Shaun |
|
|
|
Heklað lamb úr DROPS BabyMerino með löngum lykkjum
DROPS Extra 0-948 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umf með fl og löngum-l byrja á 1 ll (þessi kemur ekki í stað fyrstu l, heldur eru þær aukalega). Endið á 1 kl í fyrstu fl/löngum-l frá byrjun umf. ÚRTAKA: Fækkið um 1 fl með því að hekla 2 fl saman þannig: * Stingið heklunálinni í næstu fl, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. LANGAR-LYKKJUR: Heklið þannig: * Dragið aðeins út þráðinn með vinstri fingur, stingið heklunálinni í gegnum l, sækið þráðinn sem liggur fyrir aftan á fingri, dragið þráðinn í gegnum l, nú eru 2 l eftir á heklunálinni og ein lykkja á fingrinum. Dragið í endann þannig að lykkjan verði passlega löng. Sækið þráðinn og dragið í gegnum báðar l á heklunálinni eins og venjulega *, endurtakið frá *-*. GALDRAHRINGUR: Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er heklað með þessari aðferð. Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um hana og þráðurinn dreginn upp úr hringnum, heklið 1 ll, heklið nú fl utan um galdralykkjuna. Þegar sá fjöldi fl er kominn sem þú óskar eftir, dragið í endann á þræðinum þannig að lykkjan dragist saman og gatið hverfi. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- LAMB - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað neðan frá og upp að höfði, heklað er að innanverðu á stykkinu, þannig að löngu-l verða á ytri hlið. Heklaður er botn sem á að vera undir lambinu, botninn er heklaður í lokin á lambið. BÚKUR OG HÖFUÐ: Heklið 50 ll með litnum ljós grár Baby Merino með heklunál nr 3. Tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. UMFERÐ 2: Heklið LANGAR-LYKKJUR – sjá utskýringu að ofan, í allar fl í umf = 50 langar-l. UMFERÐ 3-12: Heklið eins og umf 2. UMFERÐ 13: Heklið 1 langa-l í fyrstu l, * hoppið yfir 1 l, heklið 1 langa-l í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 25 langar-l. UMFERÐ 14: Heklið langa-l í hverja langa-l í umf = 25 langar-l. UMFERÐ 15: * Heklið 1 langa-l í hverja af fyrstu 3 l, hoppið yfir 1 l, heklið 1 langa-l í hvora af næstu 2 l, hoppið yfir 1 l *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar og endið á 1 langri-l í hverj af síðustu l = 19 langar-l. UMFERÐ 16: Heklið langa-l í hverja langa-l í umf = 19 langar-l. Héðan er nú heklað fram og til baka til þess að mynda hnakka á lambið. UMFERÐ 17 (= að innanverðu): Heklið 12 langar-l þar sem fyrri umf endaði, snúið við. UMFERÐ 18 (= að utanverðu): Heklið 12 langar-l. Leggið lykkjurnar að þér þannig að lykkjurnar verði að utanverðu. Heklið eins og áður og dragið fram löngu-l að utanverðu með heklunál í lokin. Snúið við. UMFERÐ 19 (= að innanverðu): Heklið 12 langar-l, snúið við. UMFERÐ 20 (= að utanverðu): Heklið 12 langar-l. Leggið lykkjurnar að þér þannig að lykkjurnar verði að utanverðu. Heklið eins og áður og dragið fram löngu-l að utanverðu með heklunál í lokin. Snúið við. UMFERÐ 21 (= að innanverðu): Heklið 12 langar-l, snúið við. UMFERÐ 22 (= að utanverðu): Heklið 1 langa-l í fyrstu l, * hoppið yfir 1 l, heklið 1 langa-l í næstu l *, endurtakið frá *-* út umf = 6 langar-l. Klippið frá og festið enda. Héðan er heklað í hring til þess að gera höfuð á lambið. Heklað er frá innanverðu með litnum ljós grár, byrjið á vinstri hlið við hnakka. UMFERÐ 23: * Heklið langa-l við hlið á langri-l sem hekluð var fram og til baka við hnakka (= 6 langar-l) *. Heklið 1 kl í hverja langa-l frá hálsi (= 7 kl). Endurtakið frá *-* upp meðfram annarri hliðinni á hnakkanum og endið með 1 langa-l í hverja af 6 löngum-l frá umf 22 = 25 l í kringum höfuðið. UMFERÐ 24: Heklið langa-l í allar langar-l og kl í allar kl umf hringinn. UMFERÐ 25-26: Heklið langa-l í allar l umf hringinn = 25 langar-l. Héðan er nefið heklað með fl þannig: UMFERÐ 27: LESIÐ ÚRTAKA! Heklið 1 fl í hverja af næstu 4 fl, fækkið um 1 fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 7 fl, fækkið um 1 fl, heklið 1 fl í hverja og eina af næstu 10 fl = 23 fl í umf. UMFERÐ 