-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
= ll | |
= fl | |
= st í l | |
= tbst í l | |
= byrjið hér | |
= 3 st um ll-boga | |
= 3 tbst um ll-boga | |
= 4 st um ll-boga | |
= st um ll-boga |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Lady Ascot Cardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Cotton Viscose með sólfjaðramynstri og hringlaga berustykki, hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 162-25 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.2. HEKLLEIÐBEININGAR: Í hverri umf með st er fyrsti st skipt út fyrir 3 ll, umf endar á 1 kl í 3. ll í byrjun fyrri umf. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í 1 st. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið fram og til baka frá miðju að framan 136-140-145-150-155-160 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 3,5 með Cotton Viscose. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 5 ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 0-4-3-2-1-0 ll, 1 st í hverja af síðustu 0-4-3-2-1-0 ll = 112-116-120-124-128-132 st – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 umf með 1 st í hvern st JAFNFRAMT er aukið út um 28 st jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út um1 st eftir ca 4. hvern st) – LESIÐ ÚTAUKNING = 140-144-148-152-156-160 st. Setjið 12 prjónamerki í stykkið þannig: Heklið 17-18-19-20-21-22 st JAFNFRAMT er aukið út um 1-0-0-2-2-1 st jafnt yfir, setjið fyrsta prjónamerki, * heklið 4 st, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 20 st, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 st, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 34-36-38-40-42-44 st JAFNFRAMT er aukið út um 2-0-0-4-4-2 st jafnt yfir, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 st, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 20 st, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 st, setið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 17-18-19-20-21-22 st JAFNFRAMT er aukið út um 1-0-0-2-2-1 st jafnt yfir = 144-144-148-160-164-164 st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í næstu umf frá réttu er aukið út þannig: Aukið út um 1 st hvoru megin við hvert prjónamerki (= 24 st fleiri), endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu alls 1-4-5-7-8-10 sinnum, síðan er aukið út á undan hverju prjónamerki (= 12 st fleiri), endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu alls 9-6-6-4-4-3 sinnum = 276-312-340-376-404-440 st. Stykkið mælist nú ca 18-18-20-20-22-23 cm. Næsta umf er hekluð þannig: 36-43-48-54-59-66 st (= framstykki), heklið 12 ll (setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l = undir ermi), hoppið yfir 66-70-74-80-84-88 st frá fyrri umf (= ermi), heklið 72-86-96-108-118-132 st (= bakstykki), heklið 12 ll (setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l = undir ermi), hoppið yfir 66-70-74-80-84-88 st frá fyrri umf og heklið 36-43-48-54-59-66 st (= framstykki) = 168-196-216-240-260-288 st/ll (= 84-98-108-120-130-144 st/ll á bakstykki og 42-49-54-60-65-72 st/ll í hvoru framstykki). Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið 1 umf með 1 st í hvern st og 1 stí hverja ll undir ermi – JAFNFRAMT er aukið út um 18-8-6-0-10-6 st jafnt yfir = 186-204-222-240-270-294 st. Heklið 1 umf með 1 st í hvern st. Heklið nú sólfjaðramynstur. SÓLFJAÐRAMYNSTUR: Heklið umf 1-4 í mynstri A.1 þannig: A.1A, A.1B alls 29-32-35-38-43-47 sinnum, endið á A.1C. Endurtakið síðan umf 3 og 4 þar til stykkið mælist ca 29-31-31-33-31-31 cm – stillið af að síðasta umf er umf 4. Heklið nú umf 5 og 6 í mynstri A.1. Endurtakið umf 5 og 6 þar til stykkið mælist ca 40-42-43-45-45-45 cm. Klippið frá og festið enda. KANTUR Á ERMUM: Byrjið að hekla fyrir miðju undir ermi þannig: Heklið 1 fl í 6. ll við þær 12 ll sem heklaðar voru í handveg frá fram- og bakstykki. Heklið 3 ll (= 1 st), Heklið síðan 1 st í hvern og einn af næstu 6 ll, heklið 1 st í st-umf þar sem ll fyrir ermi var hekluð, 1 st í næstu 66-70-74-80-84-88 st (= yfir ermi) JAFNFRAMT er aukið út um 0-4-0-2-6-2 st jafnt yfir, heklið 1 st í st-umf þar sem ll fyrir ermi var heklað, heklið 1 st í hverja og eina af 5 ll sem eftir eru undir ermi = 80-88-88-96-104-104 st. Heklið síðan A.2 alls 10-11-11-12-13-13 sinnum. Klippið frá og festið enda þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Heklið hinn kantinn á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6937 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (32)
Roelandts wrote:
Hallo, kan u me helpen met het waaierpatroon van bovenstaande cardigan. Ik snap het niet! Het patroon begint met A1 dat zijn de lussen, maar dan spreekt men van A, terwijl dat stokjes zijn .ik snap gewoon niet waarom A B en C dienen tussen de haakjes. Kan je me het eens eenvoudig uitleggen aub. Dank u
14.03.2024 - 21:32DROPS Design answered:
Dag Roelandts,
Aan het begin van de toer haak je A.1, dan herhaal je steeds A.1B (kies het juiste aantal herhalingen voor je maat), op het einde van de toer haak je A.1C. Je haakt op deze manier eerst toer 1 tot en met toer 4, daarna herhaal je de 3e en 4e toer steeds tot de juiste lengte. Tot slot haak je de 5e en de 6e toer steeds tot de gewenste lengte.
