DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Shy Violet Cardigan

Hekluð peysa úr DROPS Safran með sólfjaðramynstri, hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL

DROPS 162-14
DROPS Design: Mynstur nr e-230
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
250-350-350-400 gr litur nr 53, ljós fjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 2 mynstureiningar af A.3 verði ca 10,5 cm á breidd.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (fjólublá), NR 619: 5-5-6-6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 - A.9. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Mælt frá kanti í hálsi að framan og saumið tölur í vinstri kant að framan:
STÆRÐ S/M: 1, 9, 17, 25 og 33 cm.
STÆRÐ L: 1, 10, 19, 28 og 37 cm.
STÆRÐ XL/XXL: 1, 8, 16, 24, 32 og 40 cm.
STÆRÐ XXXL: 1, 9, 17, 25, 33 og 41 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið 69-92-114-137 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 3,5 með Safran.
UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hverja af næstu 5-3-5-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 55-73-91-109 st. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Heklið nú eftir mynstri, þ.e.a.s. heklið þannig:
UMFERÐ 1-6: (1. umf = rétta): Heklið A.2, A.3, A.4 alls 2-3-4-5 sinnum, A.5, A.6.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 7 (= rétta): Heklið síðustu umf í A.2-A.5 eins og áður, en endið á A.8 yfir A.6.
Haldið áfram þar til A.8 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, í A.2-A.5 er umf endurtekin í A.x. Klippið ekki frá.
Takið nýjan enda og heklið 1 kl í 3. ll frá byrjun síðustu umf og 22 ll fyrir hálsmál. Klippið frá og haldið áfram með fyrri þráð.
Heklið yfir allar l með byrjun frá réttu þannig: A.2, A.3, A.4 alls 4-5-6-7 sinnum, A.5, endið á A.7 (= kantur að framan). Haldið svona áfram. Þegar stykkið mælist ca 24-26-28-30 cm – stillið af eftir umf 7, þá eru ermarnar tilbúnar.
Heklið síðan með byrjun frá röngu þannig: Heklið A.7 (= kantur að framan); A.5, A.4 alls 3-4-5-6 sinnum, A.3, endið á A.2 (heklið ekki yfir síðustu 3 ll-bogana). Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 48-52-56-58 cm – stillið af eftir umf 5 í dag. Klippið frá og festið enda.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið eins og hægra framstykki til og með umf 6.
UMFERÐ 7 (= rétta): Heklið síðustu umf í A.3-A.6 eins og áður, en byrjið með A.9 yfir A.2. Haldið áfram þar til A.9 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, í A.3-A.6 er umf A.x endurtekin. Heklið 22 ll í lok umf fyrir hálsmál.
Heklið nú yfir allar l með byrjun frá réttu þannig: A.1 (= kantur að framan), A.3, A.4 alls 4-5-6-7 sinnum, A.5, endið á A.6. Haldið svona áfram. Þegar stykkið mælist ca 24-26-28-30 cm – stillið af eftir hægra framstykki, þá eru ermarnar tilbúnar. Klippið frá.
Heklið síðan með byrjun frá röngu þannig: Hoppið yfir 3 ll-boga, byrjið að hekla í næstu fl þannig: A.6, A.5, A.4 alls 3-4-5-6 sinnum, A.3, endið á A.1 (= kantur að framan). Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 48-52-56-58 cm – stillið af eftir hægra framstykki. Klippið frá.

BAKSTYKKI:
Vinstri öxl er hekluð í ll-umf frá uppfitjunarkanti (heklið í sömu ll eins og st, þ.e.a.s. í 55-73-91-109 st) frá vinstra framstykki þannig:
UMFERÐ 1-6: (1. umf = rétta): Heklið A.2, A.3, A.4 alls 2-3-4-5 sinnum, A.5, A.6. Klippið frá.
Heklið hægri öxl eins og vinstri öxl, nema í hægra framstykki – ATH! Í stað þess að klippa frá eru heklaðar 71 ll fyrir hálsmál í lok umf, festið með 1 kl í fyrstu ll í byrjun á síðustu umf frá vinstri öxl. Klippið frá.

