Matilda |
|
|
|
Hekluð kápa og húfa úr DROPS ♥ YOU #4 eða DROPS Nepal með skrautkanti. Stærð 3 - 12 ára
DROPS Extra 0-938 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR/KÁPA: Fyrsta st í umf er skipt út fyrir 3 ll. ÚRTAKA/KÁPA: Fækkið um 1 st með því að hekla 2 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrsta st, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næsta st, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar 3 l á heklunálinni. Fækkið um 2 st með því að hekla 3 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrsta st, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næsta st, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næsta st, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni. HEKLLEIÐBEININGAR/HÚFA: Allar umf með st byrja á 3 ll í stað fyrsta st. Allar umf enda á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Allar umf með fl byrja á 1 ll í stað fyrstu fl. Allar umf enda á 1 kl í 1. ll frá byrjun umf. ÚTAUKNING/HÚFA: Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sama st. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KÁPA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. BAKSTYKKI: Heklið 61-63-68-73-78 ll með litnum brúnn með heklunál nr 6. Snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, haldið áfram með st í hvern af næstu 2-4-4-4-4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hvern af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 48-50-54-58-62 st – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR/KÁPA! Haldið áfram með st í öllum umf. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15 cm, fækkið um 1 st í hvorri hlið með því að hekla 2 næst síðustu st saman – SJÁ ÚRTAKA/KÁPA! Endurtakið úrtöku með 5-5-6-6-7 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 40-42-46-50-54 st. Þegar stykkið mælist 33-36-39-42-45 cm, fellið nú af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Heklið kl yfir fyrstu 2-2-3-4-5 st, heklið nú þar til 2-2-3-4-5 st eru eftir, snúið við. Haldið áfram með st, nú eru 36-38-40-42-44 st í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist 47-51-55-59-63 cm. Heklið nú 1 umf með st einungis yfir síðustu 12-13-13-14-14 st í hvorri hlið fyrir öxl (miðju 12-12-14-14-16 st = hálsmál). Klippið frá. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið 34-36-38-41-43 ll með litnum brúnn með heklunál nr 6, snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, haldið áfram með 1 st í hverja af næstu 5-2-4-2-4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 27-28-30-32-34 st. Haldið áfram með st í öllum umf (þær 3 síðustu st við miðju að framan = kantur að framan). Þegar stykkið mælist 15 cm, byrjar úrtaka í hlið eins og á bakstykki. Þegar úrtöku er lokið eru 23-24-26-28-30 st eftir í umf. Þegar stykkið mælist 33-36-39-42-45 cm, heklið ekki lengur yfir síðustu 2-2-3-4-5 st í hlið. Haldið áfram með st yfir síðustu 21-22-23-24-25 st. Þegar stykkið mælist 43-47-50-54-57 cm, heklið ekki lengur yfir síðustu 7-7-8-8-9 st við miðju að framan. Fækkið nú um 1 st við miðju að framan á 2 næstu umf með því að hekla 2 næst síðustu st við miðju að framan saman = 12-13-13-14-14 st eftir á öxl. Klippið frá þegar stykkið mælist 48-52-56-60-64 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. ERMI: Heklið 32-32-32-39-39 ll með litnum brúnn með heklunál nr 6. Snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja af næstu 5-5-5-2-2 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 26-26-26-31-31 fl (ll sem snúið við var við með eru ekki taldar sem 1 fl hér). Snúið við og haldið áfram með 1 st í hverja fl. Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 st í hvorri hlið með því að hekla 2 st í næst síðasta st. Endurtakið útaukningu í 2.-2.-2.-3.-3. hverri umf 3-4-5-4-5 sinnum til viðbótar = 34-36-38-41-43 st. Þegar stykkið mælist 26-30-34-37-41 cm, byrjar útaukning fyrir er ermakúpu. Heklið kl yfir fyrstu 3 st, síðan eru st heklaðir fram þar til 3 st eru eftir, snúið við. Heklið 3 ll, heklið næstu 3 st saman – SJÁ ÚRTAKA! Heklið st þar til 4 st eru eftir, heklið 3 næstu st saman, heklið síðan 1 st í síðasta st, haldið svona áfram með að hekla 3 næst síðustu st saman í hverri umf þar til stykkið mælist 33-37-41-45-49 cm, klippið frá. