DROPS Belle uni colour 53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör |
638.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Belle uni colour 53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör 638.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= fastalykkja í lykkju | |
= stuðull í lykkju | |
= loftlykkja | |
= stuðull um loftlykkju | |
= 1 kúla með 4 tvíbrugðnum stuðlum: 1 tvíbrugðinn stuðull í næsta stuðul - en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af næstu 3 stuðlum á sama hátt, dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni | |
= fyrsta umferð er útskýrt í uppskrift | |
= 1 fastalykkja um loftlykkju | |
= 2 stuðlar í sömu lykkju | |
= heklið 1 stuðul í næsta stuðul - en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul í hvorn af næstu 2 stuðlum á sama hátt, dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni | |
= 7 stuðlar í sömu loftlykkju/stuðla | |
= heklstefna |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Bon Vivant |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað poncho úr DROPS Belle með gatamynstri. Heklað ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.
DROPS Extra 0-1105 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð í umferð einungis með stuðlum (þ.e.a.s. ekki í gataumferð). Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 1 stuðul í næsta stuðul, 2 stuðlar um næsta loftlykkjuboga. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 – A.3. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í byrjun umferðar. Í byrjun hverrar umferðar með tvíbrugðnum stuðlum, heklið 4 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun umferðar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá hálsmáli og niður. PONCHO: Heklið 167-174-182-196 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Belle. Heklið 1 stuðul í 4. Loftlykkju frá heklunálinni (kemur í stað fyrsta stuðul), síðan 1 stuðul í hverja af næstu 4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 3-4-0-2 loftlykkjur, 1 stuðull í hverja af síðustu 3-4-0-2 loftlykkjum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju = 138-144-150-162 stuðlar – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2: 4 loftlykkjur (taldar sem fyrsti stuðull og 1 loftlykkja), * hoppið yfir 1 stuðul, 1 stuðull í næsta stuðul, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* út umferðina = 69-72-75-81 stuðlar með 1 loftlykkju á milli hverra stuðla. UMFERÐ 3: Heklið 3 loftlykkjur (taldar sem fyrsti stuðull), 1 stuðull um fyrsta loftlykkjuboga, heklið 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga í umferð – JAFNFRAMT er aukið út um 30 stuðla – lesið ÚTAUKNING – jafnt yfir í umferð = 168-174-180-192 stuðlar. UMFERÐ 4: Heklið eins og umferð 2 = 84-87-90-96 stuðull með 1 loftlykkju á milli hverra stuðla. UMFERÐ 5: Heklið 3 loftlykkjur (taldar sem fyrsti stuðull), 1 stuðull í fyrsta loftlykkjuboga, heklið 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga í umferð – JAFNFRAM er aukið út um 16 stuðla jafnt yfir í umferð = 184-190-196-208 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 6: Heklið eins og umferð 2 = 92-95-98-104 stuðlar með 1 loftlykkju á milli hverra stuðla. UMFERÐ 7: 3 loftlykkjur (taldar sem fyrsti stuðull), 1 stuðull um fyrsta loftlykkjuboga, heklið 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga umferðina hringinn – JAFNFRAMT er aukið út um 12 stuðla jafnt yfir í umferð = 196-202-208-220 stuðlar. Endurtakið UMFERÐ 6-7 alls 4-5-6-6 sinnum (þ.e.a.s. aukið er út um 12 stuðla jafnt yfir í annarri hverri umferð) = 232-250-268-280 stuðlar í umferð. Stykkið mælist nú ca 14-17-19-19 cm. Síðan er heklað A.1 yfir alla stuðla JAFNFRAMT sem í fyrstu umferð er aukið út um 2 stuðla jafnt yfir = 234-252-270-282 stuðlar. A.1 er heklað alls 39-42-45-47 sinnum hringinn. Í umferð 9 (umferð með stuðlum) er aukið út um 24 stuðla jafnt yfir = 258-276-294-306 stuðlar. A.1 er heklað 43-46-49-51 sinnum hringinn. Í síðustu umferð er aukið út um 14-12-10-14 stuðla jafnt yfir = 272-288-304-320 stuðlar. Heklið síðan A.2 yfir alla stuðla (= 17-18-19-20 sinnum á breidd) 1 sinni á hæðina, klippið frá og festið þræði. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Stykkið er heklað í hring með stuðlum frá fyrstu umferð í hálsmáli. Heklið frá réttu A.3 (= 6 stuðlar) alls 23-24-25-27 sinnum í kringum allan kantinn í hálsmáli (byrjið mitt að aftan). Klippið frá og festið þráðinn. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6937 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (16)
HELENA wrote:
Hej Enligt mönstret virkas ponchon framoch tillbaka (inte runt),men jag ser ingenstans i beskrivningen när den skamonteras.Är det innan man virkar halskanten eller efter?
27.07.2023 - 00:13DROPS Design answered:
Hei Helena. Litt usikker på hvor du leser: .. framoch tillbaka. I oppskriften strå det: PONCHO: Arb virkas runt från halsen och ned. Virka 167-174-182-196 lm med nål 4 med Belle.... mvh DROPS Design
28.07.2023 - 11:29Hennie wrote:
Hallo, als ik het goed lees moet ik bij de tweede toer van A1 eindigen met twee stk en dan afsluiten met een hv in de derde losse van het begin. Maar ik eindig de tweede toer met drie lossen-vaste-drie lossen. Wat doe ik verkeerd? Gelden de drie beginlossen bij A1 ook als een eerste stokje? Is het aantal van 234 stk inclusief of exclusief de drie beginlossen?
