DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 151-8
DROPS Design: Mynstur nr ks-080
Garnflokkur A + A
-----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: Ein stærð

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
25 gr litur nr 01, natur
25 gr litur nr 05, bleikfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNN NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 36 umf með garðaprjóni með 2 þráðum verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 l og 28 umf með sléttprjóni með 2 þráðum verði 10 x 10 cm.

SJAL:
Mál:
Breidd efst: ca 145 cm.
Lengd fyrir miðju: ca 40 cm.

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
75 gr litur nr 01, natur
75 gr litur nr 05, bleikfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 36 umf með garðaprjóni með 2 þráðum verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, til að koma í veg fyrir göt er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í næstu umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

STUTTAR UMFERÐIR-1:
Prjónaðar eru stuttar umferðir til að fá meira form á gatamynstur þannig:
Byrjið frá réttu og prjónið sl yfir allar l, snúið við og prjónið 17 l sl frá röngu (þ.e.a.s. fram að prjónamerki), snúið við og prjónið 17 l sl frá réttu, snúið við, fellið af fyrstu 6 l og prjónið sl til baka yfir allar l á prjóni = 1 mynstureining með stuttum umferðum.

STUTTAR UMFERÐIR-2:
Byrjið frá réttu og prjónið sl yfir allar l, snúið við og prjónið til baka 11 l sl frá röngu (þ.e.a.s. fram að prjónamerki), snúið við og prjónið 11 l sl frá réttu, snúið við og prjónið 8 l sl frá röngu, snúið við og prjónið 8 l sl frá réttu, snúið við og prjónið 5 l sl frá röngu, snúið við og prjónið 5 l sl frá réttu, snúið við og prjónið 2 l sl frá röngu, snúið við og prjónið 2 l sl frá réttu.
Prjónið 4 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar 68 l, nú hefur verið prjónað fram að miðju á sjalinu. Prjónið nú með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 2 l sl, snúið við og prjónið 2 l sl frá réttu, snúið við og prjónið 5 l sl frá röngu, snúið við og prjónið 5 l sl frá réttu, snúið við og prjónið 8 l sl frá röngu, snúið við og prjónið 8 l sl frá réttu, snúið við og prjónið 11 l sl frá röngu, snúið við og prjónið 11 l sl frá réttu, snúið við og prjónið sl til baka yfir allar l = 1 mynstureining með stuttum umferðum.

STUTTAR UMFERÐIR-3:
Byrjið frá réttu, prjónið sl yfir allar l og fitjið upp 6 nýjar l í lok umf, snúið við og prjónið 17 l sl frá röngu (þ.e.a.s. fram að prjónamerki), snúið við og prjónið 17 l sl frá réttu, snúið við og prjónið sl til baka yfir allar l í umf = 1 mynstureining með stuttum umferðum.

ÚRTAKA:
Fækkað er um 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna og saumað saman í lokin.

HÚFA:
Fitjið upp 100 l með 1 þræði af hvorum lit (= 2 þræðir) á hringprjóna nr 3,5.
Prjónið 3 cm sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt frá röngu (= brotalína) og haldið áfram í sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 3 cm – passið uppá að næsta umf sé frá réttu.
Skiptið yfir í hringprjóna nr 5 og prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT er fækkað um 16 l jafnt yfir í 1. umf = 84 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist 20 cm. Í næstu umf frá réttu eru allar l prjónaðar saman slétt 2 og 2 = 42 l á prjóni. Prjónið 3 umf slétt. Í næstu umf (= rétta) prjónið allar l saman slétt 2 og 2 = 21 l á prjóni. Prjónið 3 umf slétt. Í næstu umf (= rétta) eru allar l prjónaðar saman slétt 2 og 2 = 11 l á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið.

FRÁGANGUR:
Brjótið neðri kantinn á húfunni saman tvöfaldan að röngu í brotalínuna og saumið niður með smáu spori – passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur.
Saumið síðan saman húfuna við miðju að aftan yst í lykkjubogann þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Húfan mælist ca 26 cm á hæðina (meðtaldir 3 cm kantur neðst niðri).

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í garðaprjóni með kanti með gatamynstri og prjónað er fram og til baka á hringprjóna.

