DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1479.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 156-51
DROPS Design: Mynstur nr ne-161
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22-24-26 cm
Hæð á sokk: 31-32-33 cm

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
150-200-200 gr litur nr 7120, ljós grágrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5 – fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1479.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.5. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l á undan prjónamerki/A.3 þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki/A.5 þannig: Prjónið 2 l snúnar slétt saman.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 7-7-8 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 7-7-8 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 6-6-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 6-6-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 10-12-12 l eru eftir á prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 60-64-68 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (2 l sl, 2 l br) þar til stykkið mælist 4 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið * 1 umf br, 1 umf sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, JAFNFRAMT í síðustu umf er fækkað um 8 l jafnt yfir = 52-56-60 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5. Prjónið nú 5-7-9 l sl, A.3 (= 7 l) – lesið útskýringu að ofan, A.2 (= 6 l), A.1 (= 16 l), A.4 (= 6 l), A.5 (= 7 l), endið á 5-7-9 l sl. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 að A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.a endurtekið að A.d til loka. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.e til loka.
Haldið áfram með þetta mynstur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað – LESIÐ ÚRTAKA að ofan – í mismunandi stærðum:
STÆRÐ 35/37: Þegar stykkið mælist 14 og 20 cm er fækkað um 1 l á undan A.3 og 1 l á eftir A.5 = 44 l á eftir öllum úrtökum. ATH: Fækkið um 4 l í mynstri A.1 – sjá mynsturteikningu.
STÆRÐ 38/40: Þegar stykkið mælist 7, 16 og 21 cm er fækkað um 1 l á undan A.3 og 1 l á eftir A.5 = 46 l á eftir öllum úrtökum. ATH: Fækkið um 4 l í mynstri A.1 – sjá mynsturteikningu.
STÆRÐ 41/43: Þegar stykkið mælist 7-16-21 og 26 cm er fækkað um 1 l á undan A.3 og 1 l á eftir A.5 = 48 l á eftir öllum úrtökum. ATH: Fækkið um 4 l í mynstri A.1 – sjá mynsturteikningu.
Prjónið þar til stykkið mælist 26-27-28 cm. Haldið nú eftir fyrstu 10-11-12 l á prjóni (þ.e.a.s. 3-4-5 l sl og A.3), setjið eftirfarandi 24 l á þráð (= miðja ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 10-11-12 l á prjóni (þ.e.a.s. A.5 og 3-4-5 l sl) = 20-22-24 l fyrir hæl. Stykkið er nú prjónað fram og til baka. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l hvoru megin við stykkið með því að prjóna 2 l í fyrstu og síðustu l = 22-24-26 l. Prjónið 1 l br, A.3, sléttprjón og A.5 og endið á 1 l br fram og til baka yfir hæl-l í 5½ cm. Setjið 1 prjónamerki, stykkið er nú mælt héðan. Passið að mynstrið endi fallega. Nú er prjónað sléttprjón yfir allar l og lykkjum fækkað fyrir hæl – LESIÐ HÆLÚRTAKA.
Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 10-10-11 l hvoru megin við hæl og 24 l af þræði eru settar aftur til baka á prjóninn = 54-56-58 l.
Prjónið 5-6-6 l sl (= miðja undir fæti) = byrjun á umf. Prjónið nú JAFNFRAMT því að það eru sett 2 prjónamerki í stykkið þannig: 14-15-16 l sl, setjið 1. prjónamerki, 1 l br, A.2, A.e, A.4, 1 l br, setjið 2. prjónamerki, 14-15-16 l sl. Haldið svona áfram með mynstur JAFNFRAMT er fækkað um 1 l á undan 1. prjónamerki og 1 l á eftir 2. prjónamerki í hverri umf alls 9 sinnum = 36-38-40 l (= 10-12-14 l sléttprjón undir fæti). Prjónið þar til stykkið mælist 19-21-23 cm frá prjónamerki (= 3 cm eftir). Prjónið nú sléttprjón yfir l í A.e, stillið af að endað er með 1 hálfri mynstureiningu á A.e á hæðina, einnig má prjóna sléttprjón aðeins fyrr. A.2 og A.4 halda áfram til loka.
Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 5-6-7 l sl, setjið 1. prjónamerki, 1 l br, prjónið A.2 JAFNFRAMT er 2. prjónamerki sett á milli 5. og 6. l, prjónið sl yfir fótinn (= 14 l), A.4 JAFNFRAMT er 3. prjónamerkið sett á milli 1. og 2. l, 1 l br, setjið 4. prjónamerki, endið á 5-6-7 l sl (= 14 l ofan á fæti, 10-12-14 undir fæti og 6 l í hvorri hlið).
Fækkið nú lykkjum fyrir tá í næstu umf þannig: Fækkið um 1 l á eftir 2. prjónamerki ofan á fæti og 1 l á undan 3. prjónamerki ofan á fæti, endurtakið úrtöku í hverri umf alls 2-1-0 sinnum – munið eftir ÚRTAKA = 10-12-14 l ofan á fæti og 10-12-14 l undir fæti (= 32-36-40 l alls). Í næstu umf er fellt af þannig: Fellið af 1 l á undan 1. og 3. prjónamerki og 1 l á eftir 2. og 4. prjónamerki (= alls 4 úrtökur). Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 4-5-6 sinnum JAFNFRAMT í síðustu úrtöku er prjónuð kaðla-l í A.2 og A.4 þannig: Prjónið 2 l snúnar saman, 2 l slétt saman. Eftir alla úrtöku eru 12 l á prjóni.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 1 l br/sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l br/sl, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, prjónið 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, prjónið 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = 2 l br saman
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Walk With Me

Sarah, United Kingdom

156-51 Walk with me

atelieraurea, United Kingdom

Winter slippers

Judy, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-51

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (49)

country flag Lyne Vien wrote:

Bonjour,je voudrais savoir ce que veux dire.... = glisser 2 m sur l'aiguille auxiliaire devant l'ouvrage, 1 m env/end, reprendre les 2 m en attente et les tricoter à l'end je la tricote comment cette maille..1 m env/end , a l endroit ou a l envers ou comme elle se presente. merci et bonne journée

28.02.2016 - 17:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vien, en fonction du motif, vous tricoterez cette maille soit à l'envers (avant/après la torsade centrale) ou soit à l'endroit, soit à l'envers (dans la torsade) c'est-à-dire au point de riz, en fonction de la maille précédente/suivante (et celle du dessous). Bon tricot!

