DROPS Cloud
DROPS Cloud
72% Alpakka, 21% Polyamide, 7% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Loch Ness

Hekluð peysa með tvíbrugðnum stuðlum og fastalykkjum úr 1 þræði DROPS Cloud eða 2 þráðum DROPS Air. Stærð S - XXXL.

DROPS 166-6
DROPS Design: Mynstur nr co-017
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS CLOUD frá Garnstudio
500-550-600-650-750-800 gr litur nr 04, milligrár

Eða notið:
DROPS AIR frá Garnstudio
550-600-650-750-800-850 gr litur nr 04, milligrár

DROPS HEKLUNÁL NR 9 – eða þá stærð sem þarf til að 8 st og 4,5 umf með 1 þræði Cloud eða 2 þráðum Air verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cloud
DROPS Cloud
72% Alpakka, 21% Polyamide, 7% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með fastalykkju er hekluð 1 loftlykkja. Loftlykkja kemur ekki í stað fastalykkju.
Í byrjun á hverri umf með tbst er skipt út fyrsta tbst fyrir 4 ll.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 fl með því að hekla 2 fl saman þannig:
* Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 3 l á heklunálinni = 1 fl færri.

MYNSTUR:
UMFERÐ 1 (= frá röngu): Heklið 1 fl í fremri lykkjubogann í hverja l frá fyrri umf.
UMFERÐ 2 (= frá réttu): Heklið 1 tbst í aftari lykkjubogann í hverja l frá fyrri umf.
Endurtakið umf 1 og 2.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er hekluð fram og til baka í stykkjum og saumuð saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Heklið 49-52-55-60-66-71 ll með heklunál nr 9 með 1 þræði Cloud eða 2 þráðum Air. Heklið síðan frá réttu þannig: 1 tbst í 5. ll frá heklunálinni (= 2 tbst), 1 tbst í hverja af næstu 0-3-6-0-6-0 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 tbst í hverja af næstu 10 ll *, endurtakið frá *-* 3-3-3-4-4-5 sinnum til viðbótar = 42-45-48-52-58-62 tbst, - LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið nú MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, til loka.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm – stillið af að síðasta umf sem er hekluð sé umf 2 í mynstri, setjið eitt prjónamerki í síðustu l í hvorri hlið á stykki. Heklið 7-7-6-6-5-5 nýjar ll í lok umf = 49-52-54-58-63-67 l. Heklið þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið umf 1 í mynstri yfir nýjar 7-7-6-6-5-5 ll og haldið áfram yfir bakstykki, heklið 7-7-6-6-5-5 nýjar ll í lok umf = 56-59-60-64-68-72 l.
UMFERÐ 2: (Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR). Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 3-3-2-2-1-1 ll (nú eru 4 ll eftir á undan l með prjónamerki í), heklið 1 hst í hvora af næstu 2 ll, heklið síðan 1 st í hvora af næstu 2 ll. Haldið áfram með umf 2 í mynstri yfir bakstykki fram að næsta prjónamerki. Heklið 1 st í hvora af næstu 2 fl, heklið síðan 1 hst í hvora af næstu 2 fl, 1 fl í hverja af 3-3-2-2-1-1 fl sem eftir eru í umf, heklið 4-4-4-3-3-2 nýjar ll í lok umf = 60-63-64-67-71-74 l.
UMFERÐ 3: Heklið umf 1 í mynstri yfir allar l á bakstykki, heklið 4-4-4-3-3-2 nýjar l í lok umf = 64-67-68-70-74-76 l.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 7-7-6-5-4-3 l (= 4 l eftir á undan l með prjónamerki í), heklið 1 hst í hvora af næstu 2 fl, síðan 1 st í hvora af næstu 2 fl, haldið áfram með umf 2 í mynstri yfir bakstykki að næsta prjónamerki, heklið 1 st í hvora af næstu 2 fl, síðan 1 hst í hvora af næstu 2 fl, 1 fl í hverja af 7-7-6-5-4-3 fl sem eftir eru í umf, heklið 5-4-4-4-3-3 nýjar ll í lok umf = 69-71-72-74-77-79 l.
UMFERÐ 5: Heklið umf 1 í mynstri yfir allar l á bakstykki, heklið 5-4-4-4-3-3 nýjar l í lok umf = 74-75-76-78-80-82 l í umf. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður (þ.e.a.s. heklið tbst frá réttu og fl frá röngu). Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm – stillið af að næsta umf sé umf 2 í mynstri, heklið þannig: Heklið fyrstu 31-31-31-32-33-34 l. Klippið frá. Hoppið yfir næstu 12-13-14-14-14-14 fl frá fyrri umf (= hálsmál), heklið 31-31-31-32-33-34 l sem eftir eru. Klippið frá.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið 41-43-45-47-51-53 ll (meðtaldar 4 ll til að snúa við með) með heklunál nr 9 með Cloud. Heklið síðan frá réttu þannig: Heklið 1 tbst í 5. ll frá heklunálinni (= 2 tbst), 1 tbst í hverja af næstu 3-5-7-9-2-4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 tbst í hverja af 10 ll *, endurtakið frá *-* 2-2-2-2-3-3 sinnum til viðbótar = 35-37-39-41-44-46 tbst. Haldið áfram með mynstur eins og á bakstykki þar til stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm – stillið af eftir bakstykki og að síðasta umf sem hekluð er sé umf 2 í mynstri! Setjið eitt prjónamerki í síðustu l séð frá réttu, heklið 7-7-6-6-5-5 nýjar ll í lok umf = 42-44-45-47-49-51 l.
UMFERÐ 1 (= ranga): Haldið áfram með umf 1 í mynstri yfir 7-7-6-6-5-5 nýjar ll, haldið síðan áfram yfir þær l sem eftir eru.
UMFERÐ 2: Heklið umf 2 í mynstri fram að l með prjónamerki í, 1 st í hvora af næstu 2 ll, 1 hst í hvora af næstu 2 ll, 1 fl í hverja af 3-3-2-2-1-1 ll sem eftir eru í um, heklið 4-4-4-3-3-2 nýjar ll í lok umf = 46-48-49-50-52-53 l.
UMFERÐ 3: Heklið umf 1 í mynstri yfir allar l.
UMFERÐ 4: Heklið umf 2 í mynstri yfir allar l fram að l með prjónamerki í, 1 st í hvora af næstu 2 fl, 1 hst í hvora af næstu 2 fl, 1 fl í hverja af 7-7-6-5-4-3 fl sem eftir eru, heklið 5-4-4-4-3-3 nýjar ll í lok umf = 51-52-53-54-55-56 l.
UMFERÐ 5: Heklið umf 1 í mynstri yfir allar l í umf.
Haldið síðan áfram með mynstur yfir allar l þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm – stillið af að síðasta umf sem er hekluð sé umf 2 í mynstri. Klippið frá.

