DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Amelie Smiles

Hekluð jakkapeysa með gatamynstri og hringlaga berustykki, hekluð ofan frá og niður úr DROPS Karisma. Stærð börn 3–12 ára

DROPS Children 24-38
DROPS Design: Mynstur nr u-061-bn
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------
Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
300-350-350-400-450 gr litur nr 40, ljós bleikfjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 15 umf með mynstri A.1 verði = 10 x 10 cm. 1 mynstureining af A.2 mælist ca 6 cm á hæð.
DROPS PERLUTALA MEÐ GATI NR 521: 5-5-6-6-6 stk.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta fl í hverri umf með fl er skipt út fyrir 1 ll.
Fyrsti st í hverri umf með st er skipt út fyrir 3 ll.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚTAUKNING:
Aukið er út með því að hekla 2 l í 1 l, fyrst örðu megin við öll prjónamerkin í umf, í næsta skipti hinum megin við öll prjónamerkin í umf, haldið svona áfram í annað hvert skipti á undan og á eftir prjónamerkin.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l með því að hekla 2 l saman.
Heklið 2 l saman þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.
Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrstu l, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.
----------------------------------------------------------

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að framan.
Heklið 77-85-85-92-100 ll (meðtalin 1 ll til að snúa við) með heklunál nr 4 með Karisma. Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 fl í 2. Ll, 1 fl í hverja og eina af 5-3-3-5-3 næstu ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja og eina af 4 næstu ll *, endurtakið frá *-* út umf = 63-69-69-75-81 fl (ll í byrjun í röð reiknast sem 1 fl) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Setjið 14-15-16-17-18 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerkið eftir 5-6-4-5-6 l, síðan eru sett 13-14-15-16-17 prjónamerki með 4 l millibili, eftir síðasta prjónamerki eru 6-7-5-6-7 l. Heklið fram og til baka eftir mynstri A.1 – JAFNFRAMT í næstu umf er aukið út um 1 l við öll prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 5-5-3-3-2 sinnum til viðbótar og síðan í 4. hverri umf 0-0-2-2-3 sinnum = 147-159-165-177-189 l.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið nú A.2 þannig: Heklið 1 st í hvern og einn af 4 fyrstu fl (= listi að framan), a yfir 7 næstu fl, síðan b þar til 10 fl eru eftir, c yfir 6 næstu fl og 1 st í hvern og einn af 4 síðustu fl (= listi að framan). Heklið mynstur 1 sinni á hæðina – ATH: Í 2 fyrstu umf eru 4 síðustu l heklaðar í hvorri hlið með st, síðan er heklað mynstur eins og áður – aukið er út við prjónamerki eins og áður í umf 4 í mynstri. Í umferð 7 í mynstri er aukið út um 16-13-16-15-12 l jafnt yfir (ekki er aukið út yfir fyrstu og síðustu 4 kantlykkjur að framan) = 177-187-197-209-219 l.
