DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 150-38
DROPS Design: Mynstur nr la-017
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: ca 65 cm mælt frá miðju og niður, meðfram miðju lykkju.

Efni:
DROPS LACE frá Garnstudio
100 gr litur nr 0501, ljós grár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – ATH: Lesið PRJÓNFESTA að neðan!

PRJÓNFESTA:
Sjalið er strekkt í rétta stærð þegar það er blautt í lokin þannig að prjónfestan er ekki svo mikilvæg, en til þess að hafa einhverja hugmynd um hvort prjónað sé of laust/fast, prjónið því prufu á prjóna nr 3,5 þannig að það verða ca 23 l og 30 umf á 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GATAMYNSTUR:
UMFERÐ 1-7: Prjónið garðaprjón
UMFERÐ 8 (frá röngu): * Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 9-12: Prjónið garðaprjón.
Endurtakið þessar 12 umf.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 4 l (1 l í hvorri hlið, 2 l við miðju) í hverri umf frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið að l með prjónamerki (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 3 l eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l garðaprjón. Í næstu umf (allar umf frá röngu) prjónið GATAMYNSTUR, uppslátturinn er prjónaður slétt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l. Sjalið er prjónað frá miðju að aftan og niður.

SJAL:
Fitjið upp 7 l á hringprjóna nr 3,5 með Lace.
Setjið 1 prjónamerki í 4. l (= miðjulykkja) og látið prjónamerkið fylgja með í miðjulykkju. Prjónið 1. umf (frá réttu) þannig: Prjónið 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= miðju lykkja með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l garðaprjón = 9 l.
Prjónið nú GATAMYNSTUR með 3 l garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT er aukið út um 4 l í hverri umf frá réttu – LESIÐ ÚTAUKNING. Haldið áfram með útaukningu þar til 229 l eru eftir á prjóni. Stykkið mælist ca 37 cm, mælt frá prjónastefnu frá uppfitjunarkanti að prjóni.
Prjónið nú áfram þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, A.1, A.2 yfir næstu 108 l, prjónið þar til 2 l eru eftir að miðjulykkju, prjónið A.3, 1 l garðaprjón (= miðjulykkja), A.1, A.2 yfir næstu 108 l þar til 5 l eru eftir, prjónið A.3 og 3 l garðaprjón. Haldið áfram að prjóna eftir A.1/A.2/A.3 þar til mynstrið hefur verið prjónað alls 4 sinnum á hæðina. Í hvert skipti sem A.1/A.2/A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina verður til pláss fyrir 2 mynstureiningar af A.2 á milli A.1 og A.3 hvoru megin við miðjulykkju – JAFNFRAMT í síðustu umf á mynstureiningu (= ranga) aukið út um 8 l jafnt yfir með því að prjóna 2 l í 1 l = 301 l. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l (munið eftir útaukningu eins og áður í hvorri hlið og fyrir miðju), það eru 309 lykkjur á prjóni - fellið af.

BLÚNDUKANTUR:
Fitjið upp 8 l á prjóna nr 3,5 með Lace.
Prjónið fram og til baka eftir A.4, JAFNFRAMT er kanturinn prjónaður með sjalinu – byrjið efst á sjali og prjónið kant meðfram vinstri aflíðandi hliðinni niður að oddi/horni. Kanturinn er prjónaður á sjalið – í hverri umf frá réttu þannig: Takið upp síðustu l í ysta lykkjuboga frá sjali með hægri prjóni, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni (1. l í A.4), steypið nýju l yfir, prjónið út umf.
Þegar blúndukanturinn hefur verið prjónaður alla leið niður að oddi/horni á sjali er prjónað garðaprjón yfir allar l, JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í byrjun hverrar umf frá röngu, haldið áfram í garðaprjóni þar til allar l hafa verið felldar af.