SJALKRAGI:
Heklið nú sjalkraga í fl yfir síðustu 20-21-22-22-22-22 l við miðju að framan á peysu. ATH: Heklið í fremri lykkjubogann frá röngu og í aftari lykkjubogann frá réttu! Byrjið frá röngu. Heklið 1 kl í 20.-21.-22.-22.-22.-22. tbst frá miðju að framan, 1 ll, 1 fl í sömu l, 1 fl í hverja af l sem eftir eru í umf, * snúið við og heklið 1 fl í hverja af fyrstu 10-10-11-11-11-11 fl, snúið við og heklið til baka, snúið við og heklið yfir allar 20-21-22-22-22-22 fl, snúið við og heklið til baka *, endurtakið frá *-* þar til sjalkraginn mælist 8-8-9-9-9-9 cm meðfram stystu hliðinni. Klippið frá.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið eins og hægra framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm – stillið af eftir hægra framstykki og að síðasta umf sem er hekluð sé umf 2 í mynstri.
UMFERÐ 1: Snúið við og heklið umf 1 í mynstri yfir allar l, setjið eitt prjónamerki í síðustu l í umf (séð frá röngu), heklið 7-7-6-6-5-5 nýjarll.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 3-3-2-2-1-1 ll (nú eru 4 fl eftir á undan l með prjónamerki í), heklið 1 st í hvora af næstu 2 ll, 1 hst í hvora af næstu 2 ll, haldið áfram með umf 2 með mynstri yfir þær l sem eftir eru. Haldið síðan áfram með útaukningu fyrir ermi í hverri umf frá röngu alveg eins og á hægra framstykki. Stillið af eftir hægra framstykki og heklið sjalkragann gagnstætti, þ.e.a.s. með byrjun frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma, saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 tbst/fl, en skiljið eftir 20 cm fyrir klauf í hvorri hlið. Passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur! Saumið 2 sjalkragana saman fyrir miðju að aftan, saumið kraga við hálsmál.

