DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4114.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Riviera Maya

Prjónað poncho úr DROPS Cotton Light eða DROPS Belle með gatamynstri og kögri. Stærð S - XXXL.

DROPS 159-1
DROPS Design: Mynstur nr cl-037
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
550-600-650 gr litur nr 02, hvítur

Eða notið:
DROPS BELLE frá Garnstudio
500-550-600 gr litur nr 01, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – fyrir kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4114.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

KANTLYKKJUR:
Prjónið garðaprjón yfir síðustu 4 l í hvorri hlið, en í 5. hverri umf (alltaf frá réttu) eru prjónuð göt þannig:
Í byrjun umf: Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í lok umf: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í tveimur stykkjum sem saumuð eru saman í lokin.

FRAMSTYKKI:
Vegna lykkjufjölda er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 139-147-155 l á hringprjóna nr 3 með Cotton Light eða Belle. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 4 KANTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynstur eftir A.1 þar til 5 l eru eftir á prjóni, prjónið 1. l í A.1 og endið á 4 kantlykkjum. Haldið svona áfram með mynstur – ATH: Í umf 7 í A.1 er síðasta l prjónuð slétt á undan kantlykkjum (frá réttu). Þegar A.1 hefur verið prjónað er skipt yfir á hringprjóna nr 3,5. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 47-51-55 l í umf og 1 prjónamerki eftir næstu 45 l (= 47-51-55 l eftir síðasta prjónamerki í lok umf).

ALLAR STÆRÐIR: Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur eins og áður, prjónið A.2 yfir næstu 12-16-20 l, prjónið A.4 (= 31 l), 1. prjónamerki, A.6A (= 4 l), prjónið mynstur eftir A.6B þar til 5 l eru eftir á undan 2. prjónamerki, A.6C (= 5 l), A.5 (= 31 l), prjónið A.3 yfir næstu 12-16-20 l og endið á 4 kantlykkjum eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. Nú verða línur með gatamynstri sem ganga upp hvoru megin við prjónamerkin og á milli tveggja prjónamerkja eru prjónaðir borðar með gatamynstri. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. Stærð S/M og L/XL: Farið í ALLAR stærðir.

Stærð XXL/XXXL: Þegar A.6 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru prjónaðar 6 umf garðaprjón á milli prjónamerkja (aðrar l eru prjónaðar eins og áður), prjónið síðan A.6 einu sinni til viðbótar á milli prjónamerkja (aðrar l eru prjónaðar eins og áður).

ALLAR stærðir: Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka er prjónað eftir mynstri A.1 á milli 2 prjónamerkja við miðju að framan (aðrar l halda áfram eins og áður) JAFNFRAMT í næst síðustu umf í mynstri (= rétta) eru felldar af 4 l jafnt yfir = 41 l á milli prjónamerkja og 135-143-151 l á prjóni).
Eftir A.1 er prjónað A.7 á milli 2 prjónamerkja þannig (aðrar l halda áfram eins og áður): Prjónið A.7A (= 5 l), prjónið A.7B þar til 6 l eru eftir á undan prjónamerki og endið á A.7C (= 6 l). Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka er prjónað mynstur eftir A.8 á milli 2 prjónamerkja (aðrar l halda áfram eins og áður). JAFNFRAMT í næst síðustu umf í mynstri (= rétta) er aukið út um 3 l jafnt yfir (= 44 l á milli prjónamerkja og alls 138-146-154 l á prjóni).
Eftir A.8 er prjónað mynstur eftir A.9 á milli 2 prjónamerkja. Þegar allt A.9 hefur verið prjónað til loka (stykkið mælist ca 39-39-43 cm), eru 45 l á milli prjónamerkja. Síðan er mynstrið prjónað eftir A.1 á milli prjónamerkja (aðrar l halda áfram eins og áður). Eftir A.1 er prjónað A.6 á milli prjónamerkja þannig: A.6A (= 4 l), prjónið A.6B þar til 5 l eru eftir á prjóni á undan prjónamerki og endið á A.6C (= 5 l). Stærð S/M: Farið í ALLAR stærðir.

STÆRÐ L/XL + XXL/XXXL: Þegar A.6 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru prjónaðar 6 umf með garðaprjóni á milli prjónamerkja (aðrar l eru prjónaðar eins og áður), prjónið nú A.6 einu sinni til viðbótar á milli prjónamerkja (aðrar l halda áfram eins og áður).

