DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Children 26-3
DROPS Design: Mynstur nr me-021-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
PEYSA:
Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 ára
Stærð í cm: 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
300-300-350-400-450 gr litur nr 20, dökkblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
A.3 (= 52 l) mælast 17 cm á breidd.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40+60 cm) NR 3,5 fyrir stroff.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Lykkjum er fækkað hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU ÞANNIG:
Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÖNGU ÞANNIG:
Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l snúnar br saman, 2 l br (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l) og 2 l br saman (= 2 l færri).
----------------------------------------------------------

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.
Fitjið upp 184-200-208-216-224 l á hringprjóna nr 3,5 með Merion Extra Fine. Prjónið 1 umf sl. Næsta umf er prjónuð þannig:
STÆRÐ 2 + 3/4 + 7/8 ÁRA: 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 4-5-6 sinnum, prjónið stroff eftir mynsturteikningu A.1 yfir næstu 58 l (= miðja að framan), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 8-10-12 sinnum, 2 sl, prjónið stroff eftir mynsturteikningu A.1 yfir næstu 58 l (= miðja að aftan), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 4-5-6 sinnum og endið á 1 l sl.
STÆRÐ 5/6 + 9/10 ÁRA: 1 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 5-6 sinnum, 2 l sl, prjónið stroff eftir mynsturteikningu A.1 yfir næstu 58 l (= miðja að framan), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 11-13 sinnum, 2 l sl, prSjónið stroff eftir mynsturteikningu A.1 yfir næstu 58 l (= miðja að aftan), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 5-6 sinnum og endið á 2 l sl og 1 l br. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 5 cm.
Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið þannig í ÖLLUM STÆRÐUM: Prjónið sl yfir fyrstu 17-21-23-25-27 l og fækkið jafnframt um 3-5-5-5-5 l jafnt yfir þessar l, prjónið og fækkið lykkjum eftir mynsturteikningu A.2 yfir næstu 58 l, prjónið sl yfir næstu 34-42-46-50-54 l og fækkið jafnframt um 6-10-10-10-10 l jafnt yfir þessar l, prjónið og fækkið lykkjum eftir mynsturteikningu A.2 yfir næstu 58 l, prjónið sl yfir síðustu 17-21-23-25-27 l og fækkið jafnframt um 3-5-5-5-5 l jafnt yfir þessar l. Eftir A.2 eru 160-168-176-184-192 l á prjóni.
Næsta umf er prjónuð þannig: 14-16-18-20-22 l sléttprjón, prjónið mynstur eftir A.3 (= 52 l), 28-32-36-40-44 l sléttprjón, prjónið mynstur eftir A.3 (= 52 l) og endið á 14-16-18-20-22 l sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 22-25-28-31-34 cm prjónið næstu umf þannig: Fellið af 3 l fyrir handveg, prjónið næstu 74-78-82-86-90 l eins og áður (= framstykki), fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið næstu 74-78-82-86-90 l eins og áður (= bakstykki) og fellið af 3 síðustu l fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 32-36-40-44-44 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 6-8-8-8-7 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 2-2-2½-2½-2½ cm millibili alls 10-10-10-11-13 sinnum = 52-56-60-66-70 l. Þegar stykkið mælist 26-29-32-36-39 cm fellið af miðju 6 l mitt undir ermi = 46-50-54-60-64 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi alveg eins.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi (þetta er gert án þess að prjóna l) = 240-256-272-292-308 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og mynstri eins og áður.
JAFNFRAMT í fyrstu umf er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í annarri hverri umf alls 14-16-16-17-17 sinnum og síðan í hverri umf alls 3-3-5-7-9 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-35-39-42-46 cm setjið miðju 28-26-26-20-20 l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn). Prjónið síðan stykkið til loka fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og fellt er af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 1-1-1-2-2 sinnum og 1 l 1-2-2-2-2 sinnum.
Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og hálsmál eru 70-70-70-68-68 l eftir á prjóni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu á hringprjóna nr 3,5 ca 104-104-104-100-100 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan). Prjónið 1 umf br. Síðan er prjónuð 1 umf slétt þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til 60-68-76-80-88 l. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 3 cm, fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 28.08.2015
Leiðrétting: Nýr mynsturtexti í A.3

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón, 2 l sl, 2 l slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, 2 l slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 1 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Lucky Jack

Elske, Netherlands

Lucky Santi

BirTual, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 26-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (85)

country flag Tara Schanssema wrote:

Volgens mij klopt dit patroon niet..ik heb nu een pand gebreid en ziet er anders uit.. ook goed..maar niet hetzlefde

25.08.2019 - 20:20

country flag Seemal wrote:

Can someone post a video on how to start tbe first line of tbe cable design.Its a little confusing.

12.02.2019 - 14:59

DROPS Design answered:

Hi Seemal, I can write the first line for you (row 3 in A.3 which is from the right side and read from right to left): K1, P1, place 3 stitches on cable needle behind piece, K3 and K3 from cable needle, P1, K3, P1, place 2 stitches on cable needle behind piece, K2 and K2 from cable needle, P6, place 3 stitches on cable needle behind piece, K3 and K3 from cable needle, P6, place 2 stitches on cable needle behind piece, K2 and K2 from cable needle, P1, K3, P1, place 3 stitches on cable needle behind piece, K3 and K3 from cable needle, P1, K1. Hope this helps and happy knitting!

