DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 145-22
DROPS Design: Mynstur nr fa-232
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
150-150-150-150-200-200 gr litur nr 604, yfir hafið
150-150-150-150-200-200 gr litur nr 910, þokumistur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 st verði 10 cm á breidd (10 umf í A.2 mælist ca 12 cm, 1 ferningur mælist ca 8 x 8 cm).
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – fyrir snúru.
DROPS PERLUTALA NR 521 (15 mm): 4 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 fyrir ferning og A.3 fyrir heklaðan kant neðst á pilsi.

BLAÐ:
1 blað = heklið 3 ll, í sömu fl eru heklaðir 2 st – en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum l, dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni, 3 ll, 1 kl í sömu fl, 1 kl í næstu fl.

KÚLA:
1 kúla = heklið 2 st um sama ll-boga – en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum l, dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

KÚLA Í BYRJUN UMFERÐAR:
Heklið 3 ll, 1 st um 1. ll-boga.

UMFERÐ MEÐ ST:
1. st í byrjun hverrar umf með st er skipt út fyrir 3 ll, heklið 1 st í hverja fl. Endið umf á 1 kl í 3. ll í byrjun umf.

UMFERÐ MEÐ FL:
Allar um með fl byrja á 1 ll (ekki talin sem 1. fl), heklið 1 fl í hvern st. Endið umf á 1 kl í 1. fl í byrjun umf.

MYNSTUR A.2 OG RENDUR:
1 mynstureining A.2 = 2 umf. Heklið til skiptis 1 umf með st og 1 umf með fl.
Heklið samtímis rendur í A.2 þannig: * Heklið 1 mynstureiningu A.2 (= 2 umf) með Fabel með litnum yfir hafið, 1 mynstureiningu (= 2 umf) með Fabel með litnum þokumistur *, endurtakið frá *-*.

ÚRTAKA:
Fækkað er um 1 st með því að hekla 2 st saman þannig: Heklið 1 st í næstu fl, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu fl alveg eins, sláið uppá og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ATH! Ekki fækka lykkjum í byrjun eða í lok umf þegar stykkið er heklað fram og til baka.
Fækkið um 1 fl með því að hoppa yfir 1 fl.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

FERNINGUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 – Heklið 4 ll með litnum þokumistur Fabel með heklunál nr 3,5 og tengið í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 8 fl um hringinn, endið á 1 kl í 1. fl í byrjun umf – LESIÐ UMFERÐ MEÐ FL.
UMFERÐ 2. Í hverja fl er heklað 1 BLAÐ – sjá útskýringu að ofan – en í síðustu fl er heklað þannig: Heklið 3 ll, í sömu fl eru heklaðir 3 st – en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin í hverri l, dragið þráðinn í gegnum allar 4 l á heklunálinni = 8 blöð.
UMFERÐ 3: Heklið 5 ll, 1 st í sama blað (= horn), * 3 ll, 1 fl í næsta blað, 3 ll, í næsta blað er heklaður 1 st, 2 ll og 1 st (= horn) *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, 3 ll, 1 fl í síðasta blað, 3 ll, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 12 ll-bogar.
UMFERÐ 4: Heklið 3 ll, 1 st um sama loftlykkjuboga, 3 ll, heklið 1 KÚLA – sjá útskýringu að ofan – um sama loftlykkjuboga, * um hvorna af næstu 2 ll-bogum eru heklaðar 2 kúlur með 2 ll millibili, um næsta ll-boga eru heklaðar 2 kúlur með 3 ll millibili (= horn) *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, í hvorn af síðustu 2 ll-bogum eru heklaðar 2 kúlur með 2 ll millibili, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 12 ll-bogar.
UMFERÐ 5: Heklið 1 ll, um 1. ll-boga er hekluð 1 fl, 3 ll og 1 fl (= horn), *** 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 3 ll, um næsta ll-boga er hekluð 1 fl, 3 ll, 1 fl (= horn) ** , endurtakið frá **-** 2 sinnum til viðbótar, endurtakið síðan frá *-* 2 sinnum til viðbótar, endið á 3 ll og 1 kl í 1. fl í byrjun umf.
UMFERÐ 6: Hekli 1 ll, um 1. ll-boga eru heklaðar 2 fl, 3 ll og 2 fl (= horn), * heklið 3 fl um hvern af næstu 3 ll-bogum, um næsta ll-boga eru heklaðar 2 fl, 3 ll og 2 fl (= horn) *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið 3 fl um hvern af síðustu 3 ll-bogum, endið á 1 kl í 1. fl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda.
Heklið alls 12-13-14-15-16-18 stk ferninga með litnum þokumistur.