Heklið nú yfir allar l með byrjun frá réttu þannig: ATH! (Fyrsta umf er hekluð eins og fyrsta umf í mynstri A.1-A.6, síðan A.x). Heklið A.2, A.3, A.4 alls 9-10-11-12 sinnum, A.5, endið á A.6. Haldið svona áfram. Þegar stykkið mælist ca 24-26-28-30 cm – stillið af eftir framstykki, þá eru ermarnar tilbúnar. Klippið frá.
Heklið síðan með byrjun frá röngu þannig: Hoppið yfir 3 ll-boga, byrjið á að hekla í næstu fl þannig: A.6, A.5, A.4 alls 7-8-9-10 sinnum, A.3, endið á A.2 (ekki er heklað yfir síðustu 3 ll-bogana). Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 48-52-56-58 cm – stillið af eftir framstykki. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma og sauma undir ermum í eitt. Saumið tölur í vinstri kant að framan – sjá útskýringu að ofan. Hneppið í gegnum göt í hægra framstykki.

KANTUR:
Heklið nú kant í kringum hálsmál með byrjun frá kanti að framan á hægra framstykki þannig:
Heklið * 1 fl, 5 ll *, endurtakið frá *-* meðfram hálsmáli með ca 2 cm á milli hverra fl fram að og með kant að framan á vinstra framstykki. Snúið við með 5 ll og heklið þannig: 1 fl um fyrsta ll-boga, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf, endið á 5 ll og 1 fl í fyrstu ll frá fyrri umf. Klippið frá og festið enda. Heklið kant neðst niðri meðfram fram- og bakstykki alveg eins með byrjun frá kanti að framan á vinstra framstykki. Heklið kant í kringum ermi alveg eins, með byrjun frá miðju undir ermi.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.05.2015
Nýtt mynstur A.9 (vantaði 1 st um l og 1 fl í l). Sjá einnig á myndbandi!
Yfirfarið á vefsvæði: 14.11.2016
Leiðrétting: Nýtt mynstur A.9

Mynstur

symbols = 1 ll
symbols = 1 fl um l
symbols = 1 fl í l
symbols = 1 st í l
symbols = 1 st um l
symbols = umferðin er útskýrð í uppskrift (1 ll er talin sem 1 st þegar á við um axlir, en ll-umf á við um hálsmál)
symbols = byrjið á mynstri hér
symbols = sýnir byrjun/enda á A.x
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 162-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag Ferrero Monique wrote:

Bonjour c'est la première fois que je n'arrive pas à faire un de vos modèles, je vais me diriger ver un autre modèle d'hommage

26.10.2023 - 17:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ferrero, rappelez-vous que vous pouvez volontiers poser votre question dans cette rubrique, nous pourrons ainsi essayer de vous aider. Votre magasin peut également vous apporter son assistance, même par mail ou téléphone. Bon crochet!

27.10.2023 - 09:43

country flag Gudrun wrote:

Wo wird A1 gehäkelt, beginne ich wirklich mit A2?

25.06.2022 - 18:53

DROPS Design answered:

Liebe Gudrun, A.1 gilt für die Blende, das stricken Sie bei den Vorderteilen; beim Rückenteil beginnen Sie mit A.2 (entweder 1 oder 3 Luftmasche am Anfang der Reihe und enden Sie mit A.6 (1 fM oder1 Stb) am Ende der Reihe. Viel Spaß beim häkeln!

27.06.2022 - 08:22

country flag Christine wrote:

Je vous remercie pour votre réponse mais je ne comprends toujours pas puisque l'augmentation pour l'encolure débute sur le même rang, le rang 7, Si l'on fait les 6 premiers rangs du devant droit A2 se trouve au début du rang et on ne peut donc pas terminer par A9 au dessus de A2

20.06.2022 - 08:40

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, pour le devant droit, vous avez crocheté A.8 en fin de rang (= à gauche, vu sur l'endroit), pour le devant droit, vous crochetez A.9 en début de rang (vous commencez et non terminez par A.9, la correction va être faîte). Bon crochet!

20.06.2022 - 08:58

country flag Christine wrote:

Bonjour,\r\nJe ne comprends pas ce modèle : si on crochète le devant gauche comme le devant droit, l\'encolure ne va-t-elle pas se retrouver du même côté ?

19.06.2022 - 22:27

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, vous ne crochetez que les 6 premiers rangs comme le devant droit, autrement dit la partie "épaule "droite"", avant d'augmenter pour l'encolure, et vous crochèterez pour le devant gauche A.9 au lieu de A.8 pour le devant droit. Ainsi, les devants sont en "miroir". Bon crochet!

20.06.2022 - 08:02

country flag Jeanette Siemerink wrote:

Ik heb de eerste 7 toeren gehaakt van het vestje. Het oogt alsof het na de eerste toer met stokjes steeds smaller wordt. Het geheel trekt helemaal krom. Het lijkt net of ik stokjes of losse vergeten ben, maar volgens mij heb ik het patroon gevolgd. Wat doe ik verkeerd??

