DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Candy

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Safran í garðaprjóni, löngum lykkjum og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL

DROPS 147-8
DROPS Design: Mynstur nr e-208
Garnflokkur A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
100-100-100-100-100-150 gr litur nr 12, ferskja
100-100-100-100-100-150 gr litur nr 13, kóral
100-100-100-100-100-150 gr litur nr 55, kirsuber
50-50-100-100-100-100 gr litur nr 02, millibleikur
100-100-150-150-150-150 gr litur nr 21, beige
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 10, vanillugulur
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 11, skærgulur
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 20, rústrauður

DROPS PRJÓNAR NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 17 umf í mynstri eftir mynsturteikningu A.1/A.2 með 2 þráðum verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5 (40 cm) – fyrir hálsmál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ATH: Til þess að koma í veg fyrir að hliðarnar verði og stífar þegar mynstrið er prjónað, verður í hverri umf með löngum lykkjum að slá 2 sinnum uppá prjóninn áður en kemur að kantlykkju í hvorri hlið (í stað 1 sinni). Báðir uppslættirnir eru látnir falla niður í næstu umf.

RENDUR:
Skipt er um lit í hverri umf merktri með ör í mynstri A.1 og A.2. Rendur eru prjónaðar í eftirfarandi röð:
A.1:
1 þráður rústrauður + 1 þráður kóral
1 þráður kóral + 1 þráður ferskja
2 þræðir kóral
1 þráður kóral + 1 þráður ferskja
1 þráður ferskja + 1 þráður kirsuber
1 þráður kirsuber + 1 þráður millibleikur
2 þræðir kirsuber
1 þráður kóral + 1 þráður millibleikur

A.2:
1 þráður millibleikur + 1 þráður beige
2 þræðir beige
1 þráður beige + 1 þráður skærgulur
1 þráður beige + 1 þráður vanillugulur

MÆLING:
Vegna lögunar á peysunni verður að mæla stykkið þegar því er haldið uppi, annars verður peysan of löng miðað við mælingu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

FRAMSTYKKI:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA!
Fitjið upp 63-69-75-83-91-99 l á prjóna nr 6 með 1 þráð í litnum rústrauður + 1 þráð í litnum kóral. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 2-2-3-3-4-4 cm. Prjónið nú MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (1. umf = rétta), JAFNFRAMT eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
ATH: Mynsturteikningu A.1 er endurtekið 2 sinnum á hæðina (þar til rendur í A.1 hafa verið prjónaðar). Eftir A.1 er skipt yfir í 1 þráð í litnum millibleikur + 1 þráð í litnum beige. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm – LESIÐ MÆLING. Prjónið nú mynstur eftir A.2 JAFNFRAMT er haldið áfram með RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar rendur í A.2 hafa verið prjónaðar er haldið áfram með mynstur með lit frá síðustu rönd (1 þráður beige + 1 þráður vanillugulur) til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm – munið eftir MÆLING, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (merkir dýpt á handveg). Þegar stykkið mælist 48-50-52-52-54-56 cm fellið af miðju 21-21-23-23-25-25 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af í byrjun hverrar umf frá hálsmáli: 2 l 1 sinni og 1 l 1 sinni = 18-21-23-27-30-34 l eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm, prjónið 2 umf garðaprjón og fellið laust af, stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm.
Endurtakið á sama hátt á hinni öxlinni.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki. Merkið dýpt á handveg eins og á framstykki. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið nú af miðju 25-25-27-27-29-29 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi = 18-21-23-27-30-34 l eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm eru prjónaðar 2 umf garðaprjón áður en fellt er laust af.
Endurtakið á sama hátt á hinni öxlinni.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma.

ERMI:
Prjónið upp frá réttu 45-47-51-53-57-59 l á milli 2 prjónamerkja í annarri hliðinni á peysunni á prjón nr 6 með 1 þræði í litnum vanillugulur + 1 þræði í litnum beige. ATH: Ef prjónaðar eru upp fleiri eða færri l en þetta er lykkjufjöldinn jafnaður út í 1. umf.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA!
Prjónið MYNSTUR eftir A.2 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan, en byrjið efst í mynstri (1. umf = ranga) og í öfugri röð í litum í röndum, prjónið að neðan svo að byrjað er með litnum vanillugulur efst á ermi og prjónað niður að litnum rústrauður. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir í 1 þráð í litnum kirsuberjar + 1 þráð í litnum millibleikur og haldið áfram með A.1 og RENDUR á sama hátt (byrjið efst í mynstri og öfuga röð í röndum). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2-2-3-3-4-4 cm frá prjónamerki er fækkað um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 9-7-5½-4½-3½-3 cm millibili, 4-5-6-7-8-9 sinnum til viðbótar (= alls 5-6-7-8-9-10 fækkun) = 35-35-37-37-39-39 l. Prjónið þar til ermin mælist 47-46-45-44-42-40 cm frá prjónamerki – munið eftir MÆLING. Prjónið 4 umf garðaprjón með 1 þráð í litnum dökk bleikur + 1 þráð í litnum rústrauður og fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt yst í lykkjubogann.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 70 til 85 l í kringum hálsmál á hringprjóna nr 5 með 1 þráð í litnum vanillugulur + 1 þráð í litnum beige. Prjónið 1 umf br og 1 umf sl, fellið síðan laust af með br.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.02.2013
Nýtt efnismagn: DROPS SAFRAN frá Garnstudio: 100-100-150-150-150-150 gr litur nr 21, beige

