DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14850.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 140-22
DROPS Design: Mynstur nr z-619
Garnflokkur A + A
--------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL
Yfirvídd: 80/88 – 92/100 – 110/118 cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
150-150-200 gr litur nr 3770, dökk bleikur
150-150-200 gr litur nr 2925, dökk appelsínugulur
150-150-200 gr litur nr 3900, tómatrauður
150-150-200 gr litur nr 3800, bleikur
150-150-200 gr litur nr 6736, bláfjólublár

DROPS HEKLUNÁL nr 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 tbst á breiddina verði 5½ v með tbst á hæðina með tveimur þráðum verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14850.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

RENDUR:
Heklið 1 umf með hverri litasamsetningu þannig:.
2 þræðir 2925
1 þráður 3770 + 1 þráður 2925
2 þræðir 3770
1 þráður 3770 + 1 þráður 3900
2 þræðir 3900
1 þráður 3900 + 1 þráður 6736
2 þræðir 6736
1 þráður 6736 + 1 þráður 3800
2 þræðir 3800
1 þráður 3800 + 1 þráður 3770

Heklið nú 1 umf með hverri litasamsetningu og endurtakið þannig:

2 þræðir 3770
1 þráður 3770 + 1 þráður 2925
2 þræðir 2925
1 þráður 2925 + 1 þráður 3900
2 þræðir 3900
1 þráður 3900 + 1 þráður 6736
2 þræðir 6736
1 þráður 6736 + 1 þráður 3800
2 þræðir 3800
1 þráður 3800 + 1 þráður 3770

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsti tbst í hverri umf er skipt út fyrir 4 ll.

ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki):
Fækkið lykkjum þannig: Heklið tbst þar til 3 tbst eru eftir, * í þann fyrsta af þessum er heklaður 1 st, í næsta 1 hst og í þann síðasta 1 fl, snúið með 1 ll, hoppið yfir fl, heklið 1 kl í hst og 1 kl í st, síðan 1 fl í fyrsta tbst, 1 hst í næsta tbst og 1 st í næsta tbst, heklið tbst þar til 3 tbst eru eftir í lok umf * , endurtakið frá *-* þar til heklaðar hafa verið alls 6-8-12 umf.

ÚRTAKA-2 (á við um ermi):
Fækkið lykkjum í byrjun umf með því að hekla kl yfir þann tbst sem fækka á.
Fækkið lykkjum í lok umf með því að hekla þar til eftir er einn tbst, snúið stykkinu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan með 2 þráðum af Alpaca og RENDUR – sjá útskýringu að ofan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 8 ll með heklunál nr 5 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1:
Heklið 16 tbst hringinn. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 2:
Heklið 2 tbst í hvern tbst = 32 tbst.
UMFERÐ 3:
Heklið 1 tbst, í næsta tbst, 2 tbst í næsta tbst *, endurtakið frá *-* um hringinn = 48 tbst.
UMFERÐ 4:
* Heklið 1 tbst í hvorn af næstu 2 tbst, 2 tbst í næsta tbst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 64 tbst.
UMFERÐ 5:
* Heklið 1 tbst í hvern af næstu 3 tbst, 2 tbst í næsta tbst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 80 tbst.
UMFERÐ 6:
* Heklið 1 tbst í hvern af næstu 4 tbst, 2 tbst í næsta tbst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 96 tbst.
UMFERÐ 7:
* Heklið 1 tbst í hvern af næstu 5 tbst, 2 tbst í næsta tbst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 112 tbst.
UMFERÐ 8:
* Heklið 1 tbst í hvern af næstu 6 tbst, 2 tbst í næsta tbst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 128 tbst.
UMFERÐ 9:
* Heklið 1 tbst í hvern af næstu 7 tbst, 2 tbst í næsta tbst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 144 tbst.
UMFERÐ 10:
* Heklið 1 tbst í hvern af næstu 8 tbst, 2 tbst í næsta tbst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 160 tbst.
UMFERÐ 11:
* Heklið 1 tbst í hvern af næstu 9 tbst, 2 tbst í næsta tbst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 176 tbst.
UMFERÐ 12: Heklið 1 tbst í hvern tbst, en í 16 hvern tbst eru heklaðir 2 tbst = 187 tbst.
Stykkið mælist nú ca 20 cm frá miðju og út.

