 6 sólfjaðramynstur og 13 st á milli mynstra (= alls 78 st). A.7 hefur nú verið heklað til loka í stærð M/L.

STÆRÐ L/XL:
UMFERÐ 9: Heklið * 2 st í fyrsta/næsta st, 1 st í hvern af næstu 9 st, 2 st í næsta st, sólfjaðramynstur eins og áður*, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum = 6 sólfjaðramynstur og 78 st. A.7 hefur nú verið heklað til loka í stærð L/XL.
UMFERÐ 10: Heklið * 2 st í fyrsta/næsta st, 1 st í hvern af næstu 12 st og sólfjaðramynstur eins og áður *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum = 6 sólfjaðramynstur og 14 st á milli mynstra (= alls 84 st).

ALLAR STÆRÐIR:
= 72-78-84 st. Heklið síðan með 1 st í hvern st og sólfjaðramynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 16-16-18 cm er heklað áfram með 1 st í hvern st JAFNFRAMT er aukið út um 4-2-2 st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING og yfir sólfjaðramynstur er heklað A.8 þannig: Heklið 3 st um fyrsta ll-bogann, 1 st í næstu sólfjöður, 3 st um næsta ll-boga = 118-112-128 st. Heklið síðan áfram með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 24-25-26 cm. Klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

HANDSTÚKA:
Heklið 48-54 lausar ll með heklunál nr 3 með BabyAlpaca Silk og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið 3 ll, * 1 st í hverja og eina af fyrstu 5 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR (handstúka) = 40-45 st. Heklið síðan þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 14-7 st, A.9 yfir næstu 7 st, A.10 yfir næstu 5 st, A.9 yfir næstu 7 st, A.10 yfir næstu 0-5 st, A.9 yfir næstu 0-7 st, endið á 1 st í hvern af síðustu 7 st = 2-3 sólfjaðramynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Endurtakið A.a á hæðina. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 12 cm. Heklið síðan þannig: Heklið A.11 yfir fyrstu 7-0 st, heklið A.12 yfir næstu 7 st, A.b yfir A.9/A.10, A.11 yfir síðustu 7 st = 6-7 sólfjaðrir í umf. Heklið A.11-A.12 og A.b 1 sinni á hæðina. Stykkið mælist ca 16 cm. Klippið frá og festið enda. Heklið kant í kringum fyrstu ll-umf þannig: 1 fl í fyrstu ll, * 1 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-*, endið á 1 kl í fyrstu fl. Klippið frá og festið enda.
Heklið aðra handstúku á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.10.2015
Heklið 3 st í 4. ll frá heklunálinni, * 1 st í hverja og eina af fyrstu/næstu 5 l, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, 3 st í síðustu ll = 141 st – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR.

Mynstur

symbols = ll
symbols = st í l
symbols = 1 st um ll-boga
symbols = ST HÓPUR UM LL-BOGA: * Heklið 3 st saman þannig: Heklið 1 st um næsta ll-boga, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 2 st til viðbótar um sama ll-boga alveg eins, dragið bandið í gegnum allar 4 l á heklunálinni *, heklið 3 ll, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar í sama ll-boga.
symbols = ST-HÓPUR Í ST: * Heklið 3 st saman þannig: Heklið 1 st í næsta st, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 2 st til viðbótar í sama st alveg eins, dragið bandið í gegnum allar 4 l á heklunálinni *, heklið 3 ll, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar í sama st.
symbols = Heklið 3 st saman um sama ll-boga, 3 ll, 3 st saman um sama ll-boga, 3 ll, 3 st saman um sama ll-boga
symbols = 5 ll
symbols = 3 st heklaðir um sama ll-boga
symbols = fyrsta röð/umf er útskýrð í uppskrift
symbols = fl í st
symbols = ST-HÓPUR UM LL-BOGA: Heklið 3 st saman um sama ll-boga þannig: * Heklið 1 st um næsta ll-boga, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 2 st til viðbótar um sama ll-boga alveg eins, dragið bandið í gegnum allar 4 l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* um næsta ll-boga.
symbols = ST-HÓPUR Í ST: Hoppið yfir 1 st * Heklið 3 st saman þannig: Heklið 1 st í næsta st, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 2 st til viðbótar í sama st alveg eins, dragið bandið í gegnum allar 4 l á heklunálinni *, hoppið yfir 3 st, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar.
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-44

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Kirsty wrote:

In the wrist warmers, what does A.a and A.b mean?

18.03.2024 - 01:18

DROPS Design answered:

Dear Kirsty, A.a and A.b are subsections of A.9 and A.10. It means that you work only the rows between the specific bracket (a or b) of those charts. Happy crochetting!

18.03.2024 - 01:22

country flag Marie-Lise Robert wrote:

Bonjour, Sur le châle, mon deuxième rang est plus court que le premier rang : normal car on a sauté une maille en l'air sur 6, or j'imaginais plutôt qu'on allait augmenter en largeur et non rétrécir au cours du travail. Je me retrouve avec le bon nombre d'éventails : ai-je crocheté trop lâche au premier rang ? Pourquoi

12.12.2023 - 19:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Robert, comme les mailles en l'air de la chaînette de base sont généralement plus serrées, on va crocheter ici davantage de mailles en l'air que l'on a besoin de mailles pour la bonne largeur. Si votre chaînette de base est suffisamment souple, vous pouvez crocheter juste le nombre de mailles en l'air dont vous avez besoin. Si vous avez bien les 12 éventails au 1er rang sur l'endroit, tout est juste ainsi. Bon crochet!