SJAL:
Fitjið upp 14 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorum lit (= 2 þræðir). Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta).
Prjónið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 l sl, setjið 1 prjónamerki, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (= 11 l) = 15 l á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.1 yfir fyrstu 12 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sl fram að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn – LESIÐ ÚTAUKNING, prjónamerki, A.1 yfir síðustu 12 l = 17 l á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið A.1 yfir fyrstu 13 l, prjónamerki, prjónið uppsláttinn snúinn slétt og prjónið sl út umf, snúið við.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sl fram að prjónamerki og prjónið A.1 yfir síðustu 13 l = 18 l á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið A.1 yfir fyrstu 14 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við.
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið sl fram að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (LESIÐ ÚTAUKNING), prjónamerki, A.1 yfir síðustu 14 l = 20 l á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið A.1 yfir fyrstu 15 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við.
UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið sl fram að prjónamerki, A.1 yfir síðustu 15 l = 21 l á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið A.1 yfir fyrstu 16 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við.
UMFERÐ 11 (= rétta): Prjónið sl fram að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá, prjónamerki, A.1 yfir síðustu 16 l = 23 l á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 12 (= ranga): Prjónið A.1 yfir fyrstu 17 l, prjónamerki, prjónið sl út umf.
Nú hefur verið prjónuð 1 mynstureining með A.1 og aukið út um 3 l garðaprjón á undan prjónamerki (séð frá réttu). Prjónið 1 mynstureiningu með STUTTAR UMFERÐIR-1 – sjá útskýringu að ofan, yfir l með gatakanti (aðrar l á prjóni eru ekki prjónaðar).
Prjónið nú til skiptis 1 mynstureining af A.1 á hæðina og 1 mynstureining með STUTTAR UMFERÐIR-1 (ATH: Í hvert skipti sem 1. umf í A.1 er prjónað verða 3 l fleiri á undan prjónamerki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 og STUTTAR UMFERÐIR-1 hefur verið prjónað alls 18 sinnum á hæðina eru 57 l í garðaprjóni á undan prjónamerki og 11 l í gatakanti á eftir prjónamerki = 68 l á prjóni.
Prjónið 1 mynstureining með STUTTAR UMFERÐIR-2 – sjá útskýringu að ofan. Eftir stuttar umferðir-2 er prjónuð 1 mynstureining með STUTTAR UMFERÐIR-3 – sjá útskýringu að ofan = 74 l á prjóni.
Prjónið nú fram og til baka yfir allar l þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sl fram að prjónamerki, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 (= 17 l) = 73 l á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.2 yfir fyrstu 16 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, prjónamerki, A.2 yfir síðustu 16 l = 17 l á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið A.2 yfir fyrstu 15 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sl fram að prjónamerki, A.2 yfir síðustu 15 l = 70 l á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið A.2 yfir fyrstu 14 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við.
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, prjónamerki, A.2 yfir síðustu 14 l = 68 l á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið A.2 yfir fyrstu 13 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við.
UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið sl fram að prjónamerki, A.2 yfir síðustu 13 l = 67 l á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið A.2 yfir fyrstu 12 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við.
UMFERÐ 11 (= rétta): Prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, prjónamerki, A.2 yfir síðustu 12 l = 65 l á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 12 (= ranga): Prjónið A.2 yfir fyrstu 11 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við.
Nú hefur verið prjónuð 1 mynstureining af A.2 og fækkað um 3 l á undan prjónamerki (séð frá réttu).
Prjónið 1 mynstureiningu með STUTTAR UMFERÐIR-3 – sjá útskýringu að ofan, yfir l á gatakanti (aðrar l á prjóni eru ekki prjónaðar).
Prjónið nú til skiptis 1 mynstureiningu af A.2 á hæðina og 1 mynstureining með STUTTAR UMFERÐIR-3: (ATH: Í hvert skipti sem 1. umf með A.2 er prjónuð kemur til með að vera 3 l færri á undan prjónamerki).
Þegar A.2 og STUTTAR UMFERÐIR-3 hafa verið prjónaðar alls 18 sinnum á hæðina eru 14 l eftir á prjóni. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l og fellið síðan laust af.
Sjalið mælist nú ca 145 cm á breiddina efst uppi og er ca 40 cm breitt fyrir miðju.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.09.2013
HÚFA: (hringprjónar nr 3,5 ekki nr 3) Húfan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 100 l með 1 þræði með hvorum lit (= 2 þræðir) á hringprjóna nr 3,5.

Mynstur

symbols = sl frá réttu
symbols = sl frá röngu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (78)

country flag Véronique M wrote:

Les augmentations aux rangs 3, 7 et 11 se trouvent de quel côté.... près du bord au point mousse ou près du bord au point fantaisie ?

03.03.2021 - 12:33

DROPS Design answered:

Bonjour Véronique M, placez bien un marqueur au tout premier rang, juste avant de tricoter A.1 et faites bien suivre ce marqueur au fur et à mesure, vous allez augmenter en faisant 1 jeté avant ce marqueur (sur l'endroit, rangs 3, 7, 11, etc..). L'augmentation va se faire ainsi avant toutes les mailles de A.1, vu sur l'endroit. Bon tricot!