FRÁGANGUR:
Heklið saman ferninga meðfram hlið þannig: Heklið með litnum þokumistur Fabel og heklunál nr 3,5, leggið ferninganna 2 og 2 ofan á hvorn annan með röngu á móti röngu, heklið 1 fl um ll-boga í horninu á báðum ferningunum, * 2 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl á báðum ferningunum *, endurtakið frá *-*, endið á 2 ll, 1 fl í ll-boga í horninu á báðum ferningunum, klippið frá og festið enda. Heklið saman alla ferninganna alveg eins í einn hring.

PILS:
Stykkið er heklað fyrst í hring og síðan fram og til baka eftir klauf. Heklið með litnum yfir hafið Fabel og heklunál nr 3,5, heklið 1 umf fl meðfram annarri hliðinni á hringnum þannig: ** Heklið 2 fl um 1. ll-boga í horninu á 1 ferningi, * 1 fl í hverja og eina af næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar (alls 3 sinnum), 2 fl um síðasta ll-boga í horni (= 16 fl hver ferningur) **, endurtakið frá **-** á hverjum ferningi = 192-208-224-240-256-288 fl í umf, endið á 1 kl í 1. fl. Heklið nú MYNSTUR A.2 OG RENDUR – sjá útskýringu að ofan – 6-6-6-6-8-6 sinnum á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM.
Í næstu umf (með st) er fækkað um 8 l – LESIÐ ÚRTAKA – jafnt yfir í umf. Endurtakið úrtöku í 4. hverri mynstureiningu A.2 á hæðina – þ.e.a.s. alltaf í umf með st – 2-3-4-4-4-4 sinnum til viðbótar, síðan í annarri hverri mynstureiningu á hæðina alls 3-2-1-1-1-3 sinnum – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 21-24-25-26-27-29 cm (síðasta umf = umf með fl) heklið stykkið fram og til baka. ATH: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á 1. umf með st. Heklið nú hverja umf með st frá réttu og hverja umf með fl frá röngu.
Þegar úrtöku er lokið eru 144-160-176-192-208-224 l eftir. Haldið áfram með A.2 og rendur fram og til baka þar til stykkið mælist ca 39-42-43-45-47-49 cm, klippið frá og festið enda.

OP/KLAUF:
Með Fabel og litnum yfir hafið, heklið meðfram opi/klauf við miðju að aftan þannig: Byrjið við prjónamerki, heklið frá réttu 36-36-38-38-40-40 fl meðfram vinstra kanti á opi/klauf. Heklið umf með fl fram og til baka þar til kanturinn mælist ca 4 cm, klippið frá og festið enda.

HEKLAÐUR KANTUR (efst á pilsi):
Með Fabel og litnum yfir hafið, heklið frá réttu kant/lista í mitti þannig: Heklið 8 fl yfir efsta kantinn yfir op/klauf, síðan 1 fl í hverja fl efst á pilsi. Í næstu umf er hekluð fl í hverja fl – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út - LESIÐ ÚRTAKA – að 151-169-181-199-217-229 fl (lykkjufjöldinn er deilanlegur með 6 + 1). Í næstu umf er heklað þannig: Heklið 1 ll, * 1 fl í næstu fl, hoppið yfir 2 fl, 5 st í næstu fl, hoppið yfir 2 fl *, endurtakið frá *-* út umf, endið á 1 fl í síðustu fl, klippið frá og festið enda. Kanturinn / listinn mælist ca 1 cm á hæð.

