DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
DROPS Vienna
DROPS Vienna
91% Mohair, 9% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 141-23
DROPS Design: Mynstur nr ne-100
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: Ein stærð

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
100 gr litur nr 0500, ljós grár
Og einnig:
DROPS VIENNA frá Garnstudio
50 gr litur nr 21, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 l og 23 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

HÁLSKLÚTUR:
Stærð: Ca 26 cm á breidd x 150 cm á lengd.

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
300 gr litur nr 0500, ljós grár
Og einnig:
DROPS VIENNA frá Garnstudio
50 gr litur nr 21, natur

DROPS PRJÓNAR NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

VETTLINGAR:
Stærð: Ein stærð

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
100 gr litur nr 0500, ljós grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 l og 23 umf með sléttprjóni með Nepal verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
DROPS Vienna
DROPS Vienna
91% Mohair, 9% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A-1 fyrir húfu og vettlinga og A-2 og A-3 fyrir hálsklút. Mynsturteikning sýnir 1 mynstureining af mynstri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna / sokkaprjóna.

HÚFA:
Fitjið upp 84 l á hringprjóna nr 3,5 með Nepal. Prjónið 1 umf slétt og síðan 6 umf stroff = 2 l sl, 2 l br. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og haldið áfram með mynstur A-1 (= 7 mynstureiningar hringinn). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A-1 er lokið eru 28 l eftir á prjóni, prjónið 1 umf þar sem allar l eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 14 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að.

DÚSKUR:
Gerið 1 stóran, þéttan dúsk með Vienna ca 10 cm að þvermáli. Festið hann efst á húfuna.

-------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í tveimur stykkjum fram og til baka og saumað saman við miðju í lokin.

HÁLSKLÚTUR:
Fitjið upp 5 l á prjóna nr 5,5 með Nepal. Prjónið og aukið út eftir A-2 (1. umf = ranga). Þegar A-2 hefur verið prjónað eru 43 l á prjóni og stykkið mælist ca 20 cm. Haldið áfram (1. umf = ranga) þannig: Prjónið 3 l í garðaprjóni, A-3 þrisvar sinnum á breiddina, síðan er fyrsta l prjónuð með A-3 einu sinni til viðbótar og 3 síðustu l eru prjónaðar í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið A-3 þar til stykkið mælist ca 75 cm – endið eftir einn heilan mynsturbekk, prjónið nú 2 umf slétt yfir allar l. Geymið stykkið og prjónið annað stykki á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman bæði stykkin með lykkjuspori.

DÚSKAR:
Gerið 2 stóra, þétta dúska með Vienna ca 8 cm að þvermáli. Festið einn í hvorum enda á hálsklútnum.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

VETTLINGUR:
Fitjið upp 36 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Nepal, prjónið 1 umf slétt, haldið áfram með stroff = 2 l sl, 2 l br í 10 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: * Prjónið 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* út umf. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og haldið áfram með mynstur A-1 (= 3 mynstureiningar hringinn). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í fyrstu l í umf (= þumallykkja). Þegar prjónaðir hafa verið 2 cm af A-1, byrjar útaukning fyrir þumal. Aukið er út í hvorri hlið við þumallykkjur með því að gera slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 3 sinnum til viðbótar – aukið út hvoru megin við allar þumallykkjur í hvert skipti, þ.e.a.s. að í næsta skipti er aukið út hvoru megin við 3 l, síðan 5 l o.s.frv. – útauknu l eru prjónaðar í sléttprjóni. Eftir útaukningu eru 9 þumallykkjur og 44 l alls á prjóni. Þegar prjónaðir hafa verið 6 cm af A-1, setjið 9 þumallykkjur á þráð, í næstu umf eru fitjuð upp 1 ný l yfir þráðinn = 36 l. Prjónið þar til A-1 er lokið, nú eru 12 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf þar sem allar l eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að.

ÞUMALL:
Setjið l af þræði fyrir þumal á sokkaprjóna nr 4,5 og takið upp að auki 3 l í kanti aftan við þumal = 12 l. Prjónið sléttprjón hringinn í 5 cm, síðan eru allar l prjónaðar saman 2 og 2 = 6 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að.

Prjónið annan vettling á sama hátt.

Mynstur

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = KÚLA: Prjónið 4 lykkjur í 1 lykkju með því að prjóna í annað hvert skipti framan og aftan í lykkjubogann, prjónið 4 umferðir sléttprjón með rönguna út fram og til baka yfir þessar 4 lykkjur, lykkjurnar eru nú á hægri prjóni, steypið annarri lykkju yfir fyrstu lykkju, þriðju lykkju yfir fyrstu lykkju og að lokum fjórðu lykkju yfir fyrstu lykkju.
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Margaret wrote:

Please help me with A3. I have watched the video several times and correlated the stitches writing them on my printed pattern, but I can't seem to get past Row 4. Your video indicates ending row 4 with P2, K2. However, row 4 on my piece ends with P2 and 3 remaining stitches. I have looked at the previous comments regarding the 43 stitches, but it doesn't make sense.

02.11.2016 - 14:12

DROPS Design answered:

Dear Margaret, when working A.3 you will work the white squares in stocking st = K from RS and P from WS and the black dot in reverse stocking st = P from RS and K from WS. 1st row in A.3 is worked from WS = P from Ws, then row 2 = K from RS, row 3 P from WS, row4: K2,P2,K2,P2 ..., row5: K over K and P over P, row 6: P2,K2... Row 7: K over K and P over P etc... Happy knitting!

