DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2465.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-908
DROPS Design: Mynstur nr ne-080
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------

Stærð: ca 22 cm á hæðina,

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
200 gr litur nr 0206, ljós beige
50 gr litur nr 3620, rauður
Afgangur af lit nr 2923, skærgulur
Afgangur af lit nr 0612, millibrúnn
Afgangur af lit nr 1101, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 fl verði 10 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2465.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GALDRAHRINGUR:
Þegar stykkið er heklað í hring er byrjað með þessari aðferð til þess að sleppa við göt í miðjunni (í stað þess að gera ll-hring): Haldið í endann á þráðinum og snúið þræðinum einu sinni í hring utan um vinstri vísifingur til þess að úr verði hringur. Haldið í hringinn með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um hana og dregið upp úr hringnum, heklið 1 ll, heklið nú fl utan um galdrahringinn. Þegar sá fjöldi fl er kominn sem þú óskar eftir,dragið í endann á þræðinum svo að hringurinn dragist saman. Festið endann á bakhlið. Haldið áfram að hekla í hring.

HEKLAÐ Í HRING:
Eftir síðustu fl í umf, haldið áfram að næstu umf með 1 fl í næstu fl (= fyrsta fl frá fyrri umf). ATH: Merkið byrjun umf með prjónamerki á milli síðustu fl í umf og fyrstu fl í næstu umf, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l með því að hekla 2 fl í næstu fl.

ÚRTAKA:
Fækkað er um 1 fl með því að hekla næstu 2 fl saman þannig: * Stingið heklunálinni í næstu fl, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, sláið uppá og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KARFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – neðst niðri á körfunni með litnum ljós beige með heklunál nr 4.
UMFERÐ 1: Heklið 8 fl um galdrahringinn. Lesið HEKLAÐ Í HRING að ofan!
UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fl í hverja fl –Lesið ÚTAUKNING að ofan = 16 fl.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í næstu fl, aukið út um 1 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í hvora af næstu 2 fl, aukið út um 1 fl *, endurtakið umf hringinn = 32 fl.
UMFERÐ 5: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, aukið út um 1 fl *, endurtakið umf hringinn = 40 fl.
UMFERÐ 6 (og síðan allar jafnar umf): Heklið 1 fl í hverja fl.
UMFERÐ 7: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 4 fl, aukið út um 1 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 fl.
UMFERÐ 9: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 5 fl, aukið út um 1 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 56 fl.
UMFERÐ 11: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 6 fl, aukið út um 1 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 64 fl.
UMFERÐ 13: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 7 fl, aukið út um 1 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 72 fl.
UMFERÐ 15: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 5 fl, aukið út um 1 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 84 fl.
UMFERÐ 17: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 6 fl, aukið út um 1 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 96 fl.
UMFERÐ 19: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 7 fl, aukið út um 1 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 108 fl.
UMFERÐ 21: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 8 fl, aukið út um 1 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 120 fl.
Heklið nú 1 fl í hverja fl þar til karfan mælist ca 16 cm á hæðina. Þegar hekluð hefur verið síðasta fl í síðustu umf, er prjónamerkið flutt að 12. fl frá heklunálinni (hægra megin við síðustu fl, lok umf = miðja framan við höfuð). Klippið ekki frá.

HÖFUÐ:
Haldið áfram að hekla 1 fl í hverja af næstu 12 fl, nú eru alls 24 fl, taldar frá l með prjónamerki.
Nú er höfuðið heklað í kringum þessar 24 l þannig: Snúðu körfunni þannig að l með prjónamerki snú að þér, heklið 1 fl í þessa fl (nú er þessi l = 1. fl í umf, látið prjónamerki fylgja með í stykkinu), haldið áfram með 1 fl í hverja af næstu 23 fl = 24 fl í umf. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Heklið nú 1 fl í hverja fl í 5 umf til viðbótar (= alls 6 umf). Fækkið lykkjum þannig:
UMFERÐ 1: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 4 fl, fellið af 1 fl – LESIÐ ÚRTAKA að ofan *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 20 fl.
UMFERÐ 2: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, fellið af 1 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 16 fl.
UMFERÐ 2: * Heklið 1 fl í hvora af næstu 2 fl, fellið af 1 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í næstu fl, felli af 1 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 8 fl.
UMFERÐ 5: Heklið allar fl í umf 2 og 2 saman = 4 fl, klippið frá. Saumið síðustu 4 fl saman með endanum.