HEKLAÐUR KANTUR (neðan á pilsi):
Heklið með Fabel og litnum yfir hafið meðfram annarri hliðinni á hring með ferningum þannig: ** Heklið 3 fl um 1. ll-boga í horninu á 1 ferningi, * 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar (alls 3 sinnum), 3 fl um síðasta ll-boga í horni (= 18 fl hver ferningur) **, endurtakið frá **-** á hverjum ferningi = 216-234-252-270-288-324 fl alls, endið á 1 kl í 1. fl. Heklið nú mynstur A.3 þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 4 ll (þær koma í stað 1. st og 1. ll), * hoppið yfir 1 fl, 1 st í næstu fl, 1 ll *, endurtakið frá *-* - sjá mynstur A.3 -, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 1 fl um 1. ll-boga, * 1 fl í næsta st, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 5 fl), ** 9 ll, hoppið yfir næstu 5 st, 1 fl um næsta ll-boga, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar (= fl-hópur með 9 fl) **, endurtakið frá **-** umf hringinn – en þegar endurtekið er í síðasta sinn eru heklaðar 4 fl í stað 9 fl, endið á 1 kl í 1. fl í byrjun umf.
UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, * 3 ll, 9 st um næsta ll-boga, 3 ll, 1 fl í hverja af miðju 5 fl í næsta fl-hóp *, endurtakið frá *-* umf hringinn – en þegar endurtekið er í síðasta sinn er hekluð 1 fl í hvora af síðustu 2 fl í umf, endið á 1 kl í 1. fl í byrjun umf.
UMFERÐ 4: Heklið 1 ll, 1 fl í hverja og eina af fyrstu 2 fl, * 3 ll, 1 st í hvern og einn af næstu 9 st, 3 ll, 1 fl í hverja af miðju 3 fl í næsta fl-hóp *, endurtakið frá *-* umf hringinn – en þegar endurtekið er í síðasta sinn er hekluð 1 fl í síðustu fl í umf, endið á 1 kl í 1. fl í byrjun umf.
UMFERÐ 5: Heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, * 3 ll, heklið 1 st í hvern af næstu 9 st með 1 ll á milli hverra l (= 9 st og 8 ll-bogar), 3 ll, 1 fl í miðju fl í næsta fl-hóp *, endurtakið frá *-* umf hringinn – en þegar endurtekið er í síðasta sinn eru heklaðar 3 ll eftir síðasta st, endið á 1 kl í 1. fl í byrjun umf.
UMFERÐ 6: Heklið 5 ll, hoppið yfir 1. ll-boga, * heklið 1 fl um hvern af næstu 8 ll-bogum með 3 ll á milli hverra fl (= 8 fl og 7 ll-bogar), 5 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn – en þegar endurtekið er í síðasta sinn eru heklaðar 2 ll eftir síðustu fl, endið á 1 kl um 1. ll-boga í byrjun umf.
UMFERÐ 7: Heklið 1 ll, 1 fl um 1. ll-boga, * 2 ll, heklið 1 fl um hvern af næstu 7 ll-bogum með 5 ll á milli hverra fl (= 7 fl og 6 ll-bogar), 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn – en þegar endurtekið er í síðasta sinn eru heklaðar 2 ll eftir síðustu fl, endið á 1 kl í 1. fl í byrjun umf.
UMFERÐ 8: Heklið 3 ll, um hvern ll-boga er heklaður 1 st, 1 ll og 1 st, endið á 1 kl um 1. ll-boga í byrjun umf.
UMFERÐ 9: Heklið 3 ll, 4 st um sama ll-boga, * 1 fl um næsta ll-boga, 5 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf, endið á 1 fl um síðasta ll-bogann og 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Klippið frá og festið enda.

SNÚRA:
Með 1 þræði af hvorum lit og heklunál nr 4,5, heklið ll í ca 130-135-140-145-150-155 cm, snúið við og heklið 1 kl í hverja ll, klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið 4 tölur jafnt yfir í kantinn við op/klauf, notið bilið á milli st í hægri kanti fyrir hnappagöt. Þræðið snúruna í gegnum st í næst síðustu umf með st efst á pilsi.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.03.2014
HEKLAÐUR KANTUR (neðst á pilsi): UMFERÐ 8: Heklið 3 ll, um hvern ll-boga er heklaður 1 st, 1 ll og 1 st, endið á 1 kl um 1. ll-bogann í byrjun umf.