ALLAR STÆRÐIR: Eftir A.6 eru prjónaðar 6 umf garðaprjón á milli prjónamerkja (aðrar l eru prjónaðar eins og áður), fellið síðan af 45 l á milli prjónamerkja fyrir hálsmáli og hvor hluti er prjónaður til loka fyrir sig.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður yfir 47-51-55 l á öxl – ATH: Síðustu 2 l við hálsmál halda áfram í garðaprjóni. Þegar 4 cm eru eftir þar til stykkið mælist 60-64-68 cm – stillið af að næsta umf sé prjónuð frá réttu, skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið síðan mynstur eftir A.1 áður en fellt er laust af. Endurtakið í hinni hliðinni.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Stykkið á að vera opið í hvorri hlið.

KÖGUR:
Festið kögur meðfram neðri kanti á poncho bæði að framan og að aftan. Kögrið er fest í gegnum gatið á A.1.
1 kögur = klippið 6 þræði 35 cm. Þræðið í gegnum gatið. Festið hvert kögur með ca 3 cm millibili. Skiptið nú kögrinu í tvennt og hnýtið saman við næsta kögur. Haldið svona áfram með allt kögrið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.02.2015
Nýtt mynstur A.1
Yfirfarið á vefsvæði: 10.04.2015
Nýtt mynstur A.9 (efst).

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = Kúla: Prjónið 5 l í 1 l þannig: 1 l sl, sláið uppá prjóninn, 1 l sl, sláið uppá prjóninn, 1 l sl, prjónið 4 umf sléttprjón fram og til baka yfir 5 l, fellið síðan af þannig: Steypið 2. l af hægri prjón yfir 1. l, steypið 3. l yfir 1. l, síðan 4. l yfir 1. l og að lokum 5. l yfir 1. l = 1 l eftir.
symbols = engin l (hoppið yfir þennan kassa)
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 2 l slétt af hjálparprjóni
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sparkly Poncho

Cheryl, Canada

159-1 Riviera Maya

Nathalie, France

159-1 Riviera Maya

Nathalie, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (116)

country flag Sabine wrote:

Nachdem A.6 zu Ende gestr. wurde, soll man in den 45 M zw. den Markieren A.1 stricken. Reihe 7 kommt in A.1 aber nicht hin, weil 1 M übrig bleibt (gerade Anz. M in A.1 gegen 45 M zw.den Markierern.....) - was tun??? Grüße von Sabine

08.05.2015 - 21:35

DROPS Design answered:

Sie gehen genau wie am Anfang vor: Sie stricken am Ende, d.h. die letzte M vor dem Markierer - die "überzählige 45. M - wie die 1. M von A.1 und in der 7. R stricken Sie diese Masche einfach rechts.

09.05.2015 - 14:17

country flag Christin wrote:

Hier meine zweite Frage: Und dann ist hier die 6. Rd, aber auch die 7. Rd als Hinrunde gekennzeichnet. Wenn ich jedoch die 6. Rd stricke, dann bin ich in der Rückrd und stricke links. Liebe Grüße Christin

27.04.2015 - 21:38

DROPS Design answered:

Die beiden Reihen sind nicht als Hin-R gekennzeichnet, in allen Diagrammen folgen stets Hin- und Rück-R aufeinander. Es bedeutet, dass Sie in der 6. R (= Rück-R) linke M stricken müssen, damit sie auf der Vorderseite, die das Diagramm zeigt, rechts erscheinen. Das leere Kästchen steht für "1 M re in Hin-R, 1 M li in Rück-R" - da Sie sich bei der 6. R in einer Rück-R befinden, müssen diese M li gestrickt werden, dann erscheinen sie auf der Vorderseite als rechte M.

28.04.2015 - 23:24

country flag Christin wrote:

Hallo, leider versteh ich nicht ganz, was das zu bedeuten hat: "Die Diagramme zeigen alle Hin-und Rückrunden, wie sie auf der Vorderseite erscheinen." Ich bin erst bei Diagramm A1 und verstehe es eigentlich so, dass ich rechts in der Hinrunde, links in der Rückrunde stricke... Ist das korrekt? Mich irritiert daher das Wort "Vorderseite".