13.12.2023 - 07:52

country flag DANIELA wrote:

Salve io non capisco aumentare 4 maglie alte VIOLA CAPPELLO mi volete spiegare

27.12.2022 - 18:30

DROPS Design answered:

Buonasera Daniela, per aumentare 1 maglia alta deve lavorare 2 maglie alte nella stessa maglia. Provi a vedere se questo video le può essere di aiuto. Buon lavoro!

28.12.2022 - 18:59

country flag Liesbet wrote:

Hallo, Is het mogelijk om hulp te krijgen met de omslagdoek? Ik neem het werk over van iemand en ik weet niet waar ik moet verder gaan in het patroon. Het werk meet nu in de hoogte 26 cm. Ik kan een foto bijvoegen. Alvast bedankt!

16.03.2022 - 10:07

DROPS Design answered:

Dag Liesbet,

Op dit forum kun je vragen stellen over het patroon, maar helaas geen foto's uploaden. Misschien is het mogelijk om bij een verkooppunt in de buurt of bij een breiclub te vragen of iemand mee kan kijken?

18.03.2022 - 08:51

country flag Matilda wrote:

I mönsterbeskrivningen till sjalen anges att varje varv med st börjar med 3 lm (räknas INTE som första st). I instruktionsvideon till A.1, A.2 och A.3 börjar varje varv med stolpar med 3 lm som räknas som första stolpen. Mönstret och videon ger två olika instruktioner. Vad gäller? tack!

20.09.2021 - 13:40

DROPS Design answered:

Hej Matilda. Det som står i mönstret är det som gäller. Mvh DROPS Design

22.09.2021 - 11:24

country flag Olga wrote:

Hallo! Ik ben begonnen met het haken van de muts, maar ik kom niet uit met het aantal herhalingen. In toer 3 eindig je met 48 stokjes. Maar in toer 4 zijn 6 herhalingen over in totaal 6 stokjes = 36 stokjes: 3 st, 1 st overslaan, 1 stgroep in 1 st, 1 st overslaan. Dan kom ik uit op 8 herhalingen om de toer rond te haken. Het lukt me niet om te ontdekken wat ik verkeerd doe.

04.01.2021 - 14:38

DROPS Design answered:

Dag Olga,

Het patroon loopt over 8 steken, namelijk: 3 stk in eerste/volgend stk (= 1 st), haak 3 l, sla 1 stk over (= 1 st), haak STK-GROEP IN STK – zie uitleg boven (= 5 st), 3 l, sla 1 stk over(= 1 st). Zie ook telpatroon A.7.

09.01.2021 - 16:45

country flag Valentina wrote:

Quanto misura lo scialle finito? Grazie!

15.01.2019 - 17:25

DROPS Design answered:

Buonasera Valentina, lo scialle misura 36 cm di larghezza e 160 cm di lunghezza nella parte superiore. Buon lavoro!

15.01.2019 - 18:46

country flag Debora wrote:

Buongiorno, sto realizzando lo scialle, ma il bordo inferiore delle ali laterali non mi viene in linea con quello della parte centrale. Al contrario, mi riesce inclinato verso l'alto in diagonale. Non riesco a capire dove sbaglio: potreste aiutarmi? Grazie

28.12.2018 - 13:04

DROPS Design answered:

Buonasera Debora. Per un aiuto così personalizzato, le consigliamo di mandare una fotografia del suo lavoro, spiegando il problema, al suo rivenditore Drops di fiducia. Buon lavoro!

30.12.2018 - 23:10

country flag Helen Holland wrote:

Hello, I am trying to do viola shawl in baby alpaca silk , I have done the first three rows but can not understand what I am supposed to be doing after that, is there a full written pattern as I do not know how to read a diagram, could you also send a photo of shawl laid out so I can try to work it out myself as I go, love the wool and the pattern so really want to do it correctly , I am fairly new to crochet and I apologise if I am being a bit slow or difficult.

03.06.2018 - 16:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs Holland, this video will help you to vizualize how to crochet and how to read diagrams at the same time. Happy crocheting!

04.06.2018 - 09:23

country flag Bianca wrote:

Non so se vi è già stato riportato, ma credo ci sia un errore qui: "CAPPELLO: GIRO 5: lavorare * 2 m.a nella 1°/successiva m.a, 1 m.a nella m.a successiva, lavorare il MOTIVO A VENTAGLIO – leggere la spiegazione sopra (1 volta) *, ripetere *-* 6 volte in totale = 6 motivi a ventaglio e 30 m.a." Dopo le 2 m.a. in una m.a. e 1 m.a. nella successiva m.a., dovrebbero esserci altre 2 m.a. nella m.a. rimasta

29.10.2017 - 22:26

DROPS Design answered:

Buongiorno Bianca. Abbiamo corretto il testo. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!

30.10.2017 - 08:34