Síðasta umf í A.2 er hekluð þannig: 28-30-31-33-34 fl (= framstykki), 6 ll (= undir ermi), hoppið yfir 36-38-40-43-45 fl (þær eru notaðar síðar fyrir ermi), heklið 49-51-55-57-61 fl (= bakstykki), 6 ll (= undir ermi), hoppið yfir 36-38-40-43-45 fl (þær eru notaðar síðar fyrir ermi) og heklið 28-30-31-33-34 fl (= framstykki).
Nú eru 117-123-129-135-141 l á fram- og bakstykki. Takið frá öll prjónamerki á berustykki og setjið nýtt prjónamerki fyrir miðju á milli 6 ll undir hvorri ermi. Byrjið á umf 1 í A.2 aftur og heklið a, b og c alveg eins og áður (allar ll undir ermi eru taldar sem 1 fl) – þær 4 síðustu l á hvorri hlið = kantur að framan, þær eru heklaðar einungis með st í 2 fyrstu umf. Haldið áfram með A.2 þar til mynstureiningin hefur verið hekluð alls 4-4-4-5-5 sinnum eftir berustykki, stykkið mælist nú ca 24-24-24-30-30 cm frá handveg og niður. Minnsta stærðin er nú lokið. Haldið áfram með mynstur A.1 í 0-4-6-4-6 cm, þ.e.a.s. þar til stykkið mælist 24-28-30-34-36 cm frá handveg og niður. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Til þess að ermin fái sömu áferð og fram- og bakstykki er hún hekluð fram og til baka. Nú eru alls 42-44-46-49-51 l á ermi.
Byrjið á að hekla fyrir miðju undir ermi í 3. ll sem hekluð var fyrir handveg á fram- og bakstykki – heklið fyrstu umf frá röngu. Heklið 1 umf með 1 fl í hverja ll/fl, JAFNFRAMT er fækkað um 6 fl jafnt yfir = 36-38-40-43-45 fl. Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stí hverja og eina af 3-1-2-0-1 fyrstu fl, síðan er mynstur A.2 heklað þannig: a yfir 7 l, síðan b þar til 8-6-7-6-7 l eru eftir, c yfir 6 l og endið á 1 st í hverja og eina af síðustu 2-0-1-0-1 fl. Snúið við og heklið til baka. Í umf 4 í fyrsta sinn sem mynstur er heklað, fellið af 5-1-3-0-2 l jafnt yfir – SJÁ ÚRTAKA! = 31-37-37-43-43 l.
Lykkjufjöldinn gengur nú upp í mynstureiningu, þannig að í næsta skipti þegar byrjað er á A.2, er ekki heklaður st við miðju undir ermi í neinum stærðum. Haldið áfram með A.2 niður 3-4-4-5-5 sinnum til viðbótar – JAFNFRAMT í þriðja skiptið þegar mynstureiningin er hekluð er lykkjum fækkað um 0-6-6-6-6 l jafnt yfir = 31-31-31-37-37 l. Þegar A.2 hefur verið heklað alls 4-5-5-6-6 sinnum á ermi (stykkið mælist ca 24-30-30-36-36 cm), haldið áfram með mynstur A.1 þar til ermin mælist 26-30-32-38-40 cm. Klippið frá – látið endann vera aðeins langan og notið hann til þess að sauma saman ermina.
Heklið aðra ermi alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölurnar jafnt yfir niður út á vinstri kanti að framan – efsta talan á að vera staðsett 1 cm frá toppi. Hneppið í gegnum lykkjur á hægri kant að framan.

