DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Little Rudolph

Hekluð húfa fyrir börn úr DROPS Lima. Stykkið er heklað eins og hreindýr með hornum og eyrum. Stærð 6 mán - 10 ára. Þema: Jól.

DROPS Extra 0-1049
DROPS Design: Mynstur nr li-007-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: 6/9 - 12/18 mán - 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 ára
Höfuðmál på ca: 44-46-49-51-52-53-54 cm

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
100-100-100-100-100-100-100 g litur 5310, ljós brúnn
50-50-50-50-50-50-50 g litur 5610, brúnn
50-50-50-50-50-50-50 litur 0206, ljós beige
og notið afgang af lit nr 0100, natur og lit nr 3609, rauður til skreytinga.

DROPS HEKLUNÁL NR 4 eða þá stærð sem þarft til að 18 hst og 14,5 umf á hæðina verði 10 x 10 cm.

FYLGIHLUTIR: Smá vatt til fyllingar.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta hst í umf er skipt út fyrir 2 ll, hver umf með hst endar á 1 kl í annarri ll frá byrjun umf.

HEKLIÐ SAMAN 2 HST:
* Bregðið þræðinum um heklunálina, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar og bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. Eyrnalepparnir eru heklaðir fram og til baka í lokin.

HÚFA:
Heklið 4 ll með heklunál nr 4 og litnum ljós brúnn, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 8 hst um hringinn, LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 2: Heklið 2 hst í hvern hst umf hringinn = 16 hst.
UMFERÐ 3: Heklið * 1 hst í fyrsta hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 hst.
UMFERÐ 4: Heklið * 1 hst í hvorn af næstu 2 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 32 hst.
UMFERÐ 5: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 3 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40 hst.
UMFERÐ 6: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 4 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 hst.
UMFERÐ 7: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 5 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 56hst.
UMFERÐ 8: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 6 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 64 hst.
Héðan er heklað mismunandi eftir stærðum þannig:

STÆRÐ 6/9 MÁN:
UMFERÐ 9: Heklið 1 hst í hvern hst, EN aukið jafnframt út 6 hst jafnt yfir í umf = 70 hst.

STÆRÐ 12/18 mán – 2 ÁRA:
UMFERÐ 9: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 7 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 72 hst.
UMFERÐ 10: Heklið 1 hst í hvern hst, EN aukið jafnframt út 2-6 hst jafnt yfir í umf = 74-78 hst.

STÆRÐ 3/4 - 5/6 - 7/8 ÁRA:
UMFERÐ 9: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 7 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 72 hst.
UMFERÐ 10: Heklið 1 hst í hvern af næstu 8 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 80 hst.
UMFERÐ 11: Heklið 1 hst í hvern hst, EN aukið jafnframt út 2-4-6 hst jafnt yfir í umf = 82-84-86 hst.

STÆRÐ 9/10 ÁRA:
UMFERÐ 9: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 7 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 72 hst.
UMFERÐ 10: Heklið 1 hst í hvern af næstu 8 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 80 hst.
UMFERÐ 11: Heklið 1 hst í hvern af næstu 9 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 88 hst.

Nú eru 70-74-78-82-84-86-88 hst í umf. Heklið síðan 1 hst í hvern hst í hverja umf í öllum stærðum þar til stykkið mælist 16-16-17-18-19-20-20 cm. Setjið 2 prjónamerki í stykkið frá réttu. Fyrra prjónamerkið er sett í 7.-7.-8.-8.-8.-8.-8. hst frá byrjun umf, seinna prjónamerki er sett í 49.-51.-53.-55.-57.-58.-59, hst frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda.

EYRNALEPPUR:
Byrjið að hekla frá réttu við fyrra prjónamerki. Notið heklunál nr 4 og litinn ljós brúnn.
UMFERÐ 1: Heklið 13-14-15-15-15-17-17 hst. Snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 2 ll, heklið saman 2 hst, heklið fram þar til 2 hst eru eftir og heklið þá saman 11-12-13-13-13-15-15 hst. Snúið við. Endurtakið síðan umf 2, þar verða 2 hst færri í hverri umf. Endurtakið þar til einungis 2 ll og 2 hst eru eftir. Heklið nú 2 hst saman, klippið frá og festið enda.