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = keðjulykkja
symbols = fastalykkja
symbols = stuðull
symbols = blað = heklið 3 loftlykkjur, í sömu fastalykkju eru heklaðir 2 stuðlar – en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum lykkjum, dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í sömu fastalykkju, 1 keðjulykkj í næstu fastalykkju.
symbols = kúla = heklið 2 stuðla í sama loftlykkjuboga – en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum lykkjum, dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni.
symbols = kúla í byrjun umferðar: Heklið 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkjuboga
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (57)

country flag Dani wrote:

Hello all at Drops Design. Love your patterns; they are fantastic and I've had a lot of fun making some of them. Please, though, one small request: would it be possible for you to print the crochet pattern diagrams with each row/round in an alternating shade? i.e. row 1 in grey, row 2 in black, row 3 in grey etc. This would greatly help both myself and, I suspect, many others in following them. I am slightly dyslexic and struggle to follow them. All the best wishes. Dani

12.02.2021 - 15:05

DROPS Design answered:

Dear Dani, thanks for your comment, for technical reasons it's not that possible, but what about highligting each row with a highlighter of different colours? This might help. Happy crocheting!

12.02.2021 - 16:32

country flag Sophie wrote:

Bonjour, Pour la partie Jupe, le point fantaisie A.2 en suivant les RAYURES est-il bien 1 rang = (1 tour de B puis 1 tour de ms) en Fabel vue sur la mer, puis la même chose en Fabel brume océane ? Si oui, comment je place chaque couleur de fil entre chaque rang ? Merci pour votre réponse.

21.12.2020 - 10:59

DROPS Design answered:

Bonjour Sophie, c'est bien ça, on crochète 2 tours/rangs d'une couleur puis 2 tours/rangs de l'autre. Laissez le fil de la couleur non utilisée sur l'envers de l'ouvrage et changez de couleur lors de la dernière maille coulée du tour précédent. Quand vous reprenez la couleur de la rayure précédente, ne tirez pas trop sur le fil pour ne pas resserrer l'ouvrage à ce niveau. Bon crochet!

21.12.2020 - 14:10

country flag Sophie wrote:

Bonsoir. J'ai fait les carrés que j'ai assemblée en rond en les positionnant envers contre envers, comme indiqué. Je suis étonnée de voir que la couture d'assemblage des carrés est en relief. Du coup je ne sais pas de quel côté doit être ce raccord en relief : à l'intérieur ou à l'extérieur de la jupe, car je crains qu'ils s'accrochent et que cela abîme la jupe. Pouvez-vous me dire si ces raccords en relief sont à l'intérieur ou à l'extérieur de la jupe please? Merci

05.11.2020 - 22:43

DROPS Design answered:

Bonjour Sophie, l'assemblage des carrés se fait sur l'endroit (on pose les carrés envers contre envers). Si vous préférez une transition plate, vous pouvez les coudre si cela vous convient davantage. Bon crochet!

06.11.2020 - 08:26

country flag Elena wrote:

Hello i have started this lovely model, in round 3 of square, what means 1 dc in same leaf ? where should the hook be entered? in last stitch of petal? in the middle of petal? Many thanks

11.01.2019 - 22:39

DROPS Design answered:

Dear Elena I would enter the hook into the middle of the petal. Happy Crafting!

12.01.2019 - 15:42

country flag Natasja wrote:

Als ik het rok gedeelte begin met de stokjes en vasten boven de granny's keer ik dan ook mijn werk telkens of blijf ik in de rondte werken naar boven toe?

19.10.2018 - 22:44

DROPS Design answered:

Dag Natasja,

Het staat niet duidelijk aangegeven in het patroon of je al dan niet het werk moet keren, maar als je de foto bekijkt, zie dat dit wel de bedoeling is, omdat de kleur verspringt midden achter. Het werk blijft ook beter in model als je steeds midden achter keert.

