Evelyn |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Delight með sólfjaðramynstri, gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL
DROPS 148-37 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Mynstur A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð), sýnir allan neðri hluta peysunnar með sólfjaðramynstri, séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Neðri hluti peysunnar samanstendur af mörgum “sólfjöðrum” sem eru prjónaðar saman jafnóðum. Byrjað er neðst niðri á peysunni í þeirri röð sem sólfjaðrirnar eru númeraðar í mynstri – sjá A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð). Nýjar l eru alltaf prjónaðar upp frá réttu. SÓLFJÖÐUR 1A: Fitjið upp 61 l á hringprjóna nr 4 með Delight og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Prjónið 2 l slétt saman, 9 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 6 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 3 l sl, 2 l slétt saman = 49 l. UMFERÐ 4-7: Prjónið slétt. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 49 l. UMFERÐ 9-10: Prjónið slétt. UMFERÐ 11: Prjónið 2 l slétt saman, 7 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 4 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 3 l sl, 2 l slétt saman = 37 l. UMFERÐ 12-15: Prjónið slétt. UMFERÐ 16 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 37 l. UMFERÐ 17-18: Prjónið slétt. UMFERÐ 19: Prjónið 2 l slétt saman, 5 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 7 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 5 l sl, 2 l slétt saman = 29 l. UMFERÐ 20-26: Prjónið slétt. UMFERÐ 27: Prjónið 2 l slétt saman, 3 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 5 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 3 l sl, 2 l slétt saman = 21 l. UMFERÐ 28-29: Prjónið slétt. UMFERÐ 30 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 21 l. UMFERÐ 31-34: Prjónið slétt. UMFERÐ 35: Prjónið 2 l slétt saman, 7 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 7 l sl, 2 l slétt saman = 17 l. UMFERÐ 36-42: Prjónið slétt. UMFERÐ 43: Prjónið 2 l slétt saman, 5 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 5 l sl, 2 l slétt saman = 13 l. UMFERÐ 44-48: Prjónið slétt. UMFERÐ 49: Prjónið 2 l slétt saman, 3 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 3 l sl, 2 l slétt saman = 9 l. UMFERÐ 50-54: Prjónið slétt. UMFERÐ 55: Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl, 2 l slétt saman = 5 l. UMFERÐ 56-58: Prjónið slétt. UMFERÐ 59: Prjónið 1 sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl = 3 l UMFERÐ 60: Prjónið slétt. UMFERÐ 61: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir = 1 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum l og festið. Prjónið SÓLFJÖÐUR 2A, 3A o.s.frv í umf 1 alveg eins. HÁLF SÓLFJÖÐUR Í VINSTRI HLIÐ Á FRAMSTYKKI – SÓLFJÖÐUR 1B: Fitjið upp 31 l á prjóna og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Prjónið 2 l slétt saman, 9 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 6 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 25 l. UMFERÐ 4-7: Prjónið slétt. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 25 l. UMFERÐ 9-10: Prjónið slétt. UMFERÐ 11: Prjónið 2 l slétt saman, 7 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 4 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 19 l. UMFERÐ 12-15: Prjónið slétt. UMFERÐ 16 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 19 l. UMFERÐ 17-18: Prjónið slétt. UMFERÐ 19: Prjónið 2 l slétt saman, 5 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 7 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 15 l. UMFERÐ 20-26: Prjónið slétt. UMFERÐ 27: Prjónið 2 l slétt saman, 3 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 5 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 11 l. UMFERÐ 28-29: Prjónið slétt. UMFERÐ 30 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 11 l. UMFERÐ 31-34: Prjónið slétt. UMFERÐ 35: Prjónið 2 l slétt saman, 7 