Blue Leaf |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Vivaldi með gatamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL
DROPS 149-31 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2, A.3 og A.4. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Mynstrinu er skipt upp í 3 hluta. Þar sem aukið er út og lykkjum fækkað mismunandi á stykkjunum þá lítur skýringarmyndin ófullnægjandi út en lykkjufjöldi í lok hverrar umf er sá sami. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. LEIÐBEININGAR 1: Til þess að fá fallegan enda á mynstureininguna er haldið áfram með mynstur A.3 í stað A.2 (hægra framstykki) og A.1 í stað A.2 (vinstra framstykki). STUTTAR UMFERÐIR: Til þess að kraginn falli betur eru prjónaðar stuttar umferðir í garðaprjóni þannig: * Prjónið 2 umf fram og til baka yfir 15 l, 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. LEIÐBEININGAR 2: Eftir því sem fellt er af hvoru megin við ermi og gatamynstur A.4 heldur áfram, koma rendur í gatamynstri að hverfa inn í ermasauminn. Lykkjur sem ekki passa inn eru prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið LAUST upp 59-64-70 l (meðtaldar 3-3-3 kantlykkjur við miðju að framan og 1 kantlykkja í garðaprjóni) á hringprjóna nr 8 með Vivaldi. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 3-3-3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 (= 12 l), A.2 yfir næstu 26-26-39, A.3 (= 15 l), 2-7-0 l garðaprjón, 1-1-1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og garðaprjón í hlið og í kanti að framan. Þegar stykkið mælist 50-54-59 cm er fellt af 2-7-13 l í hlið fyrir handveg í næstu umf frá röngu = 57-57-57 l á prjóni. Haldið nú áfram með mynstur, 3 kantlykkjur að framan í garðrpjóni og 1-1-1 kantlykkju í garðaprjóni frá hlið. ATH! Í stærð XXL/XXXL er haldið áfram með 1 kantlykkju í garðaprjóni og A.3 í stað A.2 yfir síðustu mynstureininguna með A.2 (mynstureiningin lengst við handveg) þannig: Prjónið 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A1 (= 12 l), A.2 yfir næstu 26 l, A.3 (= 15 l), 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 70-76-83 cm er fellt af síðustu 27 l frá röngu = 30 l eftir á prjóni fyrir kraga. Haldið nú áfram frá röngu: A.3, A.1, 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – Lesið LEIÐBEININGAR 1! Þegar kraginn mælist ca 10 cm eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR með byrjun frá réttu – sjá útskýringu að ofan! Fellið laust af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið LAUST UPP 59-64-70 l (meðtaldar 3-3-3 kantlykkjur við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni) á hringprjóna nr 8 með Vivaldi. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 1-1-1 kantlykkjur, 2-7-0 l garðaprjón, A1 (= 12 l), A.2 yfir næstu 26-26-39 l, A.3 (= 15 l), 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram alveg eins með mynstur og garðaprjón í hlið og á kanti að framan. Þegar stykkið mælist 50-54-59 cm eru felldar af 2-7-13 l í hlið fyrir handveg frá réttu = 57-57-57 l á prjóni. Haldið nú áfram með mynstur, 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og 1-1-1 kantlykkja í garðaprjóni frá hlið. ATH! Í stærð XXL/XXXL er haldið áfram með 1 kantlykkju í garðaprjóni og A.1 í stað A.2 yfir síðustu mynstureininguna með A.2 (mynstureiningin lengst út við handveg) þannig: Prjónið 1-1-1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 (= 12 l), A.2 yfir næstu 26 l, A.3 (= 15 l), 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 70-76-83 cm er fellt af síðustu 27 l frá röngu = 30 l eftir á prjóni fyrir kraga. Haldið nú áfram frá röngu: A.1, A.3, 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – Lesið LEIÐBEININGAR 1! Þegar kraginn mælist ca 10 cm eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR með byrjun frá röngu – sjá útskýringu að ofan! Fellið laust af. BAKSTYKKI: Fitjið LAUST upp 85-95-107 l meðtaldar 1-1-1 kantlykkja í hvorri hlið á hringprjóna nr 8 með Vivaldi. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 1-1-1 kantlykkju, 2-7-0 l garðaprjón, A.1 (= 12 l), A.2 yfir næstu 52-52-78 l, A.3 (= 15 l), 2-7-0 l garðaprjón, 1-1-1 kantlykkja. Haldið áfram með mynstur og kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 50-54-59 cm eru felldar af 2-7-13 l í byrjun á næstu 2 umf = 81-81-81 l á prjóni. Haldið áfram með mynstur alveg eins og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATH: Í stærð XXL/XXXL er haldið áfram með 1 kantlykkju í garðaprjóni og A.1 í stað fyrir A.2 (hægri hlið) og A.3 í stað A.2 (vinstri hlið) yfir mynstureiningu lengst við handveg. Þegar stykkið mælist 68-74-81 cm eru felldar af miðju 27-27-27 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð eins og áður til loka fyrir sig. Fellið laust af þegar stykkið mælist 70-76-83 cm. Saumið saman axlasauma frá fram- og bakstykki með smáu spori í ystu lykkju. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Byrjið neðst niðri við handveg og takið upp 68-74-82 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í kringum handveg = ca 1 l í hverri umf. Prjónið 1 umf br, JAFNFRAMT er fækkað um 18-20-22 l jafnt yfir (prjónið ca 3. og 4. hverja l br saman) = 50-54-60 l meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 5-7-7 l sléttprjón, *A.4, 6-6-8 l sléttprjón*, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar (= alls 3 sinnum), A.4, 5-7-7 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka með mynstur, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 3 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið með því að prjóna 2 l slétt saman. Haldið síðan áfram eins og áður, JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í hvorri hlið með 3-3½-2½ cm millibili 9-9-12 sinnum til viðbótar (= alls 10-10-13 sinnum) – Lesið LEIÐBEININGAR 2! Þegar úrtöku er lokið eru 30-34-34 l eftir á prjóni meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið nú áfram þar til ermin mælist 39-41-43 cm. Prjónið nú 4 umf garðaprjón og fellið LAUST af með 2 þráðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma. Saumið saman hliðarsauma yst í lykkjubogann. Saumið kragann saman við miðju að aftan. Saumið kragann saman jafnt og fínt við hálsmálið. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (35)
Benedetta wrote:
Stupendo
30.05.2013 - 22:34Gabriele wrote:
Auf diese Anleitung würde ich mich sehr freuen-sehr feminin und schön zu Jeans.
30.05.2013 - 22:32Egle wrote:
Leggero e delicato ma anche caldo, perfetto!
30.05.2013 - 20:24Mme EDE wrote:
Voile de Laine vaporeuse , idéal pour une Femme . Si les Fleurs représente la Femme , ici ! la Laine aussi .
30.05.2013 - 19:55Alexandra wrote:
Blue fantasy !
30.05.2013 - 17:07