DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 894.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 153-25
DROPS Design: Mynstur nr fa-273
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: ca 22 - 24 - 27 cm
Hæð á sokk: ca 19 - 20 - 21 cm

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100-150-150 gr litur nr 103, gráblár

DROPS HEKLUNÁL NR 2 – eða þá stærð sem þarf til að 28 stuðlar á breidd og 16 stuðlar á hæð og 28 fastalykkjur á breidd og 35 fastalykkjur á hæð verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 894.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GALDRAHRINGUR:
Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er heklað með þessari aðferð:
Haldið í endann og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur. Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. * Stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni, dragið þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum lykkju á heklunálinni = 1 fastalykkja *, endurtakið frá *-* þar til 7 fastalykkjur eru um lykkjuna, endið á 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Heklið síðan eftir mynstri – JAFNFRAMT er dregið í endann þannig að lykkjan dregst saman og gatið hverfur.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í hverri umferð með fastalykkju er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Endið umferð á 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
Í hverri umferð með stuðli er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Endið umferð með 1 keðjulykkju í þriðju loftlykkju.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2

ÚTAUKNING:
Heklið 2 stuðla í 1 stuðul.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju þannig – byrjið 2 fastalykkjum á undan prjónamerki:
Heklið 1 fastalykkju en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næstu fastalykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 lykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Sokkurinn er heklaður frá tá og upp að ökla.

TÁ:
Heklið GALDRAHRINGUR - lesið útskýringu að ofan = 7 fastalykkjur í hringinn. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 14 fastalykkjur.
Setjið prjónamerki í byrjun umferðar og eitt prjónamerki á eftir 7. lykkju. Heklið nú hringinn með 1 fastalykkju í hverja lykkju, JAFNFRAMT er aukið út um 1 fastalykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING, endurtakið útaukningu í hverri umferð 9-10-11 sinnum til viðbótar (alls 10-11-12 útaukningar) = 54-58-62 fastalykkjur. Heklið nú A.1 yfir fyrstu 31-37-37 fastalykkjur í umferð, heklið stuðul í síðustu 23-21-25 fastalykkju. Heklið nú hringinn með stuðlum undir fæti og A.1 yfir 31-37-37 stuðla ofan á fæti. Þegar stykkið mælist 9-11-14 cm er aukið út um 1 stuðul hvoru megin við 31-37-37 lykkjur ofan á fæti, endurtakið útaukningu í hverri umferð 11-12-12 sinnum til viðbótar (alls 12-13-13 útaukningar) = 47-47-51 st + A.1. Haldið áfram þar til stykkið mælist 17-19-22 cm frá tá. Heklið nú þannig – heklið 35-35-41 loftlykkjur, hoppið yfir fyrstu 31-37-37 lykkjur ofan á fæti, heklið 1 fastalykkju í hvern af næstu 47-47-51 stuðlum, heklið 1 fastalykkju í hverja af 35-35-41 loftlykkjum = 82-82-92 fastalykkjur. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 3-3-2 fastalykkjur niður í fastalykkjur sem koma af fæti (það eiga að vera 41-41-46 fastalykkjur á milli prjónamerkja). Haldið áfram hringinn með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 fastalykkjur færri í hverri umferð), endurtakið úrtöku í hverri umferð 17-17-17 sinnum til viðbótar (= alls 18 úrtökur) = 10-10-20 fastalykkjur eftir í umferð. Snúið sokknum við, leggið lykkjur undir hæl tvöfaldar og heklið saman með 1 keðjulykkju í gegnum hverja lykkju á báðum stykkjum. Klippið frá.

STROFF / LEGGUR:
Byrjið og heklið áfram með A.1 í 31-37-37 lykkjur fyrir miðju framan á fæti, haldið nú áfram með A.1 yfir 35-35-41 lykkjur frá loftlykkjuboga. Haldið áfram með A.1 yfir allar lykkjur, síðasti stuðull í síðustu mynstureiningu er ekki heklaður, endið á 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. Haldið svona áfram með þetta mynstur þar til stroff / leggur mælist 14-15-16 cm. Heklið 1 umferð með A.2 yfir A.1.
Klippið frá og festið enda.

Heklið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = stuðull
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Annita Spelters wrote:

Hallo, Ik vraag me het volgende af : bij een hoogte van 9-11-14 cm, moeten er stokjes gemeerderd worden. Is dat na een hoogte van enkel het patroon A.1 ? Of moet het stukje vasten (de teen) meegeteld worden bij de aangegeven hoogte ? Alvast dank voor jullie hulp. Groetjes, Annita Spelters

13.03.2024 - 08:25

DROPS Design answered:

Dag Annita,

Dit is na de totale hoogte, dus vanaf het opzetten.