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 9 l UMFERÐ 36-42: Prjónið slétt. UMFERÐ 43: Prjónið 2 l slétt saman, 5 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 7 l UMFERÐ 44-48: Prjónið slétt. UMFERÐ 49: Prjónið 2 l slétt saman, 3 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 5 l UMFERÐ 50-54: Prjónið slétt. UMFERÐ 55: Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 3 l UMFERÐ 56-60: Prjónið slétt UMFERÐ 61: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir = 1 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum l og festið. HÁLF SÓLFJÖÐUR Í HÆGRI HLIÐ Á FRAMSTYKKI – SÓLFJÖÐUR 2B: Fitjið upp 31 l og prjónið eins og sólfjöður 1B nema spegilmynd (þ.e.a.s. í umf 3-11-19-27-35-43-49-55 og 61 er mynstrið lesið aftur á bak, byrjið með 2 l slétt saman og endið með að taka 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir – t.d. er umf 3 prjónuð þannig: Prjónið 2 l slétt saman, * 6 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l sl saman, steypið óprjónuðu l yfir *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið 9 l sl, takið 1 l eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 25 l. Fyrsta röðin með sólfjöðrum hefur nú verið prjónuð. SÓLFJÖÐUR 1C: Prjónið upp 30 l meðfram vinstri kant á SÓLFJÖÐUR 2B (séð frá réttu) – þ.e.a.s. prjónið upp 1 l í hverri rönd í garðaprjóni og ca 1 l í hverri hálfri umf og prjónið síðan upp 31 l meðfram hægri kant á SÓLFJÖÐUR 1A (séð frá réttu) = 61 l á prjóni. Prjónið nú eins og SÓLFJÖÐUR 1A en frá umf 2 (þ.e.a.s. byrjið á sl frá röngu). Prjónið SÓLFJÖÐUR 2C, 3C, 4C o.s.frv í röð 2 alveg eins – sjá staðsetningu í mynstri A.1 (munið eftir að velja mynstur fyrir þína stærð). Önnur röðin með sólfjöðrum hefur nú verið prjónuð. Prjónið SÓLFJÖÐUR 1D, 2D, 3D o.s.frv í röð 3 alveg eins – sjá staðsetningu í mynstri A.1 en þegar prjónaðar eru upp l (dæmið útskýrir sólfjöður 1D) er það gert þannig: Prjónið upp 30 l meðfram vinstri kanti á SÓLFJÖÐUR 1C (séð frá réttu), prjónið upp 1 l efst í horni á SÓLFJÖÐUR 1A og prjónið að lokum upp 30 l meðfram hægri kanti á SÓLFJÖÐUR 2c (séð frá réttu) = 61 l á prjóni. SÓLFJÖÐUR 1E: Prjónið upp 30 l meðfram vinstri kanti (séð frá réttu) á síðustu sólfjöðrinni í röð 2, að auki er prjónuð upp 1 l í horni efst á SÓLFJÖÐUR 1B = 31 l á prjóni. Prjónið nú eins og SÓLFJÖÐUR 1B en frá umf 2 (þ.e.a.s. byrjið með sl frá röngu). SÓLFJÖÐUR 2E: Prjónið upp 1 l í horni efst á SÓLFJÖÐUR 2B, prjónið nú upp 30 l meðfram hægri kanti á SÓLFJÖÐUR 1C (séð frá réttu) = 31 l á prjóni. Prjónið nú eins og SÓLFJÖÐUR 2B en frá umf 2 (þ.e.a.s. byrjið með sl frá röngu). Þriðja röðin með sólfjöðrum hefur nú verið prjónuð. SÓLFJÖÐUR 1F: Prjónið upp 30 l meðfram vinstri kanti á SÓLFJÖÐUR 2E (séð frá réttu, prjónið upp 1 l í horni efst á SÓLFJÖÐUR 1C og prjónið síðan upp 30 l meðfram hægri kanti á SÓLFJÖÐUR 1D (séð frá réttu) = 61 l á prjóni. Prjónið nú eins og SÓLFJÖÐUR 1A en frá umf 2 (þ.e.a.s. byrjið með sl frá röngu). Prjónið SÓLFJÖÐUR 2F, 3F, 4F o.s.frv alveg eins – sjá staðsetningu í mynstri A.1. Fjórða röðin með sólfjöðrum hefur nú verið prjónuð. Nú er prjónaður aflíðandi kantur með hálfum hringjum sem réttir af línuna efst uppi – meðfram þessum kanti eru síðar prjónaðar upp l fyrir berustykki. HÁLFUR HRINGUR Á MILLI SÓLFJAÐRA (SÓLFJÖÐUR 1G, 2G, 3G o.s.frv): Prjónið upp frá réttu, 61 l meðfram kanti á milli 2 sólfjaðra – þ.e.a.s. prjónið upp 1 l í hverri rönd í garðaprjóni og ca 1 l í hverri hálfri umf + 1 l mitt á milli tveggja sólfjaðra í horni efst á sólfjöður frá umf undir. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slét. UMFERÐ 3. Prjónið slétt. UMFERÐ 4: * Prjónið 3 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið með 1 l sl = 49l. UMFERÐ 5: Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 49 l. UMFERÐ 6: Prjónið slétt. UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 49 l. UMFERÐ 8-14: Prjónið slétt. UMFERÐ 15 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 49 l. UMFERÐ 16-17: Prjónið slétt. UMFERÐ 18: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl = 25 l. UMFERÐ 19-25: Prjónið slétt. UMFERÐ 26: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl = 13 l. UMFERÐ 27: Prjónið slétt. UMFERÐ 28: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl = 7 l. UMFERÐ 29: Prjónið slétt. UMFERÐ 30: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl = 4 l. UMFERÐ 31: Prjónið slétt. UMFERÐ 32: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 3 l slétt saman og steypið óprjónuðu l yfir = 1 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum l, herðið að og festið. HÁLFUR HRINGUR YST Á VINSTRA Á FRAMSTYKKI – SÓLFJÖÐUR 1H: Prjónið upp 30 l meðfram vinstri kanti (séð frá réttu) á síðustu sólfjöðrinni í röð 4, að auki er prjónuð upp 1 l í horni efst á SÓLFJÖÐUR 1E = 31 l á prjóni. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Prjónið slétt. UMFERÐ 4: * Prjónið 3 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið með 1 l sl = 25 l. UMFERÐ 5: Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 25 l. UMFERÐ 6: Prjónið slétt. UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 25 l. UMFERÐ 8-14: Prjónið slétt. UMFERÐ 15: (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 25 l. UMFERÐ 16-17: Prjónið slétt. UMFERÐ 18: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl = 13 l. UMFERÐ 19-25: Prjónið slétt. UMFERÐ 26: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl = 7 l. UMFERÐ 27-29: Prjónið slétt. UMFERÐ 30: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl = 4 l. UMFERÐ 31: Prjónið slétt. UMFERÐ 32: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 3 l slétt saman og steypið óprjónuðu l yfir = 1 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum l og festið. HÁLFUR HRINGUR YST Á HÆGRI HLIÐ Á FRAMSTYKKI – SÓLFJÖÐUR 2H: Prjónið upp 1 l í horni efst á SÓLFJÖÐUR 2e, prjónið síðan upp 30 l meðfram hægri kanti á SÓLFJÖÐUR 1F (séð frá réttu) = 31 l á prjóni. Prjónið nú eins og SÓLFJÖÐUR 1H. Fimmta og síðasta röndin með sólfjöður og hálfum hringjum hefur nú verið prjónuð. Peysan mælist nú ca 93-93-111-111-130-130 cm meðfram beina kantinum efst og ca 38 cm frá neðri brún og upp þar sem hún er lengst. BERUSTYKKI: Prjónið upp frá réttu 194-194-236-236-274-274 l á hringprjóna nr 4 með Delight, meðfram beina kantinum efst á sólfjaðrastykkinu – prjónið upp ca 1 l í hverja l (ef prjónaðar eru upp fleiri eða færri l en þetta, verður að fækka/fjölga að réttum lykkjufjölda í 1. umf frá röngu). Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 26-10-34-14-30-6 l jafnt yfir = 168-184-202-222-244-268 l. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið alls 4-8-12-12-12-12 umf í garðaprjóni eftir sólfjaðrir (stykkið mælist nú ca 39-40-41-41-41-41 cm frá neðri kanti þar sem peysan er lengst). Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 38-44-48-52-58-64 l jafnt yfir = 130-140-154-170-186-204 l. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki 33-35-39-43-47-51 l inn frá hvorri hlið (= 64-70-76-84-92-102 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Nú skiptist stykkið við bæði prjónamerkin og fram- og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 64-70-76-84-92-102 l. LESIÐ ALLAN KAFNALL ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.2 (umf 1 = rétta) JAFNFRAMT í umf 1 er fitjuð upp 1 ný l í hvorri hlið (= kantlykkja fyrir saum) = 66-72-78-86-94-104 l (kantlykkjurnar eru prjónaðar í garðaprjóni). Í næstu umf frá réttu byrjar útaukning fyrir ermar og fitjaðar eru upp 2 nýjar l í lok næstu 2 umf. Endurtakið útaukningu með 2 l í lok hverrar umf í hvorri hlið 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 útaukningar í hvorri hlið), fitjið síðan upp 20-20-20-18-18-16 l í lok næstu 2 umf = 122-128-134-138-146-152 l. ATH: Útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Eftir síðustu útaukningu er haldið áfram með mynstur eins og áður en síðustu 5 l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur