DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4114.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 161-31
DROPS Design: Mynstur nr cl-045
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
450-500-550-600-650-700 gr litur nr 01, natur
100-100-150-150-150-150 gr litur nr 26, gallabuxnablár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4114.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.16. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR:
Prjónið 5 l snúnar slétt saman þannig: Prjónið 5 l sl, steypið næst síðustu l sem prjónuð var yfir síðustu l, þannig að þessi l liggur utan um síðustu l, endurtakið þar til allar 4 l hafa verið steyptar yfir (= 4 l færri).
Prjónið 5 l slétt saman þannig: Prjónið 5 l sl, setjið þær til baka aftur á vinstri prjón, steypið næst síðustu l yfir síðustu l þannig að þessi l liggur utan um síðustu l, endurtakið þar til allar 4 l hafa verið steyptar yfir (= 4 l færri), setjið til baka síðustu prjónuðu l á hægri prjón.

ÚTAUKNING:
Prjónið fram að 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (prjónamerki er á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 l fleiri. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 273-315-336-378-399-462 l á hringprjóna nr 4 með litnum natur. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið A.1 (= 21 l) alls 13-15-16-18-19-22 sinnum. Eftir A.1 eru 221-255-272-306-323-374 l á prjóni. Prjónið nú A.2 (= 17 l) yfir A.1. Endurtakið A.2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum á hæðina. Prjónið A.3 yfir A.2. Eftir fyrstu umf með A.3 eru 195-225-240-270-285-330 l á prjóni. Í síðustu umf í A.3 (sjá stjörnu í mynstri) er lykkjum fækkað og aukið út misjafnt eftir stærðum:
Stærð S og XXL:
Aukið út um 4 l jafnt yfir = 199-289 l.
Stærð M-L-XL-XXXL:
Fækkið um 2-5-5-5 l jafnt yfir = 223-235-265-325 l.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú þannig: A.4 (= 6 l) alls 33-37-39-44-48-54 sinnum, endið á 1. l í mynstri. Endurtakið A.4 alls 3-3-3-3-4-4 sinnum á hæðina. Prjónið nú A.5 1 sinni á hæðina. Í síðustu umf í A.5 (sjá stjörnu í mynstri) er fækkað um 3-3-2-1-1-3-5 l jafnt yfir = 196-220-234-264-286-320 l.
Eftir síðustu umf í A.5 er haldið áfram þannig: 4-10-6-6-4-5 l sléttprjón, A.6 6-6-7-8-9-10 sinnum á breiddina, 8-20-12-12-8-10 l sléttprjón, A.6 6-6-7-8-9-10 sinnum á breiddina, 4-10-6-6-4-5 l sléttprjón. ATH: Sléttprjónuðu l í hlið eru prjónaðar br þegar prjónað er brugðið í A.6. Eftir A.6 eru 220-244-262-296-322-360 l á prjóni. Prjónið A.2 yfir A.6, sléttprjónuðu l eru prjónaðar br þegar prjónað er br í A.2. Endurtakið A.2 alls 5-5-6-5-5-6 sinnum á hæðina. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 2-3-1-2-2-2 l, 2-7-5-4-2-3 l sléttprjón, A.2 6-6-7-8-9-10 sinnum á breiddina eins og áður, 2-7-5-4-2-3 l sléttprjón, fellið af næstu 4-6-2-4-4-4 l, 2-7-5-4-2-3 l sléttprjón, A.2 6-6-7-8-9-10 sinnum á breiddina eins og áður, 2-7-5-4-2-3 l sléttprjón, fellið af síðustu 2-3-1-2-2-2 l = 106-116-129-144-157-176 l á framstykki og 106-116-129-144-157-176 l á bakstykki. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. Klippið frá og festið enda.