STÆRÐ S/M:
UMFERÐ 13:
Heklið 1 ll, síðan er hekluð 1 fl í hvern af fyrstu 45 tbst (= upp við hálsmál), heklið 30 lausar ll, hoppið yfir næstu 27 tbst (= handvegur), síðan er hekluð 1 fl í hvern af næstu 88 tbst (= niðri við bak), heklið 30 lausar ll, hoppið yfir næstu 27 tbst (= handvegur) og festið með 1 kl í fyrstu fl í umf.
UMFERÐ 14:
Heklið 1 tbst í hverja fl – en aukið út 2 tbst jafnt yfir þær fyrstu 45 fl (= 47 tbst), síðan eru heklaðir 30 tbst í loftlykkju umf yfir handveg, heklið 1 tbst í hverja fl – en aukið út um 3 tbst jafnt yfir neðstu 88 fl (= 91 tbst), heklið 30 tbst í loftlykkju umf yfir handveg, festið með 1 kl í 4. ll = 198 tbst.
UMFERÐ 15 til 23:
Haldið áfram með tbst – jafnframt sem aukið er út um 6 tbst jafnt yfir í hverri umf. Eftir umf 23 eru 252 tbst í umf og stykkið mælist nú ca 42 cm frá miðju og út.
Heklið nú einungis yfir 87 tbst í hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki er lengur heklað yfir 39 tbst efst við hnakka og 39 tbst neðst á baki. Klippið frá.
Haldið áfram frá útskýringu á vinstra framstykki að neðan.

STÆRÐ L/XL:
UMFERÐ 13:
Heklið 1 tbst í hvern tbst, en í 17. hvern tbst eru heklaðir 2 tbst = 198 tbst.
UMFERÐ 14:
Heklið 1 ll, síðan er hekluð 1 fl í hvern af fyrstu 50 tbst (= upp við hálsmál), heklið 32 lausar ll, hoppið yfir næstu 29 tbst (= handvegur), síðan er hekluð 1 fl í hvern af næstu 90 tbst (= niðri við bak), heklið 32 lausar ll, hoppið yfir næstu 29 tbst (= handvegur) og festið með 1 kl í fyrstu fl í umf.
UMFERÐ 15:
Heklið 1 tbst í hverja fl – en aukið út 3 tbst jafnt yfir þær fyrstu 50 fl (= 53 tbst), síðan eru heklaðir 32 tbst í loftlykkju umf yfir handveg, heklið 1 tbst í hverja fl – en aukið út um 3 tbst jafnt yfir neðstu 90 fl (= 93 tbst), heklið 32 tbst í loftlykkju umf yfir handveg, festið með 1 kl í 4. ll = 210 tbst.
UMFERÐ 16 til 24:
Haldið áfram með tbst – jafnframt er aukið út um 6 tbst jafnt yfir í hverri umf. Eftir umf 24 eru 264 tbst í umf og stykkið mælist nú ca 44 cm frá miðju og út.
Heklið nú einungis yfir 91 tbst í hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki er lengur heklað yfir 41 tbst efst við hnakka og 41 tbst neðst á baki. Klippið frá.
Haldið áfram frá útskýringu á vinstra framstykki að neðan.

STÆRÐ XXL/XXXL:
UMFERÐ 13:
Heklið 1 tbst í hvern tbst, en í 17. hvern tbst eru heklaðir 2 tbst = 198 tbst.
UMFERÐ 14:
Heklið 1 tbst í hvern tbst, en í 18. hvern tbst eru heklaðir 2 tbst = 209 tbst.
UMFERÐ 15:
Heklið 1 ll, síðan er hekluð 1 fl í hvern af fyrstu 54 tbst (= upp við hálsmál), heklið 36 lausar ll, hoppið yfir næstu 32 tbst (= handvegur), síðan er hekluð 1 fl í hvern af næstu 91 tbst (= niðri við bak), heklið 36 lausar ll, hoppið yfir næstu 32 tbst (= handvegur) og festið með 1 kl í fyrstu fl í umf.
UMFERÐ 16:
Heklið 1 tbst í hverja fl – en aukið út 2 tbst jafnt yfir þær fyrstu 54 fl (= 56 tbst), síðan eru heklaðir 36 tbst í loftlykkju umf yfir handveg, heklið 1 tbst í hverja fl – en aukið út um 3 tbst jafnt yfir neðstu 91 fl (= 94 tbst), heklið 36 tbst í loftlykkju umf yfir handveg = 222 tbst.
UMFERÐ 17 til 26:
Haldið áfram með tbst – jafnframt er aukið út um 6 tbst jafnt yfir í hverri umf. Eftir umf 26 eru 282 tbst í umf og stykkið mælist nú ca 47 cm frá miðju og út.
Heklið nú einungis yfir 95 tbst í hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki er lengur heklað yfir 46 tbst efst við hnakka og 46 tbst neðst á baki. Klippið frá.
Haldið áfram frá útskýringu á vinstra framstykki að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI – ALLAR STÆRÐIR:
= 87-91-95 tbst. Setjið 1 prjónamerki eftir 27-29-33 l inn frá hvorri hlið (= 33-33-29 l milli prjónamerkja). Heklið nú tbst fram og til baka yfir þessar l jafnframt er aukið út um 1 l við hvort prjónamerki í hverri umf (þ.e.a.s. að aukið er út um 2 l í umf, aukið út í annað hvort skipti á undan og eftir hvoru prjónamerki) og fækkið um 3 l í lokin og byrjun á hverri umf í hvorri hlið – SJÁ ÚRTAKA-1 þar til heklað hefur verið alls 6-8-12 umf fram og til baka = 63-59-47 tbst.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og vinstra framstykki yfir 87-91-95 tbst í hægri hlið.

