DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8580.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 158-5
DROPS Design: Mynstur nr ks-096
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: S/M – L
Höfuðmál: 54/56 – 56/58 cm

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
25-25 gr litur nr 11, fjólublár
25-25 gr nr 09, perlugrár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 2 þráðum.
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 2,5 – fyrir kant með garðaprjón

SJAL:
Stærð: Ein –stærð
Mál:
Breidd: ca 141 cm.
Hæð: ca 50 cm mælt meðfram miðjulykkju.

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
50 gr litur nr 11, fjólublár
50 gr litur nr 09, perlugrár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 36 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm með 2 þráðum.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8580.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna yfir kantinn á húfunni, síðan er prjónað í hring á hringprjóna og skipt er yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið laust upp 100-110 l á hringprjóna nr 2,5 með 1 þræði í hvorum lit (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – þar til stykkið mælist 4 cm. Prjónið síðan í hring þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið slétt.
UMFERÐ 2: Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 3: Allar l og uppslátturinn er prjónaður slétt.
UMFERÐ 4: Prjónið brugðið.
Nú er skipt yfir á hringprjóna nr 3 og haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-17 cm byrjar úrtaka.
UMFERÐ 1: Prjónið 8-9 l sl, prjónið næstu 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 90-100 l (= 10 l færri).
UMFERÐ 2 (og síðan allar jafnar l): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: * Prjónið 7-8 l sl, prjónið næstu 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 80-90 l.
UMFERÐ 5: * Prjónið 6-7 l sl, prjónið næstu 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 70-80 l.
UMFERÐ 7: * Prjónið 5-6 l sl, prjónið næstu 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 60-70 l.
UMFERÐ 9: * Prjónið 4-5 l sl, prjónið næstu 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 50-60 l.
UMFERÐ 11: * Prjónið 3-4 l sl, prjónið næstu 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40-50 l.
UMFERÐ 13: Prjónið slétt.
UMFERÐ 15: * Prjónið 2-3 l sl, prjónið næstu 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30-40 l.
UMFERÐ 17: * Prjónið 1-2 l sl, prjónið næstu 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 20-30 l.
UMFERÐ 19: * Prjónið 0-1 l sl, prjónið næstu 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 10-20 l.
STÆRÐ L:
UMFERÐ 21: Prjónið l 2 og 2 slétt saman = 10 l.
BÁÐAR STÆRÐIR: = 10 l eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og festið vel. Saumið saman kantinn í garðaprjóni við miðju að aftan með því að sauma l eina og eina fallega saman. Húfan mælist ca 23-25 cm á hæðina.

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Allar l og uppslátturinn eru prjónaðar slétt, ofan frá og niður að horni.

SJAL:
Fitjið upp 9 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði í hvorum lit (= 2 þræðir). Prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= miðjulykkja), setjið prjónamerki í þessa l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl = 13 l.
UMFERÐ 2 (= ranga): sl yfir allar l í umf.
UMFERÐ 3: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 1 l er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl = 4 l fleiri.
Endurtakið umf 2 og 3 þar til stykkið mælist ca 36 cm yfir miðjulykkju, JAFNFRAMT í 8. hverri umf (þ.e.a.s. í 4. hverri umf frá röngu) er aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stillið af að lykkjufjöldinn hvoru megin við miðjulykkju sé oddatala í næstu umf!
Prjónið síðan MYNSTUR frá réttu þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, A.1, A.2 þar til 2 l eru eftir á undan miðjulykkju, prjónið A.3, 1 l garðaprjón (= miðju-l), A.1, A.2 þar til 4 l eru eftir, prjónið A.3 og 2 l garðaprjón. Haldið áfram að prjóna eftir A.1/A.2/A.3 þar til mynstrið hefur verið prjónað alls 4 sinnum á hæðina. Í hvert skipti sem A.1/A.2/A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er pláss fyrir 1 mynstur til við bótar af A.2. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l (munið eftir útaukningum eins og áður í hvorri hlið og fyrir miðju), fellið LAUST af.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 10.05.2023
SJAL:...Stillið af að lykkjufjöldinn hvoru megin við miðjulykkju sé oddatala í næstu umf!

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (40)

country flag Marie wrote:

Muss die Zunahme der 2 Maschen, welche im kraus rechts gestrickten Teil des Tuches, alle 8 Reihen am Anfang und Ende zugenommen werden auch im Lochmustersatz beibehalten werden?

31.01.2018 - 22:36

DROPS Design answered:

Liebe Marie, diese neuen Maschen werden auch im Muster gearbeitet, aber beachten Sie daß Muster nicht verschoben wird, dh die Löcher müssen immer übereinander sein (= wie im A.2), diese Maschen werden dann glatt gestrickt wenn sie nicht im Muster gestrikt werden können. Viel Spaß beim stricken!

