DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 647.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7764.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

September Morning

Hekluð húfa, hálsskjól og handstúkur úr DROPS Big Merino eða DROPS Nepal með gatamynstri og sólfjaðrakanti.

DROPS 156-22
DROPS Design: Mynstur nr mb-013
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: S/M – L/XL
Höfuðmál: 54/56 – 58/60 cm

Efni:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio
150-150 gr litur nr 09, fjólublár
50-50 gr litur nr 10, dökk fjólublár

Eða notið:
DROPS Nepal frá Garnstudio
150-150 gr litur nr 4311, grár/fjólublár
50-50 gr litur nr 4434, fjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 17 st og 10 umf verði 10 x 10 cm.

HANDSTÚKUR:
Stærð: Ein stærð

Efni:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio
50 gr litur nr 09, fjólublár
50 gr litur nr 10, dökk fjólublár

Eða notið:
DROPS Nepal frá Garnstudio
50 gr litur nr 4311, grár/fjólublár
50 gr litur nr 4434, fjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 17 st og 10 umf verði 10 x 10 cm.

HÁLSSKJÓL:
Stærð: Ein stærð
Mál: Hæð: 24 cm.
Ummál 144 cm.

Efni:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio
200 gr litur nr 09, fjólublár
100 gr litur nr 10, dökk fjólublár

Eða notið:
DROPS Nepal frá Garnstudio
200 gr litur nr 4311, grár/fjólublár
100 gr litur nr 4434, fjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 st og 8,5 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 647.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7764.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

UMFERÐ MEÐ ST OG LL:
Allar umf með st og ll eru heklaðar þannig: Snúið við svo að rangan snúi að þér, heklið 5 ll (= 1. St + ll), hoppið yfir 1. ll-bogann (= síðasta - ll frá fyrri umf), * 1 st um næsta ll-boga, 2 ll *. Endurtakið frá *-*, endið umf á 1 st um síðasta ll-boga (= ll-boginn með 5 ll frá fyrri umf), 1 kl um ll-boga með 5 ll í byrjun umf þ.e.a.s. heklað er til skiptis frá réttu og röngu svo að það verði fín ending/byrjun í um.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta st í byrjun á hverri umf með st er skipt út fyrir 3 ll og hver umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.

ÚRTAKA:
Fækkað er um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður, í hring.

HÚFA:
Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum fjólublár og tengið í hring með 1 kl í 1. ll – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 1: Heklið 9 st um hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st umf hringinn = 18 st.
UMFERÐ 3: Heklið * 1 st í fyrsta st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 27 st.
UMFERÐ 4: Heklið * 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 st.
ATHUGIIÐ HEKLFESTUNA!
Haldið áfram með útaukningu þar til 81-90 st eru í umf (þ.e.a.s. fyrir hverja umf er heklaður 1 st fleiri en áður en heklaðir eru 2 st í sama st, svo að útaukningin verður 9 st í hverri umf). Heklið síðan 1 umf með st í hvern st JAFNFRAMT er aukið út um 3-0 st jafnt yfir = 84-90 st. Heklið síðan þannig: Heklið 5 ll (= 1. st + 2 ll), * hoppið yfir 2 st, 1 st í næsta st, 2 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn JAFNFRAMT er aukið út um 6 ll-boga jafnt yfir þannig: Heklið 1 st, 2 ll, 1 st, 2 ll í sama st frá fyrri umf, endið á 1 kl um ll-bogann með 5 ll í byrjun á umf = 34-36 ll-bogar (= 102-108 st + ll). Heklið síðan UMFERÐ MEÐ ST OG ll – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist ca 18-19 cm er heklað þannig: * 1 st í næsta st, 2 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* hringinn alla umf = 102-108 st. Í næstu umf er heklaður 1 st í hvern st JAFNFRAMT er fækkað um 18 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 84-90 st í umf.
Heklið nú 1 st í hvern st. Þegar stykkið mælist 26-27 cm á hæðina, heklið 1 umf þannig: Heklið 5 ll (= 1. st + 2 ll), * hoppið yfir 2 st, 1 st í næsta st, 2 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn JAFNFRAMT er aukið út um 2 ll-bogar jafnt yfir þannig: Heklið 1 st, 2 ll, 1 st, 2 ll í sama st frá fyrri umf, endið á 1 kl um ll-boga með 5 ll í byrjun umf = 30-32 ll-bogar (= 90-96 st +ll).

