Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= sl frá réttu, br frá röngu | |
= 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn | |
= sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Sunny Stride |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris með röndum og tölum á baki, hægt að snúa við og hneppa að framan. Stærð S- XXXL
DROPS 159-3 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum innan við 4 l garðaprjón við hálsmál. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 4 l garðaprjón og 2 l þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 4 l garðaprjón: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l í hvorri hlið með því að prjóna 2 l í eina l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í vinstra bakstykki frá réttu. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 13, 22, 28, 35, 44 og 50 cm. STÆRÐ M: 13, 22, 28, 35, 44 og 52 cm. STÆRÐ L: 13, 22, 28, 35, 44 og 53 cm. STÆRÐ XL: 14, 21, 23, 38, 48 og 55 cm STÆRÐ XXL: 14, 21, 23, 38, 48 og 56 cm STÆRÐ XXXL: 14, 21, 23, 38, 48 og 58 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PESYA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í hlutum og saumað saman í lokin. Hægt er að snúa peysunni við og hneppa henni að framan. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 86-92-98-108-118-128 l á hringprjóna nr 5 með Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni innan við 3 l garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 12-12-12-13-13-13 cm. Í næstu 2 umf er fitjuð upp 1 ný l í lok umf (klauf endar hér), JAFNFRAMT er fækkað um 16-16-16-18-22-22 l jafnt yfir í 1. umf frá réttu = 72-78-84-92-98-108 l. Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (kantlykkja í hvorri hlið heldur áfram til loka). Þegar stykkið mælist alls 23-23-23-25-25-25 cm prjónið nú 2 umf sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 16-16-16-18-22-22 l jafnt yfir = 88-94-100-110-120-130 l. Haldið áfram í garðaprjón yfir allar l þar til stykkið mælist 34-34-34-37-37-37 cm. Prjónið nú sléttprjón. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm fellið af 2-3-3-5-5-5 l í byrjun á 2 næstu umf fyrir handveg = 84-88-94-100-110-120 l. Haldið áfram í sléttprjóni innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 45-45-45-49-49-49 cm haldið áfram með A.1. Þegar stykkið mælist 50-52-53-55-56-58 cm prjónið garðaprjón yfir miðju 26-26-28-28-30-30 l. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir þessar l eru felldar af miðju 18-18-20-20-22-22 l laust af frá réttu. Nú eru 4 l fyrir hálsmáli í hvorri hlið. Prjónið nú hvora öxl til loka fyrir sig. Í næstu umf frá réttu er felld af 1 l innan við 4 l garðaprjón við hálsmál – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 5 sinnum til viðbótar = 27-29-31-34-38-43 l fyrir öxl. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 55-55-55-61-61-61 cm prjónið 2 umf sléttprjón yfir mynstur A.1. Prjónið síðan garðaprjón til loka. Fellið laust af þegar stykkið mælist alls 61-63-65-67-69-71 cm. VINSTRA BAKSTYKKI: Fitjið upp 48-51-54-58-64-69 l á hringprjóna nr 5 með Paris. Prjónið 4 umf garðaprjón. Prjónið nú þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, sléttprjón þar til 3 l eru eftir, 3 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 12-12-12-13-13-13 cm. Prjónið 2 umf sléttprjón, JAFNFRAMT í umf frá réttu er fækkað um 7-8-7-9-11-12 l jafnt yfir og fitjuð er upp 1 ný l í lok umf = 42-44-48-50-54-58 l. Munið eftir HNAPPAGAT! Haldið áfram með A.1 innan við 5 kantlykkjur í garðaprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið (kantlykkja heldur áfram til loka). Þegar stykkið mælist 23-23-23-25-25-25 cm prjónið 2 umf sléttprjón, JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu eru auknar út 7-8-7-9-11-12 l jafnt yfir = 49-52-55-59-65-70 l. Haldið síðan áfram með rendur eins og á framstykki. JAFNFRAMT fellt af fyrir handveg og hálsmáli þannig: Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm fellið af 2-3-3-5-5-5 l í byrjun á næstu umf frá röngu fyrir handveg = 47-49-52-54-60-65 l. Þegar stykkið mælist 50-52-53-55-56-58 cm prjónið nú garðaprjón yfir fyrstu 18-18-19-19-20-20 l. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir þessar l eru felldar af fyrstu 14-14-15-15-16-16 l laust af frá réttu. Nú eru 4 l fyrir kant á hálsi. Í næstu umf frá réttu er felld af 1 l innan við 4 l í garðaprjóni við hálsmál – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 5 sinnum til viðbótar = 27-29-31-33-38-43 l fyrir öxl. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 55-55-55-61-61-61 cm prjónið 2 umf sléttprjón yfir mynstur A.1. Prjónið nú garðaprjón til loka. Fellið laust af þegar stykkið mælist alls 61-63-65-67-69-71 cm. HÆGRA BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra bakstykki nema spegilmynd. Þ.e.a.s. prjónið nú eftir 4 umf garðaprjón í byrjun á stykki þannig: 3 l garðaprjón, sléttprjón þar til 5 l eru eftir, 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Fellið ekki af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Þegar l eru felldar af fyrir handveg, fellið af l í byrjun umf frá réttu. Þegar fellt er af fyrir hálsmáli eru felldar af fyrstu 14-14-15-15-16-16 l frá röngu. ERMI: Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 34-36-38-40-42-42 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5 með Paris. Prjónið garðaprjón fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 11-11-11-12-10-8 cm, prjónið nú mynstur og aukið JAFNFRAMT út þannig: MYNSTUR: Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 22-22-22-24-22-20 cm prjónið A.1 innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT í fyrstu umf eru felldar af 2-4-4-4-4-6 l jafnt yfir. Þegar A.1 hefur verið prjónað í 11-11-11-12-12-12 cm prjónið 2 umf sléttprjón, JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu eru auknar út 2-4-4-4-4-6 l jafnt yfir. Haldið nú áfram í garðaprjón til loka. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hvorri hlið með 1½-1-1-1-1-1 cm millibili alls 18-19-19-20-21-23 sinnum = 70-74-76-80-84-88 l. Þegar stykkið mælist 42-42-41-41-39-37 cm fellið laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni niður að klauf (= þar sem 1 l var fitjuð upp, 12-12-12-13-13-13 cm frá uppfitjunarkanti). Saumið tölur í hægri kant. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (38)
Joëlle Et Luc Delmas wrote:
Dans le modèle drops 151-3 il n'y pas le diagramme dans les explications ! se doit être une erreur?
19.08.2015 - 15:16DROPS Design answered:
Bonjour Mme Delmas, le diagramme A.1 est un tout petit diagramme qui se tricote sur 2 m et 4 rangs - vous le trouverez à droite du schéma des mesures, sous la manche. Bon tricot!
19.08.2015 - 15:56Leiter wrote:
Est-ce que c'est juste de ne pas devoir faire de diminutions quand on fait le point A1 pour la 2ème fois, après les emmanchures (sur le devant)?
26.05.2015 - 19:26DROPS Design answered:
Bonjour Mme Leiter, c'est bien exact ainsi, on ne diminue pas dans A.1 la 2ème fois, pour que les épaules et l'encolure soient justes. Bon tricot!
29.02.2016 - 11:47Anja wrote:
Ich habe das Modell in DROPS You #5 gestrickt. Hatte für M 750 g bestellt, da Paris und DROPS You #5 ja die gleiche Lauflänge haben. Das Garn hat nicht gereicht, so dass ich ein Knäuel nachbestellen musste. Von dem zusätzlichen Garn blieb gerade noch genug zum Zusammennähen übrig. Aber es sieht toll aus.