Mynstur

symbols = 1 st
symbols = 1 fl
symbols = 1 ll
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

s24-38 Amelie Smiles

Frances, Canada

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 24-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (94)

country flag Josanna wrote:

How many skeins of yarn do I need to purchase to complete this project? Thank you!

19.10.2023 - 00:55

DROPS Design answered:

Dear Johanna, you will find the total weight required for each size under header, this means in first size for example you need 300 g DROPS Karisma/50 g a ball =6 balls Karisma. If you like to use another yarn, please use the yarn converter to get the new amount. Happy crocheting!

19.10.2023 - 08:29

country flag Hanneke wrote:

Het gaat over model nr u-061-bn Er staat ga verder in A2 tot het patroon in mijn geval 5 keer is gehaakt , maar ik hoef nu toch niet meer in de 4e en 7e toer te meerderen ?

25.08.2023 - 20:17

DROPS Design answered:

Dag Hanneke,

Dat klopt inderdaad, je hoeft dan niet meer te meerderen.

28.08.2023 - 07:05

country flag Mireille PETRUCCI wrote:

Bonsoir je vient de reprendre le modele du cardigan pourriez-vous me dire d apres le diagrame est-ce que les explictions a2 pour commencer faut-il que je fasse apres les 4 brides du devant faire une 5eme avant de continuer le rg pour avoir les 129 m le modele est U 061 bn merci bonne soiree

23.09.2022 - 18:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Petrucci, effectivement, A.2 va se crocheter entre les 4 mailles de bordure devant de chaque côté, vu sur l'endroit, ainsi: 4 mailles pour la bordure devant (bride ou maille serrée en fonction du rang de A.2), puis crochetez les 7 mailles de A.2a, puis répétez les 6 mailles de A.2b jusqu'à ce qu'il reste 10 mailles, et terminez par les 6 mailles de A.2c et 4 brides/mailles serrées pour la bordure devant (sur l'envers, crochetez A.2c, A.2b, A.2a). Bon crochet!

26.09.2022 - 08:52

country flag Mireille PETRUCCI wrote:

Bonjour merci pour la reponse mais je fais les auguementations a chaque marqueur de chaques cotée tt les 2rg je dois tricher pour avoir le nbrs de mailles haut mesure 11 cm merci

18.08.2022 - 10:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Petrucci, si votre échantillon n'est pas juste en largeur et en hauteur, il vous faudra adapter la taille du crochet, sinon les mesures finales risquent d'être différentes. Si votre hauteur ne correspond pas, vous devrez recalculer sur la base des explications (ex tous les 4 rangs dans A.1 dans les explications = tous les 3 rangs environ - et ainsi de suite en fonction de votre propre tension. Retrouvez d'autres explications ici. Bon crochet!

18.08.2022 - 14:59

country flag Mireille PETRUCCI wrote:

Bonsoir ma question na pas ete e enregistré pour le modele cardigan les explications ne correspondent pas apres le haut je n ai pas du tout les 16 cm que je devais obtenir qui sur la photo est plus large merci pour votre aide

17.08.2022 - 19:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Petrucci, vous parlez de la largeur de l'encolure dans une des 2 grandes tailles indiquée dans le schéma? Cette mesure correspond à la largeur de l'encolure quand le gilet est posé à plat, si vous avez bien le bon échantillon (17 m x 15 rangs en A.1 = 10 x 10 cm) et que vous conservez bien la même tension que pour votre échantillon, vous devriez avoir ces mêmes mesures. Bon crochet!

18.08.2022 - 08:57

country flag Mireille PETRUCCI wrote:

J ai envoyer des commentaires pour des questions merci bonsoir

17.08.2022 - 18:30

country flag Mireille PETRUCCI wrote:

J ai envoyer des commentaires pour des questions merci bonsoir

17.08.2022 - 18:30

country flag Wendy wrote:

After I do the very first row of sc with markers (English) am I doing ANOTHER row of sc as pictured in A1 or or is my second row the dc’s??

21.06.2021 - 15:43

DROPS Design answered:

Dear Wendy, after you have worked the first row with sc (= 69 sc), you now work first row in A.1 - read first row from RS, 2nd row from WS, etc... Happy crocheting!

21.06.2021 - 16:52

country flag Wendy wrote:

Making size 5-6, English version. After the first row of sc with markers I understand that I then go to A-1 for the pattern. However, is my second row going to be the dc’s or am I doing another row of sc with increases? Also, am I understanding that the increases will happen in alternating rows regardless of whether the stitches are sc or dc? I do love Drops patterns but I feel like they are written out more complicated then they actually are.

21.06.2021 - 13:05

DROPS Design answered:

Dear Wendy, you will increase the first time before every marker, then next time after every marker, next time before, next time after etc, on every other row a total of 5 times (= 10 rows in total) - but correct on every other row means also it can be a double crochet row or a row with single crochets (US-crochet terminology). Happy crocheting!

21.06.2021 - 13:23

country flag Pamela wrote:

Buongiorno, sto cercando di fare questo modello per un'amica che me lo ha chiesto ma non riesco a capire come gestire i segnapunti.

11.05.2021 - 14:36

DROPS Design answered:

Buonasera Pamela, deve inserire i segnapunti indicati per la sua taglia a 4 maglie di distanza. Buon lavoro!

11.05.2021 - 21:01