Blue Lagoon |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk með röndum, berustykki og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 146-9 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l sl saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. RENDUR: Sjá mynsturteikningu A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað er haldið áfram með lit í síðustu rönd til loka (þ.e.a.s. 1 þráður BabyAlpaca Silk (BAS) + 1 þráður natur Kid-Silk (KS). MYNSTUR (á við um berustykki): Sjá mynsturteikningu A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð). LASKALÍNA: Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki. Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 142-160-174-194-210-228 l á hringprjóna nr 4 með 1 þræði litur gráblár BabyAlpaca Silk (BAS) + 1 þræði af litur gráblár Kid-Silk (KS). Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 71-80-87-97-105-114 l (= hliðar). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. Þegar stykkið mælist 7 cm er lykkjum fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 2½ cm millibili, 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 úrtökur) = 118-136-150-170-186-204 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12-13-14-15-16-17 cm prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 25 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 2-2½-3-3-3½-3½ cm millibili, 4 sinnum til viðbótar (= alls 5 útaukningar) = 138-156-170-190-206-224 l. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm fellið af miðju 8-8-8-8-10-10 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 4-4-4-4-5-5 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 61-70-77-87-93-102 l eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 38-40-40-42-42-44 l á sokkaprjóna nr 4 með 1 þræði litur gráblár BabyAlpaca Silk (BAS) + 1 þræði litur gráblár Kid-Silk (KS). Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 4-3½-2½-2½-2-2 cm millibili, 7-8-10-10-12-13 sinnum til viðbótar (= alls 8-9-11-11-13-14 útaukningar) = 54-58-62-64-68-72 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-10-9-9-8-8 cm prjónið RENDUR eins og á fram- og bakstykki. Stykkið mælist 38-38-37-37-36-36 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af 8-8-8-8-10-10 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 4-4-4-4-5-5 l hvoru megin við prjónamerki) = 46-50-54-56-58-62 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki = 214-240-262-286-302-328 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli erma og fram- og bakstykkis (= 4 prjónamerki). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og RENDUR eins og á fram- og bakstykki yfir allar l. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í fyrstu umf fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf, 0-1-1-1-1-3 sinnum til viðbótar (= alls 1-2-2-2-2-4 l úrtökur fyrir laskalínu) = 206-224-246-270-286-296 l. Prjónið 1-1-2-2-3-2 cm sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 8-4-4-6-0-10 l jafnt yfir í síðustu umf (fækkað er með því að prjóna 2 l slétt saman) = 198-220-242-264-286-286 l. Prjónið nú mynstur eftir A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð). Þegar A.2 hefur verið prjónað eru 126-140-154-144-156-156 l á prjóni. Prjónið 1-1-1-2-2-2 cm sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 6-10-14-4-6-6 l jafnt yfir í síðustu umf = 120-130-140-140-150-150 l. Næsta umf er prjónuð þannig: *Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Haldið áfram með sléttprjón. Þegar stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki (peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti), fækkið um 22-28-34-30-36-32 l jafnt yfir = 98-102-106-110-114-118 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf brugðið. Klippið frá. Setjið 1 prjónamerki við miðju framan á framstykki. Prjónið nú upphækkun í hnakka fram og til baka með stuttum umferðum þannig: Byrjið á 24-24-25-26-27-27 l á eftir prjónamerki frá réttu og prjónið sl þar til eftir eru 24-24-25-26-27-27 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni, snúið við. Prjónið sl þar til eftir eru 29-29-30-32-33-33 l á undan prjónamerki, snúið við og prjónið sl þar til eftir eru 29-29-30-32-33-33 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til eftir eru 34-35-35-38-39-39 l á undan prjónamerki, snúið við og prjónið sl þar til eftir eru 34-35-35-38-39-39 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til eftir eru 40-41-41-44-46-46 l á undan prjónamerki, snúið við og prjónið sl þar til eftir eru 40-41-41-44-46-46 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Klippið frá. Byrjið við miðju að aftan og prjónið 2 umf garðaprjón hringinn yfir allar l, fellið nú af. Berustykkið mælist ca 16-17-18-19-20-21 cm við miðju að framan og öll peysan ca 56-58-60-62-64-66 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (35)
Camilla wrote:
Sommarminne
11.12.2012 - 23:44Rivemale wrote:
J'ai envie de la porter
11.12.2012 - 10:00Ann wrote:
Kjempeflott og stilig med fine fargekombinasjoner og mønster.
10.12.2012 - 20:05Elisabeth wrote:
WOW den er flot flotte farver rigtig sommerli
10.12.2012 - 18:34Kari Anna wrote:
Kjempefine
10.12.2012 - 14:54