DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 147-16
DROPS Design: Mynstur w-479
Garnflokkur C + C + C
--------------------------------------------------------

Stærð:
lítil motta ca 83 cm að þvermáli
stór motta ca 125 cm að þvermáli

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
700 gr litur nr 01, apríkósa
1300 gr litur nr 01, apríkósa

DROPS HEKLUNÁL NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 8 st á breidd og 4,5 umf á hæð með 3 þráðum að Paris verði 10 x 10 cm (MYNSTUR A.1 og A.2 jafngilda 4 umf með st á hæðina).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR:
Mottuna er hægt að hekla stærri eða að óskaðri stærð.
Við erum hér með litla mottu sem er ca 83 cm að þvermáli og aðeins stærri mottu sem er ca 125 cm að þvermáli. Í minni mottuna fer ca 700 gr Paris og í þá stærri fer ca 1300 gr Paris.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í hverri umf með st byrjar umf með 3 ll. Umferðin endar á 1 kl í 3. ll í byrjun umf (sjá útskýringu í umf MYNSTUR A.1 og A.2).

MYNSTUR A.1 (deilanlegt með 4 l):
Mynstrið samanstendur af 4 umf og mynsturteikningu A.1 sýnir umf 5 og 6 í mynstri. Heklið þannig:
UMFERÐ 5: Heklið 4 ll (jafngilda 1 st + 1 ll), hoppið yfir 1 st, í næsta st er heklað 1 st + 7 ll + 1 st, 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st, heklið nú mynsturteikningu A.1 þannig: * Heklið 1 ll, hoppið yfir 1 st, í næsta st er heklað 1 st + 7 ll + 1 st, 1 ll, hoppið yfir 1 st **, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið nú 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 6: Heklið eftir mynsturteikning A.1 þannig: * Heklið 7 st í næsta ll-boga, heklið 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrsta st í byrjun umf = 12 st-hópar.
UMFERÐ 7: Heklið 1 kl í hvorn af næstu 2 st, 1 ll, 1 fl í 4. st í st-hópinn, * 7 ll, 1 fl í 4. st á næsta st-hóp *, endurtakið frá *-* alls 11 sinnum, endið á 7 ll og 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 12 ll-bogar og alls 96 l í umf.
UMFERÐ 8: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), * 1 ll, hoppið yfir 1 l, 1 st í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 48 st og 1 ll á milli hverra st (= alls 96 l í umf).

MYNSTUR A.2 (deilanlegt með 6 l):
Mynstrið samanstendur af 4 umf og mynsturteikningu A.2 sýnir umf 14 og 15 í mynstri. Heklið þannig:
UMFERÐ 14: Heklið 4 ll (jafngilda 1 st + 1 ll), hoppið yfir 2 st, í næsta st er heklað 1 st + 7 ll + 1 st, 1 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í næsta st, heklið nú mynsturteikningu A.2 þannig: * Heklið 1 ll, hoppið yfir 2 st, í næsta st, í næsta st er heklað 1 st + 7 ll + 1 st, 1 ll, hoppið yfir 2 st **, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn en síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið nú 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 15: Heklið eftir mynsturteikningu A.2 þannig: * Heklið 7 st um næsta ll-boga, heklið 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrsta st í byrjun umf = 26 st-hópar.
UMFERÐ 16: Heklið 1 kl í hvorn af næstu 2 st, 1 ll, 1 fl í 4. st í st-hópnum, * 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp, 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp, 6 ll, 1 fl í 4 st í næsta st-hóp, 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp, 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp, 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp, 7 ll o g 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 26 ll-bogar og alls 204 l í umf.
UMFERÐ 17: Heklið 3 ll (jafngildir 1 st), * 1 ll, hoppið yfir 1 l, 1 st í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 102 st og 1 ll á milli hverra st (= alls 204 l í umf).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

MOTTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

LÍTIL MOTTA:
Heklið 4 ll með heklunál nr 8 með 3 þráðum Paris og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 12 st í hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st = 24 st.
UMFERÐ 3: * Heklið 2 st í fyrsta st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 st.
UMFERÐ 4: * Heklið 2 st í fyrsta st, 1 st í hvorn af næstu 2 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 st.
UMFERÐ 5-8: Heklið MYNSTUR A.1 – sjá útskýringu að ofan.
UMFERÐ 9: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið * 2 st í fyrstu l, 1 st í hverja af næstu 7 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 108 st.
UMFERÐ 10: * Heklið 2 st í fyrstu l, 1 st í hverja af næstu 8 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 120 st.
UMFERÐ 11-13: Haldið áfram með útaukningu eins og í umf 9 og 10 (þ.e.a.s. að á undan hverri umf eru heklaðir 1 st fleiri í hvert skipti sem sem 2 st eru heklaðir í sömu l = 12 l fleiri í umf). Eftir umf 13 eru 156 st í umf.
UMFERÐ 14-17: Heklið MYNSTUR A.2 – sjá útskýringu að ofan.
UMFERÐ 18: * Heklið 2 st í fyrstu l, 1 st í hvern af næstu 16 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 216 st.
Klippið frá og festið enda.

STÆRRI MOTTA:
Ef óskað er eftir því að gera mottuna stærri er haldið áfram eftir umf 18 þannig:
Haldið áfram með útaukningu eins og umf 18, þ.e.a.s. að fyrir hverja umferð heklaður 1 st fleiri á milli skipta þar sem heklaðir eru 2 st í sömu l = 12 l fleiri í hverri umf.
Þegar stykkið nær óskaðri lengd er hekluð mynsturteikning A.2 (= 2 umf). Eftir að A.2 eru 3 síðustu umf í mottunni heklaðar þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 kl í hvorn af næstu 2 st, 1 ll, 1 fl í 4. st í st-hópnum, * 7 ll, 1 fl í 4. st í næsta st-hóp *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 7 ll og 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.
UMFERÐ 2: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), * 1 ll, hoppið yfir 1 l, 1 st í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 3: Heklið 3 ll, heklið nú 1 st í hverja l umf hringinn JAFNFRAMT er aukið út um 12 st jafnt yfir (aukið er út um 1 st með því að hekla 2 st í sömu l). Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga fyrir neðan
symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja
symbols = sýnir umferð áður en mynstur byrjar og hvernig lykkjur eiga að vera staðsettar miðað við umferðina fyrir neðan
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (109)

country flag Stinje wrote:

Guten Tag! Ich würde statt des vorgeschlagenen Garns "Paris" gerne "Bomull-Lin" verwenden. Wäre dieses für die Herstellung des Teppichs ebenso geeignet und auch robust genug? Der Teppich ist für das Badezimmer gedacht. Viele Grüße, Stinje

03.07.2023 - 15:52

DROPS Design answered:

Liebe Stinje, beide Garne könnten hier benutzt werden, am besten benutzen Sie den Garnumrechner, um die neue Garnmenge kalkulieren zu lassen. Viel Spaß beim häkeln!

03.07.2023 - 16:01

country flag Kaja wrote:

Sorry, not 6- this was fine 😊 I ment 7-th row. The beginning of it doesn't quite match the rest of the 7-th row. I'm already finishing the carpet, but just to be clear.

06.05.2022 - 17:29

DROPS Design answered:

Dear Kaja, the previous row has a fan pattern. In row 7, you form chain spaces between the center of one fan and the center of the next fan. There are 12 tr-groups from the previous row and 12 chain spaces in the 7th row. There are also 12 dc in the 4th tr in each tr-group. In total, you obtain 12 stitches (not counting the sl stitch and the 1 ch). We don't have any graphs of this row or any other that don't have their own graph already. Happy crochetting!

08.05.2022 - 19:10

country flag Kaja wrote:

I don't really get the 6-th row. Can't you just draw it?

05.05.2022 - 15:21

DROPS Design answered:

Dear Kaja, the 6th row is explained both in the text and drawn in A.1, it's the one marked with a 6 on the left. You work 7 tr in the chain space of the previous round, skip the chain stitch and 1 dc in the tr from the previous round. Repeat this the whole round. Happy crocheting!

05.05.2022 - 21:58

country flag Jana Münzner wrote:

Habe eine Frage zur Größe der Häkelnadel. Nr. 8 ist hier angegeben. Ist damit der Durchmesser in mm gemeint oder die 8 bzw. H mit dem Durchmesser 5.5mm?

