DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6776.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 151-2
DROPS Design: Mynstur nr u-714
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
550-650-750 gr litur nr 69, ljós grágrænn

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6776.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚRTAKA:
Byrjið 6 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl, 2 l br, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), 2 l br, 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að hálsmáli.

PONCHO:
Fitjið upp 408-440-472 l á hringprjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið stroff 2 l br, 2 l sl í 8 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið nú stroff þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 82 l, JAFNFRAMT er fækkað um 3 l jafnt yfir þessar l (= 79 l), * sléttprjón yfir næstu 26-30-34 l, haldið áfram með 2 l br, 2 l sl. 2 l br yfir þessar 6 l (þessar l koma beint upp frá 2 l br, 2 l sl, 2 l br frá stroffi) *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, sléttprjón yfir næstu 26-30-34 l, A.1 yfir næstu 82 l, JAFNFRAMT er fækkað um 3 l jafnt yfir þessar l (= 79 l), * sléttprjón yfir næstu 26-30-34 l, haldið áfram með 2 l br, 2 l sl, 2 l br yfir næstu 6 l (þessar l koma beint yfir 2 l br, 2 l sl, 2 l br frá stroffi) *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, sléttprjón yfir næstu 26-30-34 l = 402-434-466 l. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið fyrsta prjónamerki eftir 108-112-116 l (á milli 2 l sl í fyrsta stroff), annað prjónamerki eftir 172-184-196 l (á milli 2 l sl í þriðja stroff), þriðja prjónamerki eftir 309-329-349 l (á milli 2 l sl í fjórða stroff) og fjórða prjónamerki eftir 373-401-429 l (á milli 2 l sl í sjötta stroff). Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA!
Endurtakið úrtöku annan hvern cm 19-19-19 sinnum, síðan í hverjum cm 5-9-13 sinnum (alls 24-28-32 færri) = 210 l eftir á prjóni í öllum stærðum. Stykkið mælist ca 52-56-60 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 1umf slétt, JAFNFRAMT er fækkað um 42 l jafnt yfir = 168 l. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið stroff 2 l sl, 2 l br í 20 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 10.10.2013
13. lína í skýringarmynd (6 umf fyrir neðan, ekki 5 umf fyrir neðan): Stingið prjóninum niður í lykkjuna 6 umf fyrir neðan, sækið bandið frá bakhlið á stykkinu, dragið bandið ca 2 cm út, prjónið 1 l sl, stingið prjóninum í lykkjuna 6 umf fyrir neðan, sækið bandið frá bakhlið á stykki, dragið bandið ca 2 cm út = 3 l. Í næstu umf er prjónað þannig: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir.
Yfirfarið á vefsvæði: 03.12.2013
Neðst undir PONCHO: .. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umf slétt, JAFNFRAMT eru felldar af 42 l jafnt yfir = 168 l...

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 1 l sl, 1 l br af hjálparprjóni
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 l br, 1 l sl af hjálparprjóni
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 l sl, 1 l br, 1 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 1 l sl, 1 l br + 1 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 1 l sl, 1 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 l sl, 1 l sl af hjálparprjóni
symbols = Stingið prjóninum niður í lykkjuna 6 umf fyrir neðan, sækið bandið frá bakhlið á stykkinu, dragið bandið ca 2 cm út, prjónið 1 l sl, stingið prjóninum í lykkjuna 6 umf fyrir neðan, sækið bandið frá bakhlið á stykki, dragið bandið ca 2 cm út = 3 l. Í næstu umf er prjónað þannig: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir.
symbols = Stingið prjóninum niður í lykkjuna 3 umf fyrir neðan, sækið bandið frá bakhlið á stykkinu, dragið bandið ca 1 ½ cm út, prjónið 1 l sl, stingið prjóninum í lykkjuna 3 umf fyrir neðan, sækið bandið frá bakhlið á stykki, dragið bandið ca 1 ½ cm út = 3 l. Í næstu umf er prjónað þannig: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir.
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = 3 l slétt saman
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Frozen Ivy

Tonyabeth

Frozen Ivy

Nicole, France

Frozen Ivy

Anna, Australia

Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (101)

RHS wrote:

Hi Is the circumference of the neck 42cm or 84cm?