ERMI:
Heklið fram og til baka, frá ermakúpu og niður, með 2 þráðum af Alpaca og RENDUR – sjá útskýringu að ofan.
Heklið 28-34-38 ll. Snúið og heklið 1 tbst í 5. ll frá nálinni (= 2 tbst), síðan er heklaður 1 tbst í hverja ll = 25-31-35 tbst.
UMFERÐ 2:
Heklið 4 ll, 3 tbst í fyrsta tbst, 1 tbst í hvern af næstu 23-29-33 tbst, 4 tbst í síðasta tbst = 31-37-41 tbst. Snúið.
UMFERÐ 3, 4 og 5:
Heklið 4 ll, 2 tbst í fyrsta tbst, 1 tbst í hvern tbst þar til eftir er einn tbst, 3 tbst í síðasta tbst = 43-49-53 tbst. Snúið.
UMFERÐ 6:
Heklið 4 ll, 3 tbst í fyrsta tbst, 1 tbst í hvern af næstu 41-47-51 tbst, 4 tbst í síðasta tbst = 49-55-59 tbst. Snúið. Heklið nú 1 tbst í hvern tbst, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14 cm er fækkað um 1 tbst í hvorri hlið – SJÁ ÚRTAKA-2! Endurtakið úrtöku með 7-5-5 cm millibili 5-7-7 sinnum til viðbótar = 37-39-43 tbst. Haldið áfram með 1 tbst í hvern tbst þar til ermin mælist ca 61-61-61 cm (sama í öllum stærðum vegna breiðari axla á fram- og bakstykki). Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma kant í kant, svo að saumurinn verði ekki of þykkur.
Heklið 1 umf kringum allt fram- og bakstykki og neðst niðri á ermum með 2 þráðum með síðasta lit sem heklað var með þannig: Heklið 1 kl, * 5 ll, 1 st í fyrstu ll, hoppið yfir 1 l, festið með 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 1 kl í fyrstu ll. Saumið ermar í fram- og bakstykki.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (48)

country flag Pia Sesterhenn wrote:

Hallo liebes Drops Team, mmit den Vorderteilen komme ich leider gar nicht klar: die Zunahmen und Abnahmen werden gleichzeitig gemacht ??? Über eine Hilfestellung freue ich mich sehr, da ich die Jacke sehr originell finde. Herzlichen Dank.Viele Grüße Pia Sesterhenn

04.03.2019 - 21:38

DROPS Design answered:

Liebe Frau Sesterhenn, ja genau, es wird am Anfang und am Ende jeder Reihe abgenommen - siehe ABNAHMETIPP 1- und gleichzeitg an jede Markierung zugenommen. Viel Spaß beim häkeln!

05.03.2019 - 12:02

country flag Engnath wrote:

Ist die Maschenprobe zweifädig analog dem Garnvorschlag zu erstellen? Ich möchte die Jacke mit einem einfädig mit einem Farbverkaufsgarn probieren.

03.06.2018 - 11:18

DROPS Design answered:

Liebe Frau Engnath, wenn Sie 2 Fäden Garngruppe A durch 1 Faden Garngruppe C ersetzen, dann sollen Sie die gleiche Maschenprobe haben - hier lesen Sie mehr über Garnalternativen. Viel Spaß beim häkeln!

