DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 156-5
DROPS Design: Mynstur nr z-679
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Mál:
Mælt meðfram miðjulykkju ca 66 cm
Mælt meðfram kanti efst ca 132 cm.

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
250 gr litur nr 3770, dökk bleikur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.8. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt.

UMFERÐ Á RÖNGU:
Síðasta umf í A.2 er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 5 l eru eftir, endið á 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 kantlykkjur í garðaprjóni (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umf, það á að myndast gat). Aukið út um 4 l = 2 l hvoru megin á stykki.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar.

SJAL:
Fitjið upp 7 l á hringprjóna nr 3 með Alpaca.
Setjið 1 prjónamerki í 4. l og látið það fylgja með út stykkið (= miðjulykkja). Prjónið síðan eftir mynstri A.1. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður br, svo að það myndist gat = 9 l. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 37 l á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni allan tímann en allar l sem ekki eru sýndar í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni.

Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan miðjulykkju, A.2 yfir næstu 3 l (miðjulykkjan er lykkjan í miðju á þessum 3 lykkjum), prjónið sl þar til 3 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Aukið út um 4 l í hverri umf frá réttu. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 73 l á prjóni.

Endurtakið umf A.2 og umferð á röngu alveg eins þar til A.2 hefur verið prjónað alls 10 sinnum á hæðina = 397 l. Stykkið mælist ca 55 cm meðfram miðju-l.

Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, prjónið A.3, A.4 (= 5 l) endurtakið þar til 5 l eru eftir á undan miðjulykkju (= 37 sinnum), A.5, 1 l sléttprjón (= miðju-l), A.6 (= 5 l), A.7 er endurtekið þar til 8 l eru eftir (= 37 sinnum), A.8, endið á 3 l garðaprjón. Haldið svona áfram að prjóna A.3-A.8.
ATH: Mynstrið passar ekki á hæðina þegar það er endurtekið, heldur færist það til um 1 l í hverri umf frá réttu. Prjónið þar til stykkið mælist ca 63 cm mælt út meðfram miðjulykkju (endið á einni umf frá réttu).
Prjónið nú næstu umf frá röngu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 5 l eru eftir, endið á 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 kantlykkjur í garðaprjóni (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umf, það á að myndast gat) = 4 l fleiri.
Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l JAFNFRAMT í hverri umf frá réttu er aukið út um 1 l innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki og hvoru megin við miðjulykkju (= 4 l fleiri í hverri umf frá réttu). Fellið laust af með uppslætti þannig: * Fellið af 5 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn og fellið uppsláttinn af *, endurtakið frá *-* þar til felldar hafa verið af allar l. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 66 cm.

Mynstur

symbols = sl frá röngu
symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = 2 l slétt saman og sláið uppá prjóninn frá röngu
symbols = umferð á röngu - sjá skýringu að ofan
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (51)

country flag Tali wrote:

La photo de cette étole correspond-elle aux explications données ? J'obtiens un motif légèrement différent. Des diamants le long de la maille centrale, mais tête à l'envers par rapport à la photo et surtout des ligne de jours horizontales et non pas parallèles au bord. Merci d'avance, Tali

09.02.2018 - 00:26

DROPS Design answered:

Bonjour Tali, le châle se tricote de haut en bas, le sens du tricot sera de haut en bas par rapport à la photo (si vous retournez la photo, vous aurez le même motif, dans le même sens). Bon tricot!

09.02.2018 - 09:43

country flag Jytte wrote:

Jeg har strikket de 10 gange mønster A2, men har kun 393 m..... kan jeg fortsætte med A3, A4 osv. og få mønstret til at passe, når jeg "mangler" 4 masker?

10.12.2017 - 20:03

DROPS Design answered:

Hej, Kan du ikke øge de sidste 4 masker på sidste pind, så maskeantallet stemmer når du skal strikke mønster. God fornøjelse!

12.12.2017 - 11:52

country flag Jytte Næstholdt wrote:

Er lige begyndt på at strikke hulmønster efter flere års fravær :-) Nu er mit spørgsmål så om jeg skal jeg strikke mønster 1 i siderne og mønster 2 i midten..... føler mig virkelig helt lost i forhold til at jeg har strikket og hæklet de sidste 50 år.....

29.10.2017 - 13:46

DROPS Design answered:

Hei Jytte. Nei, du starter med å strikke etter mønster A.1. Strikk A.1 1 gang i høyden, deretter begynner du på mønster A.2. God Fornøyelse!

