-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Berry Bliss Jacket |
|
|
|
Prjónuð peysa í garðaprjóni úr DROPS Delight og DROPS Vivaldi eða DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 155-6 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 25, 33, 41, 49 og 57 cm. STÆRÐ M: 27, 35, 43, 51 og 59 cm. STÆRÐ L: 25, 34, 43, 52 og 61 cm. STÆRÐ XL: 27, 36, 45, 54 og 63 cm. STÆRÐ XXL: 25, 35, 45, 55 og 65 cm. STÆRÐ XXXL: 27, 37, 47, 57 og 67 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka í stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Fram- og bakstykki er prjónað í garðaprjóni, ermar eru prjónaðar í sléttprjóni með 12 umferðum í garðaprjón neðst á ermum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l. Fitjið upp 60-64-70-76-82-90 l á hringprjóna nr 7 með 1 þræði af Delight + 1 þræði af Vivaldi (= 2 þræðir) eða 1 þræði Brushed Alpaca Silk. Prjónið GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka) – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14 cm er fitjuð upp 1 ný l í hvorri hlið (= kantlykkja) = 62-66-72-78-84-92 l. Haldið áfram í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm fellið af kantlykkjur í hlið = 60-64-70-76-82-90 l. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm fellið af miðju 18-18-18-20-20-20 l fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið nú um 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 20-22-25-27-30-34 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 35-37-40-43-46-50 l á hringprjóna nr 7 með 1 þræði af Delight + 1 þræði af Vivaldi (= 2 þræðir) eða 1 þræði Brushed Alpaca Silk. Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 14 cm er fitjuð upp 1 ný l á hlið (= kantlykkja) = 36-38-41-44-47-51 l. Haldið síðan áfram í garðaprjóni. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm er kantlykkjan felld af í hlið = 35-37-40-43-46-50 l. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm eru 10-10-10-11-11-11 l við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli, fellið nú af í hverri umf fyrir hálsmáli þannig: 2 l 2 sinnum, 1 l 1 sinni = 20-22-25-27-30-34 l eftir á öxl. Fellið laust af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Ekki gera hnappagöt. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 28-28-30-32-32-34 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri öxl) á prjóna nr 7 með 1 þræði Delight + 1 þræði Vivaldi (= 2 þræðir) eða 1 þræði Brushed Alpaca Silk. Prjónið 12 umf GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka) – sjá útskýringu að ofan, haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í hvorri hlið í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 6 -4½-4½-4-4-3 cm millibili 6-8-8-8-9-10 sinnum til viðbótar = 42-46-48-50-52-56 l. Þegar stykkið mælist 49-48-47-46-44-41 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið allar l af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í – frá öxl og niður þar sem kantlykkja var felld af. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við kantlykkju, endið þegar 14 cm eru eftir neðst niðri á fram- og bakstykki, þannig að það myndist op/klauf. Klippið frá og festið enda. Saumið tölur í vinstra kant að framan. HÁLSMÁL: Prjónið upp 60 til 72 l (meðtaldar l af þræði) með 1 þræði af Delight og 1 þræði af Vivaldi eða 1 þræði Brushed Alpaca Silk í kringum hálsmál. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna) – sjá útskýringu að ofan. VASI: Fitjið upp 19 l á prjóna nr 7 með 1 þræði af Delight + 1 þræði af Vivaldi (= 2 þræðir) eða 1 þræði Brushed Alpaca Silk. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 13 cm eru prjónaðar 4 umf garðaprjón, fellið laust af. Prjónið annan vasa á sama hátt. Saumið vasana 13 cm frá uppfitjunarkanti og 6 cm frá kanti að framan (þ.e.a.s. frá miðju að framan). Saumið vasana meðfram einni umf í garðaprjóni í neðri kant á vasa og fylgið lykkjunum upp úr þannig að vasinn verður staðsettur álíka langt frá kanti að framan meðfram allri hliðinni á vasanum. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (43)
Giorgia wrote:
Salve,per il collo sul davanti: taglia S,a 58 cm metto in attesa le prime 10 maglie,poi intreccio come indicato e rimangono 20 maglie per la spalla,che a 66 cm devo intrecciare.Ok.Ma poi?Quelle 10 maglie come le lavoro?Separatamente?Le riunisco con le spalle(improbabile..)Come devo fare?Grazie
15.09.2016 - 20:49DROPS Design answered:
Buonasera Giorgia, quelle 10 maglie verranno riprese alla fine quando dovrà lavorare il collo. Buon lavoro!
15.09.2016 - 21:03Karin wrote:
I think you have a typo. Shouldn't this pattern read Drops Vivaldi -or- Drops BRUSHED Alpaca Silk, as that was the replacement yarn for Vivaldi? Otherwise, I cannot see how BabyAlpaca Silk would work (not 'fuzzy' and not group C).
02.05.2016 - 09:17DROPS Design answered:
Dear Karin, you are correct, Brushed Alpaca Silk was first called "Alpaca Silk", that's the reason by "brushed" is not there, but it is the yarn you have to use as an alternative to Vivaldi. Happy knitting!
02.05.2016 - 10:35Valentina wrote:
Buongiorno, posso fare questo modello utilizzando solo un tipo di lana ? la delight .
12.02.2016 - 07:30DROPS Design answered:
Buonasera Valentina. Il filato Delight è un filato sottile. Lavorando con solo Delight, per avere un buon risultato, dovrebbe cambiare la dimensione dei ferri usati e riproporzionare tutte le indicazioni in base al suo campione. Buon lavoro!