KAMBUR:
Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 20 ll með litnum rauður.
Heklið 1 kl í 2. ll frá heklunálinni, 1 kl í hverja ll = 19 kl, snúið við.
Hoppið yfir 1. kl, í næstu kl er heklað þannig: Heklið 1 st, 1 tbst og 1 st, hoppið yfir 1 kl, 1 fl í næstu kl.
Hoppið yfir 1 kl, í næstu kl er heklað þannig: Heklið 2 st, 1 tbst og 2 st, hoppið yfir 1 kl, 1 fl í næstu kl.
Hoppið yfir 1 kl, í næstu kl er heklað þannig: Heklið 2 st, 3 tbst og 2 st, hoppi yfir 1 kl, 1 fl í næstu kl.
Hoppið yfir 1 kl, í næstu kl er heklað þannig: Heklið 2 st, 1 tbst og 2 st, hoppið yfir 1 kl, 1 fl í næstu kl.
Hoppið yfir 1 kl, í næstu kl er heklað þannig: Hekli 1 st,1 tbst og 1 st, endið með 1 kl í síðustu kl, klippið frá og festið enda.

GOGGUR:
Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 2 ll með litnum skærgulur.
UMFERÐ 1: Heklið 2 fl í 2. ll frá heklunálinni = 2 fl, snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, aukið út um 1 fl í hverja fl = 4 fl, snúið við.
UMFERÐ 3-4: Heklið 1 ll, 1 fl í hverja fl.
UMFERÐ 5: Heklið 1 ll, heklið allar fl í umf 2 og 2 saman = 2 fl.
UMFERÐ 6: Heklið 1 ll, heklið 2 fl saman = 1 fl. Klippið frá og festið enda.

STÉL:
Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 12 ll með litnum rauður, heklið nú 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hverja ll = 11 fl, snúið við. Hoppið yfir 1. fl, í næstu fl eru heklaðir 3 st, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl, hoppið yfir 1 fl, í næstu fl er heklað þannig: Heklið 1 st, 3 tbst og 1 st, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl, hoppið yfir 1 fl, í næstu fl eru heklaðir 3 st, endið með 1 kl í síðustu fl, klippið frá og festið enda.

VÆNGUR:
Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR með litnum ljós beige.
Heklið umf 1-17 eins og á körfu = 96 fl.
UMFERÐ 18: Skiptið yfir í litinn rauður og heklið þannig: * 1 fl, hoppið yfir 1 fl, 5 st í næstu fl, hoppið yfir 1 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn, klippið frá og festið enda.

BLÓM:
Stykkið er heklað í hring. Heklið 2 stk af hverju blómi.

BLÓM 1:
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll með litnum skærgulur, tengið í hring með 1 kl í 1. ll.
Heklið 1 ll, 8 fl um hringinn, endið með 1 kl í 1. fl.
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, * 1 fl í næstu fl, 3 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 3 ll og 1 kl í 1. fl (= 8 ll-bogar). Klippið frá og festið enda.

BLÓM 2:
Heklið eins og BLÓM 1, en heklið umf 1 með litnum skærgulur og umf 2 með litnum rauður.

BLÓM 3:
Heklið eins og BLÓM 1, en heklið umf 1 með litnum rauður og umf 2 með litnum skærgulur.

BLÓM 4:
Heklið eins og BLÓM 1, en heklið umf 1 með litnum hvítur og umf 2 með litnum rauður.

BLÓM 5:
Heklið á sama hátt og BLÓM 1, en heklið umf 1 með litnum skærgulur og umf 2 með litnum hvítur.

FRÁGANGUR:
Saumið kambinn efst á höfuðið, saumið stélið á aðra hliðina á körfunni. Saumið gogginn framan á höfuðið, saumið út augu með litnum millibrúnn. Leggið vænginn yfir körfuna, saumið hann á aðra hliðina. Vængurinn er notaður eins og lok yfir körfuna. Saumið blómin á körfuna og á lokið. Setjið jafnvel vatt eða pappír efst í höfuðið til þess að fylla það aðeins út.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Henny Penny

Sara, United States

Henny Penny

iiseult, France

Henny Penny

Laura, Australia

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-908

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Marion Nijman wrote:

Hallo ik ben nu bij de kop maar snap niet hoe het verder moet ik. Weer niet hoe dat zit met die 24 vasten ik kom op 12 vasten ., ik denk dat er nu rond gehaakt moet worden klopt dat verder bedankt alvast groetjes marion nijman

02.04.2024 - 12:02

DROPS Design answered:

Dag Marion,

Op midden voor van de kop zit de markeerder en aan beide kanten daarvan zitten 12 vasten waarover je de kop in de rondte haakt.

