DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
DROPS Super Sale
DROPS 160-29
DROPS Design: Mynstur nr de-133
Garnflokkur A+C
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L - XL/XXL - XXXL
Yfirvídd: 84/90 - 100 - 110/120 - 136 cm

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
250-300-350-400 gr litur nr 05, beige/grár/bleikur
og einnig:
BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
175-200-225-250 gr litur nr 12, ljós bleikur

DROPS PRJÓNAR, SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) nr 7 – eða þá stærð sem þarf til að 14 l og 19 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð í hring frá miðju að aftan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 8 l með 1 þræði af Delight og 1 þræði af Brushed Alpaca Silk og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 7. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = miðja við hnakka. Prjónið 1 umf sléttprjón í hring jafnframt eru prjónaðar 2 l sl í hverja l = 16 l. Setjið 8 prjónamerki í stykkið með 2 l á milli prjónamerkja. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT er aukið út með því að slá uppá prjóninn eftir hvert prjónamerki (= 8 uppslættir í hverri umf) í annarri hverri umf – í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist smá gat yfir hvern uppslátt.
Skiptið yfir á hringprjóna eftir því sem þörf er á og lykkjufjöldi eykst. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 19-21-22-23 cm frá miðju, prjónið næstu umf frá miðju upp að hnakka þannig (það verður að vera 1 umf án útaukningar): Prjónið 19-20-22-24 l, fellið af 24-26-28-30 l (= handvegur) prjónið þar til eftir eru 43-46-50-54 l, fellið af 24-26-28-30 l (= handvegur), prjónið síðustu 19-20-22-24 l í umf.
Í næstu umf eru fitjaðar upp 24-26-28-30 nýjar l yfir hvern handveg.
Prjónið og aukið síðan út eins og áður þar til stykkið mælist ca 48-53-58-63 cm frá miðju. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og haldið áfram að auka út í garðaprjóni eins og áður. Fellið LAUST af með sl.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka.
Fitjið upp 34-36-37-39 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 7 með 1 þræði af Delight og 1 þræði af Brushed Alpaca Silk, prjónið 6 umf garðaprjón – prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 10-13-14-10 cm aukið út í hvorri hlið: 1 l 6-7-9-10 sinnum með 6,5 -5,5 -4,5 -4,5 cm millibili = 46-50-55-59 l. Þegar stykkið mælist 52-52-52-52 cm fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf: 3 l 1 sinni í hvorri hlið, síðan 1 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 60-60-60-60 cm. Fellið af þær l sem eftir eru.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju. Saumið ermar í svo að miðja á ermakúpum verði staðsettar þar sem stysta bil er á milli handvega (þ.e.a.s. þar sem 1. l hefur verið felld af á fyrri handveg og þar sem síðasta l hefur verið felld af á seinni handveg) og að ermasaumar verði staðsettir þar sem lengsta bil er á milli handvega (þ.e.a.s. í gangstæðri hlið).

Mynstur

symbols = miðja
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (66)

Aline wrote:

I bought the yarn to knit this pattern. The Drops Delight yarn I got in color 05 is much darker than what is shown on the picture here, a lot more like pattern 124-16. And this is really not a computer-screen problem. Did you cut the dark parts of the yarn? Or did you lighten the final picture?

04.05.2015 - 12:56

DROPS Design answered:

Dear Aline, pattern 124-16 is worked with 2 strands Delight while this jacket is worked with 1 strand Delight + 1 strand Brushed Alpaca Silk, this will change the final colour adding some more pink. Happy knitting!

05.05.2015 - 09:32

country flag Sabine E.-M. wrote:

Hallo, die Jacke ist ein Traum und sollte meine erste Kreisjacke werden. Sie sieht sehr "kuschlig" aus. Meine Frage wäre ob das Garn "fusselt" beim Tragen oder stricken??? Ein Alptraum ist ein so schönes Stück trotzdem wenn es auf dunkleren Kleidungstücken "abhaart". Wäre super wenn Sie mir weiterhelfen könnten. Dann kann ich die Wolle ruckzuck bestellen und loslegen!!! Danke und Lg

03.05.2015 - 17:41

DROPS Design answered:

Beide Garne sind von Natur aus etwas "fusselanfälliger" als andere, da Drops Delight recht locker nur einfädig gesponnen ist (aber dadurch auch schön weich ist) und Brushed Alpaca Silk ein Flauschgarn ist, was ja als Eigenschaft hat, dass viele Garnfasern hervorstehen, dadurch kann sich natürlich auch mal die eine oder andere lösen. Wenn Sie auf Nummer sicher gehen wollen, nehmen Sie statt Delight z.B. Fabel, die Wolle gibt es ja auch in Verlaufsfarben (beachten Sie in diesem Fall, dass Sie die benötigte Garnmenge anhand der Lauflänge umrechnen müssen). Und meiner eigenen Erfahrung nach fusselt Brushed Alpaca Silk nur sehr wenig.

