DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Take It Easy

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca í garðaprjóni með hringlaga berustykki, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 158-3
DROPS Design: Mynstur nr z-677
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 gr litur nr 2925, dökk appelsínugulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 2,5 –fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS PERLUTALA, NR 521: 3-3-3-4-4-4 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá uppfitjunarkanti):
STÆRÐ S: 1, 8 og 15 cm.
STÆRÐ M: 1, 9 og 17 cm.
STÆRÐ L: 1, 9 og 17 cm.
STÆRÐ XL: 1, 7 og 19 cm.
STÆRÐ XXL: 1, 8, 15 og 22 cm.
STÆRÐ XXXL: 1, 8, 15 og 22 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 114-118-122-126-130-134 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í annarri hlið á stykki) á hringprjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið 8 prjónamerki í stykkið frá réttu þannig: Prjónið 6 l sl, setjið 1. prjónamerki, 20 l sl (= ermi), setjið 2. prjónamerki, 5 l sl, setjið 3. prjónamerki, 24-26-28-30-32-34 l sl (= bakstykki), setjið 4. prjónamerki, 5 l sl, setjið 5. prjónamerki, 20 l sl (= ermi), setjið 6. prjónamerki, 5 l sl, setjið 7. prjónamerki, 23-25-27-29-31-33 l sl, setjið 8. prjónamerki, endið á 6 kantlykkjum í garðaprjóni (= framstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið er prjónað áfram í garðaprjóni. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Aukið síðan út um 1 l – LESIÐ ÚTAUKNING, á eftir 1.-3.-5. og 7. prjónamerki og 1 l á undan 2.-4.-6. og 8. prjónamerki (= 8 l fleiri). Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf 20-22-23-24-26-28 sinnum til viðbótar. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-3-2-2-2-1½ cm aukið út þannig: Aukið út 4 l jafnt yfir á bakstykki, 1 l á hvorri ermi og 4 l jafnt yfir á bakstykki (= 10 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-3-2-2-2-1½ cm millibili 3-5-7-9-9-11 sinnum til viðbótar. Þegar útaukningu er lokið eru 322-362-394-426-446-486 l á prjóni. Stykkið mælist ca 18-19-20-21-23-24 cm.

Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 6 l, setjið næstu 62-72-76-80-84-90 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-12-12-12 nýjar l, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju l, 92-106-118-130-136-150 l sl, setjið næstu 66-72-76-80-84-90 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-10-12-12-12 nýjar l, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju l, prjónið yfir næstu 92-106-118-130-136-150 l = 204-232-256-284-296-324 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er nú prjónað í hring á hringprjóna í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hliðum – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 8-4-4-3-7-10 cm millibili 3-6-7-9-4-3 sinnum til viðbótar = 188-204-224-244-276-308 l. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-39-40 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5. Prjónið 10 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið af.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna.
Setjið til baka þær 66-72-76-80-84-90 l af þræði yfir á sokkaprjóna nr 3. Fitjið upp 10-10-10-12-12-12 nýjar l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra l = 76-82-86-92-96-102 l. Prjónið nú sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin. Endurtakið úrtöku með 4-3-2½-2-2-1½ cm millibili 9-12-13-15-16-18 sinnum til viðbótar = 56-56-58-60-62-64 l. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 44-44-43-43-42-42 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið af þegar stykkið mælist 47-47-46-46-45-45 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Leggið kantinn á bakhlið á berustykki saman og saumið hann niður. Saumið tölur í.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Take it easy

Marieke, Netherlands

Take It Easy

Noémie, France

Take It Easy

Sabine, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (83)

country flag PIFFERO wrote:

Comment fait-on pour monter la patte de boutonage des 6 premières mailles, sur l'aiguille circulaire, de façon à pouvoir rabattre cette patte , sur les 6 autres mailles de l'empiècement, une fois l'empiècement terminé ? QUEL EST LE PROCEDE ?

03.08.2015 - 18:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Piffero, les 6 m de la patte de boutonnage sont rabattues au même rang où on glisse les mailles des manches en attente/on monte les mailles sous l'emmanchure. Quand le pull est terminé, on glisse ces 6 m sur l'envers de l'empiècement sous les 6 premières m de l'autre côté et on fait quelques points pour les fixer en bas. Bon tricot!

04.08.2015 - 08:54

country flag Grethe wrote:

Jeg står fast. Skal begynne med bolen, og har begynt med å felle 6 masker, og sette 72 masker på tråd. (Strikker størrelse M). Men så skjønner jeg ikke hva jeg skal gjøre. Skal jeg klippe av tråden, som er ved de 6 maskene jeg felte? Og hvordan legger jeg opp 10 nye masker? Har prøvd å se instruksjonsvideoer om å legge opp midt i en strikking, men kan ikke finne ut av dette. Og skal merket sitte midt i de nye maskene?