KANTUR NEÐST Á PEYSU:
Byrjið í fyrstu l (séð frá réttu) á bakstykki og heklið þannig: Festið bandið með 1 kl, heklið 1 fl í hvern st, klippið frá. Heklið nú eina umf til viðbótar með fl frá réttu en nú er heklað í aftari lykkjubogann. Endurtakið á báðum framstykkjum.

KANTUR MEÐFRAM KANTI AÐ FRAMAN:
Festið endann með 1 kl í horni neðst á hægri kant að framan og heklið frá réttu þannig: Heklið 2 ll, hoppið fram að fyrstu fl-umf og heklið (1 st, 1 hst, 1 ll, 1 hst, 1 st) umf fl-umf, 1 ll, * hoppið fram að næstu fl-umf og heklið (1 st, 1 hst, 1 ll, 1 hst, 1 st) um næstu fl-umf *, endurtakið frá *-* í kringum allan kant að framan og kraga, en þegar heklað er yfir kraga, hoppið fram ca 4 cm áður en heklaður er nýr st-hópur. Þ.e.a.s. að það verði ca 10 st-hópar yfir kraga.

STROFF/KANTUR Á ERMUM:
UMFERÐ 1: Festið enda með 1 kl í saum á ermi og heklið 4 ll (= 1 tbst), heklið 30 tbst í kringum op á ermi (þ.e.a.s. ca 1 tbst um hverja fl-umf og 3 tbst um hverja umf með tbst). Endið umf með 1 kl í 4. ll frá byrjun umf.
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, haldið síðan áfram með 1 fl í hvern tbst. ATH: Heklið í aftari lykkjubogann í st að neðan! Klippið frá og festið enda.
Endurtakið í kringum hina ermina.

----------------------------------------------------------
Húfa og hálsklútur:
Sjá DROPS 166-07.
----------------------------------------------------------

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (80)

country flag Annika wrote:

Ich verstehe den schlagkragen nicht. Wo beginnt dieser? 20maschen ab den halsausschnitt oder 20 maschen ab der oberen seite zum halsausschnitt? Danke im vorraus

06.05.2022 - 14:53

DROPS Design answered:

Liebe Annika, der rechte Schalkragen beginnt bei einer Hinreihe über die ersten 20 Maschen vom Vorderteil (die letzten Maschen vom Vorderteil gehören zur Schulter). Beim linken Vorderteil häkeln Sie die ersten 20 M einer Rückreihe. Viel Spaß beim häkeln!

06.05.2022 - 16:12

country flag Elisabetta wrote:

Il collo si lavora sulle maglie di quale parte? Davanti destro? Davanti sinistro? Dietro? Scusate ma non capisco.... Nello schema non è scritto partire con 22 catenella quindi mi devo attaccare a qualcosa: cosa? Grazie

15.02.2022 - 16:46

DROPS Design answered:

Buonasera Elisabetta, deve lavorare il collo come indicato sia sul davanti destro che su quello sinistro, partendo dal centro davanti. Buon lavoro!

16.02.2022 - 23:23

country flag Elisabetta Brandani wrote:

Buongiorno, Vorrei sapere se il collo a scialle va fatto direttamente sul dietro della maglia. I 22 punti vanno fatti al centro ma ci sono solo 14 maglie libere che formano lo scollo...

10.02.2022 - 13:55

DROPS Design answered:

Buonasera Elisabetta, il collo si lavora sulle maglie verso il centro davanti, in due metà che poi verranno cucite alla fine. Buon lavoro!

10.02.2022 - 16:24

country flag Marion wrote:

Ich verstehe das Zusammennähen des Schalkragens nicht…. Welches ist die hinter Mitte? Das kurze Ende? Das lange Ende? Das schräge Teil? Gar nichts von allem? Und welches muss ich danach an die Jacke nähen? Ich bin völlig verwirrt.

