DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2958.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Extra 0-940
DROPS Design: Mynstur nr ne-014-bn
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: 3/4 – 5/6 – 7/8 – 9/10 – 11/12 ára

Efni:
DROPS ♥ YOU #4 frá Garnstudio
300-350-400-450-500 gr litur nr 2176, ljós blár

Eða notið:
DROPS Nepal frá Garnstudio
300-350-400-450-500 gr litur nr 6220, milli blár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2958.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA (á við um laskaúrtöku):
Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma og fram- og bakstykkis (byrjið á 3 l á undan prjónamerki) þannig: Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl, (prjónamerki), 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 ls l, steypið óprjónuðu l yfir.

LEIÐBEININGAR:
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of verður laskalínan of stutt og op fyrir handveg of lítið. Hægt er að stilla þetta af með því að prjóna 1 auka umf án úrtöku með jöfnu millibili á milli úrtaka.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 100-104-116-129-136 l á hringprjóna nr 6 með litnum blár, prjónið stroff með 2 l sl, 2 l br þar til stykkið mælist ca 3 cm. Haldið nú áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir 4-2-2-2-4 l í fyrstu umf = 96-102-114-126-132 l. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið með 7 cm millibili alls 3 sinnum = 108-114-126-138-144 l.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 26-29-32-35-38 cm eru felldar af 6-6-6-6-8 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 3-3-3-3-4 l hvoru megin við prjónamerki) = 48-51-57-63-64 l eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið laust upp 36-36-40-40-44 l á sokkaprjóna nr 6 með litnum blár og prjónið stroff 2 l sl, 2 l br þar til stykkið mælist ca 3 cm. Haldið nú áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 8-6-8-8-10 l jafnt yfir í umf = 28-30-32-32-34 l. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 l við miðju undir ermi, endurtakið með 7-6-7-6-6 cm millibili 3-4-4-5-6 sinnum til viðbótar = 36-40-42-44-48 l. Þegar ermin mælist 30-34-37-41-45 cm eru felldar af 6-6-6-6-8 l við miðju undir ermi = 30-34-36-38-40 l.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 156-170-186-202-208 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Prjónið 3-1-1-1-1 umf áður en úrtaka byrjar.

LESIÐ 2 NÆSTU KAFLA ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM.

LASKAÚRTAKA:
LESIÐ LEIÐBEININGAR! Fækkið um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki, fækkið lykkjum í hvorri hlið 2 l (prjónamerki er staðsett á milli þessa l (= 8 l í umf). LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið lykkjum í annarri hverri umf 1 l 9-11-12-13-14 sinnum.

HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 35-39-43-45-49 cm eru miðju 16-17-17-17-18 l settar á þráð fyrir hálsmáli. Prjónið nú áfram fram og til baka, jafnframt því sem lykkjum er fækkað í byrjun á hverri umferð við hálsmál í hvorri hlið þannig: 2 l 2-2-2-1-1 sinnum og 1 l 0-0-0-3-3 sinnum. Eftir að úrtöku fyrir laskalínu er lokið og úrtaka við hálsmál eru 60-57-65-71-68 l eftir á prjóni.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp 22 til 30 l við hálsmál (meðtaldar l af þræði) með litnum ljós blár eða milli blár = ca 80 til 100 l. Prjónið 1 umf sléttprjón jafnframt er lykkjum fækkað jafnt yfir að 60-64-64-68-72 l. Prjónið stroff með 2 l sl, 2 l br í 3 cm og fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.09.2016
Leiðrétting á lengd á ermi og fram-og bakstykki.
FRAM- OG BAKSTYKKI: ... ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 26-29-32-35-38 cm eru felldar af 6-6-6-6-8 l á hvorri hlið fyrir handveg....
ERMI:... Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi, endurtakið með 7-6-7-6-6 cm millibili 3-4-4-5-6 sinnum til viðbótar = 36-40-42-44-48 l. Þegar ermin mælist 30-34-37-41-45 cm eru felldar af 6-6-6-6-8 l...
Yfirfarið á vefsvæði: 05.11.2018
Leiðrétting: HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 35-39-43-45-49 cm eru miðju 16-17-17-17-18 l settar á 1 band fyrir hálsmál.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-940

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (62)

Dorota wrote:

Witam, pierwszy raz robię sweter z reglanem. Opis nie jest dla mnie jasny. Czy przód i tył to jeden i ten sam "kawałek"? Bo jeśli nie, to ilość oczek w moim rozmiarze (7/8 lat) jest potwornie duża, powstały ściągacz jest bardzo szeroki. I jeśli jest to jeden kawałek, czy mogliby Państwo opisowo przybliżyć, w jaki sposób mają potem powstać 4 wycięcia na rękawy a nie 2? Pozdrawiam

06.10.2017 - 14:58

DROPS Design answered:

Witaj Doroto, sweter jest przerabiany na okrągło (bezszwowo), od dołu do góry. Najpierw przerabiamy w ten sposób, aż do podkrojów rękawów i uzyskujemy przód i tył. Na wys. 32 cm od dołu robótki zamknąć 6 o. z każdej strony na podkroje rękawów (tj. 3 o. z każdej strony markerów) = zostaje 57 o. na przód et na tył. Jak przystąpić do górnej części znajdzie Pani w załączonym filmiku video: TUTAJ W razie dodatkowych pytań proszę o kontakt. POWODZENIA!