BAKSTYKKI:
= 106-116-129-144-157-176 l. Þegar A.2 hefur verið prjónað 5-5-6-5-5-6 sinnum á hæðina er A.3 prjónað yfir A.2. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 94-104-115-128-139-156 l á prjóni. Prjónið nú frá réttu þannig: 2-1-5-1-2-3 l sléttprjón, A.4 alls 6-7-7-9-9-11 sinnum, 18-18-21-18-27-18 l sléttprjón, A.13 alls 6-7-7-9-9-11 sinnum, 2-1-5-1-2-3 l sléttprjón.
Þegar fyrstu 4 umf af A.4/A.13 hafa verið prjónaðar setjið miðju 12-12-13-14-15-16 l á þráð fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (= 41-46-51-57-62-70 l).
Fellið nú af fyrir hálsmáli í hverri umf frá hálsmáli þannig:
Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum, 1 l 4-4-5-4-5-4 sinnum = 30-35-39-46-50-59 l eftir fyrir öxl.
Þegar A.4/A.13 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru stykkið prjónað áfram með litnum natur til loka. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l þar til stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama háttog bakstykki.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 63-63-63-69-69-69 l á sokkaprjóna nr 4 með litnum natur. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5. Prjónið A.14 (= 3 sinnum á breiddina) – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Prjónið A.15 yfir A.14 alls 5 sinnum. Prjónið síðan A.16 yfir A.15. Þegar A.16 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 45-45-45-51-51-51 l á prjóni. Prjónið síðan þannig: 2 l sl, A.13 alls 7-7-7-8-8-8 sinnum á breiddina, endið á 1 l sl. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12-10-10-10-10-10 cm aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 3½-3-2½-2½-2-1½ cm millibili 10-12-14-13-16-18 sinnum til viðbótar = 67-71-75-79-85-89 l. Þegar A.13 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er stykkið prjónað áfram í sléttprjóni með litnum natur til loka. Fellið af þegar stykkið mælist 51-49-48-46-44-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla). Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju, saumið sauma undir ermum.

HÁLSMÁL:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna nr 4 með litnum natur, prjónið upp 100-120 l í kringum allt hálsmálið meðtaldar l af þræði. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.06.2015
Leiðrétting: Smá leiðrétting í dálknum leiðbeiningar.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu með natur
symbols = sl frá réttu, br frá röngu með bláu
symbols = sl frá röngu, br frá réttu með natur
symbols = prjónið 5 l slétt saman - sjá LEIÐBEININGAR í uppskrift
symbols = prjónið 5 l snúnar slétt saman - sjá LEIÐBEININGAR í uppskrift
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umf, það eigia að myndast göt
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt
symbols = 3 l slétt saman
symbols = 3 l snúnar slétt saman
symbols = auka út/fellið af - sjá uppskrift
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Nautical Waves

brbjmich, United States

161-31 Nautical Waves

Velyse, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (71)

country flag Ute wrote:

Hallo, ist es eigentlich egal in welchem Abstand ich den Farbwechsel mache? Ich finde nämlich nirgendwo eine Angabe dazu.

30.06.2018 - 22:21

DROPS Design answered:

Liebe Ute, die verschiedenen Streifen sind bei den Diagrammen gezeight, dh (siehe 1. , 2. und 3. Symbol unter Diagramtext). Viel Spaß beim stricken!

02.07.2018 - 09:50

country flag Vesla Larsen€ wrote:

Hvordan lager man en størrelse mindre enn S?€

30.04.2018 - 15:53

DROPS Design answered:

Hej, Vi kan desværre ikke hjælpe dig med at skrive opskriften om, men hvis du prøver selv, så skal du sørge for at maskeantallet går op det det antal du skal bruge til diagrammerne. God fornøjelse!

04.05.2018 - 12:23

country flag Surin Sabine wrote:

Bonjour, je suis arrivée aux vagues en dessous des manches , taille L 2, 262 mailles et je dois faire le dessin sur 17 mailles (17×15=255 reste 7 mailles) suis pas juste ... incompréhension aidez moi svp merci

21.01.2018 - 14:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Surin, quand vous avez tricotez A.6, vous avez 2 fois 7 motifs de A.6 (avec des mailles jersey en début de rang, entre les 2 séries de A.6 et en fin de rang), A.6 se tricote sur 119 m. Tricotez ensuite A.2 au lieu de A.6 (= A.2 = 17 m au 1er rang), répétez ainsi 7 fois A.2 en largeur, au lieu des 7 fois A.6 (avec toujours les mailles jersey en début de rang, entre les 2 séries du diagramme et en fin de rang). Bon tricot!