Heklið annan eyrnalepp á sama hátt með byrjun frá seinna prjónamerki.

KANTUR:
Heklið kant í kringum húfuna með litnum brúnn. Notið heklunál nr 4 og byrjið við miðju að aftan (byrjun á umf á húfu). Heklið 1 fl í hvern hst fram að eyrnalepp, heklið * 1 fl, 1 ll og hoppið fram ca 1 cm *, endurtakið frá *-* í kringum allan eyrnaleppinn. Heklið 1 fl í hvern hst fram að seinni eyrnalepp og heklið á sama hátt og á fyrri eyrnalepp. Endið á að hekla 1 fl í hvern hst í kantinn að aftan að byrjun á umf og endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda.

EYRA:
Eyrun eru hekluð í tveimur hlutum og hekluð síðan saman.
Heklið með heklunál nr 4 með litnum ljós beige, heklið 7 ll.
UMFERÐ 1: Snúið við og heklið til baka í ll-umf þannig: Byrjið á 3. ll frá heklunálinni: 1 hst í hverja af næstu 4 ll. Heklið 6 hst í síðustu ll í umf, snúið stykkinu og heklið 1 hst að neðan í hverja af 5 ll frá ll-umf = 16 hst. Snúið við og skiptið yfir í litinn ljós brúnn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 ll (kemur í stað fyrsta hst), 4 hst, heklið 2 hst í hvern af næstu 6 hst og 1 hst í síðustu 5 hst = 22 hst. Klippið frá. Heklið 1 eyra til viðbótar á sama hátt.
Heklið nú 2 eyru til viðbótar EN nú einungis í litnum ljós brúnn (= bakhlið á eyrum). Leggið stykkið með litnum ljós beige ofan á stykki með litnum brúnn og heklið með litnum ljós brúnn þannig: 1 fl í hverja l fram að toppi á eyra, heklið 2 ll og 1 hst í 2. ll frá heklunálinni, hoppið nú yfir 1 fl og heklið síðan 1 fl í hverja fl út umf. Látið endann vera ca 20 cm langan áður en klippt er frá, hann er notaður fyrir frágang.
Endurtakið á sama hátt og á hinu eyranu. Fyllið eyrun með smá vatti.

HORN:
Hornið er heklað í 2 hlutum sem síðan eru saumaðir saman í 1 horn.
Byrjið þannig:
Heklið 3 ll með heklunál nr 4 með litnum brúnn, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 1 ll (kemur í stað fyrstu fl), 7 fl um hringinn og endið á 1 kl í fyrstu ll = 8 fl.
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll (kemur í stað fyrstu fl), og 1 fl í fyrstu fl, síðan 2 fl í hverja fl umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu ll = 16 fl.
UMFERÐ 3-5: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. Láið endann vera ca 10 cm langan áður en klippt er frá, hann er notaður fyrir frágang.
Gerið nú eitt stærra horn á sama hátt, en heklið alls 8 umf með 1 fl í hverja fl. Látið endann vera ca 20 cm langan áður en klippt er frá.
Saumið niður litla hornið á hliðina á stóra horninu. Fyllið stóra hornið með vatti.
Heklið annað horn á sama hátt.

AUGA:
Heklið 3 ll með heklunál nr 4 með litnum brúnn, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 1 ll (kemur í stað fyrstu fl) og 9 fl um hringinn = 10 fl. Skiptið yfir í litinn natur og heklið 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf, klippið frá brúna endann.
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll (kemur í stað fl), 2 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 hst í næstu fl, 1 hst og 1 st í næstu fl, 2 st í næstu fl, 1 st í og 1 hst í næstu fl, 2 hst í næstu fl og 2 fl í 2 síðustu fl og endið á 1 kl í fyrstu ll.
Látið endann vera ca 20 cm langan áður en klippt er frá, hann er notaður fyrir frágang.
Heklið annað auga á sama hátt.