29.02.2016 - 09:54

country flag Bridgette Springer wrote:

This pattern is gorgeous! Almost done with my first sock. Knitting with aran from Ireland a friend gave me. I don't understand the placement of the markers however. How many go across the foot? It says there are 14 stitches and there is a decrease after the second and third marker. I am confused. My markers don't look like this.

19.01.2016 - 00:17

DROPS Design answered:

Dear Mrs Springer, new beg of round is in the midle of heel (there were 10 sts remaining on heel, you start new round in the middle of these 10 sts): K14, insert a marker, P1, work upper foot (A2, A.e, A.4), P1, insert 2nd marker and finish with K14. Dec are then done before 1st marker: K12, K2 tog, P1 (on 1st dec round) and after 2nd marker: P1, K2 tog, K12. Happy knitting!

19.01.2016 - 10:08

Lily V wrote:

Do I work the pattern on five or tree needles? Thanks in advance!

04.01.2016 - 16:39

DROPS Design answered:

Dear Lily V, socks are worked in the round with double pointed needles, you can sts onto 4 needles and work with the 5th one. Happy knitting!

05.01.2016 - 09:09

Tamar Gorodzinsky wrote:

Hi, i am left handed... should i flip the diagrams when i work with them? thank you so much for the great patterns tamar

28.12.2015 - 18:16

DROPS Design answered:

Dear Mrs Gorodzinsky, read more about diagrams here - for any individual assistance you are welcome to contact your DROPS store. Happy knitting!

02.01.2016 - 14:55

country flag Stephanie wrote:

Bonjour, je n'ai jamais tricoté de chaussettes, j'ai choisi celles-ci pour me lancer dans l'aventure, est-il possible de les tricoter avec des aiguilles circulaires? Merci, bonne journée!

28.12.2015 - 08:58

DROPS Design answered:

Bonjour Stéphanie, si vous choisissez de tricoter sur aiguille circulaire, il vous faudra utiliser la technique dite "magic loop". Bon tricot!

02.01.2016 - 14:29

country flag Laura wrote:

Mitä tarkoittaa kaaviossa A.1 kun siirretään 1s apupuikolle työn taakse ja se neulotaan NURIN/OIKEIN? ja Sama seuraavassa kohdassa kun siirrä 2 apupuikolle työn eteen,neulo 1s NURIN/OIKEIN?? eli siis kummin? Kiitos vastauksesta

27.11.2015 - 00:05

DROPS Design answered:

Hei! Apupuikon silmukat neulotaan siten miltä ne näyttävät. Eli nurja s neulotaan nurin, oikea s neulotaan oikein.

30.11.2015 - 16:13

country flag Maria wrote:

Del 2 Hei 2. "Avpass mønsteret så det blir pent" hva menes m det? 3. "arbedet strikkes frem og tilbake" så betyr det å strikke rettsiden først, og på vei tilbake må jeg strikke maskene motsatt ikke sant? rett blir vrang og omvendt?

27.10.2015 - 23:30

DROPS Design answered:

Del 2) 2. Afpas så mønsteret bliver pænt betyder at du afslutter efter en hel eller halv rapport, eller i hvert fald ikke midt i en snoning. 3) Ja du fortsætter fra retsiden over hælmaskerne, når du har strikket dem vender du arbejdet og strikker modsat tilbage, ret fra retten = vrang fra vrangen. Sørg for at snoningerne strikkes fra retsiden. God fornøjelse!

30.10.2015 - 08:59

country flag Maria wrote:

Del 1 Hei, 1. er kommet til der 24 m er satt på tråd (oppå foten) og skal begynne på partiet rett før hælfelling (med 22 m). Til nå har starten på omgangen vært midt på bak, hvordan blir dette videre? Skal jeg kutte tråden her (feste den) også begynne på en av sidene? Syns det blir vanskelig å holde oversikt når omgangen starter midt på rettsiden.

27.10.2015 - 23:28

DROPS Design answered:

Hej Maria, 1)Når du har sat m på tråden, så er du allerede i en af siderne, her fortsætter du over hælmaskerne frem og tilbage!

30.10.2015 - 08:55

Erika wrote:

Mistake in diagram A1, round 20 (counting from bottom). There is K4. There should be K2, P1, K.

11.12.2014 - 22:10

country flag Tina wrote:

Hi there, I have reached the point where you put 24sts on stitch holder and work 24sts for heel but I dont understand the instructions folowing the seperation as the yarn falls in the middle of the 24sts for the heel. Do you now have to work right side and wrong side? Where exactly do you increase the stitches each end of the work? Is it in the stocking stitch section or the A3/A5 sections? It doesn't make sense to me. Please help.

30.11.2014 - 16:39

DROPS Design answered:

Dear Tina, you will now work the 24 sts for heel in rows (back and forth) inc 1 st at the beg + 1 st at the end of row on next row from RS worked over these 24 sts (inc by Kfbl as shown in video below). Happy knitting!

01.12.2014 - 10:48