04.06.2018 - 09:18

Jess wrote:

Can you please clarify how many pieces are needed for the sleeves? If I crochet 1 piece for each sleeve and join that piece together with one side seam, that sleeve is too small to fit into the armhole. So should I be crocheting two sleeve pieces together to make one sleeve,(so 4 sleeve pieces in total?) The armhole is way too big to crochet if only one sleeve piece done.

20.06.2016 - 10:13

DROPS Design answered:

Dear Jess, you have to crochet 2 sleeves - sleeve are worked back and forth, from cap of sleeves down to armhole then to wrist edge, then sewn tog around. You first inc for sleeve cap, then dec along "arm" it self. Happy crocheting!

20.06.2016 - 12:03

country flag Karin wrote:

Hallo, Ik heb het vest nu bijna af. Echter het lijf is wel heel anders uitgevallen alsop de foto, bij mijvalt het achter in twee wijde plooien over mijn rug. Ik heb de kleinste maat genomen, en toch valt het veel te wijd. Verandert dit zodra ik de mouwen aan zai misschien? Ook lijkt het alsof ik met het garen vooral de lichtpaarse kleur waar ik een rand van wil maken niet uitkom. Heel erg mooi patroon verder, maar zou jammer zijn als het niet goed zou vallen.

12.02.2016 - 13:45

DROPS Design answered:

Hoi Karin. Het is helaas moeilijk voor mij om in te schatten op afstand. Maar kloppen de afmetingen wel zoals op de maattekening en de stekenverhouding?

10.03.2016 - 14:20

country flag Maritza wrote:

Hello,i love your patterns,i am crocheting calypso drops 140-22,but I am confused how to start the left side,the large pattern said to count 27 sts from the side ,I marked the 41 sts top and bottom,but I do not understand from witch point I start to count the 27sts,thanks a lot

11.11.2015 - 01:48

DROPS Design answered:

Dear Maritza, the left front piece is worked over 87 sts - insert 2 markers as follows: 27 sts, insert 1 marker, 33 sts, insert 1 marker, 27 sts = 87 sts. Happy crocheting!

11.11.2015 - 09:28

country flag Annie wrote:

Hallo Ook ik ben met dit vest bezig en ik moet nu de mouw innaaien maar de mouwkop in het vest is veeeel breder dan de mouwkop van de mouw . Dit past echt niet . De mouwkop van get vest is 36 cm ongeveer en due van de mouw 18

05.08.2015 - 08:08

DROPS Design answered:

Hoi Annie. Nu weet ik niet welke maat je maakt, maar een mouwkop zal nooit precies dezelfde afmetingen hebben als het armsgat ivm de schuine randen. Het is wel - zoals altijd - heel belangrijk dat de stekenverhouding correct is, of dan kan de afmetingen verkeerd uitkomen.

05.08.2015 - 14:14

country flag Sylvia wrote:

Sorry hoor die woordspeling ook mouwloos is mouwkop

03.08.2015 - 16:15

country flag Sylvia wrote:

Hallo Mouwloos is mouwloos hoor in mijn vorige vraag

03.08.2015 - 16:13

country flag Sylvia wrote:

Hallo Alvast bedankt voor uw reactie maar ik snap het nog niet . 18 cm is toch veel te klein om als mouwkop mee te beginnen ? Je zet de mouwloos vast op het vest en dis begin je toch met 18 cm waardoor de mouwloos erg strak wordt

03.08.2015 - 15:50

DROPS Design answered:

Hoi Sylvia. Sorry, ik was een beetje snel met reageren hier. Het mouw wordt hier inderdaad van boven naar beneden gehaakt en je begint met het haken van de mouwkop heen en weer tot je 43 dstk hebt en de mouwkoop meet 14 cm, hier begin je met het minderen aan beide zijkanten tot je 37 dstk hebt. Dus mouwkop is 14 cm hoog en mouw in totaal 61 cm. Je sluit de mouwnaad tot aan het begin van de mouwkop - de mouwkop wordt in het vestje genaaid.

04.08.2015 - 14:59

country flag Sylvia wrote:

Hallo Ik kom niet uit de mouwen 28 lissen is veel te klein of moet ik per mouw 2 delen haken ?

31.07.2015 - 18:00

DROPS Design answered:

Hoi Sylvia. De lossen niet te strak haken. Je maakt na de 28 l 25 dstk, met de juiste haakstekenverhouding is de omtrek van je mouw ca 18 cm - en je gaat verder meerderen naar in totaal 49 dstk = 35 cm omtrek.

03.08.2015 - 15:02