08.01.2015 - 12:25

DROPS Design answered:

Dear RHS, measurements in chart are taken flat, from side to side, circumference of the neck will be then approx. 84 cm (neck will be 42 cm from side to side when lying flat). Happy knitting!

08.01.2015 - 13:40

country flag Sandra wrote:

Hallo an Alle, weiß denn jemand wieviel Wolle für Größe S/M benötigt wird :-) ? Dankeschön

25.12.2014 - 18:56

DROPS Design answered:

Den Garnverbrauch finden Sie neben dem Foto unter der gestrichelten Linie, dort ist das Material samt Verbrauch angegeben.

29.12.2014 - 10:11

Renée wrote:

Thank you for your help!

04.12.2014 - 15:26

Renée wrote:

Thanks for confirming. Just one final aspect I am a little unsure of regarding the insert needle 3/6 rows down, when you create the 2nd loop (the 3rd of the 3 sts), you stick the needle through the same stitch as you stuck it through to create the first loop. Is that correct? i.e. both loops/strands of yarn are pulled through the same stitch.

04.12.2014 - 13:37

DROPS Design answered:

Dear Renée, that's correct, you will then have 3 sts instead of 1 on this place (1st st picked below + K1 + 2nd st picked below) that you will dec to 1 st on next round. Happy knitting!

04.12.2014 - 15:05

Renée wrote:

I already looked at the images you are directing me to and I did not find them particularly helpful. Can you please check my post from 29/11/14 at 15:06 where I have described what I think is required for the stitch 3/6 rows down and then confirm that this is correct or not. The description provided in the pattern is too vague and should be rewritten as it is quite misleading.

03.12.2014 - 17:02

DROPS Design answered:

Dear Renée, you are correct, *you insert needle some rows below, get the yarn from WS and pull it through the st (= towards RS) = you will have an extra st "loop" on right needle* - work 1 st and repeat again from *-* = 3 st on right needle - on next round, work these 3 sts: Slip 1 as if to K, K2 tog, psso. Happy knitting!

03.12.2014 - 17:34

Renée wrote:

Hi I would be most grateful if someone could answer the question I sent on 29.11.2014 at 15:06. I really need an answer regarding the stitch 3/6 rows down. Thank you!

03.12.2014 - 09:36

DROPS Design answered:

Dear Renée, sorry for late answer, you can have a look on the pictures here on the French Forum to check how to work these sts. It should help. Happy knitting!

03.12.2014 - 15:10

Renée wrote:

Please confirm this is correct for insert needle in st below section: On 9th (19th) row before working st on LH needle, insert RH needle from RS into st 3/6 rows down & pull through a loop of working yarn to required length from WS to RS. This loop will lie on RS stretching up to RH needle. K1. Then stick RH needle from RS through same stitch as you stuck it through previously & pull through another loop of yarn from WS to RS to required length. Is this what you mean?

29.11.2014 - 15:06

Renée wrote:

The instructions for insert needle down in st 6/3 rows below. It states; yarn should be pulled from WS to a length of 2/1.5cms. However, it was explained lwr down in this chain: you get the yarn from the WS and pull the stitch from the RS (see post from 08.10.2014 kl. 17:06). But the pattern doesn't state that you pull from the RS. Also the pictures supplied look like the whole process is done from RS. I'm confused by the instructions provided. Please clarify in detail what is required here.

29.11.2014 - 11:41

RHS wrote:

You missed the first part of my question in my previous post, here it is again below: I start the decreases when the entire piece measures 10cms: i.e. 10cms including the P2/K2 ribbing?

28.11.2014 - 11:59

DROPS Design answered:

Dear Mrs RHS and sorry for having missed this part of your question, you are correct, decreases start when piece measures 10 cm from the beg, ie including P2/K2 ribbing. Happy knitting!

28.11.2014 - 13:41

RHS wrote:

I just want to double check, I start the decreases when the entire piece measures 10cms (i.e. 10cms including the P2/K2 ribbing). Also the 2 decreases (before & after the markers) consist of a K2tog and a psso. Is the psso decrease noticeable in the knitted fabric? I ask as I have never done a psso decrease before.

27.11.2014 - 18:06

DROPS Design answered:

Dear RHS, when you K2 tog, dec leans right while working sl1, K1, psso leans left - see video below how to work sl 1, k1, psso. Happy knitting!

28.11.2014 - 08:40