02.11.2016 - 15:49

country flag Margaret wrote:

Thank you so much, I can stop practising now. It makes perfect sense. I'm learning all the time.

01.11.2016 - 10:05

country flag Margaret wrote:

Hello! Please help me with the 'Bobble' stitch in A3. (i) Do I work the 4 stitches into a purl or knit stitch? I assume it is a purl stitch. (ii) If there is a yarn over between each loop, that is effectively increasing the number of stitches, so how many stitches should there be on the needle? The diagram explanations refer to only 4 stitches. I can achieve 4 stitches if I don't include the 'yarn over'. (iii) What does 'reverse stocking stitch' mean? Thank you, Margaret

31.10.2016 - 16:07

DROPS Design answered:

Dear Margaret, the video below shows how to work A.3, ie from time code 10:00 how to work the bobble. You will work 4 times same st, work front and back loop of same st 2 times in total = 4 sts in one. Then work 4 rows stocking st on these 4 sts and psso the 3 sts one by one until 1 st remain. Happy knitting!

31.10.2016 - 16:33

country flag Maj-britt wrote:

Jeg har problemer med diagram A2, man skal starte med 5 masker, men hvordan får jeg det til at gå op med de to slå om huller der skal være, det ender med jeg har et ulige antal på hver side af hullerne ?

06.01.2016 - 20:34

DROPS Design answered:

Hej. På rad två stickar du: rm, rm, slå om, rm, slå om, rm, rm. Lycka till!

13.01.2016 - 08:27

country flag Carine wrote:

Bonjour, je suis débutante en knitting et j'ai un peu de mal avec le diagramme A2. Je l'avais presque terminer quand je me suis rendu compte que les trous des jetés de droite était plus grosse que celle de gauche. *comment faire une jeté en envers et comment savoir si au rang suivant je dois tricoter la jeté en l'endroit ou à l'envers. *serait-il possible d'avoir une explication m.end m.env des rangs 6 à 10 du diagramme ? ex: rang1: 5env

25.01.2015 - 03:10

DROPS Design answered:

Bonjour Carine, vous pouvez vous exercer sur un échantillon - les trous formés par les jetés sont atténués en les tricotant torse au rang suivant et au blocage (1er lavage). Un carré noir dans le diag = 1 m end sur l'env (cf légende), au 1er rang de A.2 (= Sur l'env), on tricote 5 m end, au rang 2: 2 m end, 1 jeté, 1 m end, 1 jeté, 2 m end et ainsi de suite. Pour toute assistance individuelle, merci de bien vouloir vous adresser à votre magasin DROPS ou au forum DROPS. Bon tricot!

26.01.2015 - 10:10

country flag Louise wrote:

Voor de muts en het patroon (A1). Leest men voor de eerste ronde vanonder rechts naar links. De tweede ronde, leest men dan van links naar rechts, of van rechts naar links?

30.11.2014 - 20:20

DROPS Design answered:

Hoi Louise. Je breit in de rondte, dus elke rij lees je van rechts naar links. Je begint rechtsonder. Je kan hier ook lezen hoe je onze telpatronen moet lezen.

01.12.2014 - 14:48

Angela Martinez wrote:

En el diagrama A3 hay un pto que dice que pasar un pto por encima,que trabajar en un solo pto,no entiendo ese pedacito,me podria decir si hay un video en donde pueda ver ese ejemplo

21.12.2013 - 05:04

DROPS Design answered:

Hola Angela. Aquí tienes el video:

04.01.2014 - 18:04

country flag Gracia wrote:

El diagrama muestra las vueltas impares,el lado derecho las pares o sea el reves se hacen segun se presentan los puntos

12.12.2013 - 17:15

DROPS Design answered:

Hola Gracia! El diagrama muestra todas las filas/vueltas. Se lee de diferente manera si se trata de la bufanda o del gorro, el gorro se trabaja en redondo y solo se trabaja por el lado derecho. La bufanda (de ida y vuelta) se trabaja una fila por el lado derecho y una fila por el lado revés. Cómo trabajar cada punto (cuadrado en el diagrama) se explica antes del diagrama.

17.12.2013 - 11:10

country flag S G wrote:

Det kan virke som om det er noe galt med oppskriften. Både lue, skjerf og votter passer bedre til barn enn voksne fordi det blir så smått.

02.11.2013 - 17:55

DROPS Design answered:

Sørg for at du har 18 m på 10 cm til lue og votter. Til skjerfet må du ha 16 m på 10 cm. Hvis strikkefastheden overholdes får du samme mål som i oppskriften.

04.11.2013 - 11:34

country flag Ashley wrote:

Can you please clarify A3? I don't understand how repeating the first stitch solves the additional stitch issue. When I repeat the first stitch, my "blocks" (first pattern of A3) do not line up because you repeat the first stich at the end on every row which means the following row moves by one stich. Thank you.

29.10.2013 - 04:30

DROPS Design answered:

Dear Ashley, seen from RS, you will finish row with 1st st in A.3 (1st "line" at the right of the diag), from WS, start with that line before reading next repeat starting from the left towards the right. Happy knitting!

29.10.2013 - 09:30