DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Princess Matilde

Heklaður kjóll með laskalínu, stuttum ermum og sólfjaðramynstri, heklaður ofan frá og niður, plús hekluðu hárbandi með blómum úr DROPS BabyMerino, DROPS Safran eða DROPS ♥ You #7. Stærð börn 2-10 ára

DROPS Children 26-5
DROPS Design: Mynstur nr bm-005-bn
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

KJÓLL:
Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 ára
Stærð í cm: 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
200-200-250-250-300 gr litur nr 16, rauður

Eða notið:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
250-250-300-300-350 g litur nr 19, rauður

Eða notið:
DROPS ♥ You #7 frá Garnstudio
200-200-250-250-300 g litur nr 16, rauður

HÁRBAND:
Stærð: 2/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 ára
Höfuðmál: 48/50 - 50/52 - 52/53 - 54/55 cm

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
50 gr í allar stærðir litur nr 02, natur
50 gr í allar stærðir litur nr 16, rauður
50 gr í allar stærðir litur nr 30, blár

Eða notið:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
50 g í allar stærðir af lit nr 18, natur
50 g í allar stærðir af lit nr 19, rauður
50 g í allar stærðir litur nr 09, sæblár

Eða notið:
DROPS ♥ You #7 frá Garnstudio
50 g í allar stærðir litur nr 01, hvítur
50 g í allar stærðir litur nr 16, rauður
50 g í allar stærðir litur nr 05, sæblár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st og 12 umf á hæðina verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA: BLÓM (hvít) NR 600, 3 stk í allar stærðir (fyrir kjól).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með st er 1. st skipt út fyrir 3 ll. Þegar heklað er í hring endar umf á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Þegar heklað er fram og til baka endar umf á 1 st í 3. ll frá byrjun fyrri umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sömu l.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að aftan fyrir klauf á miðju baki, síðan er stykkið heklað í hring.

BERUSTYKKI:
Heklið 77-81-85-85-89 lausar ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 3,5 með Baby Merino, Safran eða DROPS ♥ You #7. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið síðan 1 fl í hverja ll út umf = 76-80-84-84-88 fl í umf.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (byrjið fyrir miðju að aftan – ATH: EKKI er heklað þegar prjónamerkin eru sett í stykkið): Hoppið yfir 12-13-14-14-15 fl (= hægra bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 12 fl (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 24-26-28-28-30 fl (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 12 fl (= ermi) og setjið síðasta prjónamerki í næstu fl (nú eru 12-13-14-14-15 fl í vinstra bakstykki eftir síðasta prjónamerki.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM!
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið næstu umf frá réttu þannig: Heklið 1 st í hverja fl, en í hverja fl með prjónamerki er heklað 2 st + 2 ll + 2 st = 88-92-96-96-100 st í umf ( = 12 st fleiri).

Aukið síðan út fyrir laskalínu. Haldið áfram með st og heklið 2 st + 2 ll + 2 st um hvern ll-boga í hverri laskalínu (= 16 st fleiri í umf). Endurtakið útaukningu í hverri umf, 6-6-7-8-9 sinnum til viðbótar (= alls 7-7-8-9-10 sinnum) = 200-204-224-240-260 st í umf.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Næsta umf er hekluð frá réttu þannig:

Heklið 1 st í hvern og einn af fyrstu 28-29-32-34-37 st (= hægra bakstykki), hoppið yfir næstu 44-44-48-52-56 st (= ermi), heklið 8 ll, heklið 1 st í hvern og einn af næstu 56-58-64-68-74 st (= framstykki), hoppið yfir næstu 44-44-48-52-56 st (= ermi), heklið 8 ll og heklið 1 st í hvern og einn af síðustu 28-29-32-34-37 st (= vinstra bakstykki). Kantur á ermum er nú lokið og stykkið er heklað í hring.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið saman stykkið fyrir miðju að aftan með réttu út og heklið 1 umf með st (heklið 1 st í hvern st frá fyrri umf og 1 st í hverja ll undir hvorri ermi – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR) = 128-132-144-152-164 l í umf. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 4-4-4-5-5 cm, í síðustu umf er aukið út um 2-3-1-3-1 st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 130-135-145-155-165 st. Heklið nú sólfjaðramynstur þannig:

UMFERÐ 1: 1 fl í fyrsta st, * 4 ll, hoppið yfir 4 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 4 ll, hoppið yfir 4 st og 1 kl í fyrsta st = 26-27-29-31-33 ll-bogar.
UMFERÐ 2: 3 st + 2 ll + 3 st um hvern ll-boga.
UMFERÐ 3: Heklið kl fram að fyrsta ll-boga, heklið nú 3 st + 2 ll + 3 st um hvern ll-boga.
Endurtakið UMFERÐ 3 þar til stykkið mælist 15-17-18-20-21 cm

NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: Heklið kl fram að fyrsta ll-boga, heklið nú 4 st + 2 ll + 4 st um hvern ll-boga.
Endurtakið þessa umf þar til stykkið mælist 25-28-31-34-36 cm.

NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: Heklið kl fram að fyrsta ll-boga, heklið nú 4 tbst +b2 ll + 4 tbst um hvern ll-boga. Endurtakið þessa umf þar til stykkið mælist 35-39-43-48-52 cm. Klippið frá og festið enda.

HÁLSMÁL JAFNAÐ ÚT:
Til þess að fá betra form á hálsmálið og að það passi betur er hekluð smá upphækkun aftan við hnakka.
Setjið 1 prjónamerki í l í hvert “horn” í hálsmáli, þ.e.a.s. í byrjun á hverri laskalínu og 1 prjónamerki fyrir miðju að framan. Heklið með heklunál nr 3,5 þannig: Byrjið fyrir miðju að aftan og heklið 1 fl í hverja l þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki í, heklið 1 hst í næstu l, 1 st í l með prjónamerki og 1 hst í næstu l, heklið síðan 1 fl í hverja l þar til 1 l er eftir á undan næstu l með prjónamerki, 1 hst í næstu l, 1 st í l með prjónamerki í og 1 hst í næstu l, heklið síðan 1 fl í hverja l þar til 4-4-5-5 (5-6) l eru eftir á undan prjónamerki fyrir miðju að framan. Snúið við og heklið 1 fl í hverja fl til baka að miðju að aftan, en við hvert prjónamerki eru heklaðar 3 fl saman, þ.e.a.s. heklið 1 fl í 1 fl í hst, en bíðið með að bregða bandinu um heklunálina og að draga bandið í gegn í lokin, heklið 1 fl í st l með prjónamerki, en bíðið með að bregða bandinu um heklunálina og að draga bandið í gegn í lokin, heklið 1 fl í næsta hst, en nú er bandið dregið í gegnum allar 4 l á heklunálinni (= 2 fl færri). Klippið frá og endurtakið frá miðju að aftan að miðju að framan á hinni hliðinni.

KANTUR FYRIR TÖLUR AÐ AFTAN:
Heklið meðfram vinstra opi við miðju að aftan þannig: Heklið 2 fl í hverja st-umf og 1 fl í hverja fl-um. Heklið alls 4 umf fl fram og til baka, klippið frá og festið enda. Meðfram hægra opi við miðju að aftan eru hekluð hnappagöt þannig (byrjið frá réttu við hálsmál):
Heklið 4 fl (2 fl um tvær fyrstu st-umf), 4 ll (= 1 hnappagat), hoppið yfir ca 1 cm, heklið fl síðan að ca miðju á kant, 4 ll, hoppið yfir ca 1 cm, heklið fl þar til 1 cm er eftir á kanti, 4 ll og festið með 1 fl í síðustu l. Klippið frá og festið enda. Saumið tölurnar í kant fyrir tölur Í vinstri hlið.

HÁLSMÁL:
Heklið í kringum hálsmál þannig: 1 fl í fyrstu l, * 2 ll, hoppið yfir 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* út umf, klippið frá og festið enda.

SÓLFJAÐRAKANTUR Í KRINGUM ERMAKANTA:
Heklið þannig: Heklið 1 fl í hverja af 8 l fyrir miðju undir ermi, heklið síðan sólfjaðrakant í kringum kant á ermum þannig: * hoppið yfir ca 2 cm, í næstu l er heklað 3 st + 2 ll + 3 st, hoppið yfir ca 2 cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf (= ca 9-9-10-10-11 sólfjaðrir meðfram kant á ermum). Klippið frá og festið enda. Endurtakið neðst í kringum hinn kant á ermi.

-------------------------------------------------------

HÁRBAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

HÁRBAND:
Heklið 6 ll með heklunál nr 3,5 með litnum natur.
Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 fl í 4. ll frá heklunálinni, heklið 1 fl í hvora af næstu 2 ll, snúið við = 3 fl + 3 ll í umf.
UMFERÐ 2: 3 ll, 1 fl í hverja af 3 fl frá fyrri umf, snúið við.
Endurtakið umf 2 þar til hárbandið mælist ca 42-44-46-48 cm (að óskaðri lengd, dragið frá ca 6-8 cm miðað við ummál höfuðs). Klippið frá og saumið saman 2 skammhliðar kant í kant með smáu spori.

STÓRT HEKLAÐ BLÓM:
Heklið 7 ll með heklunál nr 3,5 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: 3 ll (= 1 st), 2 st um hringinn, * 6 ll, 1 fl í síðasta st sem heklaður var, 3 st um hringinn *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum og endið á 6 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 7 ll-bogar með 3 st á milli hverra. Klippið frá og festið enda.
UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn rauður. Heklið 1 fl í miðju á 3 fyrstu st í umf, * 12 st um ll-boga, hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta st, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda.