Skiptið um lit yfir í litinn dökk fjólublár og heklið sólfjaðrakant þannig:
1 ll, * 1 fl í hvern st og 2 fl um hverja ll *, endurtakið frá *-* hringinn alla umf = 90-96 fl. Endið á 1 kl í fyrstu ll. Heklið 1 umf með sólfjöðrum þannig: 1 ll, * hoppið yfir 2 fl, 6 st í næstu fl, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu ll (= 15-16 sólfjaðrir). Klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

HANDSTÚKA:
Heklið 36 ll með heklunál nr 4 með litnum fjólublár og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið * 1 st í hverja af næstu 5 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 st.
Heklið síðan 1 st í hvern st þar til stykkið mælist ca 12 cm. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í næstu umf er heklað þannig: Heklið 5 ll (= 1. st + 2 ll), * hoppið yfir 2 st, 1 st í næsta st, 2 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl um ll-boga með 5 ll í byrjun umf = 10 ll-bogar (= 30 st + ll). Skiptið um lit yfir í litinn dökk fjólublár og heklið einn sólfjaðrakant þannig: 1 ll, * 1 fl í hvern st og 2 fl um hvern ll-boga *, endurtakið frá *-* hringinn alla umf, endið á 1 kl í fyrstu ll = 30 fl. Næsta umf er hekluð þannig: 1 ll, 1 fl í fyrstu fl, * hoppið yfir 2 fl, í næstu fl eru heklaðir 6 st (= 1 sólfjöður), hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, en í síðasta skiptið er endað á 1 kl í byrjun umf í stað 1 fl = 5 sólfjaðrir í um. Heklið síðan A.1 1 sinni á hæðina. Klippið frá og festið enda. Handstúkan mælist ca 18 cm á hæðina.
Heklið aðra handstúku á sama hátt.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

HÁLSSKJÓL:
Heklið 200 lausar ll með heklunál nr 5 með litnum fjólublár og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið 5 ll (= 1. ll. Heklið 5 ll (= 1. st + 2 ll), * hoppið yfir 1 ll, 1 st í næstu ll, 2 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endurtakið með 1 kl um ll-bogann með 5 ll í byrjun umf = 100 st. Heklið síðan UMFERÐ MEÐ ST OG LL – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 22 cm á hæðina, skiptið yfir í litinn dökk fjólublár og heklið einn sólfjaðrakant þannig:
1 ll, * 1 fl í hvern st og 1 fl í hvern ll-boga *, endurtakið frá *-* hringinn alla umf, JAFNFRAMT er aukið út um 2 l í umf með því að hekla 2 fl í 2 af ll-bogunum í umf = 102 fl. Endið á 1 kl í fyrstu ll. Heklið næstu umf þannig:
1 ll, * hoppið yfir 2 fl, 6 st í næstu fl, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu ll = 17 sólfjaðrir. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = ll
symbols = fl
symbols = fl um ll-bogann frá fyrri umf og mitt á milli 3. og 4. st frá sólfjöður 2 umf að neðan - Sjá teikningu 1
symbols = kl
symbols = st
symbols = Sólfjöður: Heklið 6 st um sömu ll
symbols = þessi röð er útskýrð í uppskrift, byrjið á 2. röð
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Lori wrote:

The wrist warmers are beautiful!. After CH3 do I turn my work before continuing? If I do not turn my work after CH3, it creates a hole. Thank you in advance!

21.11.2023 - 22:51

DROPS Design answered:

Dear Lori, wrist warmers are worked in the round, start every round with 3 chains and do not turn, just continue working 1 dc (US-English) in each dc from previous round - see also this video. Happy crocheting!

