Barcelona |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Safran með gatamynstri og kögri. Stærð S-XXXL
DROPS 162-21 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Umf endar með 1 kl í ll frá byrjun umf. Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. KÖGUR: 1 KÖGUR = Klippið 2 þræði ca 40 cm. Leggið þá saman tvöfalda og dragið lykkjuna í gegnum ll-bogann og dragið síðan þræðina inn í gegnum lykkjuna. Klippið kögrið þannig að það verði ca 19 cm langt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: ---------------------------------------------------------- PEYSA: Heklið 34 ferninga, áður en þeir eru saumaðir saman til fram- og bakstykki. Heklið síðan netamynstur mismunandi eftir stærðum. HEKLAÐUR FERNINGUR: Heklið ferning þannig – sjá mynsturteikningu A.1: Heklið 5 ll með Safran með heklunál nr 3,5 og tengið saman í hring með 1 kl. UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (= 1 st), heklið síðan 2 st um ll-hringinn, * 3 ll, 3 st um ll-hringinn * endurtakið frá *-* 6 sinnum til viðbótar, 3 ll, 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, 1 kl í hverja af næstu 3 l (þ.e.a.s. 1 kl í 2. næstu st, 1 kl í næstu ll). UMFERÐ 2: 3 ll (= 1 st), 2 st um ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga *, endurtakið frá *-* (= A.1) 2 sinnum til viðbótar, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, 1 kl í hverja og eina af 3 næstu l. UMFERÐ 3: 3 ll (= 1 st), 2 st um ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga *, endurtakið frá *-* (= A.1) 2 sinnum til viðbótar, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, 1 kl í hverja af næstu 3 l. UMFERÐ 4-9: Haldið áfram eins og útskýrt er í mynstri. Endurtakið A.1 alls 4 sinnum í umf, en endið eins og útskýrt er í mynstri. Þ.e.a.s. síðasti st-hópur í horni í A.1 er ekki heklaður í 4. Skiptið þegar A.1 er endurtekið. Endið hverja umf með 1 kl í 3. ll í umf og 1 kl í næstu 3 l. UMFERÐ 10: Heklið 1 ll, 2 fl um ll-bogann, 3 ll, 2 fl um sama ll-boga, haldið síðan áfram eins og útskýrt er í A.1. Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf, 1 kl í hverja og eina af 2 næstu l. UMFERÐ 11: 8 ll (= 1 st + 5 ll), 1 st um ll-bogann, haldið síðan áfram eins og sýnt er í A.1. Endið á 1 kl í 3. ll í umf. Klippið frá og festið enda. Heklið 3 ferninga til viðbótar alveg eins (= 34 ferningar). FRÁGANGUR: Saumið saman hekluðu ferningana eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. Nú er komið 1 bakstykki, 2 framstykki (gagnstæð/spegilmynd) og 2 lausir ferningar fyrir vasa. VASAR: Heklið styrktarkant í kringum ferninginn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR: Byrjið á 1 kl í horni á ferningi og heklið (1 fl, 4 ll, 1 fl) um ll-boga. Haldið síðan áfram þannig: * 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* fram að næsta horni og endið á 1 ll. Haldið svona áfram í kringum allan ferninginn og endið á 1 kl í fyrstu l í umf. Saumið vasa á hvort framstykki, staðsetjið ofan á sauminn á milli fernings 20 og 21 – sjá teikningu! Saumið í gegnum bæði stykkin meðfram hliðum og botn á ferningum. ÖXL: Byrjið á 1 kl í ll-boga í horni á 5. ferningi – sjá mynsturteikningu. S/M: Heklið 1 ll, * 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* yfir 5. -1. ferning. ATH: Nú er hekluð 1 fl í sauminn á milli ferninga. Endið á 1 ll og 1 fl um síðasta ll-boga í 1. ferningi. L/XL – XXL/XXXL: UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (= 1 st), * 1 ll, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* yfir 5.