Endurtakið meðfram hægri hlið á sjali, nema nú er prjónað eftir A.5. Kantur er prjónaður fastur á sjalið – í hverri umf frá röngu þannig: Takið upp síðustu l yst í lykkjubogann frá sjalinu með hægri prjóni, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni (1. l. í A.5), steypið nýju l yfir, prjónið út umf.
Saumið saman affellingarkantinn á A.4 og A.5 neðst niðri í oddinum.

STREKKING:
Leggið sjalið í volgt vatn þar til að er orðið blautt í gegn. Pressið varlega vatnið úr sjalinu – það má ekki vinda það. Sjalinu er nú rúllað inn í handklæði og pressað til að ná enn meira vatni – sjalið kemur til með að vera aðeins rakt. Leggið sjalið á mottu eða dýnu – dragið það varlega út í rétta stærð að fínum þríhyrningi og notið nálar til að festa það. ATH: 1 nál yst í l í hvorri hlið á sjalinu, meðfram 2 aflíðandi hliðunum er sett ein nál í miðjuna á hverri mynstureiningu og 1 nál í miðju-l (= neðst niðri í oddinum á sjalinu), dragið aðeins í við hverja nál þannig að kanturinn formist vel í smá horn. Látið sjalið þorna svona. Endurtakið þetta í hvert skipti sem sjalið er þvegið.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sl frá réttu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = fellið af 1 l
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (40)

Christel Zondagh wrote:

Thanks for the previous answer. I am still battling with the lace edge. Do I have to attach the last stitch of the wrong side row to the edge as well or only the first stitch of the RS row?

15.12.2017 - 10:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs Zondagh, when working lace edge together with shawl, at the beginning of RS rows worked on lace edge, pick up 1 st from shawl with right needle, work the first st on left needle (= 1st st in A.4 for the lace edge) and pass the picked up st from shawl over the worked stitch, work remaining sts on row, turn and work WS row. Along right side of shawl, from WS: pick up a stitch from shawl, work 1st st on lace edge (= 1st st in A.5) and pass the picked up st over the worked st, work remaining st on row, turn and work next row from RS. Happy knitting!

15.12.2017 - 11:06

Christel wrote:

Hi, regarding the lace edge: 1.How many "leaves on one side of the shawl? 2. Are there 154 stitches on each side of the shawl? 3. Do you have to attach every row to the edge of the shawl? 4. Is there a tutorial on something similar?

29.10.2017 - 21:01

DROPS Design answered:

Dear Christel, according to the pattern, after the last row of the body of the shawl, you should have 301 stitch on the row, that makes 150 stitch on both side and the middle stitch. Yes, you have to attach the edge to the body by knitting the first stitch of every RS row together a stitch from teh body. I hope this helps. Happy knitting!

26.11.2017 - 17:21

country flag Hilde wrote:

Er staat: Ga verder en brei volgens A.1/A.2/A.3 tot de telpatronen in totaal 4 keer in de hoogte zijn gebreid. houden we nog rekening met de middenste steek? wordt daar nog een omslag gebreid?

29.08.2017 - 09:45

DROPS Design answered:

Hallo Hilde, Jazeker, de middensteek brei je daarnaast ook gewoon verder zoals in de tekst staat.

04.11.2017 - 16:07

Christel wrote:

Hi! 1. I understand that there is an increase of 8 stitches after every A1, A2, A3 repetition. So after 4 times in total, I would have increased it by 32 stitches. And then 8 more before I start the lace edge. But where do the rest come from to get to 301 stitches? 2. When doing A1, A2, A3, must I start every row with 3 sts in garter stitch? Even the pearl rows? Thanks!

25.05.2017 - 21:55

DROPS Design answered:

Dear Christel, you are working A.1, A.2 and A.3 on both sides of the middle st, ie you will inc 8 sts in diagrams on each side = 16 sts inc for every repeat in height. You work diagrams 4times in height x 16 sts inc = 64 sts inc + 229 sts + 8 sts inc evenly on last row from WS = 301 sts. Happy knitting!