08.08.2021 - 14:28

DROPS Design answered:

Liebe Marion, die letzten Reihen vom Schalkragen (rechts und links) nähen Sie zusammen, dann nähen Sie die kurze Seite vom Kragen am Halsausschnitt vom Rückenteil. Dieses Video zeigt so ein Schalkragen, im Video gestrickt aber die Technik wird hier die selbe. Viel Spaß beim häkeln!

09.08.2021 - 08:15

country flag Perret wrote:

Bonjour, Je suis enfin arrivée à l'étape de assemblage. Aucun soucis pour les épaules. Par contre les côtés, c'est une autre histoire. Je ne trouve pas le moyen défaire un assemblage discret. Quelle est donc la meilleure méthode pour assembler les côtés ? Merci de votre aide!

14.07.2021 - 18:24

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Perret, vous trouverez ici deux vidéos montrant l'une comment coudre les côtés d'un ouvrage en mailles serrées, et l'autre pour un ouvrage en brides (ce sera la même technique pour des double-brides). Bon assemblage!

15.07.2021 - 09:41

country flag Marion wrote:

Ich verstehe den Anfang des Vorderteils nicht. Erste Hinreihe = was bedeutet das „0-3-6-0-6-0“ hinter den ersten beiden Doppelstäbchen?

09.03.2021 - 23:30

DROPS Design answered:

Liebe Marion, jede Anzahl entpricht jede Größe, dh, in die 1. 4. und 6. Größe häkelt man hier kein Doppelstäbchen, in die 2. Größe häkelt man 1 Doppelstäbchen in die 3 nächsten Luftmaschen und in die 3. und 5. Größe häkelt man 1 Doppelstäbchen in die 6 nächsten Luftmaschen. Viel Spaß beim häkeln!

10.03.2021 - 07:33

country flag Monica H wrote:

Ik begrijp niet hoe ik de sjaalkraag moet maken. Moet je iets op elkaar haken? Waar moet ik beginnen? Heb het achterpand en de twee voorpanden af maar alsnog ze op elkaar leg is het voor te breed. Dus ergens moet ik iets omslaan, maar hoe??

24.11.2020 - 22:03

DROPS Design answered:

Dag Monica,

De sjaalkraag haak je heen en weer op de voorpanden en aan de kant van de schouder steekt er een stuk uit. Als je de sjaalkraag van beide panden klaar hebt, naai je de kraag midden achter vast en het uitstekende deel wordt langs de halslijn op het achterpand vast genaaid. Je begint met de sjaalkraag in het 20e-21e-22e-22e-22e-22e stokje vanaf de schouder.

30.11.2020 - 20:41

country flag Morin wrote:

Bonjour, puis-je faire ce modèle avec le fil Andes de chez Drops ? Cordialement.

04.10.2020 - 16:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Morin, tout à fait, car Andes et Cloud sont du même groupe, vous obtiendrez toutefois une texture différente car ces 2 fils n'ont pas la même composition, raison pour laquelle nous proposons ici 2 fils Air - vous trouverez plus d'infos sur les alternatives ici. Bon crochet!

05.10.2020 - 11:00

country flag Julie D C wrote:

Hej. Hvad gør man med ærmerne? Der ikke nogen opskrift på ærmerne og er lidt stuck.

10.01.2020 - 22:11

DROPS Design answered:

Hej Julie, Jo ærmerne tages ud med luftmasker i hver side ifølge opskriften. God fornøjelse!

15.01.2020 - 15:39

country flag Cynthia Holloway wrote:

On the Left Front Piece, I am confused about working as :right front but reversed". You answered me to start with the last item and work backwords, I have no clue how to do that. Can you please explain it me.

12.12.2019 - 01:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs Holloway, you will start as on right front piece: crochet the same number of chains, work the same number of stitches on first row; continue in pattern until same height as on right front piece/back piece and cast on the new stitches for sleeve at the end of a WS row (instead of a RS row) and continue working from RS (instad of from WS under right font piece) and from WS (instead of from RS under right front piece). If you are doubting, just look at your right front piece, the left one should be reversed/mirrored. Happy crocheting!

12.12.2019 - 09:37