28-30: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. UMFERÐ 31: Heklið 1 fl í hverja af næstu 4 fl, fækkið um 1 fl, heklið 5 fl, fækkið um 1 fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 10 fl = 21 fl í umf. UMFERÐ 32: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, fækkið um 1 fl *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, heklið 1 fl í síðustu fl = 17 fl. UMFERÐ 33: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. UMFERÐ 34: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, fækkið um 1 fl *, endurtakið frá *-* 2 sinnum og endið á 1 fl í hverja af síðustu 2 fl = 14 fl. UMFERÐ 35: Heklið 2 og 2 fl saman umf hringinn = 7 fl. UMFERÐ 36: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. Klippið frá, þræðið þráðinn í kringum opið fram að nefi og herðið að. Festið þráðinn og saumið út augu, nef og munn með litnum svartur. BOTN: Stykkið er heklað í hring. Löngu-l verða lausari en venjulegar fl og til þess að botninn passi er ekki hægt að herða að of mikið þegar botninn er heklaður. UMFERÐ 1: Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan, með 6 fl um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 5: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 6: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl. UMFERÐ 7: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 5 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42 fl. UMFERÐ 8: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 6 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 fl. UMFERÐ 9: Heklið 1 fl í hverja fl – JAFNFRAMT er aukið út um 2 l í umf = 50 fl. Fyllið ána með vatti. Leggið botninn að neðanverðu á lambinu. Heklið stykkin saman með kl í gegnum fl frá botni og ll að neðanverðu á lambinu. Klippið frá og festið enda. Ef botninn verður of lítill er hægt að halda áfram til þess að auka út jafnt alveg eins og áður eftir umf 8, en þá verður að sauma botninn að neðanverðu. EYRA: Heklið 4 ll með heklunál nr 3,5 með litnum ljós grár Baby Merino, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið 3 ll og 13 st í hringinn og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Saumið út með smáu spori inni í eyrað með litnum bleikur. Festið enda og saumið eyrað í hlið á höfði. Gerið annað eyra á sama hátt og saumið í gagnstæða hlið á höfði. GRASFLÖT: Heklið 66 ll með heklunál nr 5 með tveimur þráðum í litnum ólífa Big Merino, snúið við. Heklið 1 fl í hverja fl út umf. LESIÐ LANGAR-LYKKJUR! Heklið nú langa-l fram og til baka. ATH! Passið uppá að leggja lykkjurnar í sömu átt allan tíman. Heklið eins og venjulega og dragið lykkjurnar fram á annarri hliðinni með heklunál í lokin. Heklið þar til stykkið mælist ca 35 cm eða óskaðri lengd. Klippið frá og festið enda |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (2)
Irene wrote:
Hei! Jeg visste ikke hvordan løklemasker skulle hekles og fulgte dermed instruksjonsvideoen. However, der jeg felte, begynte maskene å gå opp, og jeg så at de andre maskene heller ikke tålte mye trykk før de rakna. Fant ut at instruksjonsvideoen deres er feil, og at i stedet for å bare ta den bakerste tråden gjennom når man lager løkka, skal man ta begge (!) trådene gjennom. Om ikke vil ikke sauen holde seg sammen og alt vil rakne. Viktig at dere legger ut korrekte videoer!
18.07.2020 - 11:23Doris wrote:
Das Schaf ist ja super-knuffig, aber leider verschwinden bei mir während des Strickens immer die Schlingen, d.h. die Schlingen der Schlingenmaschen werden immer kürzer und das Gewebe lockerer (der Faden der Schlinge verschlupft also im Häkelstück). Selbst wenn ich versuche ganz fest zu häkeln tritt dieser Effekt auf.
20.04.2015 - 18:10DROPS Design answered:
Liebe Doris, schauen Sie sich doch am besten mal das Video "Häkelschlaufen" an, das Sie im Kopf neben dem Foto unter "Videos" finden. Dort ist ganz gut zu sehen, wie die Schlaufen "fixiert" werden. Ich hoffe, das hilft Ihnen weiter, damit das Schaf ein schön wolliges Fell bekommt und nicht geschoren aussieht... ;-)
23.04.2015 - 23:15