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = slétt lykkja frá röngu
symbols = 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er lykkjan prjónuð slétt og uppslátturinn er látinn falla niður (= löng lykkja)
symbols = skiptið um lit
symbols = skiptið um lit þegar mynstrið er endurtekið
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (104)

country flag Anne-Karin wrote:

Hei. Hvor mye garn går det med til denne hvis den strikkes i ensfarget. I 110 i omkrets

26.03.2014 - 17:51

DROPS Design answered:

Hej Anne-Karin. Jeg har ikke den praecise maengde, men en ensfarvet genser i Safran bruger ca 250-350 gr 27.03.2014 - 16:17

country flag Susan England wrote:

Can you say what the measurements are on this pattern- not shown

07.03.2014 - 16:10

DROPS Design answered:

Dear Mrs England, you will find at the very end of the pattern (under diagrams) a measurement chart with all measures in cm, taken flat, from side to side. Happy knitting!

07.03.2014 - 16:48

country flag Christin Hübsch wrote:

Ich habe denn Pulli mit der 6er Nadel gemacht. In der Breite komm ich gut hin aber in der Länge wird ee viel zu kurz. Strick ich aber lockerer wird es zu breit. Was kann ich tun?

22.08.2013 - 21:10

DROPS Design answered:

Liebe Christin, wenn die Breite stimmt ist shcon viel gewonnen. Die Länge können Sie durch ein paar zuätzliche Reihen anpassen.

23.08.2013 - 08:33

country flag Susanne Wagner wrote:

Die Wolle ist ein Traum und die Farbkombinationen sind wunderschön gewählt. Ich habe den Pulli in Größe M gestrickt, leider musste ich je 1 Knäuel beige und rosa nachbestellen, obwohl die Maschenprobe korrekt war. Jetzt kann es endlich weiter gehen :)

14.08.2013 - 10:03

country flag Birgitte wrote:

Jeg stiller samme spørsmål som Sara fra Sverige;etter to omganger med A1 skal det strikkes glattstrikk med beige og rosa. Hos meg blir det 8 cm glattstrikk. Kan det stemme ? Ser ikke slik ut på bildet. Jeg har sjekket at strikkefastheten stemmer.

24.06.2013 - 18:51

DROPS Design answered:

Hej Birgitte. De kan ikke blive 8 cm glattstrikk med den rette strikkefasthed. Afhaengigt af hvilken str du strikker. Feks str S har du ca 2 cm glattstrikk og str XXXL ca 5 cm. (2 gentagelser af A.1 med den rette strikkefasthed: 52 p / 17 p = ca 30 cm i höjden) + 2-4 cm riller. God fornöjelse videre.

03.07.2013 - 11:43

country flag Sirpa Heiskala wrote:

Raidoituksen sanastosta mitä tarkoittaa 2 kertainen väri ja 1 kertainen esim. koralli + vaalea roosa ja vielä aloitetaanko raidoitus milä värillä

05.06.2013 - 17:56

DROPS Design answered:

Nämä ovat raidoituksen väriyhdistelmät. Eli yhdistät esim. korallin ja vaalean roosan värisen langan. Raidoitus alkaa väriyhdistelmällä ruosteenpunainen ja koralli.

10.06.2013 - 18:32

country flag May Halonen wrote:

Hvis man skal spille Candy modellen i ensfarget i str L og med Safran; hvor mye garn medgår det da.

21.05.2013 - 21:47

DROPS Design answered:

Hej May. Gaa ud fra totalen her i opskriften eller spörg om raad i din butik.

20.06.2013 - 12:12

country flag Marguerite Denizet wrote:

Bonjour, Je souhaiterai faire ce modèle en drops LACE en taille S en couleur unique. Combien ai-je besoin de pelotes/grammes ? Car 600g de LACE me semblent beaucoup pour ce modèle dans cette taille. Merci pour votre retour, Bien cordialement, Marguerite

16.05.2013 - 17:50

DROPS Design answered:

Bonjour Marguerite, Lace appartient au même groupe que Safran, et peut être une bonne alternative pour des châles par ex, mais peut-être pas pour un pull (même groupe mais différences tension et métrage/poids). Nous allons en parler avec l'équipe Design. Merci.

17.05.2013 - 10:27

country flag Petra E. wrote:

Nadelstärke 5 habe ich genommen.

27.03.2013 - 09:56

country flag Petra E. wrote:

Thema Nadelstärke: ich habe zuerst mit Nadelstärke 6 gearbeitet, dadurch wurde der Pulli viel zu breit. Mit Nadelstärke hat es super hingehauen, nur brauchte ich ein paar Reihen mehr als angegeben. Ich habe 10 Reihe rosa-beige glatt rechts zwischen A1 und A2 gestrickt und zwischen A2 und dem Halsausschnitt 4 Reihen glatt rechts beige-vanille. Das nur zur Info.

27.03.2013 - 09:55