27.04.2015 - 21:37

DROPS Design answered:

Sie müssen in der 1. R = Hin-R re str, in der Rück-R aber auch re str, damit die M auf der Vorderseite als linke M erscheint. "Vorderseite" bedeutet, dass man ja eine Sichtseite hat - die Vorderseite. Die Maschen sind alle so dargestellt, wie Sie auf der Sichtseite aussehen. Wenn eine Masche auf der Vorderseite links aussieht (wie in der 2. R), muss sie in der Rück-R aber rechts gestrickt werden, die Masche ist trotzdem im Diagramm so dargestellt wie eine linke Masche, weil sie auf der Vorderseite eine linke Masche ist. Alternativ könnten die Strickschriften ja auch die Maschen immer so zeigen, wie sie gestrickt werden müssen, um das auszuschließen, steht der Satz mit der Vorderseite als Hinweis dort.

28.04.2015 - 23:16

country flag Rebeca wrote:

Perdona, acabo de ver el fallo, el diagrama que yo tengo impreso no es el mismo que el que esta en la página. Gracias

22.04.2015 - 18:41

country flag Rebeca wrote:

Hola! Tengo un problema con el diagrama A9 Se supone que al final del diagrama tiene que quedar 45 puntos, pero a mi me quedan 43. Creo que el problema está en la fila 49 del diagrama. Por mucho que lo miro no se como hacerlo para que salgan 45 puntos. Por favor, podríais revisar el diagrama? Así saldré de dudas si soy yo o es el diagrama. Gracias!!!

22.04.2015 - 18:38

country flag Angela wrote:

Buongiorno ho letto nella confezione che i laterali si lasciano aperti e si cuciono solo le spalle , vorrei cucirlo lateralmente , il mio lavoro e misura s quanto spazio devo lasciare per le braccia

19.04.2015 - 14:16

DROPS Design answered:

Buonasera Angela, il poncho è abbastanza largo per comprendere le braccia, per cui può semplicemente cucire i lati se lo vuole chiuso; se invece lo vuole più aderente deve pensare ad fare delle diminuzioni in vita e per lo scalfo manica. Ci riscriva se ha altri dubbi. Buon lavoro!!

19.04.2015 - 17:29

country flag Angela wrote:

Tra i due segni il diagramma A8 non mi combacia avendo 41 maglie ,mi aiuti buonasera

17.04.2015 - 22:02

DROPS Design answered:

Buonasera Angela, deve lavorare il diagramma A.8 sulle 41 m tra i due segni, per cui lavorerà il diagramma in modo completo e poi lavorerà ancora 9 m seguendo il diagramma. Si ricordi di aumentare 3 m sull'ultimo f del diagramma, in modo da avere alla fine 44 m su cui lavorare il diagramma A.9. Buon lavoro!!

18.04.2015 - 21:49

country flag Angela wrote:

Aiuto, dopo avere iniziato e arrivata alla fine di A7-A8 non mi combacia il numero delle maglia non combacia,sono andata nelle correzioni ma ancora non le avete caricato.Come faccio adesso

17.04.2015 - 17:02

DROPS Design answered:

Buonasera Angela, le correzioni di questo modello non riguardano i diagrammi A.7-A.8, non ci sono correzioni disponibili in merito. Ci può segnalare di preciso qual è il suo problema?Buon lavoro!

17.04.2015 - 19:40

country flag Nina Kvenild wrote:

Skal akkurat begynne å strikke denne modellen og ser det har vært en del feil i mønsteret......kan jeg føle meg trygg på at alt stemmer og er rettet opp nå ?

16.04.2015 - 17:42

DROPS Design answered:

Hej Nina. Mönstret er rettet (se under RETTELSER) og online versionen er altid up-to-date.

17.04.2015 - 11:10

country flag Helle Tanyimboh wrote:

Opskriften er helt fin, men det anbefalede garn, som jeg bestilte gennem jeres forhandler, er alt for tykt og derfor for tungt til opskriften. Denne poncho skulle gerne være let og luftig .... det blev den så ikke. Det er for mit vedkommende spildt arbejde, da jeg ikke vil bruge den :-(

13.04.2015 - 08:27