Summer Nights |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Heklað teppi úr DROPS Delight og DROPS Fabel.
DROPS 150-49 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LITASKIPTI: Til þess að ná fram fallegum litaskiptum er síðasta kl í umf hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í síðustu ll frá byrjun umf, bregðið þræðinum með nýja litnum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum l á heklunálinni. LITASAMSETNING: FERNINGUR-1 UMFERÐ 1-3: Delight fjólublár/grænn UMFERÐ 4-5: Fabel natur/beige UMFERÐ 6-7: Delight fjólublár/grænn UMFERÐ 8: Fabel sólsetur UMFERÐ 9: Delight fjólublár/grænn UMFERÐ 10: Fabel sólsetur UMFERÐ 11: Fabel natur/beige FERNINGUR-2: UMFERÐ 1-3: Delight turkos/vínrauður/beige UMFERÐ 4-5: Fabel natur/beige UMFERÐ 6-7: Delight turkos/vínrauður/beige UMFERÐ 8: Fabel sólsetur UMFERÐ 9: Delight turkos/vínrauður/beige UMFERÐ 10: Fabel sólsetur UMFERÐ 11: Fabel natur/beige ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Heklið ferninga eins og útskýrt er frá að neðan. Heklaðir eru 14 ferningar í hvorri litasamsetningunni – sjá útskýringu að ofan (= alls 28 ferningar). TEPPI: HEKLAÐUR FERNINGUR: LESIÐ LITASKIPTI og LITASAMSETNING! Heklið 6 ll með heklunál nr 6 með Delight og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið nú eftir mynstri A.1, þ.e.a.s. heklað er þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, heklið 7 fl um hringinn og endið á 1 kl í ll í byrjun umf = 8 l. UMFERÐ 2: Heklið 6 ll (jafngilda 1 st + 3 ll), * 1 st í næstu fl, 3 ll *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum og endið umf á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 8 st með 3 ll á milli hverra. UMFERÐ 3: Heklið 1 kl um fyrsta ll-boga, 3 ll (jafngilda 1 st), 3 st um sama ll-boga, * 2 ll, 4 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum, heklið 2 ll og endið umf á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 8 st-hópar með 2 ll á milli hverra. Klippið frá. UMFERÐ 4: Skiptið yfir í Fabel og byrjið á 1 fl í hvaða ll-boga sem er. Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 2 st um sama ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, * 3 ll, 2 fl um næsta ll-boga, 3 ll, um næsta ll-boga er heklað: 3 st + 3 ll + 3 st *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 3 ll, 2 fl um næsta ll-boga, 3 ll og endið umf á 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 5: Heklið 1 ll (jafngildir 1 fl), 1 fl í hvorn af næstu 2 st, 3 fl um ll-boga í horninu, 1 fl í hvern af næstu 3 st, * 4 fl um ll-boga, 1 fl á milli 2 næstu fl, 4 fl um ll-boga, 1 fl í hvern af næstu 3 st, 3 fl um ll-boga í horninu, 1 fl í hvern af næstu 3 st *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 4 fl um næsta ll-boga, 1 fl á milli 2 næstu fl, 4 fl um næsta ll-boga, skiptið yfir í Delight og endið umf á 1 kl í ll frá byrjun umf. UMFERÐ 6: Heklið 3 ll með Delight (jafngilda 1 st), heklið nú 1 st í hverja fl frá fyrri umf, í miðju fl í hvert horn er heklað 2 st + 2 ll + 2 st = 21 st á milli hverra ll-boga, endið umf á 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 7: Heklið 1 ll (jafngildir 1 fl), heklið nú 1 fl í hvern st frá fyrri umf, en um ll-boga í hverju horni eru heklaðar 3 fl, endið umf á 1 kl í ll í byrjun umf = 96 fl í umf. Klippið frá. UMFERÐ 8: Skiptið yfir í Fabel og byrjið á 1 kl í miðju fl í hvaða horni sem er. Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 3 st í sömu l, 2 ll, 4 st í sömu l, * (1 ll, hoppið yfir 5 fl, 4 st í næstu fl), endurtakið frá (-) alls 3 sinnum, heklið 1 ll, hoppið yfir 5 fl, í næstu fl (þ.e.a.s. fl í horni) heklið 4 st + 2 ll + 4 st *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, endurtakið frá (-) 1 sinni til viðbótar, heklið 1 ll, skiptið yfir í Delight og endið umf á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 9: Snúið við og heklið 3 ll með Delight (jafngilda 1 st), heklið 3 st í sömu ll, heklið nú 4 st um hverja ll og 1 ll á milli hvern st-hóps. Um ll-boga í hverju horni er heklað 4 st + 2 ll + 4 st, skiptið yfir í Fabel í lokin á umf og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 10: Heklið eins og umf 9 nema með Fabel. UMFERÐ 11: Heklið eins og umf 9 nema með Fabel. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Staðsetjið ferninga með 4 ferninga á breidd og 7 ferninga á hæð. Heklið saman ferningana kant í kant með litnum natur/beige Fabel eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.2, þ.e.a.s. leggið 2 ferninga saman og heklið 1 fl um ll-boga í horninu á öðrum ferningnum, 1 ll, 1 fl um ll-boga á hinum ferningnum, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á báðum ferningunum (heklið um báða ll-bogana samtímist) *, endurtakið frá *-* og endið á 4 ll, 1 fl um ll-boga í horninu á fyrsta ferningnum, 1 ll og 1 kl um ll-boga í horninu á seinni ferningnum. ATH: ferningarnir eru fyrst heklaðir saman á lengd síðan á breidd. HEKLAÐUR KANTUR Í KRINGUM TEPPIÐ: Heklið kant í kringum allt teppið með heklunál nr 6 með litnum natur / beige Fabel eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.3, þ.e.a.s. heklað er þannig: UMFERÐ 1: Byrjið frá réttu í einu horninu á teppinu og heklið með litnum natur/beige Fabel þannig: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 3 st í sömu ll, 2 ll, 4 st um sama ll-boga, heklið nú 4 st í hverja ll og 1 ll á milli hverra st-hópa. Um ll-boga í hverju horni er heklað 4 st + 2 ll + 4 st, endið umf á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 2: Heklið 1 ll (jafngildir 1 fl), heklið nú 1 fl í hverja l umf hringinn (þ.e.a.s. 1 fl í hvern st, 1 fl um hverja ll, 1 fl í hvert horn á sjálfum ferningnum, 4 fl í hverja skiptingu á milli ferninga og 2 fl í hvert horn á sjálfu teppinu), endið umf á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf. UMFERÐ 3: Heklið 3 ll, (jafngilda 1 st), heklið nú 1 st í hverja fl umf hringinn, en í hverja og eina af þeim 2 fl í hverju horni á teppinu eru heklaðir 2 st = 4 st í horni,endið umf á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 4: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), heklið nú 1 st í hvern st en í hvern og einn af 4 st í hverju horni á teppinu eru heklaðir 2 st = 8 st í hverju horni, endið umf á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 5: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), * hoppið yfir 3 st, 1 fl í næsta st, hoppið yfir 3 st, 10 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn – stillið af að það komi st-hópur með 10 st mitt í hvert horn og endið umf á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (31)
Tine wrote:
Love it! But is this really in Delight? Curious about the pattern
30.05.2013 - 14:37