DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 149-1
DROPS Design: Mynstur nr li-031
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
750-850-900-1000-1100-1200 gr litur nr 7810, mosagrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm og 24 l í mynstri eftir A.2/A.3 verði 10 cm á breiddina (mælt lárétt í mynstri, ekki meðfram lykkjum).
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3 – fyrir kant.
DROPS PERLUTALA, NR 521: 5-5-5-6-6-6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf .

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna):
* 1 l sl og 1 l br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 – ATH: Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkað er l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið á peysunni, lykkjum er fækkað að utanverðu á A.1 á fram- og bakstykki og lykkjum er fækkað innan við garðaprjón í kanti að framan/kragi.
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki /A.1/garðaprjón í kanti að framan/kragi þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki/A.1/ garðaprjón í kanti að framan/kragi þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING (á við um kraga):
Aukið út að innanverðu við síðustu l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið fjórðu og fimmtu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellt er af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá neðri kanti þar sem er lengst):
STÆRÐ S: 11, 18, 25, 32 og 39 cm.
STÆRÐ M: 12, 19, 26, 33 og 40 cm.
STÆRÐ L: 13, 20, 27, 34 og 41 cm.
STÆRÐ XL: 12, 18, 24, 30, 36 og 42 cm.
STÆRÐ XXL: 13, 19, 25, 31, 37 og 43 cm.
STÆRÐ XXXL: 14, 20, 26, 32, 38 og 44 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

PEYSA:
Fitjið upp 260-276-300-324-340-364 l (meðtaldar eru 6 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með Lima. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2 (= 26-26-29-29-31-31 l), A.1 (= 6 l), 30-34-37-43-45-51 l sléttprjón, setjið 1 prjónamerki (= hlið), 30-34-37-43-45-51 l sléttprjón, A.1 (= 6 l), A.2 (= 26-26-29-29-31-31 l), A.3 (= 26-26-29-29-31-31 l), A.1 (= 6 l), 30-34-37-43-45-51 l sléttprjón, setjið 1 prjónamerki (= hlið), 30-34-37-43-45-51 l sléttprjón, A.1 (= 6 l), A.3 (= 26-26-29-29-31-31) l og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

ÚRTAKA í HLIÐUM:
Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 8 cm millibili, 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 úrtökur hvoru megin við bæði prjónamerki).

ÚRTAKA Í MYNSTRI MEÐ ÁFERÐ:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 10 cm – stillið af að næsta umf sé umf með útaukningu og úrtöku í A.2/A.3 – fækkið um 1 l að utanverðu við A.1 á fram- og bakstykki, þ.e.a.s. í mynstureiningunni í sléttprjóni rétt á eftir/rétt á undan A.1 – LESIÐ ÚRTAKA.
Að auki er fækkað um 1 l aukalega í A.2 og A.3 á fram- og bakstykki þannig að mynstureiningin með skásettum röndum verða færri og færri. Fækkað er um 1 l í A.2 með því að prjóna 2 síðustu l á undan úrtöku alveg eins og úrtaka, þ.e.a.s. prjónið 2 l slétt saman. Fækkað er um 1 l í A.3 með því að prjóna 2 næstu l á eftir úrtöku alveg eins og úrtaka, þ.e.a.s. takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= alls 8 l færri í umf).
Endurtakið þessa úrtöku í 8. hverri umf, 8-8-8-8-7-7 sinnum til viðbótar (= alls 9-9-9-9-8-8 úrtökur) – mundið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Eftir að úrtöku er lokið eru 172-188-212-236-260-284 l eftir á prjóni. Haldið áfram með mynstur eins og áður – LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

ÚTAUKNING Í MYNSTRI MEÐ ÁFERÐ:
Þegar stykkið mælist ca 38 cm – stillið af þannig að næsta umf sé umf með útaukningu og úrtöku í A.2/A.3 – aukið út um 1 l aukalega í A.2 og A.3 á fram- og bakstykki þannig að mynstureiningin með skásettum röndum stækkar. Aukið út um 1 l í A.2 með því að prjóna 2 l í l á eftir útaukningu og aukið út umf 1 l í A.3 með því að prjóna 2 l í l á undan útaukningu (= 4 l fleiri í umf). Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf, 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 sinnum) og síðan í 8. hverri umf alls 6-6-6-6-5-5 sinnum.