20.10.2018 - 16:53

country flag Aune wrote:

Hola, Tengo problemas al realizar la primera vuelta in la parte de ma falda (puntos vajos alrededor del aro). Como se ve en la figura A1, cada cuadrado tiene 13 puntos y dos cadenas. Las instrucciones dicenn de hacer 2 pb en la esquina + ( 1 pb en el siguiente pb + 1 pb en el siguiente pb + 2 pb en el siguiente pb) x tres veces + 2 pb en la esquina. Esto significa que solo se pone pb en 9 puntos y 2 esquinas. Qué pasa con los demas 4 puntos que tiene el cuadrado?

14.08.2018 - 03:44

DROPS Design answered:

Hola Aune. Ajustamos el lado de cada cuadrado para formar el borde inferior de la falda, es decir, trabajamos en las dos esquinas y en los 9 puntos bajos centrales del cuadrado. Como trabajamos 2 puntos bajos en el mismo punto en cada 3er punto bajo, tenemos al final 16 puntos bajos sobre cada cuadrado. Los otros 4 puntos del cuadrado se saltan para no hacer el borde de la falda demasiado ancho.

18.09.2018 - 10:50

Aune wrote:

Hello! I am a bit confused when starting the skirt part. Currently each side has 13 sc and 2 corner spaces so I do not get the indicated 16 sc per square. Instead I have 20 because I have to do the repeat *-* 4 times instead of 3. Where is that I am interpreting it wrongly? Do I have to skip the 2 sc that are already in the corners from previous round?

06.06.2018 - 22:27

country flag Anna wrote:

Hvor finner jeg diagram A2?

07.03.2018 - 12:57

DROPS Design answered:

Hej Anna, A2 står beskrevet øverst i opskriften sammen med striberne: MØNSTER A.2 OG STRIPER: 1 rapp A.2 = 2 omg/rader. Hekle vekselvis 1 omg/rad med st og 1 omg/rad med fm. Det hekles samtidig striper i A.2 slik: * Hekle 1 rapp A.2 (= 2 omg/rad) i Fabel havutsikt, 1 rapp (= 2 omg/rad) med Fabel havbrus *, gjenta fra *-* oppover.

07.03.2018 - 16:22

country flag Liesbeth wrote:

Verduidelijking op vorige vraag. toer 6 van vierkant = in 1e l-lus 2v, 3l en 2v (= hoek), * haak 3 v in elke van de volgende 3 l-lussen, haak in volgende l-lus 2v, 3l en 2v * Dat is dus een kant van het vierkant, na de eerste 3 l en tot de laatste 3l, De vasten daarvoor en daarna zijn om de hoek. Dan kom ik dus op 2v, 3x 3v en 2v = 13v per vierkant. Als ik dan de instructies van de rok opvolg heb ik teveel steken te vullen tot de hoek of ik moet de 2v in elke hoek overslaan

07.09.2014 - 19:52

DROPS Design answered:

Hoi Liesbeth. Je leest het als volgt (en vergeet niet de vasten die je in de lossenlus maakt): 2 v in 1e l-lus in hoek op 1 vierkant, * 1 v in elke van de volgende 2 v, 2 v in de volgende v *, herhaal van *-* nog 2 keer (3 keer in totaal), 2 v in laatste l-lus in hoek (= 16 v per vierkant) of = 2 + 4 + 4 + 4 + 2 = 16.

09.09.2014 - 12:05

country flag Liesbeth Jacobs wrote:

Ik heb een vraag over het haken van de rok. in het patroon staat: haak 1 toer v langs de ring van vierkantjes...... (= 16 v per vierkant). als ik alle vasten tel die ik dan moet maken kom ik echter op 20. moet ik misschien de 2v in de hoeklus van de laatste toer van het vierkant niet meetellen, of moet ik niet meerderen zoals in het patroon geschreven staat?

25.08.2014 - 21:44

DROPS Design answered:

Als ik de v optel, kom ik op 16 precies dus ik zie geen fout. Kunt u aangeven hoe u op 20 komt?

01.09.2014 - 17:11