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma, hliðarsauma og ermasauma kant í kant svo ekki myndist þykkur saumur. Saumið síðan ermar í fram- og bakstykki. Saumið tölur í vinstra framstykki, efsta talan ca 2 cm frá hálsmáli/byrjun á kraga, sú neðsta ca 12 cm frá neðri brún. Staðsetjið þær tölur sem eftir eru á milli þessa 2 talna. Tölum er hneppt í gegnum kant að framan í hægra framstykki. KRAGI: Heklið ca 35-50 fl í kringum hálsmálið með litnum brúnn með heklunál nr 6. Haldið áfram með 1 fl í hverja fl þar til kraginn mælist ca 6-7-7-8-8 cm. Klippið frá og festið enda. AFLÍÐANDI SAUMUR: Saumið aflíðandi saum með litnum beige undir brjósti og aftan á baki. ca 1-2 cm neðan við handveg. Saumurinn nær yfir ca 1,5 x 1,5 cm. SKRAUTVASI: Heklið 18-18-20-20-22 ll (meðtalin 1 ll til þess að snúa við með) með heklunál nr 6 með litnum brúnn. Heklið 1, umf þannig: Heklið 1 fl í 2. ll, 1 fl í hverja og eina af næstu 2 ll, hoppið yfir 1 ll, * 1 fl í hverja af næstu 3 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* og endið á að hekla 1 fl í hverja af síðustu 1-1-3-3-1 ll = 13-13-15-15-16 fl. Heklið nú 1 fl í hverja fl þar til heklaðir hafa verið ca 6-6-6-7-7 cm. Klippið frá. Heklið annan skrautvasa til viðbótar á sama hátt. Saumið skrautvasana ca 3-5 cm undir aflíðandi sauminn við miðju á framstykki. Saumið með fínu spori í efri kant á vasanum og setjið eitt spor í hvert horn að neðan. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið í kringum kantinn á allri kápunni með litnum beige með heklunál nr 6. Byrjið við miðju að aftan við kraga. Heklið 1 fl, * 1 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* kringum kragann, niður meðfram framstykki, í kringum kantinn neðst niðri og upp meðfram framstykki og aftur aftan við kraga. Endið á 1 kl í byrjun umf. Heklið alveg eins neðst niðri á ermum og í kringum lausu kantana á vösum. HEKLAÐUR KANTUR (í kringum handveg): Heklið kant í kringum ermi, rétt við efri brún þar sem ermin var saumuð föst á fram- og bakstykki. Notið heklunál nr 6 og litinn beige og byrjið undir ermi. Heklið 1 fl, * 1 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* umf í kringum allan handveginn og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. HÚFA: Heklið 4 ll með heklunál nr 6 með litnum brúnn og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 1: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR/HÚFA! Heklið 8 st um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st umf hringinn = 16 st. UMFERÐ 3: * Heklið 1 st í fyrsta st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 st. UMFERÐ 4: * Heklið 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 32 st. UMFERÐ 5: * Heklið 1 st í hvern af fyrstu 3 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40 st. UMFERÐ 6: * Heklið 1 st í hvern af fyrstu 4 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 st. UMFERÐ 7: * Heklið 1 st í hvern af fyrstu 5 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 56 st. Hér enda útaukningar í stærð 3/5 ára. UMFERÐ 8: EINUNGIS HEKLUÐ FYRIR STÆRÐ 6/9 -10/12 ára: Heklið 1 stí hvern st JAFNFRAMT er aukið út um 3-6 st jafnt yfir - LESIÐ ÚTAUKNING! 59-62 st. ALLAR STÆRÐIR: Heklið 1 st í hvern st í hverja umf þar til stykkið mælist ca 18-19-20 cm. Skiptið yfir í litinn beige, heklið 1 fl í hvern st umf hringinn. Klippið frá og festið enda. HEKLAÐ BLÓM: Heklið 6 ll með litnum brúnn með heklunál nr 6 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 1 hst um hringinn, * 7 ll, 1 kl í gegnum 2 þræðina á framhlið á fyrri hst, 2 hst um hringinn, * endurtakið frá *-* þar til komnir eru 5 ll-bogar, 7 ll, 1 kl í gegnum 2 þræðina á framhlið á fyrri hst, 1 hst um hringinn og endið á 1 kl í 1. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 2: Heklið kl fram að fyrsta ll-boga. Heklið 1 ll, heklið 12 hst um bogann, * heklið 12 hst um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* um alla ll-boga og endið á 1 kl í 1. ll frá byrjun umf. Klippið frá og dragið þráðinn í gegn. UMFERÐ 3: Skiptið yfir í litinn beige og byrjið á 1 kl í annan hst í 1. umf, 1 ll, 1 fl í sömu l. Brjóttu ll-bogann að þér og heklaðu 1 fl um einn af þráðunum á bakhlið á öllum hst (efri hlutinn á hst frá fyrri umf snúast þá fram og sjást vel frá framhlið). Á milli allra boga er heklað 1 mjög laus fl í annan hst frá 1. umf. Endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf. Klippið frá og dragið þráðinn í gegn. FRÁGANGUR: Saumið blómið á húfuna. Klippið frá og festið enda. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Ulrika wrote:
Hej jag kan inte hitta knapparna hos er? I kokos? Vilken storlek är det på dem? Och vilka är likvärdiga som dem? Mvh
15.02.2020 - 22:09DROPS Design answered:
Hej Det är knapp 515 som är 20 mm i diameter och du hittar den under knappar på vår hemsida. Lycka till!