SJALKRAGI:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm (þ.e.a.s. 1 cm á eftir síðasta hnappagati í hægri kanti að framan), aukið út um 1 l í hvorri hlið fyrir sjalkraga – LESIÐ ÚTAUKNING. Í næstu umf er prjónað frá réttu þannig: Prjónið 2 umf garðaprjón fram og til baka yfir síðustu 7 l í umf (þ.e.a.s. kantur að framan + 1 útauknin l – aðrar l í umf eru ekki prjónaðar), snúið við og prjónið 1 umf frá réttu eins og áður yfir allar l, snúið við og prjónið 2 umf garðaprjón fram og til baka yfir síðustu 7 l, snúið við og prjónið til baka eins og áður aftur yfir allar l (þetta er gert til þess að líningin í hálsmál falli fallega þegar úrtaka fyrir hálsmáli byrjar – sjá útskýringu að neðan). Prjónið nú fram og til baka yfir allar l. JAFNFRAMT er haldið áfram með útaukningu fyrir sjalkraga innan við síðustu l í hvorri hlið í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 5-5-6-6-7-7 sinnum til viðbótar (= alls 6-6-7-7-8-8 sinnum) og síðan í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu), alls 14-14-15-15-16-16 sinnum = 20-20-22-22-24-24 l fleiri í kraga og 26-26-28-28-30-30 l garðaprjón alls.

LÍNING VIÐ HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm er fækkað um 1 l fyrir hálsmáli innan við l í garðaprjóni í kanti að framan + útauknu l fyrir kraga – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf, 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 sinnum) og síðan í 4. hverri umf alls 7-7-7-9-9-9 sinnum – ATH: Þegar fellt er af fyrir hálsmáli, færist útaukningin í sjálfu mynstri í A.2/A.3 á framstykki eftir úrtöku fyrir hálsmáli, þannig að útaukningin verður lengra inn á stykkinu.

HANDVEGUR:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 51-52-53-54-55-56 cm, fellið af 4 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 2 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) og hvert stykkið er prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
JÖFNUN Á SKÁSETTUM LÍNUM:
Þegar stykkið mælist 64-64-64-64-62-62 cm (útaukning í A.2/A.3 á nú að vera lokið), fækkið lykkjum og aukið út í A.2 og A.3 í 8. hverri umf í stað 4. hverrar umf þannig að skásettu línurnar verða minni. Þetta er gert alls 3-3-3-3-4-4 sinnum, síðan er prjónað A.2/A.3 fram og til baka yfir miðju 58-58-64-64-68-68 l án útaukninga og úrtöku (aðrar l eru prjónaðar eins og áður).
Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm er fellt af miðju 20-20-20-24-24-24 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 39-43-49-53-58-64 l eftir á öxl. Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm og fellið af. Endurtakið á sama hátt á hinni öxlinni.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg JAFNFRAMT er aukið út fyrir sjalkraga og fellt af fyrir hálsmáli eins og áður.

JÖFNUN Á SKÁSETTUM LÍNUM:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 64-64-64-64-62-62 cm (útaukning í A.2 á nú að vera lokið), fækkið lykkjum og aukið út í A.2 í 8. hverri umf í stað 4 hverri umf eins og á bakstykki, þannig að skásettu línurnar verða minni. Þetta er gert alls 3-3-3-3-4-4 sinnum, síðan er prjónað A.2 fram og til baka án útaukninga og úrtöku (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Eftir allar útaukningar og úrtökur eru 65-69-77-81-88-94 l á prjóni. Þegar stykkið mælist ca 70-72-74-76-78-80 cm – stillið af að næsta umf er prjónuð frá röngu, fellið af fyrstu 39-43-49-53-58-64 l á öxl, prjónið nú sl út umf yfir síðustu 26-26-28-28-30-30 l.

KRAGI:
Byrjið fyrir miðju að framan og prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þær l sem eftir eru fyrir kraga þannig: * Prjónið 2 umf yfir allar l, 2 umf einungis yfir síðustu 18-18-20-20-22-22 l (fyrir miðju að framan) *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-7-8-8-8 cm innst þar sem er stykkið er minnst, fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd (haldið áfram með A.3 í stað A.2 – aðrar l eru prjónaðar eins og áður).
Þegar axla-l eru felldar af er það gert frá réttu (í stað frá röngu).

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 46-48-50-52-54-56 l á sokkaprjóna nr 3 með Lima og prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 7-10-8-13-9-12 cm er aukið út um 2 l fyrir miðju undir ermi.
Endurtakið útaukningu með 2½-2-2-1½-1½-1 cm millibili, 16-17-18-19-22-26 sinnum til viðbótar (= alls 17-18-19-20-23-27 útaukningar) = 80-84-88-92-100-110 l. Þegar stykkið mælist 49-48-47-45-44-42 cm setjið 1 prjónamerki fyrir miðju undir ermi. Prjónið áfram fram og til baka þar til ermin mælist 50-49-48-46-45-43 cm og fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermi í innan við 1 kantlykkju – prjónamerki fyrir miðju undir ermi á að passa við prjónamerki í hlið á fram- og bakstykki. Saumið saman kraga fyrir miðju að aftan (passið uppá að saumurinn sjáist ekki þegar kraginn er brotinn saman niður) og saumið kraga við hálsmálið aftan í hnakka. Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.08.2013
Undir ERMI:... Prjónið áfram fram og til baka þar til ermin mælist 50-49-48-46-45-43 cm og fellið síðan af. Prjónið aðra ermi.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = prjónið 2 l framan í og aftan í sömu l (= 1 l útaukning)
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 l slétt, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = prjónið 3 l slétt, steypið fyrstu l sem prjónuð var yfir hinar 2 þannig að þessi l liggi utan um 2 síðustu l á hægra prjóni (= 1 l færri)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (159)

country flag Hilda wrote:

Så må jeg give op, første gang :-( Jeg har 4 strukturmønstre og skal tage ind i dem og får det godt nok til 8 masker, men ikke hvis jeg så samtidig skal følge diagrammet. andre har også kigget på det for mig og siger der må være en fejl.

