Clear Water |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk í garðaprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 156-43 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l þannig: Prjónið 2 l slétt saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af fjórðu l frá miðju að framan og fitjið upp 1 nýja l yfir þá lykkju sem felld var af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá kanti þar sem lykkjur voru teknar upp): Stærð S: 1, 6, 10 og 15 cm. Stærð M: 1, 6, 11 og 17 cm. Stærð L: 1, 6, 11 og 17 cm. Stærð XL: 1, 5, 10, 14 og 20 cm. Stærð XXL: 1, 5, 10, 14 og 19 cm. Stærð XXXL: 1, 6, 11, 16 og 21 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð í hlutum í mismunandi áttir. Örvar í mynsturteikningu sýna prjónastefnu. Öll peysan er prjónuð í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar lykkjurnar. BAKSTYKKI: Bakstykkið er prjónað í 2 hlutum og er saumað saman við miðju að aftan. Prjónið síðan berustykki héðan. VINSTRA BAKSTYKKI: Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! AUKIÐ ÚT Í HVERRI UMF Í HVORRI HLIÐ Á STYKKI JAFNFRAMT ÞVÍ SEM LYKKJUM ER FÆKKAÐ. ÚTAUKNING: Aukið ú um 1 l í byrjun á hverri umf frá réttu (= y- sjá mynsturteikningu) og í byrjun á hverri umf frá röngu (= x) með því að prjóna 2 l í fyrstu l. Endurtakið útaukningu við miðju að aftan (= y) þar til stykkið mælist 32 cm í öllum stærðum (mælt meðfram y). Endurtakið útaukningu á neðri kanti (= x) þar til stykkið mælist 24-26-28-30½-33½-36½ cm mælt meðfram x. ATH! Í Stærð XXL og XXXL eru útaukningar á miðju að aftan (= y) lokið á undan útaukningum á neðri kanti (= x). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ÚRTAKA Í HLIÐ: Þegar útaukning á neðri kanti (= x) er lokið er lykkjum fækkað í hlið (= z) þannig: Fækkið um 1 l – LESIÐ ÚRTAKA – í byrjun á hverri umf frá röngu. Endurtakið úrtöku í hverri umf frá röngu til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm meðfram z – er fækkað um 1 l í byrjun á næstu umf frá röngu innan við 4 l (á eftir úrtöku). Endurtakið úrtöku með 2½ cm millibili alls 10 sinnum. ÚRTAKA VIÐ MIÐJU AÐ AFTAN: Þegar útaukningu við miðju að aftan (= y) er lokið er fækkið um 1 l í byrjun á næstu umf frá réttu. Endurtakið úrtöku í byrjun á hverri umf frá réttu þar til 3 l eru eftir. Fellið af. HÆGRA BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra bakstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. öll úrtaka/útaukning sem útkskýrð er frá í byrjun umf frá réttu er nú gerð í byrjun umf frá röngu og svo öfugt. FRÁGANGUR Á BAKSTYKKI: Saumið saman vinstra og hægra bakstykki við miðju að aftan yst í lykkjubogann. BERUSTYKKI AÐ AFTAN: Stykkið er prjónað fram og til baka í garðaprjóni til loka. Prjónið upp (frá réttu) 1 l í hverja rönd í garðaprjóni á bakstykki – sjá strika línu í mynsturteikningu (alveg eins og á framstykki). Í næstu umf er lykkjufjöldinn jafnaður út til 96-106-119-128-142-156 l. Fitjið upp 1 l í lok 2 næstu umf (= kantlykkja) = 98-108-118-130-144-158 l. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 8-9-10-11-12-13 cm frá þeim stað sem lykkjur voru teknar upp. Fitjið upp 10-10-10-7-7-7 nýjar l í hvorri hlið fyrir ermi. Fitjið síðan upp í hvorri hlið í annarri hverri umf: 4-3-3-3-2-2 l 12-15-15-17-17-19 sinnum og 15-15-11-3-14-5 l 1 sinni = 244-248-250-252-254-258 l. Þegar stykkið mælist 26-28-30-32-34-36 cm frá þeim stað sem lykkjur voru teknar upp fellið af miðju 36-38-40-40-42-46 l af fyrir hálsmáli. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf er felld af 1 l við hálsmál = 103-104-104-105-105-105 l í hvorri öxl/ermi. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28-30-32-34-36-38 cm frá þeim stað sem lykkjur voru teknar upp – op fyrir ermar mælist ca 14-14-15-15-16-16 cm – fellið laust af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Framstykkið er prjónað skásett (eins og hægra bakstykki + kantur að framan), síðan er berustykki prjónað, þ.e.a.s það er prjónað þannig: Fitjið upp 10-10-10-10-11-11 l (= 3 l + 7-7-7-7-8-8 kantlykkjur að framan) á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið eins og HÆGRA BAKSTYKKI, en síðustu 7-7-7-7-8-8 l frá röngu eru prjónaðar án útaukninga (= kantur að framan). ATH! Þegar úrtaka frá réttu byrjar er lykkjum einnig fækkað í 7-7-7-7-8-8 kantlykkjum að framan. BERUSTYKKI (VINSTRA FRAMSTYKKI): Stykkið er prjónað fram og til baka í garðaprjóni. Prjónið upp (frá réttu) 1 l í hverja rönd í garðaprjóni og 1 l í hverja kantlykkju að framan fyrir miðju – sjá línu í mynsturteikningu. Í næstu umf er lykkjufjöldinn jafnaður út til 55-61-65-71-79-86 l. Í næstu umf er fitjuð upp 1 ný l í hlið (= kantlykkja) 56-62-66-72-80-87 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 8-9-10-11-12-13 cm frá þeim stað sem lykkjur voru teknar upp. Fitjið upp 10-10-10-7-7-7 nýjar l í lok næstu umf frá röngu fyrir ermi. Fitjið síðan upp frá hlið í annarri hverri umf: 4-3-3-3-2-2 l 12-15-15-17-17-19 sinnum og 15-15-11-3-14-5 l 1 sinni = 129-132-132-133-135-137 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 16-18-18-20-20-22 cm. Fellið nú af 18-18-18-18-20-22 l við miðju að framan fyrir hálsmáli. Fellið síðan af í annarri hverri umf við hálsmál 2 l 4-5-5-5-5-5 sinnum = 103-104-104-105-105-105 l eftir fyrir öxl/ermi. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28-30-32-34-36-38 cm frá þeim stað sem lykkjur voru teknar upp, stillið af eftir bakstykki. Fellið laust af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Framstykkið er prjónað skásett (eins og vinstra bakstykki + kantur að framan), prjónið síðan berustykki, þ.e.a.s. prjónið þannig: Fitjið upp 10-10-10-10-11-11 l (= 3 l + 7-7-7-7-8-8 kantlykkjur að framan) á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið eins og VINSTRA BAKSTYKKI – JAFNFRAMT eru fyrstu 7-7-7-7-8-8 l frá réttu prjónaðar án útaukninga (= kantur að framan). BERUSTYKKI (HÆGRA FRAMSTYKKI): Prjónið á sama hátt og VINSTRA BERUSTYKKI, nema spegilmynd – þ.e.a.s. fitjaðar eru upp l fyrir ermi í lok umf frá réttu. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan, á kanti að framan. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma/sauma yfir ermum, saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. HÁLSMÁL: Prjónið upp (frá réttu) 100 til 140 l á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka. Fellið laust af. STROFF: Prjónið upp 1 l í hverja rönd í garðaprjóni neðst niðri á ermum. Í næstu umf er lykkjufjöldinn jafnaður út til 68-68-72-72-78-78 l. Prjónið síðan fram og til baka yfir allar l. Þegar stroffið mælist 17-18-18-19-19-19 cm (eða að óskaðri lengd) fellið laust af. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma, sauma undir ermum og stroffsauminn í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í ca 1 cm frá kanti á vinstra framstykki. HEKLAÐUR KANTUR: Byrjið að hekla við miðju aftan í hnakka með heklunál nr 3,5 með BabyAlpaca Silk. Heklið 1 fl, * 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* í kringum hálsmál, niður meðfram framstykki, í kringum allan kant að neðan og upp og aftur aftan í hnakka. Endið á 1 kl í byrjun umf. Heklið á sama hátt neðst í kringum stroff á báðum ermum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (58)
Margareta Wallman wrote:
Å såå fin! Den måste jag bara sticka! Fin färg, längtar efter mönstret!
03.06.2014 - 17:31Elisabet wrote:
Heel mooi model! kijk echt uit naar het patroon!
03.06.2014 - 13:03Benedetta wrote:
Molto raffinato
03.06.2014 - 12:11Irena wrote:
Bellissima giachetta eseguita con con filato fine e pregiato
03.06.2014 - 09:15Grace wrote:
Amassing!
03.06.2014 - 01:46Natalie wrote:
I like the deep neckline and rounded hem. Sweet.
03.06.2014 - 01:11Momo wrote:
Il me plait beaucoup aussi :)
02.06.2014 - 19:14AnniePBleau wrote:
Simple et toujours chic. Il me plait beaucoup.
02.06.2014 - 18:58