-1. ferning. ATH: Nú er heklaður 1 st í sauminn á milli ferninga. Endið á 1 ll og 1 st um síðasta ll-boga í 1. ferningi. Snúið við og heklið svona fram og til baka þar til netamynstur hefur verið heklað í 2-4 cm. ALLAR STÆRÐIR: Hekli öxl alveg eins á báðum framstykkjum, þ.e.a.s. yfir 17.-15. ferning. Saumið axlasauma. Saumið saman 2 síðustu ferninga í hvorri hlið á bakstykki með 2 síðustu ferningum á hvoru framstykki = 1 ferningur fyrir hálsmáli. HLIÐAR: Byrjið á 1 kl í ll-bogann í hroni á 14. ferningi – sjá mynsturteikningu. S/M: Heklið 1 ll, * 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* yfir 14., 11. og 8. ferning og haldið síðan áfram undir ermum (= 5. ferningur). L/XL – XXL/XXXL: Heklið 3 ll, * 1 ll, hoppið yfir 1 ll, 1 st í næsta st *, endurtakið yfir 14., 11. Og 8. Ferning. Snúið við og heklið alveg eins fram og til baka þar til netamynstur hefur verið heklað í 4-8 cm. ALLAR STÆRÐIR: Heklið alveg eins í hinni hliðinni, endurtakið í hlið á hvoru framstykki. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma og sauma undir ermum. Heklið kant í kringum kanti að framan og hálsmáli: Byrjið á 1 kl í horni (A). Heklið 1 ll, * 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* meðfram kanti að framan og upp að horni (B), heklið 4 ll í horn (B) og haldið síðan áfram í kringum hálsmál. Heklið alveg eins meðfram hinum kantinum að framan. Klippið frá og festið enda. Setjið KÖGUR – sjá útskýringu að ofan, í annan hvern ll-boga frá röngu á milli 19. og 17. fernings. Endurtakið á hinu framstykki. KANTUR NEÐST NIÐRI: Heklið kant neðst niðri með byrjun frá réttu. Byrjið á 1 kl í ll-boga í horni á framstykki, haldið áfram yfir bakstykki og að lokum yfir seinna framstykki. S/M: Heklið 1 ll, * 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið meðfram öllum neðri kanti. L/XL – XXL/XXXL: Heklið 3 ll, * 1 ll, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* meðfram öllum kanti að neðan, snúið við og heklið alveg eins fram og til baka í 2-4 cm. KANTUR Á ERMUM: Heklið kant í kringum ermar. Byrjið á 1 kl fyrir miðju undir ermi og heklið frá réttu þannig: S/M: 1 ll, * 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið í kringum allan kantinn á ermi og endið á 1 ll, 1 kl í fyrstu ll í umf. Endurtakið á hinni erminni alveg eins. L/XL - XXL/XXXL: 3 ll, * 1 ll, 1 st í næsta st *, endurtakið í kringum allan kantinn á ermi og endið á 1 ll, 1 kl í 3. ll í umf. Haldið svona áfram þar til kanturinn mælist 2-4 cm. Endurtakið á hinni erminni alveg eins. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (50)
Yael De-mayo wrote:
PATTERN URGENT!!! 😍
15.02.2015 - 17:47Yael De-mayo wrote:
PATTERN URGENT!!! 😍
15.02.2015 - 17:47Maartje wrote:
Zou het meteen gaan maken als ik het patroon had
12.02.2015 - 09:58Lingonne wrote:
Prochain modèle que je vais réaliser après la veste boléro... J'attends avec beaucoup d'impatience les explications... même si les carrés se rapprochent des carrés de la robe tunique (modèle e 235). Merci beaucoup pour tous ces modèles qui sont magnifiques.
08.02.2015 - 16:48Signe wrote:
Virkelig flot. Vil meget gerne se en opskrift!
04.02.2015 - 15:03Signe wrote:
Virkelig flot. Vil meget gerne se en opskrift!
04.02.2015 - 14:56Beryl Doran wrote:
Can I get the pattern?
31.01.2015 - 13:28Sandrine wrote:
Magnifique
07.01.2015 - 16:47Nancy wrote:
Cette veste est magnifique, j'aimerai beaucoup la faire !!!
05.01.2015 - 13:40Annette wrote:
Yeah, back to the 70´th. Diese Jacke würde ich mir gerne für meinen Griechenland Urlaub im September stricken. Wolle wird schon besorgt, her mit der Anleitung. ;-)
31.12.2014 - 23:29