14.03.2024 - 22:02Isabelle Saeys wrote:
Hallo, wat doe ik met de markeerders nadat ik de eerste rij meerderen haakte (12x24)? Laat ik ze zitten waar ze zijn of moet ik ze op één of andere manier verplaatsen? En ook, na elke rij meerderen (goede kant) haak ik op elke slechte kant gewoon 1 rij steken, met name alle aanwezige steken? alvast bedankt,
05.06.2023 - 20:20DROPS Design answered:
Dag Isabelle,
Je laat de markeerders zitten op die plek en je neemt ze mee in de hoogte tijdens het haken, zodat je weet waar je de volgende keer moet meerderen.
07.06.2023 - 11:16Isabelle Saeys wrote:
Dear Drops Design, when the pattern says 'insert marker' that means you attach the marker to the last stitch made, right?
05.06.2023 - 10:48DROPS Design answered:
Dear Mrs Sayes, depending on the pattern the marker can be inserted between stitches or in a stitch, but here you will insert the marker between stitches. Happy crocheting!
05.06.2023 - 13:14Susanne wrote:
Hallo liebes drops team. Ich hab den cardigan gehäkelt.ich hab für Ärmel Seiten Teile rücken schon alles zusammen gehäkelt.nur hab später festgestellt.das es ein bisschen zu klein ist .könnte ich einfach paar Stäbchen zu nähmen ? Oder ging es nicht mehr.? Liebe grüße Susanne
28.01.2021 - 13:39DROPS Design answered:
Liebe Susanne, messen Sie eine ähnliche Jacke, die Sie gerne haben und vergleichen Sie mit den Maßen in der Skizze - prüfen Sie mal Ihre Maschenprobe, und sollte sie stimmen, dann sind Sie sicher, die genauen Maßen wie in der Skizze zu bekommen. Sollten Sie Hilfe brauchen, die Anleitung anzupassen, können Sie sich gerne an Ihrem DROPS Laden wenden, dort hilft man gerne weiter, auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim häkeln!
28.01.2021 - 13:55Susanne wrote:
Hallo Ich hab eine Frage zu der anleitung. Was heißt * bis ** Welche Maschen folge ist das. Bei den makirer setzen. Gruß Susanne
26.12.2020 - 19:42DROPS Design answered:
Liebe Susanne, Sie sollen wiederholen, den ganze Teil zwischen den Sternchen, d.h. von dem 1. * bis letzten * wiederholen. Viel Spaß beim häkeln!
04.01.2021 - 08:54Anne wrote:
What / where is the gauge? I don't see it shown for this pattern!
10.04.2020 - 03:09DROPS Design answered:
Dear Anne. For this pattern, we use DROPS Hook size 3.5 mm/E/4 - or size needed to get 22 dc x 12 rows = 4'' x 4'' (10 x 10 cm), and 3 repetitions of 3rd and 4th row in A.1B = width 9 cm / 3½''. Happy crocheting!
12.04.2020 - 18:04Ingrid De Buck wrote:
Ik wil dit vest maken. Haak proeflapje maar krijg de stekenverhouding niet goed. Haak nu met haaknld 2,5 en kom op 20 stokjes en 11 toeren. Kan het dat ik naar haaknld 2 moet dan is dat toch heel veel kleiner dan de 3,5 van in het patroon
13.11.2019 - 15:42DROPS Design answered:
Dag Ingrid,
Dan zou je inderdaad haaknaald 2 kunnen proberen, want het werkt het prettigst als de stekenverhouding overeenkomt, zodat je het patroon kunt volgen.
15.11.2019 - 12:26Sabine wrote:
Thank you for the pattern! It came out fantastic. How to work A2 with only 11 repeats? But I improvised and the jacket looks great. Thanks again to the team who wrote up the instruction. Happy crocheting everyone!
09.03.2019 - 11:28Menawatie Hardath wrote:
Is it possible to separate the rows by actually stating "Row 1, 2,"etc? Also typing each new row on a new line?
08.10.2018 - 23:12DROPS Design answered:
Dear Mrs Hardath, there is only diagrams to this pattern, when working diagrams, work each row in each diagram as follows: row 1 in A.1A, A.1B and A.1C (= read from the right towards the left), then row 2 in A.1C, A.1B, A.1A (= read from the left towards the right) and continue reading/working diagrams like this. Happy crocheting!
09.10.2018 - 09:43Paula wrote:
I am.having trouble figuring out the first part of the instructions for the fan pattern: A. 1A A.1B does that mean 5dc (A) and then 4ch 1sc(1A) 4dc (A) 4ch 1sc 4ch 1sc (1B)? I also tried just doing the chain SC row but it doesn\'t look right if I have to do that for rows 1-4. I\'m obviously fairly new to crocheting and I don\'t know anyone else who crochets.
16.06.2018 - 03:38DROPS Design answered:
Dear Paula, when working diagrams start at the bottom corner on the right side from RS and read towards the left: work A.1A over the first 5 sts (= row 1 = 1 turning ch, 4 ch, skip 3 sts, 1 sc in next st), then repeat A.1B over the next sts until 7 sts remain and work A.1C over these last sts. From WS read from the left towards the right: work A.1C, repeat A.1B and finish with A.1A. Happy crocheting!
18.06.2018 - 09:44