19.05.2022 - 20:51

DROPS Design answered:

Dag Jeanette,

Het werk zou niet scheef mogen trekken. Kan het zijn dat je de lossen aan het begin van de toer te strak haakt? Dit gebeurt vaak als je op het uiteinde van de haaknaald haakt, dus waar de haaknaald wat dunner is. De lossen worden daardoor kleiner en dan kan het werk scheef trekken.

23.05.2022 - 17:04

country flag Lavenac Nathalie wrote:

Bonjour et merci pour votre réponse rapide. Donc, c'est bien ce que j'avais compris, je ne commence pas A8 avant d'arriver près des épaules ? Merci et bonne journée.

04.06.2020 - 09:24

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lavenac, vous crochetez (sur l'endroit pour le devant droit) le 8ème rang de A.8 quand vous crochetez le dernier rang de A.2 à A.5 (vous terminez sur l'endroit par A.8 (devant droit) pour l'encolure) puis vous continuez A.8 et répétez A.x de A.2-A.5. (sur l'envers du devant droit, vous commencez par A.8) Bon crochet!

04.06.2020 - 09:46

country flag Lavenac Nathalie wrote:

Bonjour. Je ne comprends pas à quoi correspond et sert le diagramme A8 au rang 7 et comment poursuivre le modèle ensuite. Merci pour votre réponse .

03.06.2020 - 18:09

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lavenac, n'hésitez pas à nous dire si vous avez maintenant réussi à continuer. Bon crochet!

04.06.2020 - 08:32

country flag Lavenac Nathalie wrote:

Bonjour. Je viens de commencer et j’ai réalisé les rangs 1 à 6 puis le rang 7 mais je ne comprends pas m comment se fait le diagramme A8 : seul ou faut-il continuer le reste du rang avec A2 à A5 ? A quoi sert ce A8? Merci pour votre reponse.

03.06.2020 - 18:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lavenac, le diagramme A.8 correspond aux augmentations pour l'encolure, vous continuez les autres diagrammes comme avant (A.2 à A.5) et crochetez A.8 sur les dernières mailles (au lieu/au-dessus de A.6). Cette vidéo fait pour le top vous aidera peut-être à visualiser comment les épaules se présentent. Bon crochet!

04.06.2020 - 08:29

country flag Helle wrote:

Jeg kan ikke få maskeantallet til at stemme i begyndelsen. Jeg hækler str. L/xl og har efter 1. række 73 stm. En stm gruppe med 5 m og 17 stm grupper med 4m. På diagrammet vises stm grupper á 5 m og ikke 4,som i teksten. Hvorfor det? Når jeg hækler A2, A3 A4x3, A5 og A6 bliver det kun over 11 stm grupper og jeg har derfor 7 grupper tilbage. Hvis jeg derimod hækler A3, A4 og A5 3 gange og A2 og A6 en gang, så passer det. Tager jeg fejl?

04.06.2019 - 19:02

DROPS Design answered:

Hei Helle. Du hekler fler luftmasker enn du trenger på starten av omgangen for at oppleggskanten ikke skal stramme. Rad 1, der du hekler staver og hopper over ca hver 5 luftmaske, hekles slik for å regulere maskeantallet til det du trenger videre. Dette har altså ingenting med videre hekling og gjøre. Hekle diagrammene som anvist: 1 luftmaske (A.2), 5 luftmasker (altså totalt 6 luftmasker), 1 fastmaske i den 7 staven, 5 luftmasker, hopp over 5 staver, 1 fastmaske i neste stav osv. OBS: det er kun A.4 som gjentas 2-3-4-5 ganger - den andre diagrammene hekles 1 gang hver. God fornøyelse

05.06.2019 - 08:16

country flag Van Den Eeckhoudt Inge wrote:

Rechtervoorpand van shy violet cardigan : 1ste toer 91 st gehaakt. toer 1 - 6 zit ik vast. toer 1 : Hoe moet ik beginnen tellen? 5 lossen en 5 st overslaan , dan een v ? Waar begint en eindigt A.4? Kan u mij helpen? Dank u ! Inge.

28.02.2018 - 12:12

DROPS Design answered:

Hallo Inge, Je begint met A.2 (= 1 losse, 1 losse overslaan), dan A.3 5 lossen, 5 lossen overslaan, 1 vaste in de volgende losse, etc. A.4 is een herhalend patroon (in de eerste toer worden 3 boogjes herhaald) en deze begint en eindigt in het midden van het boogje.

30.04.2018 - 11:15