03.03.2021 - 12:58

country flag Vanessa De Ro wrote:

Hallo, mijn omslagdoek is niet hetzelfde als ik op de foto zie, als ik volg wat er geschreven staat, dan gaan die gaatjes niet tot in de driehoekjes bij mij, maar zijn de driehoekjes bij mij in het a1 enkel rechte steken ( van ( 0 tot 6 steken ) en in a2 omgekeerd, ( van 6 naar 0) . wat heb ik verkeerd gedaan. de naalden aan de goede kant zijn op het telpatroon toch van links naar rechts? en de naalden aan de verkeerde kant toch van rechts naar links mvg vanessa

26.12.2020 - 09:58

country flag Lali wrote:

Ciao, ho fatto lo scialle! È venuto benissimo! Spiegazioni molto precise! Grazie!!!

20.11.2020 - 22:53

country flag Maria Kassalia wrote:

Hallo liebes tiem warum muss ich soviele verkürzte reihen stricken z,b, A2 ist es nicht zuviel und ohne zweg diese reihen kann ich nicht nach A1 mit A3 weiter arbeiten. ich finde dass sieht nicht gut aus mit denn A2 reichen VIELEN DANK.

15.07.2020 - 06:47

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kassalia, so wurde das Tuch im Foto gestrickt, um das gleiche Ergebnis zu bekommen strickt man A.2 und die verkürzten Reihen-1, -2 und -3. Viel Spaß beim stricken!

15.07.2020 - 07:48

country flag Lucia Olivares wrote:

No me salen el diagrama A2 Como lo muestra. Y como disminuyo los puntos en las vueltas del revés en el mismo diagrama

11.04.2020 - 05:33

DROPS Design answered:

Hola Lucia. Había una errata en el diagrama. Ya está corregida. Se trabajan 2 puntos juntos de derecho.

12.04.2020 - 19:26

country flag Margit Morcinkowski wrote:

Ich habe die Anleitung zu dem Schal Ladylike ( aus dem Sonderheft Anna) leider nicht ganz verstanden.Bei der 2. Hälfte wird beschrieben 16 Reihen nach Muster B zu arbeiten, allerdings geht das Strick- Schema nur bis Reihe 11 Wie muss ich denn Reihe 13 und 15 arbeiten?. Über ein hilfreiche Antwort würde ich mich sehr freuen MfG Margit

19.12.2019 - 21:35

DROPS Design answered:

Liebe Frau Morcinkowski, es tut mir leid, ich verstehe leider nicht was Sie mit Reihen 13 und 15 meinen. Die 2. Hälfte beginnt mit 74 M und 12 Reihen (= A.2), + verkürzten Reihen-3; wo liegt mein Denkfehler mit Ihrer Frage?

20.12.2019 - 09:13

country flag Bon wrote:

Hi. I have only 11 sts left in the needle after the 1 repetition short rows 1. Then I have to work alternatively 1 repetition with A.1 vertically and 1 repetition short rows 1. May I know whether I should start the row 1 from the diagram A.1 immediately or need to follow Row 1: K3, insert 1 marker, work pattern diagram A.1? Thanks.

29.10.2019 - 16:15

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bon, work the 2 rows from short rows-1 then start A.1 once again from row 1, adjust marker so that it is placed just inside the stitches in A.1. Happy knitting!

04.11.2019 - 13:30

country flag Ann Hollevoet wrote:

Beste, wat een mooie sjaal. zou ik zo graag breien, maar ik raak niet wijs uit het patroon. Het deel van de verkorte toeren snap ik niet. patroon breien zou me nog net lukken denk ik. groeten, Ann

06.01.2019 - 17:41

DROPS Design answered:

Dag Ann,

Verkorte toeren betekent dat je de toeren niet helemaal tot het einde breit, maar ergens halverwege het werk keert en terug breit. In het patroon staat aangegeven tot hoever je precies moet breien voordat je het werk keert.

13.01.2019 - 10:54

country flag Vendela wrote:

Hej! Mönstret blir jättefint men när jag kommit förbi hälften och gör M2 med vändningar 3 så blir uddarna helt symmetriska, uddarna med M1 och vändningar 1 fick ett extra varv där jag maskade av som inte blir lika när jag lägger upp nya maskor. Är det ett mönsterfel eller är det jag som gör något tokigt?

03.03.2018 - 17:42

DROPS Design answered:

Hej Vendela, det är svårt att säga... Då A.1 och A.2 stickas åt var sitt håll, så vill det bli lite annorlunda... testa evt att göra små provlappar enligt diagrammet. Lycka till!

08.03.2018 - 16:35

country flag JACQUES BRIGITTE wrote:

Bonjour, Merci pour les explications. Je vais donc recommencer en espérant obtenir le nombre de mailles nécessaires. Cordialement

03.02.2018 - 11:31