09.10.2017 - 11:49

country flag Renate Nordal wrote:

Ønsker å strikke denne til jente 7/8 år i Drops air. Kor mykje garn treng eg? Ser Air er 150 m pr 50 g medan Nepal er 75 m pr 50 g, så syns det blei vanskelig å berekne mengde 🙂

23.08.2017 - 22:48

DROPS Design answered:

Hei Renate. 8 nøster Nepal = 400 gram. 1 nøste = 75 meter. 8 nøster x 75 meter = 600 meter. Du trenger 600 meter for å strikke denne genseren i Nepal. Ett Air nøste veier også 50 gram, men er 150 meter. Da ta du 600 meter (Nepal)deler det på Air lengde = 600/150 = 4. Du trenger altså 4 nøster Air (4 nøster Air à 150 meter = 600 meter). Her er en link hvordan du selv kan regne ut garnmengde: Omregn garnmengde fra en kvalitet til en annen. God Fornøyelse!

24.08.2017 - 07:58

country flag Kristin wrote:

Er oppskriften nå rettet i teksten slik at den ikke gir feil størrelse på arme og bol i forhold til hverandre? Ble usikker på om jeg selv må tilpasse, eller om teksten nå stemmer her.

21.08.2017 - 12:44

DROPS Design answered:

Hei. Oppskriften er rettet i teksten. Mvh DROPS Design

22.08.2017 - 08:40

country flag Magdalena wrote:

The jumper turns out lovely and the instructions are clear except for the neckline bit... Would it be possible to do a little video on slipping the stitches for the neck and binding off while still working the decreases? I sort of got stuck in there and winged it in the end - it came out ok but I'm not sure I did it correctly! :)

13.07.2017 - 22:27

DROPS Design answered:

Dear Magdalena, work 1 round as before until you reach the middle sts you have to put on a thread (make sure it's a round with dec for raglan), then slip these sts on a thread, turn work and work next row from WS to the last sts on front piece (before sts on the thread), then turn and work next row from RS binding off sts for the size and dec for raglan as before, turn and work next row from WS binding off sts for the other side of neck at the beg of the row. Repeat these 2 rows, binding off at the beg of each row both from RS and from WS as explained for the size and continue dec for raglan from RS. Happy knitting!

14.07.2017 - 10:05

country flag Bente wrote:

Hei! Jeg har så lyst til å strikke senne genseren i brushed alpaca tråd. Vil set gå, skal jeg i så fall ha dobbel tråd? Jeg ser også at mønsteret har fått mange kommentarer på at lengden på ermer/bol ikke stemmer, er dette rettet slik at man nå kan stole på mønsteret?

17.11.2016 - 20:55

DROPS Design answered:

Hei Bente. Du kan erstatte 1 traad Nepal med 1 traad Brushed Alpaca Silk, begge garner er kategori C. Les her hvordan du beregner hvor meget du skal bruge. Mönstret er rettet 09/09/2016, se under Rettelser paa opskriften.

18.11.2016 - 12:20

country flag Kathleen wrote:

In the Sleeve directions, the phrase "mid under sleeve" is used. I do not understand this direction. How and where should I increase the 2 sts?

11.08.2016 - 00:57

DROPS Design answered:

Dear Kathleen, "mid under sleeve" is beg/end of round, you will inc 1 st at the end of round + 1 st at the beg of next round when inc and cast off the last 3-4 sts (see size) on round + the first 3-4 sts on round = 6-8 sts cast off mid under sleeve. Happy knitting!

15.08.2016 - 09:30

Tamara wrote:

Hola, tengo una duda con el patrón, comenzé tejiendo para una talla 3/4, en aguja circular de ida y vuelta, poniendo el marcapuntos a cada lado, al ver que no coincidia lo he desarmado, mi pregunta se teje en aguja circular en redondo y donde exactamente se ponen los marcapuntos y cuanto puntos deberían quedar entre ellos?. Agradezco la respuesta pues he quedado en blanco

18.06.2016 - 20:28

DROPS Design answered:

Hola Tamara. Este jersey se trabaja en redondo en ag circular. Después de montar 100 pts ( para la talla 3/4 años) y trabajar 3 cm en pt elástico 2d./2r. hay que dism 4 pts repartidos en la 1ª vta y colocar los MP con 48 pts de separación ( = 48 pts para la espalda y 48 pts para el delantero).

19.06.2016 - 09:59

country flag Maria wrote:

Jeg må også gøre indsigelser mod målene! Ærmerne bliver 10 cm for lange og kroppen 10 cm for kort! I må få det rettet i opskriften. Vi er mange der oplever det samme, og det er meget ærgerligt at stå med en trøje der ikke passer. Hvis man strikker til andre eller til gave, kan man ikke måle på barnet undervejs.

26.03.2016 - 20:09

Hadar wrote:

Hi, my hight gauge is only one stitch short, i got 21 stitches in 10cm. do i still need to use the KNITTING TIP or will it make the jumper too long? thank you:)

12.12.2015 - 10:35

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hadar, check your tension once again when working in the round and rather use the knitting tip to avoid a longer yoke if you still gt 21 rows in height. Happy knitting!

14.12.2015 - 09:37

country flag Michel wrote:

Bonjour, je ne comprends pas pour le col. j'ai mes 65 mailles (taille 7/8) est ce que je dois tout rabattre en laissant mes mailles en attente pour ensuite relever des mailles ? ou est ce que je garde toutes mes mailles et je relève uniquement des mailles que j'ai auparavant rabattue pour l'encolure. merci beaucoup

30.10.2015 - 23:54

DROPS Design answered:

Bonjour Michel, quand il vous reste les 65 m de l'empiècement, vous devez reprendre les mailles en attente et relever les mailles le long de l'encolure devant (soit 17 m en attente et relever le long des 1x2m et 3x1m rabattues de chaque côté de l'encolure devant) pour "fermer" l'encolure, tricotez ensuite 1 tour end en ajustant à 68 m (répartissez des diminutions) et continuez en côtes 2/2. Bon tricot!

31.10.2015 - 17:47