03.04.2024 - 20:26

country flag Sandra wrote:

Hej! Ska de 16 centimetrarna mätas från mitten eller från sista varvet med ökning? Mvh Sandra

06.03.2024 - 10:39

DROPS Design answered:

Hei Sandra. Fra siste omgang med økninger. Omgang 1. til 21. med økninger er bunnen, høyden på høna blir da fra siste omgang med økninger. mvh DROPS Design

11.03.2024 - 10:10

country flag Brandie Stewart wrote:

I am having a hard time working the head portion of this pattern. When starting the head, it's a new round, I move my stitch marker from its og spot to 12 SC over, then do I start from that marker and crochet 12 more SC then SC in each of those making a 14 count? Or do crochet 12 SC into the last 12 SC to make it stacked?

15.02.2024 - 20:18

DROPS Design answered:

Dear Mrs Stewart, the marker is inserted into the 12th sc before the end of the round, now work 1 sc in each of the next 12 sc = the first 12 sc at the beginning of the round and join now in the round working 1 sc in the stitch with the marker = there are 24 sc for head: 12 before marker + 12 after marker. Happy crocheting!

16.02.2024 - 07:44

country flag Ashleigh Cole wrote:

Hello, I’m making the body of the chicken and it more wide and narrow than the one on the picture. I did the same amount of stitches and everything it says in the body category, however, it is more than like a wide basket (a taco shape) than a bag (a u shape) I was wondering if you could tell me what I did wrong or how to fix it?

06.01.2024 - 03:26

DROPS Design answered:

Dear Ashleigh, firstly, if the shape is too different, it may be an issue with the gauge. Also, after finishing and assemblying the piece, you will shape as much as possible to your desired shape, so if it isn't finished yet then maybe that is the difference with the one in the photo. Happy crocheting!

08.01.2024 - 00:05

country flag Sandy wrote:

I had asked the question about working the head of the pattern. My second message indicated that I still didn't understand even with your response. BUT, I figured it out! So happy for myself. LOVING this pattern now that I figured it out. So happy with the results so far. Thank you for your help!

17.03.2023 - 03:05

country flag Sandy wrote:

Your response to my last question, unfortunately did not answer my question. Do you have a video tutorial for this pattern? I don't understand the directions for the head. It would be helpful for me to see a tutorial. I am not understanding what is meant by moving the market 12 stitches and then turning so the marker is toward me and then working in the round. I am very visual and I am just not getting how to work this step of the pattern. A video would be most helpful. Thank you.

17.03.2023 - 01:27

DROPS Design answered:

Dear Sandy, we don't have any video to that pattern sorry, the head is worked following the body part, at the end of the bordy, you moved the marker in the 12th stitch before the last stitch worked, for the head, you will now work 12 sts, these 12 sts + the 12 sts worked at the end of previous round are now a total of 24 sts and you will worke now these 24 stitches in the round, work now 1 st in each of the 24 sts starting with the first of the 12 sts worked at the end of previous round on body, and continue with 1 st in each st for 6 rounds. Hope it can help. Happy crocheting!

17.03.2023 - 08:53

country flag Sandy wrote:

Is there a video to go with this pattern? It would be helpful to see what you mean with working the head part of the pattern. Thank you.

16.03.2023 - 04:29

DROPS Design answered:

Dear Sandy, you work bottom up starting from the bottom of piece, then you will when the basket is done, you will continue in the round over 24 sts only for the head of chicken. Can this help or did I misunderstand your question?

16.03.2023 - 09:14

country flag Azé Marie wrote:

Bonsoir ; j'ai besoin d'aide : je n'arrive pas à comprendre , pour le tuto de Henny Penny , la corbeille poule , comment on arrive , pour l'aile , à partir d'un rond magique à 96 ms ; En fait , je ne sais pas comment faire cette aile !!! Merci pour votre réponse dont je sais qu'elle est rapide et aimable ; svp

31.01.2022 - 20:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Azé, pour réaliser l'aile, crochetez comme pour les tours 1 à 17 du panier en commençant par un rond magique et en beige clair. Crochetez ensuite le 18ème tour en rouge comme indiqué. Bon crochet!

01.02.2022 - 08:55

country flag Elis wrote:

Hallo liebes Drops Team, ich habe die Henny-Penny nachgehäkelt und sie tut am Frühstückstisch gute Dienste. Ich war allerdings doch überrascht, wie lange ich dafür gebraucht habe (Henne und Flügel häkeln, Blümchen häkeln, vernähen, aufnähen), es zieht sich doch. Vielen Dank für die tolle Anleitung.

07.04.2021 - 09:38

country flag Irmgard Grave wrote:

Freue ich mich dieses huhn nachzuhäkeln. vielen dank für die anleitung. werde bei tina lausch in wermelskirchen die wolle kaufen. herzliche grüße irmgard

02.03.2021 - 20:43