31.10.2021 - 21:38

DROPS Design answered:

Liebe Frau Münzner, es handelt sich um eine Häkelnadel 8 mm - die finden Sie hier. Viel Spaß beim häkeln!

03.11.2021 - 07:33

country flag Nina wrote:

Was ist mit 3 Fäden gemeint? Häkelt man mit drei knäulen parallel?

23.03.2021 - 21:25

DROPS Design answered:

Liebe Nina, es wird also mit 1 Faden von je 3 Knäuel zusammen gehäkelt, als nur 1 wäre. Viel Spaß beim häkeln!

24.03.2021 - 07:50

country flag Lena wrote:

Hej, Är "ca 83 cm i diameter" måttet för den större eller den mindre mattan?

17.05.2020 - 09:15

DROPS Design answered:

Hej. Jag tolkar det som att det är måttet för den mindre mattan. Mvh DROPS Design

18.05.2020 - 10:47

country flag Claudia wrote:

Hallo, ich komme in Runde 8 Muster A 1 nicht weiter. Verstehe nicht was mit den Lm aus Runde 7 wird.

09.04.2020 - 19:22

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, am Ende der 7. Runde haben Sie 12 Luftmaschenbogen mit je 7 Lm + 1 fM x 11 (= 8 Maschen x 12 = 96 Maschen). Bei der 8. Runde häkeln Sie: 3 Lm (= 1. Stb), *1 Lm, überspringen Sie 1 Lm, 1 Stb in das nächste Lm*, von *bis* bis zur Ende der Runde wiederholen = es sind jetzt 48 Stb mit je 1 Lm inzwischen. Viel Spaß beim häkeln!

14.04.2020 - 09:03

country flag Kelly wrote:

Mij is even iets niet duidelijk. Als ik t kleed groter wil hebben moet ik na toer 18 gaan meerderen Tot de gewenste grootte, dat begrijp ik nog. Dan staat er dat ik volgens A2 moet haken en tussen haakjes staat er dan =2 toeren. Dat begrijp ik even niet. En hoe daarna verder. Kunt u mij misschien meer duidelijkheid geven hoe ik verder moet nadat ik de gewenste grootte heb bereikt. Dus vanaf dat er staat haak dan volgens A2. Heel graag hoor ik van u. Dankjewell. Mvg, Kelly

25.10.2019 - 00:27

DROPS Design answered:

Dag Kelly,

A.2 bestaat uit 2 toeren. (Waar 14 bij staat is de eerste toer en waar 15 bij staat is de tweede toer). De toer waar de pijl bij staat in in A.2 hoort niet bij het patroon, maar deze staat erbij zodat je kunt zien hoe je de steken in de voorgaande toer met stokjes haakt.

Als je klaar bent met A.2 haak je verder volgens patroon (toer 1 tot en met 3 volgens de beschrijving onderaan.

30.10.2019 - 11:40

country flag Christelle Van Der Merwe wrote:

Good evening, I am busy with row 10 now, but it's all wobbly. Don't know what I did wrong? Think I followed the pattern to the T. Please help!

06.08.2019 - 21:53

DROPS Design answered:

Dear Mrs Van Der Merwe, it's a bit tricky to answer you there, do you get the correct tension? Do you have the correct number of stitches? A good idea would be to bring your work to your store (or send them a picture per mail) so that they can see and assist you. Happy crocheting!

07.08.2019 - 12:52

country flag Helga Dann wrote:

Verstehe ich das richtig.....muss man zum Häkeln 3 Fäden verwenden? Also gleichzeitig von 3 Knäul Wolle arbeiten? Wenn ja, dann passt aber die gerade Wollmenge nicht, denn dann sind am Ende nur noch 2 Knäul da Vielen Dank für die Rückmeldung

28.06.2019 - 11:07

DROPS Design answered:

Liebe Frau Dann, Garnmenge stimmt, so lange Ihre Maschenprobe stimmt - am Ende können Sie den letzten Knäuel in 2 Teile oder in 3 Teile teilen. Viel Spaß beim häkeln!

28.06.2019 - 15:38