á ermum). Þegar stykkið mælist 24-25-26-28-30-32 cm frá prjónamerki við skiptingu eru l í byrjun hverrar umf í hvorri hlið settar á þráð fyrir aflíðandi öxl þannig: Setjið inn 5 l alls 3 sinnum á þráðinn á hvorri hlið (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn til þess að sleppa við að klippa þráðinn frá) og setjið að lokum 33-35-37-39-43-45 l á þráðinn 1 sinni í hvorri hlið – ATH: 1. l á vinstri prjón eftir að l hafa verið settar á þráð er tekin óprjónuð, herðið á þræði og prjónið áfram. Þetta er gert til þess að koma í veg fyrir stór göt í skiptingunum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25-26-27-29-31-33 cm frá prjónamerki við skiptingu eru felldar af miðju 22-24-26-26-26-28 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 2 l í næstu umf frá hálsmáli. Þegar allar l hafa verið felldar af fyrir hálsmáli og settar á þráð fyrir aflíðandi öxl mælist stykkið ca 27-28-29-31-33-35 cm frá prjónamerki við skiptingu og upp að öxl þar sem stykkið er lengst og ca 66-68-70-72-74-76 cm frá neðri kanti þar sem stykkið er lengst. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 33-35-39-43-47-51 l. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið nú mynstur eftir A.2 (1. umf = rétta) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið JAFNFRAMT í 1. umf er fitjuð upp 1 ný l í lok umf í hlið (= kantlykkja fyrir saum) = 34-36-40-44-48-52 l. Í næstu umf frá réttu byrjar útaukning fyrir ermi og fitjaðar eru upp nýjar l í lok hverra umf frá réttu eins og á bakstykki = 62-64-68-70-74-76 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju við miðju að framan í garðaprjóni og 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hlið (= kantur á ermi). Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-26-28 cm frá prjónamerki við skiptingu (peysan mælist ca 60-62-64-65-67-69 cm frá neðri kanti þar sem peysan er lengst), setjið síðustu 6-6-8-8-8-8 l á þráð fyrir hálsmál (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn). Fellið nú af fyrir hálsmáli í hverri umf við miðju að framan þannig: 2 l 3 sinnum og 1 l 2 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 24-25-26-28-30-32 cm – stillið af eftir bakstykki, setjið l á þráð fyrir aflíðandi öxl frá hlið eins og á bakstykki. Þegar allar l hafa verið felldar af fyrir hálsmáli og settar á þráð mælist stykkið ca 27-28-29-31-33-35 frá prjónamerki við skiptingu og upp að öxl og ca 66-68-70-72-74-76 cm frá kanti að neðan þar sem stykkið er lengst. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd, þ.e.a.s. að 1. umf er prjónuð frá réttu en fitjið upp 1 nýja l í byrjun á 1. umf (í stað í lok 1. umf = kantlykkja fyrir saum) og fitjið upp nýja l fyrir ermi í lok hverrar umf frá röngu (í stað hverrar umf frá réttu). FRÁGANGUR: Setjið 48-50-52-54-58-60 l af þræði frá einu axlarstykki á hringprjóna nr 4 og prjónið þannig: Prjónið 1 umf slétt frá réttu – ATH: Til þess að koma í veg fyrir göt í skiptingunum þar sem l voru settar á þráð er þráðurinn tekinn upp á milli 2 l í skiptingunni og prjónað slétt saman með 1. l á vinstri prjóni. Fellið laust af allar l í næstu umf með sl frá röngu. Endurtakið eins á hinum axlarstykkjunum. Saumið axlarsauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. Saumið erma- og hliðasauma í eitt innan við 1 kantlykkju. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 5 l á prjóna nr 3,5 með Delight. Prjónið 1 umf slétt (= rétta) og snúið við. Næsta umf er prjónuð (frá röngu) þannig: Takið upp síðustu l í garðaprjóni efst við hálsmálið á vinstra framstykki (með rönguna að þér), prjónið fyrstu l á vinstri prjóni, steypið nýju l frá vinstra framstykki yfir þessa l og prjónið sl út umf, snúið við, prjónið 1 umf slétt yfir allar l, snúið við. Prjónið nú þannig: * Takið upp næstu l í garðaprjóni sem er síðust á vinstra framstykki (með rönguna að þér), prjónið fyrstu l á vinstri prjóni, steypið nýju l yfir þessa l og prjónið sl út umf, snúið við, prjónið 1 umf slétt yfir allar l, snúið við *, endurtakið þessar 2 umf frá *-* þar til prjónuð hefur verið upp 1 l í ca hverja l í garðaprjóni meðfram öllum framkantinum á peysunni. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið á sama hátt og vinstri kantur að framan með byrjun neðst á hægra framstykki (með rönguna að þér). Fellið að auki af fyrir 3-3-3-3-4-4 hnappagötum í hægri kanti að framan (fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í hálsmáli). Fellið af fyrir 1 hnappagat þannig: Prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið uppá prjóninn. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sólfjaðra og gatamynsturs, það efsta er staðsett ca 7-7-8-8-7-7 cm frá hálsmáli. Þau 1-1-1-1-2-2 hnappagöt sem eftir eru eru staðsett jafnt yfir á milli efsta og neðsta hnappagats. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 94 til 116 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan og prjónaðar eru einnig upp l yfir kant að framan) á hringprjóna nr 3,5 með Delight. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf í garðaprjóni er fellt af fyrir síðasta hnappagatinu yfir hinum hnappagötunum í hægri kanti að framan. Prjónið nú áfram þar til hálsmálið mælist ca 2 cm og fellið nú laust af með sl frá röngu. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (83)
Ilvajoh wrote:
Hallo, uitleg 2b nummer 19 is missing ;)
27.02.2013 - 21:49DROPS Design answered:
Ja, dat klopte. We hebben het patroon aangepast. Bedankt voor de reactie.
01.03.2013 - 09:22Elaine wrote:
The half circle patterns - row G do not appear to be right as they also end at a point. I would have expected there would be stitches left to become the base for the yoke.
18.02.2013 - 11:27DROPS Design answered:
Dear Elaine, the several decreases in each of half-circle row G will shape them to have a "straight" border where you can then pick up sts and continue body. Just follow instructions to see how it will be. Happy knitting!
19.02.2013 - 11:16Ilvajoh wrote:
Ik geloof dat ik het patroon door heb, de eerste rij met waaiers wordt elke waaier appart gebreid en de rij erboven verbindt ze met elkaar.Zoals waaier 2b-1c-1a etc. ik heb een fout gemaakt en de eerste rij aan elkaar gebreid. ik heb dit patroon verward met een ander waaiers patroon van een omslagdoek. sorry!!!
12.02.2013 - 17:34Ilvajoh wrote:
Hallo, ik begrijp dat het opzetten van steken op een breinaald moet en steken opnemen van de zijkanten van het beriwerk moet gebeuren!!! ik heb al mijn halve waaier(1b)appart gebreid en nu? hoe voeg ik de halve waaier aan de rest van de waaiers? dat staat niet goed aangegeven. sorry maar ik zie iets over het hoofd denk ik! alvast bedankt.
12.02.2013 - 14:21DROPS Design answered:
Hoi, goed dat je het hebt begrepen, het is inderdaad correct wat je schrijft. Alle "A" waaiers brei je apart.
13.02.2013 - 13:35Ilvajoh wrote:
Hallo, ik ben dit mooi vest aan breien, ik heb al de waaiers 1a-a4. ik wil nu 1b breien maar het is mij niet duidelijk als het gaat om het breien van de halve waaier(1b) er staat dat je 31 st moet opzetten op de naald er staat niet of ik de steken moet opnemen van de zijkant van waaier 4a. Al vast bedankt
10.02.2013 - 18:31DROPS Design answered:
Als er staat steken opzetten, dan zet u nieuwe steken op, zoals aan het begin van een breiwerk.
12.02.2013 - 12:29JODRILLAT wrote:
C'est le seul modèle tricot que j'ai sélectionné, tout simplement parce que je ne peux plus tricoter, j'adore la forme boléro du haut et légèrement évasé du bas, les motifs en forme de vague et puis aussi ce dégradé de couleurs
07.02.2013 - 14:47Gisela wrote:
Oh wie schön
02.02.2013 - 20:50Ilvajoh wrote:
Jammer dat dit patroon is niet uitgekozen! ik heb voor niets hierop zitten wachten omdat ik het vest erg mooi vind.
01.02.2013 - 13:59Bente Sagan wrote:
Venter bare på denne opskrift
01.02.2013 - 11:54TURGAULT wrote:
Petit gilet d'été très fantaisie, mais si joli dans ses points assez recherchés!! très bien aussi !!
24.01.2013 - 15:23