14.03.2024 - 22:08

country flag Merete Mærsk wrote:

Hej Drops. Kan jeg få hjælp til de hæklede sokker Blue Thunder. Det går fint til afsnittet; Videre hækles således - hækl 35 lm osv. Jeg forstår heller ikke med at sætte 2 mærketråde i arb, 3-3-2 fm ned i fm osv. Kan I hjælpe mig? Venligst Merete Mærsk

06.02.2024 - 11:29

DROPS Design answered:

Hei Merete. Litt vanskelig gå forklare på en annen måte, men prøver :) Se på de 47 fastmaskene du har under foten, sett ett merke i den midterste av disse 47 maskene. Du har da 23 fastmasker på hver side, tell 20 masker fra midtmasken og sett et merke, tell 20 masker (på den andre siden av midtmasken) og sett det andre merke. Om man da tenker slik det står i oppskriften, sitter nå merkene 3 fastmasker ned i fastmasken mot foten i hver side. Håper det var forståelig. mvh DROPS Design

15.02.2024 - 11:27

country flag Veronika wrote:

Nerozumím v návodu: Poté háčkujeme takto: uháčkujeme 35-35-41 řo, prvních 31-37-37 ok nártu vynecháme a háčkujeme po 1 KS do každého z následujících 47-47-51 DS a po 1 KS do každého z 35-35-41 řo = 82-82-92 KS. - nad 37 oky nártu jsem háčkovala vzorem A1, ale je to přece vyšší počet ok už konkrétního vzoru A1, když všechny spočítám? A jak přidat 35 ok - to mám opravdu uháčkovat za DS 35 řo, které budou volně nad vzorem A1?

07.08.2022 - 15:00

DROPS Design answered:

Hi, if you can write your question in English, we can try to help you :)

16.11.2022 - 13:42

country flag Embla wrote:

Hej Virkar foten. Har nu gjort 12 varv med ökningar så det blivit 47maskor + A1. Nu ska jag fortsätta tills arbetet mäter 17cm. Mitt arbete mäter nu 19,5cm. Känner mej förvirrad. Fortsätter jag nu så gissar jag foten blir för lång. Repar jag upp blir det ju för få maskor.

04.10.2020 - 19:04

DROPS Design answered:

Hej Embla. Har du den virkfasthet som uppges i mönstret? Om du inte har det så kommer måtten inte att stämma och i så fall så måste du dessvärre repa upp och göra om med rätt virkfasthet för att det ska bli riktigt. Mvh DROPS Design

06.10.2020 - 07:37

country flag Catja wrote:

Er det muligt at få et bedre billede af sokken forfra på midten? Jeg har svært ved at forstå mønstret, og hvordan man skal gøre imellem vifte tre og fire. Så vidt jeg forstår, skal der laves tre luftmasker, springes to fastmasker over, og så laves en vifte mere uden en enkelt stangmaske imellem, men er i tvivl, og kan ikke se det i videoen, da den går alt for hurtig, selvom hastigheden nedsættes.

23.03.2020 - 13:21

DROPS Design answered:

Hej Catja, du kan selv justere hastigheden i videoen :)

25.03.2020 - 13:35

country flag Martine wrote:

Oui mais les marqueurs à gauche et à droite ou bien dessus dessous...?'

11.10.2019 - 13:21

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, les marqueurs que vous avez mis avant le talon (= au niveau des diminutions) doivent être à gauche et à droite pour que le talon soit dans le bon sens, vous pouvez enfiler la chaussette pour mieux visualiser. Bon crochet!

11.10.2019 - 14:09

country flag Martine wrote:

Bonjour, Merci. Quand il est écrit: mettre le talon en double, est-ce que la pliure se situe au bout de la diagonale des augmentations ? (Et non pas la pliure sur les augmentations.)

11.10.2019 - 12:08

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, quand le talon est terminé, il vous reste 10-10-20 ms, vous fermez maintenant le talon en crochetant sur l'envers 1 mc dans chacune des 5-5-10 m des deux côtés du talon (vous le pliez/mettez à plat de sorte que vos marqueurs soit de chaque côté). Bon crochet!

11.10.2019 - 12:48

country flag Martine wrote:

Bonjour, pour le talon, je ne vois pas où placer les 2 marqueurs... On devra diminuer de suite....merci

10.10.2019 - 16:54

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, mettez le 1er marqueur après les 3-3-2 premières des 47-47-51 mailles serrées et le 2ème marqueur avant le 3-3-2 dernières mailles serrées des 47-47-51 mailles serrées = vous avez maintenant 41-41-46 mailles serrées entre les deux marqueurs. Bon crochet!

11.10.2019 - 08:46

country flag Riet Brandon-Bravo wrote:

Waar moet ik bij de hiel de markeerders plaatsen en welke steken moet ik dan minderen voor en na de markeerder

04.03.2019 - 13:18

DROPS Design answered:

Dag Riet,

Als je de markeerders plaatst heb je 82-82-92 stokjes in totaal. Je plaatst ze aan beide zijen zodat er evenveel stokjes tussen beide markeerders zit, en je plaatst ze 3-3-2 stokjes vanaf de voet (dus vanaf waar de opening zit)

05.03.2019 - 18:03

country flag Carla De Kok wrote:

Vanaf toer 2 moeten er 2 markeerders geplaatst worden, 1 bij het begin en 1 na de 7e steek. Betekent dat dan dat ik steek 7 en 8 moet meerderen, of 6 en 8?

26.01.2018 - 20:57

DROPS Design answered:

Hoi Carla, Je meerdert dan in steek 6 en 8, de markeerder blijft steeds op dezelfde plek en je meerdert steeds voor en na de markeerder.

28.01.2018 - 19:12