31.10.2017 - 10:41

country flag Charlotte Nørregaard wrote:

Forts. af mit spørgsmål. Når jeg har strikket A3, A4 er der stadig masker tilbage, inden jeg skal starte på A5 - hvad skal jeg strikke dér? Med venlig hilsen og mange tak for hjælpen

16.10.2017 - 14:31

DROPS Design answered:

Hej igen, vil det sige at du har 397 m på pinden og er klar til at strikke næste pind? Husk at A.4 skal du gentage til du har 5 m tilbage før midtmasken, så strikker du A.5 og så videre. God fornøjelse!

31.10.2017 - 08:12

country flag Charlotte Nørregaard wrote:

Hej. Er lige gået i gang med det fine sjal, men har virkelig problemer med at forstå opskriften. Nu kan jeg se af tidl. stillede spørgsmål, at der strikkes oppefra og ned. Har nu strikket A1 og de første 3 masker i A2, men hvordan fortsætter jeg? A2 skal jo strikkes op i midten men hvordan bruger jeg diagrammerne til hø. og ve. for midten? Mvh

14.10.2017 - 13:06

DROPS Design answered:

Hej Charlotte, formen giver sig selv hvis du følger opskriften. Når du har 37 m strikker du således: Derefter strikkes der således fra retsiden: 3 kantm retstrik, slå om, strik ret til der er 1 m tilbage før midt-m, A.2 over de næste 3 m (midt-m er masken i midten af disse 3), strik ret til der er 3 m tilbage, slå om og 3 kantm retstrik. Der tages 4 m ud totalt for hver ret pind. Når A.2 er strikket 1 gang i højden er der 73 m på p. God fornøjelse!

31.10.2017 - 08:04

country flag Lilla My wrote:

Re-bonjour ! Une dernière question : Je ne comprend pas bien "tricoter 2 côtes mousse sur toutes les mailles" Est-ce que je tricote 2 m. endroit, 2 m. envers... et au rang suivant tout à l'endroit ? Ou 1 m. endroit 1 m. envers... et au rang suivant tout à l'endroit ? Le tout sur deux rangs ? Merci !

08.09.2016 - 20:48

DROPS Design answered:

Bonjour Lilla My, 1 côte mousse = 2 rangs end, quand on doit tricoter 1 côte mousse sur toutes les mailles, on tricote 2 rangs endroit sur toutes les mailles. Bon tricot!

09.09.2016 - 09:08

country flag Lilla My wrote:

Bonjour, J'ai un problème : une fois que j'ai tricoté de A3 à A8 les 8 rangs indiqués sur le diagramme, j'ai 413 mailles, ce qui n'est pas un multiple de 5 (+6 m. bordure et 1 m. centrale). Je ne peux donc pas répéter les diagrammes à l'identique. Est-ce que je dois continuer à tricoter A3-A8 en décalant à chaque rang endroit et donc avoir une partie centrale qui continue à s'agrandir ? (au prochain A5 rang endroit, j'aurai donc 9 mailles avant ma maille centrale). Merci !

28.08.2016 - 10:53

DROPS Design answered:

Bonjour Lilla My, quand vous répétez les diagrammes A.3-A.8 il ne faut pas les répéter à l'identique mais ajustez de sorte que les diagonales formées par les jetée et les m ens continuent. Continuez bien les augmentations A.3 et A.8 + de chaque côté de la m centrale comme avant. Bon tricot!

29.08.2016 - 11:54

country flag Waltraud Marter wrote:

Ein großes Lob an"s Team!!! Diese Anleitung ganz super zu lesen und auch danach zu arbeiten dafür Daumen hoch und DANKE...........

03.08.2016 - 10:21

country flag Ghislaine wrote:

Au rang envers,quand vous mentionnez de ne pas tricoter la jeté torse, j'imagine qu'il faut glisser la maille(la ,jetée ) du rang précédent) sans la tricoter.

02.07.2016 - 20:45

DROPS Design answered:

Bonjour Ghislaine, au rang suivant, on tricote le jeté "normalement", c'est-à-dire dans le brin avant pour qu'il forme un trou (= jour). Si on le tricotait torse, on n'aurait pas de trou et le motif ajouré ne se ferait pas. Bon tricot!

04.07.2016 - 10:35

country flag Nina Holmgren wrote:

Hej! Nu har jag börjat på diagram A.3-A.8 och ska sticka dessa för andra gången. Dock får jag inte maskantalet att stämma när jag närmar mig mitten för att sticka A.5, jag får inte fem maskor kvar. Hoppas ni kan hjälpa mig med detta. Tack på förhand!

12.01.2016 - 11:07

DROPS Design answered:

Hej Nina, jag är inte säker på om du har gjort något fel eller inte.... Men de sista 5 m före mitt-m stickar du enligt A.5. Lycka till!

26.01.2016 - 15:47