Autumn Aurora |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónuðu poncho, húfu og handstúkum úr DROPS Alpaca með með Fair-isle mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 143-28 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðanfrá og upp. Byrjun umferðar = miðja að aftan. PONCHO: Fitjið upp 460-495-535-570-605-640 l á hringprjóna nr 2,5 með litnum brúnn. Prjónið 2 umf stroff (= 2 l sl, 3 l br). Skiptið yfir í litinn dökk brúnn og haldið áfram með stroff. Þegar stoffið mælist 2 cm er önnur hver 3 l br fækkuð í 2 l br = 414-445-481-513-544-576 l. Þegar stroffið mælist 4 cm eru 3 hver l br sem eftir er fækkuð í 2 l br = 368-396-428-456-484-512 l. Þegar stroffið mælist 5 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 56-60-68-72-76-80 l jafnt yfir = 312-336-360-384-408-432 l. Prjónið nú eftir mynstri A.1 (= 13-14-15-16-17-18 mynstureiningar hringinn). Þegar stykkið mælist ca 8-10-12-14-16-18 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina – prjónið A.2. Eftir A.2 eru 156-168-180-192-204-216 l á prjóni og stykkið mælist ca 29-31-33-35-37-39 cm. Prjónið 1 umf slétt með litnum brúnn JAFNFRAMT er fækkað um 24-25-26-27-28-29 l jafnt yfir = 132-143-154-165-176-187 l. Prjónið A.3. Eftir A.3 eru 120-130-140-150-160-170 l eftir á prjóni og stykkið mælist ca 31-33-35-37-39-41 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og litinn dökk brúnn og prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN hringinn – sjáið útskýringu að ofan. Nú er sett 1 prjónamerki við miðju að framan. Byrjið við miðju að aftan og prjónið þar til 15-17-19-19-20-21 l eru eftir fyrir prjónamerki JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-3-4-6-8 l jafnt yfir þessar 45-48-51-56-60-64 l, fellið af næstu 30-34-38-38-40-42 l (þ.e.a.s 15-17-19-19-20-21 l hvoru megin við prjónamerki að framan) og prjónið síðustu 45-48-51-56-60-64 l í umf (þ.e.a.s. við miðju að aftan) JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-3-4-6-8 l jafnt yfir allar þessar l = 84-90-96-104-108-112 l eftir á prjóni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Nú er prjónaður kantur í hálsmáli eða ”hálsklútur” hvoru megin við opið að framan (hálsklúturinn er saumaður saman við miðju að aftan í lokin) þannig: Fitjið LAUST upp 90-94-96-98-102-104 l á hringprjóna nr 2,5 með litnum dökk brúnn, prjónið þær 84-90-96-104-108-112 l sem eru á prjóni, fitjið síðan LAUST upp 90-94-96-98-102-104 nýjar l í lok umf = 264-278-288-300-312-320 l. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, þar til kantur í hálsi mælist 10-10-11-11-12-12 cm. Nú eru prjónaðar stuttar umferðir svo að kanturinn verði hærri að aftan í hnakka þannig: Prjónið 92-98-96-101-101-104 l, setjið þessar l á þráð, prjónið út umf, snúið við og prjónið 92-98-96-101-101-104 l, setjið þessar l á þráð, prjónið út umf, snúið við og prjónið 6 l, setjið þessar l á þráð, prjónið út umf, snúið við, prjónið 6 l, setjið þær l á þráð og prjónið út umf. Haldið svona áfram með því að setja fyrstu 6 l sem prjónaðar eru í hvorri hlið á þráð þar til 20-22-24-26-26-28 l eru eftir á prjóni við miðju að aftan, prjónið út umf. Nú eru l af þræði settar til baka á prjóninn og haldið er áfram í garðaprjón fram og til baka yfir allar l þar til kantur í hálsmáli mælist ca 12-12-13-13-14-14 cm þar sem hann er þynnstur (þ.e.a.s. lengst út í hvorri hlið). Fellið nú mjög laust af. Setjið báða ”hálsklútana” í kross við miðju að framan, yfir axlir og að miðju að aftan svo að stuttu hliðarnar mætast við miðju að aftan. Saumið stuttu hliðarnar saman kant í kant yst í lykkjubogann. Hálsmálið liggur nú mjúkt í kringum opið á poncho. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna / sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið upp 120-128 l á hringprjóna nr 2,5 með litnum brúnn. Prjónið 2 umf stroff (= 2 l sl, 2 l br). Skiptið yfir í litinn dökk brúnn og haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT sem aukið er út um 24-28 l jafnt yfir = 144-156 l. Nú er prjónað MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 (= 12-13 mynstureiningar hringinn). Eftir A.4 er prjónað með litnum dökk brúnn til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20-21 cm (A.4 á nú að vera lokið), setjið 12 prjónamerki í húfuna með 12-13 l milli prjónamerkja. Í næstu umf er fækkað um 1 l á eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 l sl saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf, 5 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umf alls 4-5 sinnum = 24-24 l eftir á prjóni. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og festið vel. Húfan mælist ca 24-26 cm á hæðina. DÚSKUR: Gerið þéttan dúsk með litnum brúnn og litnum dökk brúnn, ca 3-4 cm að þvermáli. Saumið dúskinn niður efst á húfuna. ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI HANDSTÚKA: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA! Fitjið laust upp 64 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum brúnn. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stoffið mælist 3 cm er skipt yfir í litinn dökk brúnn, haldið áfram með stroff. Nú þegar stroffið mælist 5 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 10 l jafnt yfir = 54 l. Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.5 (= 4½ mynstureiningar í umf) JAFNFRAMT í umf 3 í A.5 eru settar fyrstu 12 l í umf á þráð fyrir op fyrir þumal (eftir að þær hafa verið prjónaðar) og fitjið upp 12 nýjar l yfir þráðinn í næstu umf = 54 l. Haldið áfram með mynstur hringinn. Í hverri umf merktri með ör í mynstri er aukið út um 6 l jafnt yfir = 60 l. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið 1 umf slétt með litnum dökk brúnn JAFNFRAMT er aukið út um 12 l jafnt yfir = 72 l. Prjónið nú stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 2 cm er skipt yfir í litinn brúnn. Prjónið 1 umf stroff og fellið síðan laust af með sl yfir sl og br yfir br. Handstúkan mælist ca 30 cm á lengdina. ÞUMALL: Setjið þær 12 l af þræði aftur á sokkaprjóna nr 2,5 og prjónið upp 12 nýjar l hringinn í kringum opið á þumli með litnum dökk brúnn = 24 l. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) hringinn þar til þumallinn mælist 2 cm. Skiptið yfir í litninn brúnn, prjónið 1 umf stroff og fellið síðan laust af með sl yfir sl og br yfir br. VINSTRI HANDSTÚKA: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri handstúka, en setjið 12 síðustu l í umf á þráð fyrir þumal (í stað fyrstu 12 l í umf). |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (17)
Dina wrote:
I hope winter comes soon!
22.06.2012 - 18:27Helena wrote:
Snygg färgkombination som passar bra till hösten och snabbstickat mönster
19.06.2012 - 14:16Agnes wrote:
Härlig färgkombination
09.06.2012 - 09:29Tina wrote:
Very pretty pattern but it seems rather tight? I would prefer to have a little more width or maye a sweater with the same pattern insted. great to have matching sleeve warmers and beanie!
03.06.2012 - 11:01Janet wrote:
Great colour scheme, but please provide a yoked sweater pattern as well. The shoulder wrap isn't very practical.
01.06.2012 - 22:30Brustle wrote:
Un ensemble de toute beauté, il fera un hiver chaud et doux à la fois
01.06.2012 - 08:38Ine wrote:
Deze ga ik zeker breien!
31.05.2012 - 22:38