Delilah |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð húfa, hálsklútur og fingravettlingar úr DROPS BabyAlpaca Silk með gatamynstri.
DROPS 142-3 |
||||||||||||||||
HÚFA OG HÁLSKLÚTUR: ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. HÚFA: Fitjið upp 104-112 l á hringprjóna nr 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umf slétt, prjónið nú stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stykkið mælist 4-5 cm er næsta umf er prjónuð eins og síðasta umf í A.1 = 117-126 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.2 þar til stykkið mælist 22-23 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: * Prjónið 2 l sl, 2 l br saman, takið 1 l óprjónaða, prjónið 2 l sl saman, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið 2 næstu l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 65-70 l á prjóni (skiptið yfir á sokkaprjóna þegar þörf er á). * Prjónið 2 cm sléttprjón, prjónið allar l slétt saman 2 og 2*, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 17-18 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að, festið vel. ------------------------------------------------------- HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið samanstendur af tveimur alveg eins stykkjum sem saumuð eru saman fyrir miðju í lokin. HÁLSKLÚTUR: Fitjið upp 258 l á prjóna nr 3 með Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 8 l sl, 3 l br*, endurtakið frá *-* þar til 12 l eru eftir og endið með 8 l sl og 4 kantlykkjum í GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram með stroff með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 3 cm. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l í hvorri hlið í hverri mynstureiningu með sléttu með því að allar 8 l sl eru prjónaðar (3 l br eru prjónaðar eins og áður) þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sl þar til 2 l eru eftir, prjónið 2 l sl saman. Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu, 2 sinnum til viðbótar = 120 l (öllum 8 l sl hefur fækkað niður í 2 l sl). Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br. JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er öllum 3 l br fækkað niður í 2 l br (prjónið 2 fyrstu l br saman) = 98 l. Í næstu umf frá réttu er aukið út eins og útskýrt er í síðustu umf í mynstri A.1 = 109 l. Prjónið nú MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.2 – byrjið frá röngu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur eins og áður, 2 l br, prjónið A.2 þar til 4 l eru eftir og endið á 4 kantlykkjum eins og áður. Þegar stykkið mælist ca 22 cm – passið uppá að eftir 1. eða 5. umf í mynstri – er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur eins og áður, prjónið A.3, einu sinni, prjónið nú A.4 þar til 15 l eru eftir á prjóni, endið með A.5 og síðan 4 kantlykkjum eins og áður = 77 l eftir á prjóni. Prjónið A.6 með 4 kantlykkjur í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist ca 80 cm – passið uppá að næsta umf sé frá réttu. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT sem fækkað um 5 l jafnt yfir = 72 l á prjóni. Prjónið 1 umf sl frá röngu og fellið laust af með sl frá réttu. Prjónið annað stykki á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman bæði stykkin yst í lykkjubogann meðfram affellingarkanti. Hálsklúturinn mælist ca 160 cm á lengd. ------------------------------------------------------- FINGRAVETTLINGAR: ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.7. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Til að koma í veg fyrir göt er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í næstu umferð. -------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. VINSTRI FINGRAVETTLINGUR: Fitjið upp 110-132 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umf slétt. Næsta umf er prjónuð þannig: * Prjónið 8 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* út umf. Haldið áfram með stroff þar til stroffið mælist 1 cm. Í næstu umf er fækkað um 1 l í hvorri hlið í hverri sléttri mynstureiningu með því að allar 8 l sl eru prjónaðar(3 l br eru prjónaðar eins og áður) þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sl þar til 2 l eru eftir, prjónið 2 l sl saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf, 2 sinnum til viðbótar = 50-60 l (öllum 8 l sl hefur fækkað niður í 2 l sl). Prjónið 1 umf sl yfir sl og br yfir br. Í næstu umf eru öllum 3 l br fækkað niður í 2 l br (prjónið 2 fyrstu l br saman) = 40-48 l. Prjónið 1 umf sl yfir sl og br yfir br, aukið út eins og útskýrt er í síðustu umf í mynstri A.1= 45-54 l. Prjónið nú MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.2. Þegar stykkið mælist 6-7 cm – passið uppá að eftir 2., 6., 10. eða 14. umf í mynstri, er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 3 l jafnt yfir í stærð S/M (ekki er aukið út í stærð M/L) = 48-54 l. Setjið 1 prjónamerki í 12.