Robin Hood |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hekluð húfa með deri og axlarskjól úr DROPS Nepal
DROPS 149-11 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1. Axlarskjól: sjá mynsturteikningu A.2-A.4. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- DERHÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring og heklað ofan frá og niður. DERHÚFA: Heklið 5-5 ll með heklunál nr 6 með Nepal og tengið þær saman í 1 hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), heklið 11 st um hringinn = 12-12 st, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 2: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st, heklið 1 st í sama st, heklið nú 2 st í hvern st umf hringinn, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 24-24 st. UMFERÐ 3: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 1 st í sama st, 1 st í næsta st, * 2 st í næsta st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 36-36 st. UMFERÐ 4: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 1 st í sama st, 1 st í hvorn af 2-1 næsta st, * 2 st í næsta st, 1 st í hvorn af af 2-1 næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 48-54 st. Heklið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. að heklað er þannig: UMFERÐ 1: Heklið 4 ll (jafngilda 1 fl + 3 ll), hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st, 3 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf = 16-18 ll-bogar. UMFERÐ 2: Heklið 1 kl um fyrsta ll-boga, 2 ll (jafngilda 1 hst), 2 st um sama ll-boga, 1 hst um sama ll-boga, * um næsta ll-boga er heklað 1 hst + 2 st + 1 hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í 2. ll frá byrjun umf = 16-18 st-hópar. UMFERÐ 3: Heklið 5 ll (jafngilda 1 fl + 4 ll), * hoppið yfir st-hóp, 1 fl í bilið á undan næsta st-hóp, 4 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf = 16-18 ll-bogar. Endurtakið umf 2 og 3 í A.1 þar til stykkið mælist ca 21-22 cm – endið eftir umf 3. Heklið nú 2 umf með fl þannig: STÆRÐ S/M: UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, * heklið 3 fl um fyrsta ll-boga, 4 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf = 56 fl í umf. STÆRÐ L/XL: UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, * heklið 3 fl um fyrsta ll-boga, 3 fl um næsta ll-boga, 4 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf = 60 fl í umf. BÁÐAR STÆRÐIR: UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hverja fl = 56-60 fl. Klippið frá. DER: Heklið fl-umf fram og til baka yfir miðju 30-30 fl á húfunni (þ.e.a.s. að ekki er heklað yfir 13-15 fl í hvorri hlið í byrjun umf = miðja að aftan). Þegar derið mælist 5 cm er aukið út um 6 fl jafnt yfir með því að hekla 2 fl í 5. hverja fl. Heklið 1 umf yfir allar 36-36 fl, klippið frá og festið enda. Brjótið upp annað hornið á derinu, saumið það niður og festið eina tölu til skrauts. Gerið alveg eins í hinni hliðinni. ------------------------------------------------------- AXLARSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring og ofan frá og niður. AXLARSKJÓL: Heklið 87-95-103 lausar ll með heklunál nr 6 með Nepal og tengið saman í 1 hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Hekið 1 ll, heklið 1 fl í fyrstu ll (þ.e.a.s. þá ll sem síðast var heklað í), síðan er hekluð 1 fl í hvora af 2 næstu ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af 3 næstu ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf = 66-72-78 fl. Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 4 ll (jafngilda 1 fl + 3 ll), * hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl, 3 ll *, endurtakið frá *-* alls 21-23-25 sinnum, hoppið yfir 2 síðustu fl og endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf = 22-24-26 ll-bogar. Heklið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.2, þ.e.a.s. að heklað er þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 kl um fyrsta ll-boga, 2 ll (jafngilda 1 hst), 2 st um sama ll-boga, 1 hst um sama ll-boga, * um næsta ll-boga er heklað 1 hst + 2 st +1 hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í 2. ll frá byrjun umf = 22-24-26 st-hópar. UMFERÐ 2: Heklið 5 ll (jafngilda 1 fl + 4 ll), * hoppið yfir st-hópinn, 1 fl í bilið á undan næsta st-hóp, 4 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf = 22-24-26 ll-bogar. Endurtakið umf 1 og 2 í A.2 þar til stykkið mælist ca 12 cm í öllum stærðum – endið eftir umf 2 (þ.e.a.s. eftir eina umf með ll-bogum). Heklið nú mynstur eftir teikningu A.3, þ.e.a.s. að heklað er þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 kl um fyrsta ll-boga, 2 ll (jafngilda 1 hst), 3 st um sama ll-boga, 1 hst um sama ll-boga, * um næsta ll-boga er heklað 1 hst + 3 st + 1 hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í 2. ll frá byrjun umf = 22-24-26 st-hópar. UMFERÐ 2: Heklið 6 ll (jafngildir 1 fl + 5 ll), * hoppið yfir st-hópinn, 1 fl í bilið á undan næsta st-hóp, 5 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf = 22-24-26 ll-bogar. Endurtakið umf 1 og 2 í A.3 þar til stykkið mælist ca 24-26-28 cm – endið eftir umf 2 (þ.e.a.s. eftir umf með ll-bogum). Heklið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.4, þ.e.a.s. að heklað er þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 kl um fyrsta ll-boga, 2 ll (jafngilda 1 hst), 5 st um sama ll-boga, 1 hst um sama ll-boga, * um næsta ll-boga er heklað 1 hst + 5 st + 1 hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í 2. ll frá byrjun umf = 22-24-26 st-hópar. UMFERÐ 2: Heklið 8 ll (jafngilda 1 fl + 7 ll), * hoppið yfir st-hópinn, 1 fl í bilið á undan næsta st-hóp, 7 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf = 22-24-26 ll-bogar. Endurtakið umf 1 og 2 í A.4 þar til stykkið mælist ca 36-38-40 cm – endið eftir umf 1. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (15)
Anna wrote:
Vad menarni när ni skriver siffrorna såhär: 5-5, 12-12? jag är rätt ny på att läsa mönster själv och utan hjälp.
18.02.2020 - 11:17DROPS Design answered:
Hej Anna, Siffrorna gäller de 2 storlekar i mönstret :)
18.02.2020 - 11:49Anja wrote:
Meine Freundin ist total begeistert von dieser Mütze, sie kann aber nur Mützen aus Baumwolle tragen. Nun würde ich ihr gerne diese Mütze mit Drops Paris häkeln, habe aber Bedenken, das sie dann nicht mehr so gut hält (vor allem der Schirm). Hat jemand Erfahrung oder kann das Drops Team Auskunft geben?
12.04.2016 - 11:31DROPS Design answered:
Liebe Anja, Paris sollte sicher mindestens so "standfest" sein wie Nepal, das können Sie also durchaus wagen.
12.04.2016 - 13:58Giorgia wrote:
Salve, vorrei realizzare il coprispalle con un filato più piccolo, gruppo A o B, con quante catenelle devo avviare il lavoro nella misura S/M? Grazie mille
08.11.2014 - 21:22DROPS Design answered:
Buongiorno Giorgia. Le consigliamo di lavorare un campione con il filato scelto seguendo il diagramma A.2. Lo lavi e lo misuri. In base a queste misure dovrebbe riuscire a calcolare quante maglie avviare per ottenere la misura indicata per la sua taglia. Buon lavoro!
11.11.2014 - 14:10Christiane wrote:
Danke für die Hilfe! Werde es ausprobieren.
07.09.2013 - 18:12Christiane wrote:
Ich habe zu dieser Mütze eine Frage, bei mir hält der Schirm nicht so wie auf den Bild. Wurde der Schirm extra gehäkelt und dann angenäht worden? Lg Christiane
05.09.2013 - 17:34DROPS Design answered:
Liebe Christiane, bei unserem Modell wird der Schirm angehäkelt (über die mittleren 30-30 fM). Evtl. müssen sie den Schirm etwas fester häkeln, wenn er zu wenig Stand hat.
06.09.2013 - 07:29Johanna Wieners wrote:
Das gefällt mir
01.07.2013 - 18:10Mariastella wrote:
Cappello originalissimo e pure il coprispalle. a quando le spiegazioni del modello?
22.06.2013 - 09:35Ewar wrote:
Die mütze sieht wirklich toll aus... und ich dachte auch gleich an robin of the hood ;) werd sie mir auf jeden fall in grün nachstricken!
20.06.2013 - 17:18Bettina wrote:
Il cappello è bellissimo,originale e molto particolare!!grazie a chi la fatta!
17.06.2013 - 18:20Sissel wrote:
Peter Pan på full fart tilbake,,,,
16.06.2013 - 13:29