26.05.2017 - 11:03

country flag Jacqueline Caillot wrote:

Je comprends que ma question à déjà été posée mais je ne sais pas traduire...mon problème concerne le point fantaisie et le rang 8 car je n' ai pas un nombre pair: 3 mousse + 7m +1 m centrale +7m + 3 mousse Merci pour votre aide

29.05.2016 - 09:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Caillot, vous augmentez 4 m tous les 2 rangs (= tous les rangs sur l'endroit), au rang 8, vous avez augmentez 4 x (rangs 1,3,5 et 7) et vous avez 25 m, tricotez: 3 m end, (*2 m ens à l'end, 1 jeté* répétez de *-* et terminez par 1 m end)), la m centrale, répétez de (à) et 3 m end. Bon tricot!

30.05.2016 - 09:44

country flag Reidun Pettersen wrote:

I sjal nr150-38 skal blonden strikkes sammen meb sjalet. Det står at det skal plukke opp 1m fra høyre og så strikke det sammen med 1 maske fra venstre. Jeg fårstår det, men hva gjør jeg videre??

14.08.2015 - 16:46

DROPS Design answered:

Hej, Jo men så vender du bare og strikker tilbage over blonden. Således strikker du frem og tilbage over blonden og strikker den sammen med kanten på andenhver p. God fornøjelse!

01.10.2015 - 16:51

country flag Eva wrote:

Ich komme mit dem Lochmuster nicht klar. Ich habe 3 M kraus rechts als Rand, dann eine ungerade Zahl M, dann 1 Mittelmasche, wieder eine ungerade Zahl M und dann die 3 M Rand. Wie kann ich da Lochmuster *2 M re zusammen, 1 Umschlag* stricken? Dafür brauche ich doch eine gerade Anzahl M.

05.07.2015 - 14:07

DROPS Design answered:

Sie stricken die M, die übrig bleibt, einfach re. Auf diese Weise erscheint das Muster dann auch jeweils beidseitig symmetrisch.

06.07.2015 - 11:11

country flag Monique Hannay wrote:

I am confused about the Lace Edge: are we talking about the left side looking from the top down towards the tip or the other way around? It looks to me like pattern A4 should come down the right side if holding the shawl with the RS facing me and the tip pointing down? (working A4 upside down)

19.05.2015 - 18:15

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hannay, you work A.4 along the left side of shawl, seen from RS starting on top edge of shawl towards the tip, cast on 8 sts and work A.4 starting from bottom corner on the right side, and every row from RS pick up 1 st from shawl, work 1st st in A.4 and pass the st picked up from shawl over the 1st st in A.4, work remaining sts in A.4. Happy knitting!

20.05.2015 - 09:48

country flag Hilde wrote:

Sliter med å forstå pinne nr 8. Jeg har nå 25 masker på pinnen etter pinne 7. Hvis jeg leser øketips riktig skal jeg strikke kastene rett. Dermed blir det på pinne 8 (som er fra vrangen) slik: 4 rette, 2 rett sammen, kast, 2 rett sammen, kast, 2 rett sammen, kast, men så har jeg bare en maske før neste kast fra forrige pinne før midtmasken og det virker rart. Det er åpenbart at jeg gjør noe galt, men hva?

17.04.2015 - 21:43

DROPS Design answered:

Hej Hilde, Nej men det gør ikke noget, den strikker du bare ret. God fornøjelse!

15.05.2015 - 11:06

country flag Anne Marie Olsen wrote:

På 8. Pinne med hullmønster skal det strikkes 2 rette sammen + kast , ut pinnen. Skal jeg starte etter de tre rillemasker? Skal midtmaske strikkes rett også på denne pinnen? Altså holdes utenom sammenstrikkinga?

06.04.2015 - 19:40

DROPS Design answered:

Hej Anne Marie, Det stemmer, du holder de 3 rillemasker og midtmaskerne udenfor mønsteret. God fornøjelse!

15.05.2015 - 10:18