DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Children 24-7
DROPS Design: Mynstur nr e-011-bn
Garnflokkur A og C eða A + A
-----------------------------------------------------------

LÍTIL RISAEÐLA:
Stærð: ca 10 cm á hæð x 14 cm á lengd

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
50 gr litur nr 14, hermannagrænn
50 gr litur nr 31, ljós grænn
+ smá af litnum svartur fyrir augu og munn

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 fl verði 10 cm á breidd.
FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar.

STÓR RISAEÐLA:
Mál: ca 14 cm á hæð x 20 cm á lengd

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
50 gr litur nr 05, ljós fjólublár
50 gr litur nr 58, púðurbleikur
+ smá af litnum svartur fyrir augu og munn

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 17 fl verði 10 cm á breidd.
FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

RÁÐ VARÐANDI FYLLINGU:
Fyllið með vatti í dýrið jafnóðum og heklað er.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umf með fl byrja á 1 ll (þessi kemur ekki í stað fyrstu fl) og endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.
Allar umf með fl er snúið við með 1 ll – þessi ll kemur ekki í stað fyrstu fl í umf.

ÚRTAKA:
Fækkað er um 1 fl með því að hekla 2 l saman.
Þetta er gert þannig: Stingið heklunálinni niður í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

LÍTIL RISAEÐLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá, efst á höfði og niður hálsinn, búkinn og út að hala. Fæturnir eru heklaðir hver fyrir sig og saumaðir fastir. Gaddarnir eru heklaðir í lokin.
LESIÐ RÁÐ VARÐANDI FYLLINGU!

HÖFUÐ, BÚKUR OG HALI:
Heklið 4 ll með litnum hermannagrænn með heklunál nr 3 og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um ll-hringinn.
UMFERÐ 2: * Heklið 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 9 fl.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. Snúið við og heklið til baka frá röngu.
UMFERÐ 4-6: Heklið 3 umf með 1 fl í hverja fl fram og til baka (= op þar sem nef er heklað í lokin).
UMFERÐ 7: Heklið nú aftur í hring (setjið 1 prjónamerki í byrjun umf). Heklið 2 fyrstu fl saman – SJÁ ÚRTAKA, síðan 1 fl í hverja af næstu 8 fl og 2 síðustu fl eru heklaðar saman = 10 fl.
UMFERÐ 8-14: Heklið 1 fl í hverja fl hringinn án þess að ljúka hverri umf, heklið síðan 1 fl í hverja af fyrstu 5 l, heklunálin er nú við miðju aftan við höfuð – héðan byrjar nú umf.
UMFERÐ 15: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í hverja af næstu 4 fl, 1 fl í hverja af síðustu 3 fl = 14 fl.
UMFERÐ 16: Heklið 2 fyrstu fl saman, síðan 1 fl í hverja af næstu 3 l. 2 fl í hverja af næstu 4 l, 1 fl í hverja af næstu 3 l og heklið 2 síðustu fl saman = 16 fl.
UMFERÐ 17: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 14 fl, snúið við með 1 ll. Heklið nú fram og til baka og gerið annað stykki fyrir brjóstkassa.
UMFERÐ 18 (ranga): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 11 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 19 (rétta): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 8 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 20 (ranga): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 5 fl, snúið við með 1 ll.
UMFERÐ 21: Heklið nú aftur í hring – heklið fl í kringum allt opið – aukið út jafnt yfir svo að það verði alls 20 fl, heklið nú fram að miðju undir maga.
UMFERÐ 22: Heklið 1 fl í hverja fl, en í 2 fl við miðju á baki eru heklaðar 2 fl = 22 fl – setjið 1 prjónamerki mitt á milli á þessum fl.
UMFERÐ 23-25: Heklið 1 fl í hverja fl.
UMFERÐ 26-29: Heklið 1 fl í hverja fl, fækkið nú um 1 l hvoru megin við prjónamerki við miðju á baki (þ.e.a.s. að fækkað er um 2 l í hverri umf). Eftir umf 29 eru 14 fl eftir.
UMFERÐ 30-33: Heklið 1 fl í hverja l, en fækkið um 1 l við miðju á baki (fellið af til skiptis á undan og á eftir prjónamerki). Eftir umf 33 eru 10 fl eftir.
UMFERÐ 34-36: Heklið 1 fl í hverja fl.
UMFERÐ 37-42: Heklið 1 fl í hverja fl, en fækkið um 1 fl fyrir miðju undir hala í öllum umf. Eftir umferð 42 eru heklaðar 4 fl til baka. Klippið frá, þræðið endann í kringum opið, herðið að og festið enda.

NEF:
Heklið 10 fl með litnum hermannagrænn í kringum opið framan á höfði. Heklið 1 umf með 1 fl í hverja fl, síðan 1 umf þar sem allar fl eru heklaðar 2 og 2 saman. Klippið frá, troðið smá vatti í nefið, snúið þráðarendanum í kringum opið, herðið að og festið.

FÓTUR:
Heklið 4 ll með litnum hermannagrænn og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 5 fl um ll-hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 10 fl.
UMFERÐ 3-6: Heklið 1 fl í hverja fl, klippið frá.
Heklið 4 alveg eins fætur. Troðið smá vatti í fæturna og saumið þær fastar neðan á búkinn.