SNOPPA:
Heklið 16 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós beige.
UMFERÐ 1: Heklið 2 ll og 1 hst í þriðju ll frá heklunálinni, heklið síðan 1 hst í hverja ll þar til 2 ll eru eftir, heklið 2 hst saman. Lesið HEKLIÐ SAMAN 2 HST. Snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 2 ll, hoppið yfir fyrsta hst, 1 hst í hvern hst þar til 1 hst er eftir og 2 ll frá fyrri umf, heklið 2 hst saman með 2. ll frá fyrri umf.
Endurtakið umf 2 alls 3 sinnum. Látið endann vera ca 20 cm langan áður en klippt er frá, hann er notaður fyrir frágang.

NEF:
Heklið 2 ll með heklunál nr 4 með litnum rauður og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 1 ll (kemur í stað fyrstu fl) og 5 fl um hringinn = 6 fl.
UMERÐ 2: Heklið 1 ll (kemur í stað fyrstu fl) og 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í hverja fl umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu ll = 12 fl.
UMFERÐ 3-4: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. Látið endann vera ca 20 cm langan áður en klippt er frá, hann er notaður fyrir frágang. Fyllið nefið með smá vatti.

FRÁGANGUR:
Saumið snoppuna niður við miðju framan á húfuna beint ofan við dökk brúna kantinn. Saumið nefið niður á snoppuna. Saumið augun bein ofan við snoppuna. Saumið niður hornin og eyrun efst uppi á húfuna.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1049

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

Birthday Wishes App wrote:

Hey, I think your website might be having browser compatibility issues. When I look at your blog in Safari, it looks fine but when opening in Internet Explorer, it has some overlapping. I just wanted to give you a quick heads up! Other then that, wonderful blog!

22.11.2016 - 15:58

DROPS Design answered:

Hi, Remember to always have your browser updated and it should then work! Happy crocheting!

23.11.2016 - 09:31

Maria wrote:

At the end of the directions for the nose you say " fill the snout with some poly stuffing". Do you mean the nose? Otherwhise how to stuff with poly stuffing a flat piece? Thank you in advance and Merry Christmas!

24.12.2015 - 01:21

DROPS Design answered:

Dear Maria, only the nose should be filled. Happy crocheting!

02.01.2016 - 13:27

Maria wrote:

For the snout, after finishing the 1st ROW 2 and before repeating it for two more times, do I turn the piece or I continue in round? I tried to do it by turning the piece and the snout becomes very triangular.

24.12.2015 - 01:16

DROPS Design answered:

Dear Maria, snout is worked back and forth, after you have worked row 2, turn and repeat row 2 a total of 3 more times, turning at the end of each row = the snout is 5 rows in total. Happy crocheting!

02.01.2016 - 13:26

Maria wrote:

After round 11 you say to work around until the piece measures 18 cm. By that you mean to flatten the cap and count the diametre? Because I think it is too small like this... Thanks in advance

21.12.2015 - 15:58

DROPS Design answered:

Dear Maria, you continue working until piece measures 18 cm from the beg (= 1st round). Happy crocheting!

22.12.2015 - 10:11

country flag FRANCOISE wrote:

Bonjour, quand vous dites après le tour 11 continuer pour que l'ouvrage mesure x cm c'est de diamètre ?? car sinon cela fait vraiment petit ?? D'avance merci Bonne journée Françoise

12.12.2015 - 06:54

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, mesurez la hauteur depuis le 1er tour: mettez le bonnet à plat et mesurez à partir du haut du bonnet jusqu'au dernier rang. Bon crochet!

14.12.2015 - 09:32

country flag Cecile Tirmarche wrote:

Un tout gran merci! Avec les petites video tout est bien clai!

05.10.2015 - 17:49

country flag Cecile Tirmarche wrote:

L'abreviation "dB" s'agit il d'une demie bride ou d'une double bride?

05.10.2015 - 11:47

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tirmarche, il s'agit d'une demi-bride, voir aussi la vidéo sous l'onglet du même nom. Bon crochet!

05.10.2015 - 16:11

country flag Tinzi wrote:

So cute little reindeer, suloinen pikkuporo

01.12.2014 - 14:13