16.05.2015 - 16:25

Aline wrote:

Hi! How did you measure the cross-back measurement (30-32-34-36)? If I measure on myself, is it supposed to include the top of my shoulders? Or can I assume it's similar to a "regular armhole" and I can assume I need less fabric there? Thanks in advance for your help!

30.04.2015 - 13:40

DROPS Design answered:

Dear Aline, these 30-32-34-36 cm are measurement between both armholes, measured at the top of them -towards neckline.

30.04.2015 - 16:23

Aline wrote:

Hi! Do you have tips about choosing a size to make this pattern? On a regular sweater and considering ease, I would choose measurements right between the sizes S/M and L. But the construction makes it more difficult with this one.

30.04.2015 - 13:38

DROPS Design answered:

Dear Aline, you can check the measurements to back piece -between armholes as well as whole diameter on circle. Happy knitting!

30.04.2015 - 16:21

country flag Christine Feger wrote:

Guten Tag Drops Team Ich hätte gern diese Kreisjacke in einem anderen Garn für den Sommer gestrickt. Nadelstärke sollte 2,5 - 3 mm sein, geht das? Wie sieht dann die Anleitung aus? Liebe Grüße Christine

22.03.2015 - 17:26

DROPS Design answered:

Leider können wir Ihnen hier keine Umrechnungen von Modellen anbieten. Sie könnten diese Jacke als "kühlere" Jacke wie beschrieben in Baumwollqualitäten arbeiten, aus Garngruppe A + Garngruppe C oder aus 3 x Garngruppe A, also z.B. 3 Fäden Safran (Gruppe A) oder Safran kombiniert mit Cotton Viscose (auch Gruppe A, glänzt schön) oder Safran zusammen mit Paris (Gruppe C) oder Bomull-Lin (Gruppe C), lassen Sie sich einfach inspirieren. Ansonsten stöbern Sie einfach mal in der Datenbank nach anderen Kreisjacken.

23.03.2015 - 11:02

country flag Elke wrote:

Super Strickanleitung. Habe sie in himbeerkuchen und natur gestrickt.

04.03.2015 - 18:48

country flag Claudia wrote:

Ein dickes Lob für das tolle Modell. Hab die Jacke in Blautönen gestrickt, sieht Klasse aus. Ich muss für meine Freundin gleich noch eine stricken. Bei den Ärmellöchern muss man daran denken, die Zunahmen nicht zu vergessen. Ansonsten sehr einfach zu stricken. Am Schluss dauert die Runde entwas länger, ich hatte bei der letzten Runde 456 Maschen auf der Nadel.

28.02.2015 - 17:43

country flag Carola wrote:

Zu Beginn habe ich 16 Maschen und nehme regelmäßig 8 Maschen (Umschläge) zu. Damit ist die Maschenanzahl immer durch 8 teilbar. Lt. Beschreibung müsste ich nach 23 cm 162 Maschen haben, habe aber nur 160. Jetzt werde ich einfach statt 24 M am Anfang und Ende nur 23 stricken, ist kein Problem, oder?

27.02.2015 - 17:13

DROPS Design answered:

Wie kommen Sie auf 162 M? Die genaue M-Zahl ist nicht genannt. Es klingt auf jeden Fall richtig, wie Sie die Zunahmen gemacht haben. Es ist kein Problem, die Jacke mit 160 M weiterzustricken. Probieren Sie sie zur Überprüfung einfach zwischendurch mal an, das geht bei Kreisjacken ja ganz gut.

04.03.2015 - 15:42

country flag Melanie Schlerfer wrote:

Die Reihe, i.d. ich die Maschen f.d. Armausschnitt wieder anschlage, ist eine Zunahmereihe. Wenn ich also die gleiche Anzahl Maschen anschlage, wie ich abgekettet habe, fehlen mir folglich Maschen.

07.02.2015 - 12:54

DROPS Design answered:

Liebe Frau Scherfer, ich habe eine Anfrage an die Designerinnen geschickt, wie das gemeint ist. An sich dürfte es kein Problem sein, an den Armausschnitten eine Zunahme auszulassen und die Zunahmen danach dann auch über den Armausschnitten weiterzuarbeiten, aber es sollte vielleicht noch einmal etwas deutlicher in der Anleitung stehen.

09.03.2015 - 10:16

country flag A.Bargholt wrote:

Besondere Jacke, habe mir schon Wolle bestellt!

27.01.2015 - 20:33