03.08.2015 - 00:22

DROPS Design answered:

Hej, jo sådan her legger du opp 10 nye m, inden du strikker videre ifølge opskriften.

03.08.2015 - 10:13

country flag Katrine Rasmusen wrote:

Jeg får alt for mange masker når jeg laver strikkeprøven på pind nr. 3, jeg prøver nu på pind 4 og 4 1/2 men så er garnet meget tyndt til den pindstørrelse og trøjen vil næsten blive gennemsigtig.. Har i et godt alternativ til garn eller en anden løsning på dette problem?

20.07.2015 - 21:40

DROPS Design answered:

Hej Katrine, DROPS Alpaca passer perfekt til pinde 3 og 24 m på 10 cm som der står i denne opskrift. God fornøjelse!

29.07.2015 - 13:05

country flag Berit Walle Wilhelmsen wrote:

Overvidde på str.M, strikker denne i et garn der 22m er 10 cm, og i oppskrifta er det 24 m på 10 cm. hvordan får jeg dette til å bli rett.

22.05.2015 - 22:41

DROPS Design answered:

Hej Berit, For at få målene som står i måleskitsen er du nødt til at bruge det rigtige garn eller et alternativ hvor 24 m måler 10 cm i bredden, ellers vil arbejdet blive alt for stort. God fornøjelse!

25.05.2015 - 10:02

country flag Kathi wrote:

Ich möchte Größe S stricken, aber meine Maschenprobe stimmt nicht. Kann ich einfach den Maßen der XL folgen, mit kleineren Nadeln und dünnerem Garn, oder würde das zu einem anderen Ergebnis führen?

11.03.2015 - 21:39

DROPS Design answered:

Antwort siehe unten! :-)

11.03.2015 - 21:46

country flag Kathi wrote:

Ich möchte Größe S stricken, aber meine Maschenprobe stimmt nicht. Kann ich einfach den Maßen der XL folgen, mit kleineren Nadeln und dünnerem Garn, oder würde das zu einem anderen Ergebnis führen?

11.03.2015 - 21:39

DROPS Design answered:

Antwort siehe unten! :-)

11.03.2015 - 21:46

country flag Kathi wrote:

Ich möchte Größe S stricken, aber meine Maschenprobe stimmt nicht. Kann ich einfach den Maßen der XL folgen, mit kleineren Nadeln und dünnerem Garn, oder würde das zu einem anderen Ergebnis führen?

11.03.2015 - 21:33

DROPS Design answered:

Zunächst möchte ich zurückfragen: Wie fällt denn Ihre Maschenprobe aus, wie sehr weicht sie ab und mit welcher Nadel haben Sie sie gestrickt? Grundsätzlich ist es möglich, die Angaben einer größeren Größe zu verwenden, wenn Sie damit die Maße für die kleinere Größe erreichen. Nur bei den cm-Angaben müssten Sie dann wieder die Maße für die kleinere Größe nehmen. Besser ist es aber, eine andere Nadelstärke zu nehmen und zu versuchen, damit die Maschenprobe zu erreichen, darum meine Eingangsfragen.

11.03.2015 - 21:46

country flag José wrote:

Als ik het lijf verder brei met rondbreinaald 2,5 mm en ik brei 5 ribbels en kant af, dan krult de ribbelrand om. Wat doe ik niet goed of heeft u tips om dit te voorkomen?

13.02.2015 - 08:05

DROPS Design answered:

Hoi José. Je kan na het wassen de trui in vorm brengen en plat laten drogen. Meestal is het krullen van de randen dan weg. Als niet kan je de randen licht persen met een strijkijzer (met een theedoek tussen).

13.02.2015 - 17:08

country flag Margunn Årvik Dalsbø wrote:

Strikker denne genseren i står M. Ifølge oppskrifta skal det då vere 362 m etter bærestykket, men eg får det berre til å bli 354. Kan dette stemme?

12.02.2015 - 15:15

DROPS Design answered:

Hej Margunn, Str M: Du starter med 118 m, øger ved mærketrådene ialt 23 gange 8 = 184, herefter 10m x 6= 60 = 362m. God fornøjelse!

26.05.2015 - 16:00

country flag Jennifer wrote:

Hej, Jag är inte en jättevan stickare, så har lite svårt att tolka "Upprepa ökningen på vart 4:e v 20-22-23-24-26-28 ggr till". Betyder det: v. 1 ökning v. 2 vanligt v. 3 vanligt v. 4 ökning eller ska det ökas först på varv 5? Jag har nämligen gjort det sistnämnda, men hinner inte med alla 22 ökningsvarv (stl M) innan oket mäter 19 cm.

22.01.2015 - 18:48

DROPS Design answered:

Hej Jennifer, jo du ökar på 1-5-9-13:e v 22 ggr. dvs ca 88 varv. Du har 48 varv på 10 cm när du stickar rätst, så du bör hinna med 22 ökningar. Kolla stickfastheten! Lycka till!

29.05.2015 - 13:23