DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 159-31
DROPS Design: Mynstur nr bs-076
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Mál:
Meðfram miðju að aftan ca 65 cm
Efst ca 130 cm

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
250 gr litur nr 1101, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni / 45 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.18. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Sjalið er prjónað frá miðju að aftan og niður.

SJAL:
Fitjið upp 9 l á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið prjónamerki í miðjulykkju. Prjónið nú garðaprjón – JAFNFRAMT er aukið út um 4 l í hverri umf frá réttu þannig – Lesið ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l innan við 2 kantlykkjur í hvorri hlið og 1 l hvoru megin við miðjulykkju. Aukið svona út þar til 53 l eru á prjóni (þ.e.a.s. nú eru 26 l hvoru megin við miðjulykkju).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú 2 kantlykkjur í hvorri hlið í garðaprjóni og miðjulykkju í sléttprjóni.

Prjónið mynstur A.1-A.3 þannig: 2 kantlykkjur, A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 1 l er eftir á undan miðjulykkju, A.3 yfir 1 l, 1 l (= miðjulykkja), A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 3 l eru eftir, A.3 yfir 1 l og 2 kantlykkjur. Þegar A.1-A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 79 l á prjóni.

Prjónið mynstur A.4-A.6 þannig: 2 kantlykkjur, A.4 yfir 7 l, A.5 er endurtekið þar til 6 l er eftir á undan miðjulykkju, A.6 yfir 6 l, 1 l (= miðjulykkja), A.4 yfir 7 l, A.5 þar til 3 l eru eftir, A.6 yfir 6 l og 2 kantlykkjur. Þegar A.4-A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 105 l á prjóni.

Prjónið mynstur A.1-A.3 þannig: 2 kantlykkjur, A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 1 l er eftir á undan miðjulykkju, A.3 yfir 1 l, 1 l (= miðjulykkja), A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 3 l eru eftir, A.3 yfir 1 l og 2 kantlykkjur. Þegar A.1-A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 131 l á prjóni.

Prjónið mynstur A.7-A.9 þannig: 2 kantlykkjur, A.7 yfir 8 l, A.8 er endurtekið þar til 7 l er eftir á undan miðjulykkju, A.9 yfir 7 l, 1 l (= miðjulykkja), A.7 yfir 8 l, A.8 eru endurtekið þar til 9 l eru eftir, A.9 yfir 7 l og 2 kantlykkjur. Þegar A.7-A.9 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 213 l á prjóni.

Prjónið mynstur A.1-A.3 þannig: 2 kantlykkjur, A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 1 l er eftir á undan miðjulykkju, A.3 yfir 1 l, 1 l (= miðjulykkja), A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 3 l eru eftir, A.3 yfir 1 l og 2 kantlykkjur. Þegar A.1-A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 239 l á prjóni.

Prjónið mynstur A.10-A.12 þannig: 2 kantlykkjur, A.10 yfir 8 l, A.11 er endurtekið þar til 7 l er eftir á undan miðjulykkju, A.12 yfir 7 l, 1 l (= miðjulykkja), A.10 yfir 8 l, A.11 eru endurtekið þar til 9 l eru eftir, A.12 yfir 7 l og 2 kantlykkjur. Þegar A.10-A.12 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 257 l á prjóni.

Prjónið mynstur A.1-A.3 þannig: 2 kantlykkjur, A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 1 l er eftir á undan miðjulykkju, A.3 yfir 1 l, 1 l (= miðjulykkja), A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 3 l eru eftir, A.3 yfir 1 l og 2 kantlykkjur. Þegar A.1-A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 283 l á prjóni.

Prjónið mynstur A.13-A.15 þannig: 2 kantlykkjur, A.13 yfir 10 l, A.14 er endurtekið þar til 9 l er eftir á undan miðjulykkju, A.15 yfir 9 l, 1 l (= miðjulykkja), A.13 yfir 10 l, A.14 þar til 11 l eru eftir, A.15 yfir 9 l og 2 kantlykkjur. Þegar A.13-A.15 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 309 l á prjóni.

Prjónið mynstur A.1-A.3 þannig: 2 kantlykkjur, A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 1 l er eftir á undan miðjulykkju, A.3 yfir 1 l, 1 l (= miðjulykkja), A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 3 l eru eftir, A.3 yfir 1 l og 2 kantlykkjur. Þegar A.1-A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 335 l á prjóni.

Prjónið mynstur A.16-A.18 þannig: 2 kantlykkjur, A.16 yfir 11 l, A.17 er endurtekið þar til 10 l er eftir á undan miðjulykkju, A.18 yfir 10 l, 1 l (= miðjulykkja), A.16 yfir 11 l, A.17 eru endurtekið þar til 12 l eru eftir, A.18 yfir 10 l og 2 kantlykkjur. Þegar A.16-A.18 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 417 l á prjóni.

Prjónið mynstur A.1-A.3 þannig: 2 kantlykkjur, A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 1 l er eftir á undan miðjulykkju, A.3 yfir 1 l, 1 l (= miðjulykkja), A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 3 l eru eftir, A.3 yfir 1 l og 2 kantlykkjur. Þegar A.1-A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 443 l á prjóni.

Stykkið mælist ca 65 cm mælt meðfram miðjulykkju. Fellið laust af og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.03.2015
SJAL (hringprjónar nr 3, ekki hringprjónar nr 3,5): Fitjið upp 9 l á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk...
Yfirfarið á vefsvæði: 02.06.2015
Leiðrétting: Nýtt mynstur A.9

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

159-31 Ethereal Bliss

Liilam, Finland

Ethereal bliss #4

Salleriini, Finland

Ethereal Bliss

Seija, Finland

Ethereal Bliss

Johanna, Finland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Isabelle wrote:

Désolée de vous signaler qu'il manque les diagrammes A16,A17 et A18. Et ce seulement depuis hier ou aujourd'hui. Merci de vite les remettre pour que je puisse terminer ce très beau châle.