22.01.2018 - 10:03

country flag Barbara wrote:

Hola. En la primera vuelta de A.3 van todos los puntos en azul denim? Gracias

07.09.2017 - 22:21

DROPS Design answered:

Hola Barbara. La primera fila de A.3 se trabaja con azul denim.

11.09.2017 - 23:59

country flag Elly wrote:

Voor deze trui gebruik ik rondbreinaalden. Dit doe ik voor het eerst. Nu vraag ik me af of er een handige manier is om de losse draden (na de kleurwisseling) weg te werken. Bij 'gewone' pennen 'weef' ik de draad aan de zijkant mee en hoef ik dus weinig af te hechten. Is er ook een dergelijke manier bij rondbreien?

20.03.2017 - 14:06

DROPS Design answered:

Hoi Elly. Je kan de draad mee naar boven laten volgen en even draaien aan het begin van de nld. Maar ikzelf knip de draad af en breit de draad mee aan de achterkant - zoals bij fair-isle. Zie bijvoorbeeld deze video

20.03.2017 - 15:51

country flag Beate wrote:

Danke Anton. Jetzt weiss ich wo mein Fehler ist.

13.07.2016 - 09:00

country flag Beate wrote:

Hallo, wenn ich in Runde stricke und die Rückreihen dann links stricke bekomme ich kraus rechts.Was mache ich falsch?

12.07.2016 - 14:43

Anton answered:

Hallo Beate! In Runden gibt es keine Rückreihen.

12.07.2016 - 17:19

country flag Monica wrote:

Buongiorno. Ho acquistato il filato e vorrei realizzare questa maglia senza ferri circolari. Non capisco pero' una cosa: la spiegazione del "dietro". Devo avviare 129 m. (taglia L) e cominciare subito con il motivo A2? O cominciare con A1 come descritto per i ferri circolari? Grazie!

05.06.2016 - 22:08

DROPS Design answered:

Buongiorno Monica. Per lavorare in parti separate, per il dietro avvia la metà delle m indicate, quindi 168 m (consigliamo di aggiungere una m vivagno ai lati). Lavora poi il diag.A1 su queste m e poi lavora il diagramma A2. Deve iniziare con le indicazioni riportate nella sezione corpo, dimezzando il numero di m: in questa sezione trova le indicazioni per lavorare fino agli scalfi. Sotto il paragrafo Dietro, trova le indicazioni dallo scalfo in avanti. Buon lavoro!

05.06.2016 - 22:16

country flag Monica wrote:

Buongiorno. Ho acquistato il filato e vorrei realizzare questa maglia senza ferri circolari. Non capisco pero' una cosa: la spiegazione del "dietro". Devo avviare 129 m. (taglia L) e cominciare subito con il motivo A2? O cominciare con A1 come descritto per i ferri circolari? Grazie!

05.06.2016 - 22:05

DROPS Design answered:

Buongiorno Monica. Per lavorare in parti separate, per il dietro avvia la metà delle m indicate, quindi 168 m (consigliamo di aggiungere una m vivagno ai lati). Lavora poi il diag.A1 su queste m e poi lavora il diagramma A2. Deve iniziare con le indicazioni riportate nella sezione corpo, dimezzando il numero di m: in questa sezione trova le indicazioni per lavorare fino agli scalfi. Sotto il paragrafo Dietro, trova le indicazioni dallo scalfo in avanti. Buon lavoro!

05.06.2016 - 22:15

country flag Priscilla Bouring wrote:

Bonjour, je suis relativement novice et vient de commencer mon tricot. Mais je bute déjà devant le A1!!! Je ne comprends pas le 3e et 4e rang de A1. Si je fais 8 diminutions et 8 jetés, à priori je retombe sur mes pieds. Mais d'après les explications, il ne faut pas tricoter le jeté, donc je n'ai plus mes 17 mailles au rang 4, mais seulement 9! est-ce que j'ai mal compris le schéma, ou y a-t-il une erreur quelque part? Merci pour votre aide précieuse:)

06.05.2016 - 09:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bouring, le jeté du 3ème rang de A.1 ne se tricote pas torse pour former un jour, c'est-à-dire qu'on va le tricoter "normalement" dans le brin avant au rang/tour suivant. Votre nombre de mailles doit effectivement toujours rester le même dans chaque motif. Bon tricot!

06.05.2016 - 10:09