17.02.2020 - 09:27Ingrid wrote:
,Hejsan! Har gjort denna söta kappa till mitt barn-barn, stor succé. Nu skulle jag ville göra en likadan till mig själv? Hur ska man göra för att få till en stl 38-40?? Vänliga hälsningar Ingrid
14.04.2018 - 18:01DROPS Design answered:
Tyvärr har vi inte just nu resurser att räkna om mönstret till vuxen stl. Se gärna på våra andra virkmönster i vuxen storlek.
17.04.2018 - 13:39Myriam Le Corre wrote:
Bonjour comment assemblez vous les côtés de la veste et des manches au crochet ou à l' aiguille à coudre? merci de votre aide
18.09.2016 - 17:40DROPS Design answered:
Bonjour Mme Le Corre, les 2 peuvent être envisagés, au choix, en tous les cas à ce que la couture ne soit pas trop épaisse, quelle que soit la technique que vous choisissez. Bon crochet!
19.09.2016 - 09:49Anna wrote:
Ja det läste jag med i mönstret. Så det är inte meningen att man ska göra knapphål då?
04.11.2015 - 20:31DROPS Design answered:
Nej det är inte meningen, de knäpps bara genom framkanten.
05.11.2015 - 12:20Anna wrote:
Hej. Ska det inte vara knapphål på kappan? Det står ingenstans att man ska göra knapphål men det står hur man ska sy i knapparna??! Ska knapparna knäppas genom maskorna i kappan bara??
31.10.2015 - 21:33DROPS Design answered:
Hej Anna, ja precis "Knapparna knäpps genom framkanten på höger framst" Lycka till!
02.11.2015 - 10:07K.winnemuller wrote:
Ik heb dit vest voor mijn kleindochter gemaakt geweldig het staat haar zo mooi. Nu wil ik van dezelfde wol en voor een jongetje van bijna 2 jaar een truitje maken met een capuchon en voorsluitng met grote knopen. Hebben jullie daar een patroontje van?
21.11.2014 - 19:07DROPS Design answered:
Hallo. Wij hebben maar een paar gehaakte truien/vesten, klik hier voor het zoekresultaat. Of u kunt proberen dit patroon aan te passen voor een jongetje.
27.11.2014 - 16:08Irene Heed Dalman wrote:
Hur ska man göra "knapphålen" på Matilda barnkappa?
09.11.2014 - 10:26DROPS Design answered:
Hej Ireen. Knapparna knäpps genom framkanten på höger framst
10.11.2014 - 11:20Desiré wrote:
Ik heb deze als beginner gehaakt voor 3/5 jaar. Helaas vond ik hem met toer 7 erbij echt nog te groot. Daarna nog een x gehaakt, maar dan tot toer 6 en toen gestopt met meerderen. Heb er tot 2 x toe een roze toer doorheengehaakt. Resultaat is echt super!! De maat is perfect voor een 3-5 jarige en voor een beginner ook heel goed te haken dit!! Dit wordt echt mn favo muts patroon ben ik bang!! Dank je wel Garnstudio!
29.12.2013 - 18:57