23.05.2015 - 11:57Anja Mindt wrote:
Für den Bereich, der im Muster A1 gestrickt wird, soll die Maschenzahl reduziert werden. Danach wird die Maschenzahl wieder erhöht. Warum ist das nur im unteren Bereich nötig? Müsste im Bereich kurz vor dem Halsausschnitt nicht auch wieder die Maschenzahl reduziert werden, bevor man im Muster A1 strickt?
21.04.2015 - 20:29DROPS Design answered:
Ihre Frage wurde vor einer Weile ans Design-Team geleitet, eine Antwort steht noch aus. Falls sich etwas ändern sollte, können Sie das oben am Korrekturreiter im Kopf neben dem Material erkennen, der dann erscheinen würde.
30.05.2015 - 13:04Monica wrote:
Buonasera, potrei avere per cortesia una spiegazione su come si deve cucire per montare le maniche? Grazie.
17.04.2015 - 17:06DROPS Design answered:
Buongiorno Monica, in alto a destra della foto, sotto Video troverà tutto l'elenco dei video DROPS utili per la realizzazione di questo modello. Buon lavoro!!
20.04.2015 - 13:53ME wrote:
Hei! Jeg strikker denne i str s. Der står det at jeg skal strikke glstrikk til arb måler 12 cm, på de neste 2 p skal jeg øke 1 m på slutten av pinnen samtidig som det skal felles 16 masker jevnt fordelt på 1. p fra retten. Deretter strikkes A1. Den siste pinnen min før A1 blir da på rettsiden hvor jeg feller 16 m. Betyr det da at jeg skal starte A1 fra vrangsiden? Eller skal jeg strikke meg tilbake på vrangsiden med bare vrangmasker og så starte A1 fra rettsiden? På forhånd tusen takk!
09.04.2015 - 14:59DROPS Design answered:
Hei ME. Du strikker 2 p hvor du öker 1 m paa slutten af pinnen (saa slut af retten og slut af vrangen), du feller 16 m jevnt fordelt i retpinnen. Du starter efter 2 p paa A.1 = 1e p er retten.
22.04.2015 - 15:57Tuija wrote:
Löytyi ;-) sittenkin...
06.04.2015 - 20:01Tuija wrote:
A1 piirustusta ei ole suomenkielisessä ohjeessa
06.04.2015 - 19:59Svenja wrote:
Hallo DROPS-Team, so habe ich die Ärmel Anleitung nicht verstanden. Da man ja erst abnimmt und dann wieder zu. Das man die ganze Zeit über beidseitig zunimmt ist nicht so verständlich. Aber der Pulli ist fertig und die Ärmel passen so wie ich sie gemacht habe ;-). LG Sevnja
20.03.2015 - 08:21DROPS Design answered:
Bei den Zunahmen steht aber tatsächlich zweimal "beidseitig". Und dass es gleichzeitig erfolgen soll, müsste eigentlich auch aus der Anleitung hervorgehen, aber vielleicht fügen wir noch einen Satz zur Verdeutlichung ein. Gut, dass Ihre Ärmel passen, hoffentlich haben Sie viel Freude an dem Pulli!
20.03.2015 - 09:15Svenja wrote:
Teil 2: Und wenn ich 12 cm Kraus + 12 cm Glatt + 12 cm Muster A1 gestrickt habe ist man schon bei 36 cm. Ich habe es nicht geschaft (trozt in jeder HIN-R) die zunahme in 5 cm zupacken. Mein Stück endet bei ca. 45 cm statt 41 cm. Da solltet Ihr vielleicht noch mal gucken. Aber es passt so. LG Svenja
16.03.2015 - 13:58DROPS Design answered:
Liebe Svenja, die Zunahmen beginnen bereits bei einer Länge von 12 cm, Sie stricken im Muster und nehmen GLEICHZEITIG zu, wie hier geschrieben: "Bei einer Gesamtlänge von 11-11-11-12-10-8 cm wie folgt im Muster str und GLEICHZEITIG zunehmen". Dann passt das mit der Länge auch bequem. Es ist also mit der Anleitung soweit alles in Ordnung.
19.03.2015 - 11:50