-13. l í umf – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Þegar stykkið mælist 2 cm byrjar útaukning fyrir þumal. Aukið út um 1 l hvoru megin við næst síðustu l í umf (þ.e.a.s. innan í lófa) – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu hvoru megin við útauknu l í 3. hverri umf, 4-5 sinnum til viðbótar = 11-13 þumallykkjur og 58-66 l alls. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm er prjónað MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.7 á handarbaki (l með prjónamerki eiga að passa á móti l merktum með ör og stjörnu í mynstri). Þegar A.7 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina (endið við ör fyrir þína stærð), haldið áfram í sléttprjón hringinn yfir allar l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-7 cm eru þumallykkjur + 1 l í hvorri hlið (= 13-15 l) settar á þráð. Fitjið upp 3 nýjar l fyrir aftan þumal = 48-54 l. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn þar til stykkið mælist 10-11 cm. Setjið fyrstu 19-21 l af handarbaki á þráð, haldið eftir næstu 11-12 l á prjóni og setjið síðustu 18-21 l frá lófa á annan þráð. LITLIFINGUR: = 11-12 l, fitjið upp 1 nýja l í vikið l af þræði = 12-13 l. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 5½ -6½ cm, prjónið nú allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið. LÓFI: Setjið til baka l af þræði á prjón, prjónið að auki upp 2 l í vikið við litlafingur = 39-44 l. Prjónið 2 umf hringinn í sléttprjóni. Geymið 2 l sem prjónaðar voru upp í vikið við litlafingur + 6-6 l af handarbaki og 5-6 l frá lófa á prjóni. Setjið l sem eftir eru á sitt hvorn þráðinn (= 13-15 l af handarbaki og 13-15 l úr lófa). BAUGFINGUR: = 13-14 l, fitjið upp 1 nýja l í vikið l af þræði = 14-15 l. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 7-8 cm, prjónið nú allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið. LANGATÖNG: Setjið til baka 6-7 l frá hvorum þræði á prjóninn, prjónið að auki upp 2 l í vikið við baugfingur og fitjið upp 1 nýja l í vikið l af þræði = 15-17 l. Prjónið sléttprjón hringinn ca 7½-8½ cm, prjónið nú allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið. VÍSIFINGUR: Setjið til baka þær l sem eftir eru 14-16 l af þræði á prjóninn, prjónið að auki upp 2 l í vikið við löngutöng = 16-18 l. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 6½-7½ cm, prjónið nú allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið. ÞUMALL: Setjið til baka l fyrir þumal á prjóninn og prjónið að auki upp 3 l frá lófa við þumallykkjurnar = 16-18 l. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 5½-6 cm, prjónið nú allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið. HÆGRI FINGRAVETTLINGUR: Prjónið eins og sá vinstri nema spegilmynd þar sem 1 prjónamerki er sett í 37. - 42. l í umf (í stað 12.-13. l) og aukið út fyrir þumli hvoru megin við aðra l í umf í stað næst síðustu l í umf. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (28)
Mirjana wrote:
Die Maschenanzahl von 104, dh 117 nach letzter Rd von A.1, geht mit dem Muster A.2 nicht auf.
17.11.2013 - 16:28DROPS Design answered:
Liebe Mirjana, die 117 M haben Sie, nachdem Sie die Rd gestrickt haben, es ist mit dem Umschlägen. Somit geht alles auf.
18.11.2013 - 15:07Elena Regis wrote:
Grazie mille... Allora come deve essere interpretato il diagramma per il lavoro sui ferri circolari?
27.01.2013 - 21:10DROPS Design answered:
Buongiorno, il diagramma per la lavorazione in tondo va interpretato così come si vede, è come se si lavorasse sempre sul diritto del lavoro.
14.02.2013 - 12:53Elena wrote:
Qualcuna sa dirmi cosa si intende con "lavorare 1 maglia a diritto sul diritto del lavoro, 1 maglia a rovescio sul rovescio del lavoro" riferendoci ai guanti lavorati in tondo sui ferri circolari? Mi risulta non ci sia un diritto ed un rovescio del lavoro, essendo in circolare il lavoro è sempre sul diritto... Grazie per un aiuto da chi è più esperta di me...
24.01.2013 - 11:52DROPS Design answered:
Ha ragione che si lavora in tondo quindi c'è solo il diritto del lavoro, ma i diagrammi valgono anche per la sciarpa che si lavora avanti e indietro, quindi ci sarà anche il rovescio del lavoro.
27.01.2013 - 16:06Michelle wrote:
Pragtig!
21.08.2012 - 01:17Vasileia wrote:
Very very nice!!!
19.07.2012 - 19:21Karin wrote:
Freu mich schon auf die Anleitung, ein super Set.
16.07.2012 - 16:26Angelika wrote:
Ein besonders hübsches Ensemble! Ich warte schon ganz ungeduldig auf die Anleitung...
08.07.2012 - 21:19Ginette wrote:
Vind deze heel mooi, hoop dat die op de site komt
05.07.2012 - 13:27Le Corre wrote:
Ensemble très classe superbe
29.06.2012 - 07:22Susan wrote:
Heel mooi! Moet echt gepubliceerd worden, die wil ik maken.
27.06.2012 - 12:44