GADDAR:
Heklið gadda á hrygginn með litnum ljós grænn með heklunál nr 3 þannig: Heklið 1 kl efst á halanum. * Heklið 3 ll, í fyrstu ll er heklaður 1 st, hoppið fram ca 1 cm og heklið 1 fl *, endurtakið frá *-* fram að byrjun á hálsi. Héðan er nú heklað þannig: * Heklið 3 ll, hoppið fram ca 1 cm og heklið 1 fl *, endurtakið fram að miðju aftan á höfði og endið á 1 kl. Klippið frá og festið enda.

Saumið út augu og munn með litnum svartur.
-------------------------------------------------------

STÓR RISAEÐLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Heklið á sama hátt og lítil risaeðla, nema með heklunál nr 4 með Paris. Höfuð, búkur og hali eru hekluð með litnum ljós fjólublár. Nef, fætur og gaddar er heklað með litnum púðurbleikur.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 24-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (48)

country flag Zuzana wrote:

Ďakujem za milý návod. Trochu som sa potrápila, lebo sa mi to celé krútilo. Prvý dinosaurus mal hlavu vzadu a chrbát na boku. Bolo to zúfalé. Pri druhom som si dávla pozor, nesledovala som návod úplne presne na očko a bolo to lepšie. Obdivujem tieto nápady na hračky, je to ťažká práca.

13.10.2023 - 11:52

country flag Kleine Dino wrote:

Dag, Vind het een moeilijk patroon om te lezen.. Ben nu bij toer 17 en daar staat 14 vasten haken keer met 1 losse haak dan heen en weer de borst maar hoe vaak moet je heen en weer haken voor de borst??

13.03.2023 - 10:53

DROPS Design answered:

Dag,

De zin over dat je dan heen en weer haakt voor de borst is als extra informatie, dus je kunt gewoon verder gaan met toer 18. Bij toer 21 staat dat je weer verder gaat in de rondte.

14.03.2023 - 20:44

country flag Dfabgnehsragvc wrote:

Cxbgrsjngd

07.12.2022 - 18:06

country flag Elyas wrote:

I am trying to complain about this poorly made tutorial but you cannot do that :) add pictures

07.12.2022 - 14:45

country flag Aaaaar wrote:

Round 4-6 what does any of this mean

25.02.2022 - 22:28

DROPS Design answered:

Dear Aaaaar, after you have worked round 3, turn and work now row 4 from WS with 1 st in each st all the row, turn and work 1 st in each st from RS (row 5), turn and work 1 st in each st all the row from WS (row 6), turn and work now round 7 (= as explained, joining with a sl st at the end of this round). Happy crocheting!

28.02.2022 - 10:58

country flag Sb wrote:

Hi I have been following the pattern as written, dc double crochet, and arrived at row 18 only to find that the filling is very exposed due to the open nature of the double crochet. when double checking with the photo it looks like a single crochet, sc throughout. Please clarify. Thanks

27.09.2021 - 23:20

DROPS Design answered:

Dear Sb, correct, the pattern is worked with double crochets UK-terminology this means single crochet in US-terminology, edit language by scrolling down the menu below the photo if needed and chosse English (US/in). Happy crocheting!

28.09.2021 - 08:07

country flag Nicole Rosanis wrote:

Toujours pas compris 8 à 14 en rod sans fermer????

14.09.2021 - 21:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rosanis, tout à fait, à la fin de chaque tour, plutôt que de terminer par 1 maille coulée dans la 1ère maille du début de ce tour, déplacez votre marqueur (pour repérer la transition des tours) et crochetez 1 maille serrée dans la 1ère maille du tour précédent et continuez ainsi jusqu'à ce que le tour 14 soit terminé, puis crochetez encore 5 mailles serrées pour que les tours commencent désormais au milieu du cou pour le tour 15. Bon crochet!

15.09.2021 - 07:13

country flag Urda wrote:

Jeg forstår ikke hekletipset: «Hver omg med fm starter med 1 lm (denne erstatter ikke første fm) og avsluttes med 1 kjm i første fm på beg av omg.» Hvis man hekler en kjm i fleste fm på begynnelsen av omgangen: vil ikke den første fm av omgangen bli forskjøvet bortover til venstre? Eller skal man strikke en kjm OG fm i første maske på beg av omg?

22.08.2021 - 22:41

country flag Eline wrote:

Bij toer 21 staat haak dan tot midden onder de buik moet je dan nog een paar toeren rondhaken? Hoeveel toeren

13.07.2021 - 19:25

DROPS Design answered:

Dag Eline,

Nee, je hoeft geen extra toeren te haken, maar je haakt na toer 21 verder tot midden onder de buik. Vanaf toer 22 haak is het begin van de toer dus steeds midden onder de buik.

20.07.2021 - 17:38

country flag Evelien Vink wrote:

Wat een leuke dino, ik ben helaas al tweemaal opnieuw begonnen, maar de borst komt bij mij op de rug te zitten… ik snap er niks van! Het lijkt mis te gaan doordat je vanuit het midden van de hals heen en weer gaat haken, dan komt de borst toch automatisch op de rug? Ik zou eigenlijk vanuit het midden van de nek heen en weer moeten haken?

15.06.2021 - 20:52