01.11.2013 - 12:00

DROPS Design answered:

Du starter med 260 m. Tager 2 m ind i hver side = 4 m x 4 = 16m Tager 1 m ind uden for A1 = 4 m x 9 = 36m Tager 1 m ekstra ind i A2 og A3 = 4 m x 9 = 36m 260 - 16 - 36 - 36 = 172 m

04.11.2013 - 11:27

country flag Hilda wrote:

Så må jeg give op, for det der står i indtagningstip har jeg gjort, jeg har 4 strukturmønstre, så jeg kan altså kun få det til 4 masker, det er første gang jeg har prøvet at give op.:-(

01.11.2013 - 11:38

DROPS Design answered:

Du starter med 260 m. Tager 2m ind i hver side = 4 m ialt 4 gange = 16m. Tager 1m ind på ydersiden af alle A1 = 4m 9 gange = 36m. Tager 1m ekstra ind i alle A2 og A3 = 4m 9 gange = 36 m 260 - 16 - 36 - 36 = 172 m

04.11.2013 - 11:10

country flag Hilda wrote:

Vil det sige at man ikke skal strikke 2 masker i samme som vist i diagrammet, når man begynder indtagene, for ellers kan jeg ikke få det til at passe.

31.10.2013 - 18:21

DROPS Design answered:

Jo du følger diagrammet, men når du begynder indtagningerne så læser du "INDTAGNINGSTIPS" og strikker ifølge dem samtidig som du følger opskriften. God fornøjelse!

01.11.2013 - 09:03

country flag Hilda wrote:

Jeg er ved at strikke jakke 149-1, der står at der skal være 172 masker efter alle indtag, jeg har 212 masker, skal man måske ikke tage ud i starten af strukturen på de pinde hvor der tages ind eller hvad kan tænkes jeg gør forkert, jeg får det også kun til 4 masker der tages ind, hvor I skriver der tages 8 masker ind.

30.10.2013 - 11:09

DROPS Design answered:

Hej Hilda. Du maa have glemt nogen indtagninger. Du tager ind i siderne (paa hver side af maerketraadene) = 16 m (4 gange 4 m) og du tager ind i strukturmönstrene = 72 m (9 gange 8 m). Saa ender du paa 172 m. God fornöjelse videre.

31.10.2013 - 13:58

country flag Anniina wrote:

Ihana ohje. Jäi mietityttämään ohjeessa tuo viimeisen napinläven jälkeen tehtävä lyhennetty kierros - eli tuleeko neuleeseen vain tuo yksi kerros, jossa on nuo lyhennykset vai jatkanko sitä myös seuraavilla kierroksilla?

07.10.2013 - 19:16

DROPS Design answered:

Nämä lyhennetyt kerrokset tehdään vain kerran kummassakin reunassa.

11.10.2013 - 16:08

country flag Linda wrote:

Het patroon loopt scheef. Bij de knoopsgaten staat uitdrukkelijk dat je moet meten vanaf het langate deel. Hoe zit dat met het meten voor de meer- en minderingen?

27.09.2013 - 09:36

DROPS Design answered:

Hoi Linda. Het is de bedoeling dat het structuurpatroon langs de voorkant schuin loopt. Je meet vanaf het laagste puntje van het voorpand - het langste deel en naar boven)

02.10.2013 - 15:55

country flag Ingvild Bostad wrote:

Hei Skal det felles og økes i strukturmønstret på ryggen også? Slik at ryggpartiet også blir mindre og etter på økes.

17.09.2013 - 13:44

DROPS Design answered:

Hei Ingvild. Ja, det skal der. Se under ØKNING I STRUKTURMØNSTERET. God fornöjelse

17.09.2013 - 16:46

country flag Eva wrote:

Möchte die Jacke gerne Stricken, wenn ich die Ärmel "normal" machen möchte, muss ich doch nur mehr Maschen abnehmen und ein paar reihen früher? oder liege ich da falsch?

13.08.2013 - 11:52

DROPS Design answered:

Liebe Eva, meinen Sie eine Armkugel? Sie könnten ein anderes Modell mit ähnlicher Maschenzahl suchen (und dann auch das Rumpfteil entsprechend stricken), aber wir empfehlen, die Anleitung lieber nicht anzuändern.

14.08.2013 - 18:40

country flag Hildegard wrote:

Diese Jacke werde ich bestimmt stricken.

23.07.2013 - 15:20

country flag Aase Rytter wrote:

Super flot, hører hjemme i min garderobe

30.06.2013 - 04:14