01.02.2018 - 08:42

country flag Drack wrote:

Schade, die nächste Anleitung die nicht funktioniert. Ich habe Fragen, aber die passt nicht in Feld. Was mache ich nun.

30.06.2016 - 23:51

DROPS Design answered:

Sie können mehrere Fragen absenden. Ohne Ihre Fragen zu kennen können wir Ihnen leider nicht weiterhelfen.

06.07.2016 - 08:56

country flag Marie-Leise Fröhlich wrote:

Hallo , meine Frage, sind im Diagramm nur Hinreihen oder auch die Rückreihen gezeichnet? ?

17.02.2016 - 19:58

DROPS Design answered:

Es sind alle R, also auch die Rück-R, gezeichnet, wie oben unter "MUSTER" beschrieben. Viel Spaß beim Stricken!

18.02.2016 - 10:20

country flag Kjersti wrote:

Jeg er glad jeg så her i kommentarene - slik det er formulert i oppskriften ser det ut som man skal gjenta A1A2 hele veien frem til A3 før midtmasken, mens på kommentaren fra mars i år ser jeg at en skal ta A1 en gang, og så gjenta A2 frem til man skal ta A3 før midtmasken.

30.05.2015 - 22:44

Riki Reichman wrote:

The shawl. When 1 st time diagram is done how to start the 2nd time. Same as 1st time, A1A2 until...? This time I have more than double the sts I had in the first time.

25.03.2015 - 06:13

DROPS Design answered:

Dear Mrs Reichman, that's correct, after diagrams have been worked 1 time in height, start again from beg the same way: 2 sts in garter st, A.1 on the 1st st, repeat A.2 until 2 sts remain before mid st, A.3 on the next 2 sts, 1 st in garter st (mid st), A.1, repeat A.2 until 4 sts remain, A.3 and 2 sts in garter st. You will repeat A.2 more times between A.1 and A.3 every time you will work the diagrams in height. Happy knitting!

25.03.2015 - 09:05

Riki Reichman wrote:

A1&A2 patterns start with 3 sts and finish with 7 sts this is an increase of 4 sts for 1 pair. This means having work 1 time verticaly there is a room for more than 1 pair. You noted a room for 1 A2.

25.03.2015 - 05:00

country flag Eline wrote:

Hallo Omdat ik nog nooit een breiwerk heb gemaakt, maar binnenkort les ga volgen, ben ik even op jullie site komen kijken. Ik zou graag dit patroon voor een omslagdoek gebruiken, maar heb er geen flauw idee van hoeveel meter wol/bollen wol ik hiervoor nodig heb. Kunnen jullie mij helpen? Alvast vriendelijk bedankt! Eline

18.02.2015 - 17:50

DROPS Design answered:

Hoi Eline. Bovenaan elk patroon staat hoeveel gram je nodig hebt van het garen per maat. Je kiest de maat die je wenst te maken. Bijv voor deze sjaal staat er: DROPS KID-SILK van Garnstudio, 50 gr. kleur nr. 11, lila en gebruik: 50 gr. kleur nr. 09, parelgrijs. 1 bol Kid-Silk is 25 gr (zie ook het kleurenoverzicht), dwz, je hebt 2 bollen van elke kleur nodig. Veel breiplezier.

19.02.2015 - 16:16

country flag Gunnel Jacobson wrote:

Svårt att förstå om det ska vara 2 räta maskor hela vägen innanför de utlagda maskorna

07.02.2015 - 12:14

country flag Gunnel Jacobson wrote:

Börjar man mönsterstickningen efter uppläggningen i kanten dvs efter 1 rät maska omslag och 2 räta maskor. Är hålen rakt över varandra eller snett över?

07.02.2015 - 12:09

DROPS Design answered:

Hej Gunnel, mönsterstickningen börjar först efter 36 cm. Följ beskrivningen och upprepa v 2 och 3, sedan stickar du mönster. Lycka till!

09.02.2015 - 10:30

country flag Matilde wrote:

Hvor mange masker skal jeg ende med i alt efter jeg er færdig med at gentage p2 og p3 (36 cm)? B: er 4 gange i højden = 4 gentagelser af diagrammernes 8 pinde? C: hvad betyder det at for hver gang diagrammerne er strikket 1 gang i højden strikkes de nye m i A. 2? Skal der lægges en ekstra pind ind? D: skal jeg strikke ret eller vrang på vrangsiden på pind 2,4,6 og 8 i diagrammerne? E: er fejlen som Bente Nissen spørger til rettet i diagrammerne og er det vedr hat eller sjal?

20.12.2014 - 19:40