03.05.2022 - 14:15DROPS Design answered:
Dag Hennie,
De eerste 3 lossen vervangen inderdaad het laatste stokje dat je haakt, dus als je in de rondte bent gehaakt, haak je nog 1 stokje als laatste en een halve vaste in de derde losse van de 3 lossen. Als je 234 deelt door 6, dan kom je op 39, dus je hebt 39 herhalingen van 6 stokjes waarin je de tweede toer van A.1 kunt haken. Hopelijk is het zo duidelijk.
10.05.2022 - 09:33Cristina wrote:
Buongiorno, non riesco a capire come procedere con il 3° giro: 1ma attorno al primo arco di catenella? 2ma attorno a ogni spazio di catenella sul giro? Ciò che non capisco e' " Attorno", dove devo fare le ma? Grazie per la risposta
13.04.2021 - 21:17DROPS Design answered:
Buonasera Cristina, non deve lavorare NELLA maglia ma ATTORNO alla maglia: provi a vedere se questo video le può essere di aiuto . Buon lavoro!
15.04.2021 - 19:36Lisa wrote:
I skriver under udtagningstips at man tager ud med 2 stangmasker i løbemasken, men opskriften siger i forvejen 2 stangmasker i buen. Hækler man så 3 masker når man tager ud?
03.09.2018 - 19:48DROPS Design answered:
Hej Lisa, ja det stemmer, når du tager ud på 3.omgang hækler du 1 st ekstra om hver lm-bue ialt 30 udtagninger. God fornøjelse!
04.09.2018 - 08:11Rosa wrote:
Salve, Ho contattato un vostro rivenditore e non ha disponibile questo modello con istruzioni o schema. Come posso fare? Non posso stamparlo dalla pagina purtroppo. Grazie mille.
27.01.2018 - 00:25DROPS Design answered:
Buongiorno Rosa, i modelli extra non sono disponibili sui cataloghi cartacei, in ogni caso i modelli DROPS sono sempre consultabili sul sito e a disposizione di chiunque: se non riesce a stampare può salvarlo in formato pdf e poi consultarlo dal pc, tablet o telefono. Buon lavoro!
27.01.2018 - 13:22Tassin wrote:
Merci pour votre réponse mais Moi je fait la taille S/M et dans votre réponse par rapport au explication nous n avalons pas le meme nombre de bride moi ça me dit 234-252-270-282 er crocheter 39-42-45-47fous A1
05.07.2017 - 22:18DROPS Design answered:
Bonjour Mme Tassin, effectivement vous avez 234 B après avoir augmenté 2 B au 1er rang de A.1 (= rang de brides), vous pouvez maintenant répéter 39 fois A.1 en largeur (placez un marqueur après chaque 6ème bride du 1er tour de A.1 si besoin pour bien vous repérer sur le nombre de motifs). Au 9ème tour de A.1, vous augmentez 24 B = 258 B au total et continuez A.1 mais cette fois sur 43 motifs (déplacez vos marqueurs au tour des augmentations). Au dernier tour de A.1, augmentez 14 B = 272 B au total. Bon crochet!
06.07.2017 - 09:52Tassin wrote:
Bonjour je commence le schéma A1 est ce que je doit faire 6 brides et en Passe une ou faire des bride tout le long et puis ensuite faire la deuxième ligne Avec l autre point je ne comprend pas leS expliquation à partir du A1
04.07.2017 - 14:45DROPS Design answered:
Bonjour Mme Tassin, au 1er tour de A.1, crochetez 1 bride dans chaque bride tout le tour, en augmentant 2 B à intervalles réguliers (= 258-306 B cf taille). Répétez ensuite 43-51 fois A.1 en largeur à chaque tour (2ème tour = 3 ml pour commencer, *3 ml, sauter 2 B, 1 ms dans la B suivante, 3 ml, sauter 2 B, 2B dans la B suivante*, répétez de *-* 43-51 fois au total tout le tour, puis répétez le tour suivant comme dans le diagramme de la même façon. Bon crochet!
04.07.2017 - 15:28M C wrote:
Vore det inte bra om det stod att man ska sätta ihop lmkedjan till en ring?? Varv 1 börjar ju som att man ska göra första st utan ihopsättning... Och på bilden har ni gjort v 2 likadant som v1 och inte enligt texten... Varför går inte stgr jämnt upp i 5??
18.06.2016 - 23:59DROPS Design answered:
Hej MC. Nej, for man haekler först rundt efter förste omg, hvor man har heklet staver
17.11.2016 - 15:26Becky wrote:
I'm a beginner and have a question on using the Belle yarn and the amount of Belle needed for this pattern. I am making a size Medium, the Belle required according to the pattern is 450 gr. If I understand correctly. at 50 gr per Belle skein I need 9 skeins. Is that correct? Thank you very much. I love the Drops designs and yarns.
11.06.2016 - 03:45DROPS Design answered:
Dear Becky, the first size is S/M and you need 400g of DROPS Belle, so 8 skeins. Happy crocheting!
11.06.2016 - 15:07Anna-karin Allansson wrote:
Denna poncho ser väldigt smal ut. Är den det?
06.10.2015 - 18:18DROPS Design answered:
Hej Anna-Karin. Se maalskitsen nederst
07.10.2015 - 11:12