13.02.2019 - 08:02

country flag Rushd Nakade wrote:

Am wondering after joining sleeves with body , how to do back n forth with pattern as after raglan decrease started it will close all opening n it has to be worked on round right? please correct if am doing something wrong

21.01.2019 - 13:24

DROPS Design answered:

Dear Mrs Rushd, after you have slipped the sts from neck on front piece on a thread, jusst continue back and forth (make sure that the cable rows will still be worked from RS) starting rows now from neck and decreasing as before for raglan cast off for neck as explain for the size at the beg of every row both from RS and from WS (= each side of the middle sts for neck). Happy knitting!

21.01.2019 - 16:22

country flag Rushd wrote:

Am working on yoke. But one side where sleeves are join is close.i.e. where 6 sts had been bindoff in body for armhole. While other sleeves is join on other side where the body is open. Can i close the side of body n armhole gap after finishing the sweater?

20.01.2019 - 11:41

DROPS Design answered:

Dear Mrs Rushd, body has been worked in the round and you have cast off 6 sts on each side of the jumper for the armholes. Each sleeve will then be joined over these 6 sts - see the video below showing how to place sleeves on same circular needle as body. Happy knitting!

21.01.2019 - 10:55

country flag Rushd wrote:

Nice pattern

18.01.2019 - 19:00

country flag Rushd wrote:

While working on body when piece measure 22cm it is ask to dec sts.am confuse as to how to dec totally. ,i.e . Start n end we have to dec 3 sts each side. And the 6sts again for armhole which comes in the middle 28sts. Mean explain how to dec.

18.01.2019 - 13:31

DROPS Design answered:

Dear Rushd, rounds are starting in the side, so that you cast off the first 3 sts on round (half the armhole on the side), work until 3 sts remain before the marker on the other side, cast off the next 6 sts (= 3 sts on each side of the marker), work until 3 sts remain before last marker, cast off the last 3 sts. Happy knitting!

18.01.2019 - 14:38

country flag Kirsten Werner Landsnes wrote:

Jeg har strikket i over 50 år, og trenger hjelp, for første gang. Legg opp: OK Strikk i henhold til størrelse, osv etter A1, og nå føler jeg meg virkelig dum. Er ikke dette en vanlig vrangbord i 2r og 2vr? Og hvor strikkes A2?

11.01.2019 - 02:00

DROPS Design answered:

Hei Kirsten. Jo, A.1 er en vanlig vrangbord 2 rett, 1 vrang. Det er laget diagram slik at det blir lettere å skjønne hvordan A.2 strikkes over vrangborden. Du strikker A.2 etter at du har strikket vrangborden over 5 cm. Det står slik: Bytt til rundp 4 og strikk slik I ALLE STR: Strikk rett over de første 17-21-23-25-27 m og fell samtidig 3-5-5-5-5 m jevnt fordelt over disse m, strikk og fell etter A.2 over de neste 58 m,... osv. A.2 strikkes altså over A.1. God fornøyelse

11.01.2019 - 09:25

Rushd Nakade wrote:

I am working on sleeves. What you mean by Inc 2 sts mid under sleeves? Also at the 26cm for size 1 cast off 6 sts mid under sleeves. Can you please explain Thanks

11.12.2018 - 18:59

DROPS Design answered:

Hi Rushd. You increase mid under sleeve to make the increase as invisible as possible. The beginning/end of the round is normally mid under sleeve as there will always be a slight irregularity here. Increase 1 stitch at the beginning, and 1 stitch at the end of the round= 2 stitches increased mid under sleeve. When the sleeve measures 26 cm, you cast off 6 stitches. This is where the sleeve will meet the body and will later be sewn to the 6 stitches you cast off for sleeves on the body. Happy knitting.

12.12.2018 - 08:36

Rushd Nakade wrote:

Pattern ask for dec when you change from 3.5mm to 4mm, am working on size 2 i.e 2yrs. A total of 14 stitches are asked to dec. But when u read the pattern. Its 3 stitches in first 17, 3 stitches in last 17 and 6 stitches in middle 34 stitches. So its total of 12 stitches where to dec those 2 stitches so make it 160. Plz explain.

25.11.2018 - 23:27

DROPS Design answered:

Dear Mrs Rushd, you have to decrease evenly over the rib and at the same time you will work A.2 where you will decrease 6 sts each time you'll work A.2. So that you will dec: 3 + 6 + 3 sts + 6 sts in each of the 2 A.2 = 24 sts dec, there were 184 sts - 24= 160 sts remain. Happy knitting!

26.11.2018 - 10:35

Sossa wrote:

I need diagram A.1 please

27.09.2018 - 10:44

DROPS Design answered:

Dear Sossa, You'll find diagram A.1 just above measurement chart = 4 rows framed on the right side of diagram. Happy knitting!

27.09.2018 - 13:43