LÍTIÐ HEKLAÐ BLÓM:
Heklið 6 ll með heklunál nr 3,5 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: 2 ll (= 1 hst), 2 hst um hringinn, * 5 ll, 1 fl í síðasta hst sem heklaður var, 3 hst um hringinn *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum og endið á 5 ll og 1 kl í 2. ll frá byrjun umf = 6 ll-bogar með 3 hst á milli hverra. Klippið frá og festið enda.
UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn blár. Heklið 1 fl í miðju á 3 fyrstu hst í umf, * 10 st um ll-boga, hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta hst, hoppið yfir 1 hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið blómin í hárbandið með smáu spori.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 26-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Julie wrote:

In the "Body" section, it says to repeat Round 3 until the dress measures "X." For me, that's 6&3/4. From where to where is that measurement taken?

01.04.2023 - 16:16

DROPS Design answered:

Dear Julie, the measurement is taken from where it indicated: NOW MEASURE PIECE FROM HERE! at the beginning of the Body, up until the round you are currently working. Happy crochetting!

02.04.2023 - 20:25

country flag Rie wrote:

Jeg vil gerne hækle med flere farver garn til 5/6 år. Hvor mange garn-ruller (af 50 gram) skal man bruge til øverste del af kjolen og hvor mange til den nedre del af kjolen (den del med hæklede luft huller)? Jeg har 4 forskellige farver. Er den hvide underdel med i opskriften?

15.11.2022 - 21:00

DROPS Design answered:

Hej Rie, du skal bruge ialt 5 nøgler DROPS Baby Merino. Nej den hvide underkjole er ikke med :)

16.11.2022 - 13:12

country flag Gillian Sansum wrote:

Hi I have looked at the diagram provided and it looks like it is a round neck....I seem to have ended up with a square neck...your help please thanks Gillian

02.08.2022 - 13:11

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sansum, at the very end, you will crochet an elevation to make the neck higher on the back so that the neckline will look round - see ADJUSTING NECKLINE. Happy crocheting!

02.08.2022 - 17:15

country flag Jette Brøns wrote:

Hej. Jeg har et spørgsmål angående kjolen. Den hvide underdel er den også hæklet? Venlig hilsen Jette Brøns

12.01.2022 - 08:23

DROPS Design answered:

Hej Jette, nej det er kun det røde i kjolen som er hæklet. God fornøjelse!

13.01.2022 - 11:32

country flag Marianne wrote:

Vedr. vifteærme Det passer bedre med at springe over 2masker pr. gang og ikke 2cm.

25.11.2021 - 16:31

country flag Kirstine Rasmussen wrote:

Lige meget hvad jeg gør, så får jeg aldrig de rigtige antal masker til når jeg har hæklet de første 7 rækker, hvor jeg skal ende med 204 masker. Der mangler mange. Hvad mon jeg gør forkert?

19.11.2021 - 21:35

DROPS Design answered:

Hej Kirstine, du har 92 masker, tager 16 masker ud 7 gange = 112 = 204 masker - god fornøjelse!

23.11.2021 - 09:11

country flag Fia Älander wrote:

Det står "när arbetet mäter 15 cm.... var ska jag måta från då? jag virkar den minsta storleken

15.06.2021 - 16:55

DROPS Design answered:

Hej Fia, du mäter från där det står HERIFRÅN MÄTS NU ARB! Lycka till :)

16.06.2021 - 13:06

country flag Anna wrote:

Scusi se insisto ma dopo aver fatto le 84 maglie basse sono costretta a girare il lavoro,a questo punto mi trovo sul diritto o rovescio del lavoro? E se mi trovo sul rovescio come faccio a lavorare sul diritto?

18.05.2021 - 10:22

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, può considerare quella riga come diritto del lavoro, e da lì imposta tutta la lavorazione. Buon lavoro!

20.05.2021 - 22:03

country flag Anna wrote:

Domanda da principiante: sto facendo la taglia 5/6 ho lavorato le 84 maglie basse e messo i 4 segnapunti poi c'è scritto, lavorare la riga successiva come segue dal diritto del lavoro.Cosa si intende per diritto del lavoro?

17.05.2021 - 20:54

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, i lavori a maglia e uncinetto hanno un diritto e un rovescio del lavoro. In questo caso deve iniziare a lavorare sul diritto del lavoro. Buon lavoro!

17.05.2021 - 22:32

country flag Helena Lentz wrote:

Hej litet problem med att få ihop ökn så att jag har inte 32 stolpar som det står i diagrammet för 5/6 år får efter ökning som det ska vara. jag får29 maskor i bakstycket och 39 i ärm 56 i framstycke...39 i ärm och 29 bak.. Har följt er som det ska i diagrammet?

02.11.2020 - 14:24

DROPS Design answered:

Hej Helena. Om det är måttskissen längst ner du ser på så är det mått i cm som vi uppger där, inte antal stolpar. Mvh DROPS Design

05.11.2020 - 09:13