12.02.2016 - 22:08Maria wrote:
Buonasera di nuovo. Avrei bisogno di un altro chiarimento per il davanti. Le indicazioni sono: a cm 58 mettere in attesa su un ferma maglie, per il collo, le 10 m più vicine al centro davanti intrecciare ora per il collo ..... ecc. ecc. Che cosa significa "più vicine al centro davanti"? Vuol dire le prime 10? e le asole dove le faccio? Mi sfugge qualcosa. Grazie mille maria
04.03.2015 - 21:49DROPS Design answered:
Buonasera Maria. Sul davanti destro, a 58 cm, deve mettere in attesa, per lo scollo, le prime 10 m sul ferro. Per le asole: all'inizio delle spiegazioni viene indicato quando aprire le asole. Per la taglia S, intreccia le m per le asole quando il lavoro misura: 25, 33, 41, 49 e 57 cm. Buon lavoro!
04.03.2015 - 22:14Maria Cesana wrote:
Buonasera. Non riesco a capire perché bisogna aumentare 1 m di vivagno dal cm 14 al cm 48 (sto facendo la taglia S). A che scopo questo aumento? Inoltre mi verrebbe molto difficile farlo perché sto lavorando il golf sui ferri circolari tutto insieme, cioè davanti destro + dietro + davanti sinistro. Potrei, al limite, aumentare 1 m per parte sui bordi dei davanti, ma non riesco a capirne la necessità. Potete spiegarmelo, per favore? Grazie mille. Maria
02.03.2015 - 23:34DROPS Design answered:
Buonasera Maria. Le spiegazioni vengono date per lavorare il capo in parti separate. La m vivagno che viene avviata ai lati, quando il lavoro misura 14 cm, è la m che verrà usata per cucire il dietro al davanti. Viene poi intrecciata a 48 cm per indicare il punto dove verranno attaccate le maniche. Lavorando tutto in un unico pezzo, non c'è la cucitura, ma potrebbero servirle per le maniche. Non deve aumentare sui bordi del davanti. Buon lavoro!
02.03.2015 - 23:56May Nielsen wrote:
Hvorfor skriver i det skal bruges 200 gr delight i str small? Det var ikke nok! Der skal desværre bruges 250 gr = 5 nøgler drops delight. Jeg har endda strikket en lille smule mindre end efter opskriften. Lidt træls at skal købe mere garn, som var købt på nettet. Og det nøgle jeg så fik var ikke samme farvekode, det er jeg lidt træt af.
26.02.2015 - 09:41DROPS Design answered:
Hej May, Der er faktisk ikke andre som har kommenteret det, men vi skal lade din kommentar gå videre til Design, så vil der blive set op det. Tak for info!
25.05.2015 - 15:32May Nielsen wrote:
Der er for lidt garn i str small, der skal desværre bruges 250 gr = 5 nøgler drops delight og ikke 4 som i har skrevet i opskriften. Jeg har endda strikket en lille smule mindre end efter opskriften. Lidt træls at skal købe mere garn, som var købt på nettet. Det passer til gengæld med de 150 g drops alpaca silk brushed =6 nøgler.
22.02.2015 - 19:56Jessica Groote-Franklin wrote:
Geachte heer, mevrouw, ik ben net begonnen met breien en dit lijkt me een leuk patroon om voor het eerst een wat groter iets dan een sjaal of poncho te breien. Is dit patroon ook geschikt om te breien met één draad, maar dan met Drops Air? Ik heb daar 8 bolletjes dus 400 gram van besteld. Bij voorbaat dank, vriendelijke groet, Jessica Groote
06.02.2015 - 12:18DROPS Design answered:
Hoi Jessica. DROPS Air is standaard voor naald 5, maar brei een proeflapje voor de stekenverhouding in het patroon: 12 st x 16 nld tricot of 12 st x 24 nld ribbelst = 10 x 10 cm en kijk ook of de structuur bevalt. Voor dit patroon heb je voor maat S heb je ca. 6 bollen nodig. Zie de rekenformule hier
06.02.2015 - 16:54Corinna Plaßmann wrote:
Sehr geehrte Damen und Herren, ich möchte gerne Garn für die Jacke Berry Bliss Jacket bei Ihnen kaufen. Ich habe mich für das Garn Delight Print türkis/blau oder grün/blau entschieden. Können Sie mir bitte mitteilen, welches Garn Vivaldi jeweils farblich am besten zu dem Delight Garn passen würde! Welche Größe entspricht in etwa der Konfektionsgröße 40? Für eine Beantwortung bedanke ich mich im Voraus und verbleibe mit freundlichem Gruß Corinna Plaßmann
01.12.2014 - 17:32DROPS Design answered:
Die für Sie passende Größe entnehmen Sie am besten der Maßskizze ganz am Ende der Anleitung. Gleichen Sie die Maße mit Ihren Körpermaßen ab und entscheiden Sie dann, welche Größe Ihnen am besten passt. Was die Farbwahl betrifft, werden leider viele Vivaldi-Farben aus dem Programm genommen. Zu Delight türkis/lila würde aber die noch erhältliche Farbe 30 graulila passen - letztendlich ist das aber natürlich immer eine Frage des Geschmacks.
03.12.2014 - 15:35Mucci wrote:
J'ai fini la veste mais les manches sont beaucoup trop étroites je dois les refaire. Laines très agréables à tricoter
20.04.2014 - 20:19