05.08.2015 - 21:23

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, vous trouverez les diagrammes A.16, A.17 et A.18 tout en bas de la page, sous les diagrammes A.13, A.14 et A.15. Bon tricot!

06.08.2015 - 09:41

country flag Birthe Sørensen wrote:

Spørgsmål ang model: Bs-076. Jeg er ret fascineret af mønsteret i denne model og kunne rigtig godt tænke mig at strikke det som babysvøb. Har I nogen ide om mønsteret så tager sig lige så godt ud. Tænker man kan strikke det som sjal og bagefter tage ind i stedet for at tage ud. Ellers tusind tak for nogle gode opskrifter, godt garn og super betjening.

07.06.2015 - 11:58

DROPS Design answered:

Hej Birthe. Det er lidt svaert at sige. Du kan jo godt pröve at tage ind igen naar du har faaet den bredde du vil have. Pröv eventuelt at strikke en lille pröve saa du ved hvordan det former sig. Du kan ogsaa bruge mönstret paa x antal masker (bredde du vil have - og delbart med mönstret) og saa bare strikke uden at tage ud

12.06.2015 - 12:36

country flag Charlotte wrote:

I mønster A9 pind nr 15 der mangler der en streg så kommer mønsteret til at passe.

22.04.2015 - 10:42

DROPS Design answered:

Hej Charlotte. Tak for meldingen. Vi skal faa kigget paa det hurtigst muligt.

22.04.2015 - 12:11

country flag Eva Bělotová wrote:

Kde jsou v popisu krajová oka ? Děkuji.

05.04.2015 - 15:53

DROPS Design answered:

Dobrý den, v návodu jsou popsána všechna oka, která máme na jehlici, včetně krajových - na obou okrajích šátku pleteme 2 krajní oka (chcete-li 1 krajové oko a 1 oko vedle něj) vroubkovým vzorem, tj. stále hladce. Hodně zdaru! Hana

05.04.2015 - 23:22

country flag Nath09 wrote:

Est-ce qu'il faut le réaliser avec des aiguilles 3 ou 3,5 car vous indiquez les deux. Merci

24.03.2015 - 10:08

DROPS Design answered:

Bonjour Nath, on utilise une aiguille circulaire 3, la correction a été faite, merci. Bon tricot!

24.03.2015 - 10:46

country flag Lotte Nielsen wrote:

Hej jeg vil rigtig gerne strikke dette sjal, men når jeg kommer til 5 række i diagrammet A1-A3 kan jeg ikke få mønsteret til at passe. jeg har 30 m på hver side af midter masken, og så skal jeg strikke: 2 kantmasker, slå om, 2 ret sammen, slå om, og så når jeg når til midter masken, så har jeg 1 m tilbage før midter masken, er det så sådan at midter masken bliver rykket 1 maske eller er det mig der helt har forstået diagrammet forkert. Venlig hilsen Lotte Nielsen

01.03.2015 - 23:50

DROPS Design answered:

Hej Lotte, Opskriften er blevet rettet, så hvis du skriver opskriften ud fra nettet, så får du rettelsen med. God fornøjelse!

25.05.2015 - 14:31

country flag Patricia Penning wrote:

In A9 in de 15e toer staat alleen een omslag en geen overhaling. Die heb ik maar wel gebreid....

14.02.2015 - 00:03

country flag Gabriele wrote:

Mein Lösungsvorschlag wäre, beim letzten A.1 (vor A.16-A18) in der letzten Hinreihe anstelle des extra Umschlags dort zwei M zusammenstricken, dann sind vor A.16-A.18 331 M auf der Nadel und A.17 geht auf. In A.7 fehlen in der Strickschrift ab der 2. Reihe (Rückreihe) jeweils am Anfang ein leeres Kästchen in allen Reihen (bei den Hinreihen jeweils nach dem Umschlag).

27.01.2015 - 14:43

DROPS Design answered:

Die Anleitung wurde an der entsprechenden Stelle nun korrigiert. Weiterhin gutes Gelingen!

28.01.2015 - 14:35

country flag Gabriele wrote:

Hallo, ich bin nun vor Mustersatz A16-A18 angekommen. Es sind wie angegeben 335 M auf der Nadel und ich habe das Problem, dass A.17 mit 8 M pro Mustersatz im Muster nicht aufgeht: 335 - 43 M (4 Randmaschen + 1 Mittelmasche + je 2x A16 + A18) = Rest 292 M für A.17 mit jeweils 8 M: 292 : 8 = 36,5 M !

27.01.2015 - 14:42

DROPS Design answered:

Liebe Gabriele, danke für Ihre ausführlichen Hinweise und Ideen. Ich werde das Problem weiterleiten, A.17 geht tatsächlich nicht auf, ich komme auf das gleiche Rechenergebnis wie Sie.

27.01.2015 - 20:54

country flag SANDRINE C wrote:

à quelle maille ou point correspond sur le diagramme de ce châle , le point noir que l'on retrouve dans le diagramme A1 A2 A3 ?

20.01.2015 - 22:08

DROPS Design answered:

Bonjour Sandrine, le point noir correspond à 1 m à tricoter à l'end sur l'env - il figure désormais dans la légende du diagramme, merci. Bon tricot!

21.01.2015 - 13:22