22.11.2023 - 09:07

country flag Maria Dahl wrote:

Hej Jeg skal til og hækle viftekant. Jeg har 100 st i mit tørklæde. Og nu skal jeg hækle 1 fm i hver st og i hver lm bue og samtidig tage 2 m ud. Jeg skulle så til slut ha 102 fm. Det forstår slet ikke, det kan man da umuligt ha. Hvis man siger feks, (5 st = 9fm) man tæller vel alle fm.... 4 af dem er jo om lm buen.. derfor giver det 9. Er i ikke søde at hjælpe mig??? Mvh Maria

04.07.2020 - 23:40

DROPS Design answered:

Hei Maria. Du har nå heklet omganger med STAVER og LUFTMASKER og arbeidet måler 22 cm, nå skal du bytte farge og hekle 1 omgang slik: 1 lm, *1 fm i hver stav og 1 fm om hver lm-bue (ikke i hver av disse 2 lm, men om luftmaske buen) *, gjenta fra *-* rundt hele omg (husk å øke 2 masker på omgangen ved å hekle 2 fm i 2 av lm-buene på omg = 102 fm). NÅ så skal du hekle viftene slik: 1 lm, * hopp over 2 fm, 6 staver i neste fm, hopp over 2 fm, 1 fm i neste fm*, gjenta fra *-* omgangen rundt og avslutt med 1 kjm i første lm= 17 vifter. God Fornøyelse!

06.07.2020 - 14:03

country flag Anye wrote:

I love this pattern. Clear, easy explanations. I've made several sets of the wrists warmers already and am working on the neck warmer next. It's something fun and easy to make in the evening. They come out so pretty! Thank you.

05.01.2020 - 17:21

country flag Lori Miller wrote:

I find your pattern very difficult. the AT THE SAME time increases are not well explained. I had to abandon the hat after getting to 90 stitches. I have never seen another pattern written this way. asking us to increase evenly. why not just write the increases into the pattern. also why not number the rounds?

24.01.2018 - 11:17

DROPS Design answered:

Dear Mrs Miller, to increase 1 ch-space work: (1 dc, ch 2, 1 dc, 2 ch in same dc on previous round) = 2 ch-space instead of 1. Repeat this a total of 6 times to get 36 ch-spaces and 108dc + ch. Happy crocheting!

24.01.2018 - 15:57

country flag Michael Murdock wrote:

I am unable to fully decipher the diagram for the wrist warmer. I understand the fan rounds, but the alternate rounds are confusing me. What do the short dashes between the double crochets represent? I know the long ones are chains, but I see no short dashes in the symbols chart. Are they supposed to represent single crochet stitches? Also, what does Fig. 1 describe? If possible, could you write A.1 out? I'm still learning how to read diagrams. Thank you.

30.11.2014 - 19:40

DROPS Design answered:

Dear Mrs Murdock, the short dashes on round 2 and 4 between 2 dc are ch 1, so that you start round 2 with 4 ch, 1 dc in sl st, ch 5, in next sc work: *1 dc, 1 ch, 1 dc, 5 ch* repeat from *-* around. Fig. 1 shows how to crochet the sc from round 3 & 5 ie crochet the sc around ch from previous round between the 3rd and 4th dc from fan 2 rounds below. Happy crocheting!

01.12.2014 - 11:17

country flag Michaela wrote:

Ich häkele gerade den Pulswärmer und verstehe nicht, wie ich das Muster zu verstehen habe. Stricke ich wirklich einmal rechts und einmal links herum? Und lese ich dann das Muster in der 3. Reihe von rechts nach links oder umgekehrt?

30.09.2014 - 15:50

DROPS Design answered:

Nein, Sie häkeln das Muster in Runden ohne zu wenden. D.h. Sie häkeln die Rd immer so lange, bis Sie wieder am Rd-Anfang angekommen sind und häklen dann die nächste Rd, Sie lesen dafür alle Rd des Diagramms von rechts nach links.

30.09.2014 - 16:11

country flag Kathy Trinity wrote:

I am working on the September Morning hat (already finished the cowl) and it seems it is missing something in the pattern. The way it is written implies the hat starts with a spiral rather than with connected rounds. I don't see how this will work out right. Seems there should be a slip stitch and some chains to start each round and there is not.

15.09.2014 - 17:35

Mary answered:

See: Crochet info before the pattern.

16.09.2014 - 08:21

country flag Morondava wrote:

Super!

10.07.2014 - 10:40

country flag Annette wrote:

Wunderschön!

07.07.2014 - 21:38

Lauren McRoberts wrote:

I love this entire set! Please offer this year!

03.06.2014 - 13:24